Morgunblaðið - 06.04.1990, Page 1
72 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
81. tbl. 78. árg.
FOSTUDAGUR 6. APRIL 1990
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Aldursforseti setur nýkjörið þing Austur-Þýskalands:
„Þrengingum síðustu 40
ára lokið á þessarí stundu“
Austur-Berlín, Bonn. Reuter, dpa.
AUSTUR-þýska þingið kom saman í gær til síns fyrsta fundar
eftir frjálsar kosningar í landinu og var þar með bundinn formleg-
ur endi á 40 ára stjórn kommúnista í landinu. Var Iæknirinn Sab-
ine Bergmann-Pohl, þingmaður kristilegra demókrata, kosinn
þingforseti og fer hún einnig með embætti þjóðhöfðingja þar til
forseti hefur verið kjörinn. „Þrengingum síðustu 40 ára er lokið
á þessari stundu,“ sagði Lothar Piche, aldursforseti þingsins, þeg-
ar hann setti það við mikil fagnaðarlæti þingmanna. „Guð blessi
okkar þýska föðurland.11
Fyrsti fimdur lýðræðislega
kjörins þjóðþings í Austur-
Þýskalandi var haldinn í gær.
Sabine Bergmann-Pohl, ný-
kjörinn forseti þingsins, ræðir
hér við Lothar de Maiziere,
formann kristilegra demó-
krata, sem falið hefiir verið
að mynda ríkisstjórn. Konur
gegna nú embætti þingforseta
í báðum þýsku ríkjunum.
Þingið kaus Lothar de Maiziere,
fcrmann kristilegra demókrata,
sem forsætisráðherra og fól honum
að mynda fyrstu rikisstjórnina í
Austur-Þýskalandi, sem kommún-
istar ráða ekki. Er jafnvel búist
við, að samstjórn kristilegra demó-
krata, bandalagsflokka þeirra og
jafnaðarmanna taki við völdum fyr-
ir páska.
Bonn-stjórnin sagði í gær, að
viðræður við austur-þýsku stjórn-
ina um myntbandalag ríkjanna
hæfust um miðjan þennan mánuð
og væri að því stefnt, að það kæm-
ist til framkvæmda fyrir maílok.
Mikill ágreiningur er þó meðal ráð-
herranna um með hvaða kjörum
Baldvin kon-
ungur á ný
Brussel. Frá Kristófer Má Kristinssyni,
fréttaritara Morgunblaðsins.
TÆPLEGA tveggja sólarhringa
konungsleysi Belgíu lauk um
kvöldmatarleytið í gær þegar
þingið samþykkti samhljóða að
Baldvin konungur tæki aftur við
völdum en hann sagði af sér vegna
þess að hann treysti sér ekki til
að staðfesta lög um fóstureyðing-
ar.
Er þetta í fyrsta skipti sem báðar
deildir þingsins koma saman til fund-
ar síðan árið 1951 þegar Baldvin tók
við embætti af föður sínum.
Umfjöllun blaða og fjölmiðla í
Belgíu er nokkuð mismunandi en
ljóst er að meirihluti þjóðarinnar
styður málstað konungs. Stuðningur
þjóðarinnar byggist m.a. á samúð
með konungshjónunum vegna barn-
leysis þeirra.
skuli kaupa austur-þýsku mörkin
en Helmut Kohl kanslari lýsti því
yfir fyrir kosningarnar í Austur-
Þýskalandi, að þau yrðu keypt á
nafnverði, vestur-þýskt mark fyrir
austur-þýskt þótt það síðarnefnda
sé jafnvel tífalt verðminna. Theo
Waigel fjármálaráðherra og Helm-
ut Haussmann efnahagsráðherra
styðja tillögu vestur-þýska seðla-
bankans um að austur-þýska mark-
ið verði metið sem hálft vestur-
þýskt en Kohl og Hans-Dietrich
Genscher utanríkisráðherra vilja,
að staðið verði við fyrri yfirlýsingar
þrátt fyrir ótta seðlabankans við,
að það muni kaffæra a-þýsk iðnfyr-
irtæki, sem flest eru mjög skuldug.
Tii mikilla mótmæla kom í gær
í Austur-Þýskalandi þar sem skor-
að var á v-þýsku stjórnina að
standa við gefin fyrirheit um sama
verðgildi markanna.
