Morgunblaðið - 06.04.1990, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1990
55
KÖRFUKNATTLEIKUR / ÚRSLITAKEPPNIN
Núættiaðvera
óhætt að rýma til
í bikarasafni KR!
ÍBK-KR 71:75
Iþróttahúsið Keflavík, íslandsmótið í
körfuknattleik, úrslit um íslandsmeist-
aratitilinn — 2. leikur — fimmtudaginn
5. april 1990 (1. leikur. KR-ÍBK 81:72).
Ganpur leiksins: 0:2, 2:2, 2:13, 16:19,
13:28, 19:32, 28:34, 29:39, 36:39,
40:44, 40:48, 44:56, 54:61, 60:68,
66:68, 71:73, 71:75.
Stig ÍBK: Magnús Guðfinnsson 14_
Sandy Anderson 13, Nökkvi M. Jóns-
son 10, Sigutður Ingimundarson 10,
Guðjón Skúlason 8, Falur Harðarson
8, Einar Einarsson 4, Ingólfur Haralds-
son 2, Júlíus Friðriksson 2.
Stig KR: Anatólíj Kovtoúm 23, Guðni
Guðnason 17, Páll Kolbeinsson 13,
Birgir Mikaelsson 9, Matthías Einars-
son 9, Axel Nikulásson 4.
Dómarar: Leifur S. Garðarsson og
Kristján Möller.
Áhorfendur: Um 900.
GUÐNI Guðnason, fyrirliði KR,
var að vonum ánægður eftir
75:71 sigur gegn ÍBK í öðrum
leik úrslitakeppninnar í körfu-
knattleik, sem fram fór í gær-
kvöldi. „Það kom mér á óvart
hvað stemmningin var Iftil hér
í Keflavík, bæði hjá leikmönn-
um og áhorfendum. Ég fann
strax fyrir þessu þegar ég kom
inn í húsið. Við höfum ekki sigr-
að í Keflavík í f imm ár og sigur-
inn var enn sætari fyrir vikið.
Við lékum betur en Keflvíking-
ar, en kannski var það vatnið,
sem gerði gæfumuninn," sagði
fyrirliðinn við Morgunblaðið,
en KR-ingar tóku með sér vatn
úr Vesturbænum í Reyjavík,
vegna þess að þeim fellur ekki
vatnið í Keflavík.
Sigur KR-inga var verðskuldað-
ur. Þeir settu Keflvíkinga al-
veg út af laginu þegar í byrjun með
mjög góðum leik og náðu fljótlega
stiga forystu,
Bjöm 13:2. Keflvíkingar
Blöndal trúðu vart eigin
skrifar augum, voru ger-
samlega úti á þekju.
Þeir náðu reyndar að minnka mun-
inn í eitt stig, 41:40, en Páll Kol-
beinsson svaraði með glæsilegri
þriggja stig körfu alveg í lok fyrri
hálfleiks.
KR-ingar héldu fengnum hlut
eftir hlé og það var fyrst alveg
undir lokin að heimamenn virtust
eiga möguleika á að klóra í bakk-
ann. Það tókst þeim hins vegar
ekki og reyndar hefði það verið
mjög ósanngjarnt, ef þeir hefðu
stolið sigrinum enn einu sinni á
síðustu stundu.
„KR-ingar voru betri og áttu
skilið að sigra. Við vorum slakir og
náðum aldrei að sýna okkar réttu
hliðar, en erum staðráðnir í að gera
betur á laugardag. Þá verður um
líf eða dauða að tefla,“ sagði Guð-
jón Skúlason, fyrirliði ÍBK, eftir
leikinn.
Byijunarlið KR lék vel. Anatólíj
Kovtoúm var geysilega góður í fyrri
hálfleik og skoraði þá 15 stig. Guðni
Guðnason var sömuleiðis öflugur
og skoraði 13 stig fyrir hlé. Páll
Kolbeinsson spilaði vel, en Keflvík-
ingar lögðu allt kapp á að gæta
hans og þá losnaði um samheijana.
