Morgunblaðið - 06.04.1990, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1990
11
Ragna Sigurðardóttir
Fallegri en
flugeldar
Ljóðabók eftir Rögnu
Sigurðardóttur
FALLEGRI en flugeldar nefnist
nýtt safn ljóða eilir Rögnu Sig-
urðardóttur. Bókin inniheldur
nítján ljóð, ort á síðastliðnum
tveimur árum. í ljóðunum er Qali-
að um sambönd fólks við hvert
annað, veruleikann og innra Iíf á
myndrænan og næman hátt.
Fallegri en flugeldar er prentuð
í Maastricht í Hollandi þar sem
Ragna nemur við Jan van Eyck
myndlistarakademíuna og er upp-
lag bókarinnar takmarkað við eitt
hundrað eintök. Fyrstu 25 eintökin
eru tölusett og gefin út í hand-
gerðri öskju ásamt blýantsteikn-
ingu, grafíkverki og klippimynd
eftir Rögnu, en almenna útgáfan
er saumuð og bundin í hvítt.
Ragna Sigurðardóttir hefur áður
gefið út smásagnasafnið Stefnu-
mót, 1987, og ljóð eftir hana hafa
birst í samansafnsbókum og tíma-
ritum.
(Fréttatilkynning)
Ragnheiður Jónsdóttir sýnir í
Norræna húsinu.
Ragnheiður Jónsdóttir:
Sýnir í Nor-
ræna húsinu
RAGNHEIÐUR Jónsdóttir opnar
sýningu á teikningum í Norræna
húsinu á morgun, laugardaginn
7. apríl.
Ragnheiður hefur haldið tólf
einkasýningar auk þess sem hún
hefur tekið þátt í fjölda samsýninga
hér heima sem erlendis. Að þessu
sinni sýnir hún teikningar, kol á
pappír.
Sýningin er opin daglega frá kl.
14—19 og lýkur 29. apríi.
V^terkurog
O hagkvæmur
auglýsingamiðill!
■ JÓ/VGröndal, bæjarfulltrái,
varð efstur í prófkjöri Alþýðuflokks-
félags Grindavíkur sem haldið var
um helgina. Hann hlaut 181 atkvæði
í fyrsta sæti og 350 tilnefningar alls
í 1.-12. sæti. Alls kusu 406 í prófkjör-
inu en í kosningum 1986 hlaut Al-
þýðuflokkurinn 301 atkvæði. Annar
varð Kristmundur Ásmundsson,
heilsugæslulæknir, með 183 atkvæði
í 1.-2. sæti og 345 alls og Sigurður
Gunnarsson, vélstjóri, varð í þriðja
sæti með 120 atkvæði í 1.-3. sæti
og 262 alls. Röð næstu manna varð
sem hér segir, atkvæði alls í sviga:
4. Petrína Baldursdóttir, forstöðu-
maður, 157 atkv. (241), 5. Kolbrún
Björg Tobíasdóttir, húsmóðir, 178
atkv. (235), 6. Ásgeir Magnússon,
skipstjóri, 184 atkv. (232), 7. Garðar
Páll Vignisson, kennari, 147 atkv.
(186), 8. Álfheiður Hörn Guð-
mundsdóttir, verkakona, 175 atkv.
(196), 9. Fanný Þóra Erlingsdótt-
ir, starfsstúlka, 147 atkv. (166), 10.
Jósef Kristinn Olafsson, sölustjóri,
142 atkv.(155), 11. Arnór Valdi
Valdimarsson, skipstjóri, 138 atkv.
(138), 12. Árni Björn Björnssson,
veitingamaður, 134 atkv. (134). Sig-
urður Ágústsson, formaður Alþýðu-
flokksfélags Grindavíkur, sagði að
ijöldi þeirra sem kusu í prófkjörinu
væri ánægjulegur og gæfí byr undir
báða vængi. Að sögn Sigurðar mun
félagsfundur ákveða endanlega nið-
urröðun á framboðslista. Alþýðu-
flokkurinn hefur tvo bæjarfulltráa í
bæjarstjórn Grindavíkur og er í
minnihluta ásamt einum fulltrúa Al-
þýðubandalags. Magnús Ólafsson,
bæjarfulltrúi, gaf ekki kost á sér í
prófkjörið.
FÓ
HUÓNIPLÖTUMARKAÐUR
GULLALDARPOPP, SAFNGRIPIR, NÝHIETI
06 HUðMHEKI
20-70% afsláttur af sérinnfluttum hljóm-
plötum og geisladiskum með mörgum af bestu og
merkilegustu flytjendum rokksögunnar.
Rokk, metal, danstónlist, blues, jass, nýbylgja,
country, popp.
Margar sögulegar upptökur nú í fyrsta sinn
fáanlegar á geisladiskum.
Einnig bjóðum við fullkomna hljómtækjastæðu
með geislaspilara á ótrúlegu tilboðsverði,
39.800 stgr.
GULLALDARPOPP
GÆÐA „COUNTRY1
Byrds
Roy Orbinson
Dionne Warwick
Kinks
Platters
Nancy Sinatra
Little Richard
Ray Charles
Ritchie Valens
Carl Perkins
Yardbirds
James tírown
PaulAnka
Louis Prima
GÆÐA „BLÚS“
Lightning Hopkins
Slim Harpo
John Lee Hooker
Lightnin’ Slim
Bobby Bland
Big Bill Broonzy
Junior Wells
Otis Rush
Buddy Guy
Elmore James
B.B. King
Patsy Cline
Johnny Cash
NÝMETI
Pixies
Beautiful South
Erasure
■> SOwwtPMO
C3
s
SKIPHOLT 7 - SÍMI62 25 55 - 62 60 29