Reuter
Litháen:
Þingið skorar á Gorbatsjov
að helja samningaviðræður
Moskvu. Reuter.
ÞING Litháens sendi Mikhail Gorbatsjov, forseta Sovétríkjanna, bréf
í gær þar sem skorað er á hann að setjast að samningaborði. Áskorun-
in þykir mildilega orðuð og þar er tekið ft-am að taka þurfi tillit tii
sovéskra og alþjóðlegra laga í samningaviðræðum.
Þing Litháens hefur alla þessa
viku þrefað um hvert skuli vera svar
Litháa við harðorðri yfirlýsingu Gor-
batsjovs um síðustu helgi þar sem
hann varaði við afleiðingum sjálf-
stæðisstefnu Litháa. í bréfi þingsins
Loka Torgi hins
himneska Mðar
Hersveitir lokuðu aðkomuleiðum
að Torgi hins himneska friðar í
Peking, höfuðborg Kína, í gær
á minningardegi um látna. Ott-
uðust yfirvöid að umbótasinnað-
ir stúdentar og verkamenn efndu
til mótmæla. Stúdentar hvöttu
fólk til að bera svarta sorgar-
borða til að minnast þúsunda
manna sem talið er að hafi fall-
ið þegar alþýðuherinn réðst
gegn umbótasinnum á Torgi
hins himneska friðar í júní í
fyrra.
Sjá „Fólkið fer að lokum
með sigur af hólmi“ á bls.
26-27.
Keuter
sem samþykkt var með 82 atkvæðum
gegn 9 er lýst yfir skilningi á því
að sjálfstæðisyfirlýsing Litháa valdi
Sovétríkjunum og forseta þeirra
áhyggjum. Þingmenn höfnuðu tillögu
um hvassyrtari yfirlýsingu þar sem
hernaðaraðgerðir Sovétmanna væru
fordæmdar. Talsmenn þingsins segja
að með hinum mildilega tóni vilji
þingmenn laða Moskvu-stjórnina að
samningaborðinu. í bréfinu er ekki
minnst á þjóðaratkvæðagreiðslu um
sjálfstæði. En það er kjarninn í nýjum
sovéskum lögum um aðskilnað að
2/3 kjósenda þurfi að vera honum
samþykkir. Hins vegar segir að þing-
ið sé reiðubúið að ræða „anda og
bókstaf* laga, sem samþykkt hafa
verið undanfarnar vikur, með tilliti
til stjórnarskrár Sovétríkjanna og
alþjóðalaga.
Fimmtíu sovéskir hermenn rudd-
ust í gær inn í skrifstofur saksókn-
ara í Vilnius og ráku allt skrifstofu-
fólk út. Sovéskir hermenn höfðu
hreiðrað um sig fyrir utan byggingu
saksóknara í síðustu viku en ekki
skipt sér af starfsemi þar að öðru
leyti. Þá var Alturas Paulauskas,
saksóknara Litháens, einnig vikið frá
og í hans stað settur saksóknari hlið-
hollur Moskvustjórninni. Sovéska
öryggislögreglan KGB hefur hert
eftirlit með skipaferðum undan_
strönd Litháens til að koma í veg
fyrir samskipti útlendinga við Litháa.
Gorbatsjov og
Bush hittast í maí:
„Litháen eyk-
ur mikilvægi
fundarins“
Washington. Reuter.
ÁKVEÐIÐ hefur verið að
halda leiðtogafund George
Bush Bandaríkjaforseta og
Míkhaíls Gorbatsjovs, forseta
Sovétríkjanna, í Bandaríkjun-
um 30. maí til 3. júní næstkom-
andi. Búist er við að fundurinn
verði haldinn í Washington.
Leiðtogafundurinn í sumar
verður annar fundur forsetanna.
Þeir hittust á Möltu í desember
síðastliðnum. Marlin Fitzwater,
talsmaður Bandaríkjastjórnar,
sagði í gær að þótt afvopnunar-
samkomulag væri æskilegt væri
það ekki skilyrði fyrir því að
fundurinn yrði haldinn. Hann
taldi víst að málefni Litháens
yrðu rædd og „eykur það mikil-
vægi fundarins“.