Páll fékk sína fjórðu villu snemma
í seinni hálfleik og hvíldi því um
stund, en KR-ingar létu það ekki á
sig fá. Matthías Einarsson og Birg-
ir Mikaelsson skoruðu mikilvæg stig
og þá var Axel Nikulásson mikil-
vægur hlekkur sem fyrr.
Keflvíkingar voru slappir. Þeir
áttu reyndar ljósa punkta, en duttu
alveg niður á milli. Þetta var ekki
þeirra dagur.
Morgunblaöið/Einar Falur
Guðni Guðnason lék mjög vel í gærkvöldi. Guðni skorar hér án þess að Magnús Guðfinnsson nái að stöðva hann.
Á innfelldu myndinni fagna sigrinum þeir Anatolíj Kovtoúm (t.v.) sem lék frábærlega, einkum í fyrri hálfleik, og Birg-
ir Mikaelsson sem skoraði mikilvæg stig.
ÍBK Skot Fráköst só./vö. Bolta tapað Bolta náð Stoð- sending
Innan teigs Utan teigs 3ja stiga %
Falur Harðarson 2/1 2/0 3/2 43 0/1 2 i i
Sig. Ingimundai'son 4/3 5/2 0 56 0/0 1 4 0
Sandy Anderson 6/4 3/1 0 56 2/10 4 0 1
Kristinn Friðriksson 1/0
Ingólfur Haraldson 3/1 0 0 33 1/1 1 0 0
Einar Einarsson 2/1 1/0 0 33 2/0 0 2 1
Magnús Guðfinnsson 9/5 2/1 0 55 4/2 4 2 0
Guðjón Skúlason 1/0 7/1 6/2 21 0/1 3 2 0
Nökkvi Már Jónsson 6/3 2/1 0 50 1/3 2 0 0
Júlíus Friðriksson 1/1 0 0 100 1/0 1 0 0
KR Skot Práköst vö./só. Bolta tapað Bolta náð Stoð- sending
Innan teigs Utan teigs 3ja stiga %
Páll Kolbeinsson 4/3 i/i 3/1 62,5 1/5 7 5 2
Anatolíj Kovtoúm 8/6 4/2 2/2 71 5/5 4 3 1
Guðni Guðnason 5/4 9/3 0 50 1/3 3 2 0
Axel Nikulásson 3/2 1/0 0 50 2/2 5 0 0
BirgirMikaelsson 5/2 5/1 1/1 36 1/2 1 2 0
Matthías Einarsson 2/2 2/1 2/1 67 2/2 4 1 2
Hörður G. Gunnarsson 0 0 0 0 0 0 0 0
Lárus Ámason 0 0 0 0 0/0 2 0 0
Böðvar Guðjónsson 1/1 1/0 1/0 33 0 0 0 0
Þorbjöm Njálsson
■ FERNANDO Hierro hjá Real
Madrid var vikið af velli skömmu
fyrir hálfleik í viðureign Real
Madrid og Barcelona i úrslitum
spænsku bikarkeppninnar í knatt-
spyrnu í gærkvöldi. Það gerði gæfu-
muninn og Barcelona vann 2:0.
■ GUILLERMO Amor gerði
fyrra markið með skalla af stuttu
færi á 69. rnínútu. Ronald Koeman
var með eitt af sínum kunnu þrumu-
skotum langt fyrir utan teig, Pao«(p
Buyo varði en hélt ekki boltanum
og Aitor Beguiristain náði að
senda á Amor.
■ JULIO Salinas gerði seinna
markið á 92. mínútu.
■ JOHAN CruyíT var að vonum
ánægður, en þetta var 100. leikur
Barcelona undir hans stjóm. ReijA
Madrid, sem sigraði tvöfalt í fyrra
og vér meistáratitilinn í ár, hafði
ekki tapað leik í fimm mánuði.