Morgunblaðið - 06.04.1990, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1990
félk f
fréttum
AFMÆLISVEISLA
Eiginkonan glödd
með Islandsferð
áhugaljósmYndarans
€1 Manfrotto
Þnfætur
fyrirmyndavélar og
videoupptökuvélar
i BARONSTIG 18
ZUl 101REYKJAVÍK
..OÍí ■ ■ //^a\nrt
SÍMI (91)23411
COSPER
W Ucadcrs
Hópurinn sem kom hingað til að halda upp á afmæli Elizabeth Fisher. Sitjandi í fremri röð eru Leon-
ard Marks, fyrrum yfirmaður USIA, upplýsingaþjónustu Bandaríkjanna, Zakhary Fisher, eigandi In-
trepid-safnsins, og afmælisbarnið Elizabeth Fisher. í aftari röðinni eru tafið frá vinstri frú Marks, Will-
iam Crovello, stjúpsonur Fishers og þekktur myndhöggvari, frú Crovello, Herbert J. Steefef, Garnett
Stackelberg, barónessa og dálkahöfundur fyrir Palm Beach Life, Lousie Steefel, Ymelda Dixon, fyrrum
dálkahöfundur fyrir Washington Star, frú Daly, dóttir Earls Warrens, fyrrum forseta Hæstaréttar Banda-
rikjanna, og John Daly, fyrrum yfirmaður Voice of America.
The Man Who
Bought an Aircraft
Carrier
Þrílitir 9. kt. hringar kr. 2.500.- 4.500.-
Stafahálsmen 14. kt. demant
1. punktur kr. 2.100.- án festi.
Jön Slpunisson
Sknrfppoverzlan
LAUGAVEG 5 - 101 REYKJAVÍK
SÍMI 13383
Tólf manna hópur frá Banda-
ríkjunum kom hingað til lands
í síðustu viku. í sjáifu sér ekkert
óvenjulegt við það. Það óvenjulega
er að hópurinn kom hingað fljúg-
andi í einkaþotu og til helgardvalar
gagngert til að halda upp á afmæli
einnar konu í hópnum. Hún heitir
Elizabeth og er eiginkona Zakhaiy
Fisher, bandarísks athafnamanns
og eiganda Intrepid-safnsins í New
York. Safnið er kennt við flugmóð-
urskipið Intrepid sem er aðal „sýn-
ingargripur" safnsins. Þau hjónin
- hafa haft það að venju að bjóða
þessum hópi með sér í ferðaiag
þegar annað hvort þeirra á afmæli
og varð Island fyrir valinu í þetta
skipti.
Hópurinn kom til landsins síðasta
föstudag og hélt aftur til Banda-
ríkjanna á sunnudag. Ráðgert var
að dvelja á íslandi til mánudags en
vegna mikilvægs fundar, sem boð-
. aður var fyrirvaralítið, þurfti Fisher
að fara heim degi fyrr. Á meðan á
Islandsheimsókninni stóð var meðal
annars farið í skoðunarferð út á
land og um Reykjavík, aðstaða
varnarliðsins á Keflavíkuflugvelli
var skoðuð, sótt boð hjá sendiherra
Bandaríkjanna á íslandi og að sjálf-
sögðu haldin vegleg afmælisveisla
til heiðurs Elizabeth Fisher á laug-
ardagskvöldið. Voru þau Vigdís
Finnbogadóttir, forseti Islands, og
Steingrímur Hermannsson forsæt-
isráðherra meðal gesta.
Zakhary Fisher fæddist árið
1910. Hann hætti í skóla sextán
ára gamall til að aðstoða föður sinn
og bræður í byggingarfyrirtæki
fjölskyldunnar. Eftir árás Japana á
Pearl Harbour reyndi hann að kom-
ast í herinn en var hafnað af heilsu-
farsástæðum. Nokkrum árum áður
hafði hann lent í vinnuslysi og
skaddast illa á hné. í stað þess að
þjóna sem hermaður vann hann á
stríðsárunum í verkfræðingadeild
flotans við að byggja varnarmann-
virki. Eftir stríð hélt hann tengslun-
um við flotann og styrkti meðal
annars"samtök uppgjafarhermanna
fjárhagslega samhliða því að reka
mjög umsvifamikið byggingarfyrir-
tæki.
Þekktastur er Zakhary Fisher
samt fyrir að hafa komið Intrepid-
safninu í New York á laggirnar.
Intrepid var eitt þekktasta flugmóð-
urskip bandaríska flotans í síðari
heimsstyijöldinni og tók meðal ann-
ars þátt í að sökkva Muhashi, öðru
af tveimur stærstu herskipum Jap-
ana. Skipið sökkti eða skemmdi þar
að auki 289 óvinaskip til viðbótar
og flugvélar skipsins skutu niður
rúmlega 600 óvinavélar. Síðar þjón-
aði skipið í Víetnamstríðinu og var
einnig gestgjafaskip flotans þegar
haldið var upp á tvö hundruð ára
—Ég ætla að taka höfuðleðrið af litla bróður, þegar hann
er kominn með hár.
sjálfstæði Bandaríkjanna í Fíla-
delfíu.
Árið 1976 var tekin ákvörðun
um að leggja Intrepid þar sem það
stóðst ekki lengur þær tæknilegu
kröfur sem gerðar voru til flugmóð-
urskipa. Rithöfundurinn Larry
Sowinski, sem halda vildi uppi
minningu skipsins, sem 300 banda-
rískir sjóliðar höfðu látið Iífið á,
skýrði örlög Intrepid fyrir nokkrum
athafnamönnum á fundi árið 1978
og kynnti þeim þá hugmynd sína
að skipinu mætti breyta í flotasafn.
Einn þessara manna var Zakhaiy
Fisher. Eftir heimsókn í skipið þar
sem það var bundið í höfninni í
Fíladelfíu ákvað hann að bjarga
Intrepid. Honum tókst að beija
málið í gegn eftir baráttu við kerf-
ið og borgaryfirvöld í New York
fengu skipinu stað við Hudson-fljó-
tið. Var safnið opnað í ágústmán-
uði 1982. Þetta var rándýr fram-
kvæmd fyrir Fisher og þurfti hann
að leggja ómælt fé í að koma safn-
inu upp og halda því gangandi
fyrstu árin. Hann reyndist hafa
fjárhagslegt bolmagn til þess enda
telur viðskiptatímaritið Forbes að
hann sé meðal 400 auðugustu
manna Bandaríkjanna.
Zakhary Fisher segir íslands-
ferðina vera hreina skemmtiferð.
„Þegar ég eða konan mín eigum
afmæli býð ég ávallt þessum hópi
í ferðalag. Ferðinni hefur hingað
til oftast verið heitið til Evrópu og
Zakhary og Elizabeth Fisher við komuna til landsins ásamt Leonard
Marks.
COSPER
sæmt Fisher heiðurstigninni aðmír-
áll sem þökk fyrir störf hans. Intre-
pid-safnið heimsækja nú 700-
800.000 gestir árlega en þar eru
auk flugmóðurskipsins kafbátur og
orrustuskip til sýnis.
Einn gestanna í hópnum sem
kom hingað með Fisher var John
Daly, sem er þekktur sjónvarps-
maður í Bandaríkjunum og fyrnim
yfirmaður Voice of America. Hann
sagði að þetta væri í stórum drátt-
um sami hópurinn sem færi í þess-
ar ferðir og hafi á síðasta ári verið
farið til Veróna á Ítalíu. „Það eru
núna tvær vikur síðan Fisher
hringdi í mig og sagði að komið
væri að því aftur. Ferðinni væri
heitið til Islands. Þetta fannst mér
mjög ánægjulegt. Ég kom tvisvar
til Islands sem fréttamaður á
stríðsárunum, vann þá fyrir CBS,
en hef ekki komið hingað síðan.
Það er því ekki hægt að segja að
ég þekki vel til landsins. Mig hefur
þó lengi langað til að sjá hvernig
umhorfs er í Reykjavík í dag.“ Þeg-
ar Daly var spurður hvernig honum
fyndist að sjá Reykjavík aftur sagði
hann umskiptin vera mjög mikil.
Reykjavík væri nú orðin að nútíma-
borg líkt og væri að finna annars
staðar á Vesturlöndum. Daly sagði
að hann hefði á sínum tíma þurft
að vera nokkurn tima í Las Vegas
vegna kjarnorkuvopnatilrauna sem
þá var verið að framkvæma í
Nevadafylki. Þá hefði einungis ver-
ið þar eitt hótel, Desert Inn, og
nokkur önnur í byggingu. Þetta
hefði bara verið lítill bær í miðri
eyðimörkinni. Allir vissu hvernig
umhorfs væri í Las Vegas í dag.
Borgin hefði tekið algjörum stakka-
skiptum. Sagði Daly muninn á
Reykjavík í dag og á stríðsárunum
vera sambærilegan.
er þetta fyrsta ferðin utan Banda-
ríkjanna sem ekki er til meginlands
Evrópu." Einn vina hans, Herbert
J. Steefel, hefur komið reglulega
til íslands undanfarin tuttugu ár
vegna vinatengsla og hafa vinir
hans hér séð um að skipuleggja
heimsóknina. „Við erum mjög
spennt vegna þessarar ferðar. Það
fyrsta sem Bandaríkjamönnum
dettur í hug þegar þú segist vera
að fara til Islands er margra stiga
frost og síðan spyija þeir „af hveiju
í ósköpunum?““
Fisher segir tengsl sín við flotann
líka hafa ráðið miklu um að ísland
varð fyrir valinu. Hann hafí haft
mikinn áhuga á að skoða varnar-
stöðina á Keflavíkurflugvelli. Þess
má geta að bandaríski flotinn hefur