Morgunblaðið - 06.04.1990, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1990
Sjálfstæðisbarátta Litháa
og ríkissljórn Islands
eftir Harald
Johannessen
Frá upphafi hefur lítil reisn verið
yfir ríkisstjórn þeirra Steingríms,
Jóns og Olafs. Hún byrjaði á því
að btjótast til valda á ákaflega
óeðlilegan hátt og hefur síðan setið
með hjálp smárra flokksbrota; með
því að sveigja og teygja lög og með
ýmiss konar mútugreiðslum til fyrr-
greindra flokksbrota. Hún hefur
setið í skugga siðleysis og ný spill-
ingarmál koma svo ört upp að al-
menningur hefur ekki við að melta
ósómann. Það ótrúlegasta í þessu
„íslendingar ættu þjóða
best að hafa skilning á
mikilvægi þess fyrir
smáþjóðir að fá form-
legar viðurkenningar
með þessum hætti.“
öllu saman er þó að þessir ráða-
menn virðast telja að siðferðismat
almennings sé orðið svo brenglað
að þeir leyfa sér enn að sitja, þó
að allir sómakærir menn ættu að
hrökkva undan skömminni og bera
málin undir kjósendur.
Ástæðan fyrir því að ég sting
niður penna er þó ekki sú að ég
ætli að hneykslast almennt á ríkis-
stjórninni, heldur vildi ég taka mál-
stað Litháa og hvetja ríkisstjórnina
til að sýna að hún hefði einhvern
dug, þó ekki væri nema aðeins í
þessu eina máli.
Evrópsk smáþjóð beitt
hervaldi
Litháar ákváðu, fyrstir þeirra
sem undanfarna áratugi hafa verið
undir hinni illræmdu stjóm í Kreml,
að halda lýðræðislegar kosningar.
Eftir að þær höfðu farið fram, lýstu
Haraldur Johannessen
þeir því yfir, að landið væri fijálst
og fullvalda ríki og skáru þannig á
fyrri tengsi við Sovétríkin. (Þess
verður þó að geta í þessu sambandi
V
AWiAJMnmm
Allt að 12 mánaða greiðslukjör
Leisurewise þrekhjólin fást á einstökum
afborgunarkjörum. Visa og Euro
korthafar geta nýtt sér raðgreiöslur og
fengið Leisurewise þrekhjól á allt að
12 mánaða afborgunum.
Leisurewise þrekhjólin eru búin ótal kostum:
• Tölvu sem mælir m. a. hjartslátt,
vegalengd og kaloríubrennslu.
• Sætið er stillanlegt, stöðugt og mjúkt.
• Átaksþyngdin er stillanleg.
• Ólar yfir ristar.
• Jöfn spyrna.
• Plastpúðar verja gólfið.
LEÍSUREWISE
PROFILE
áður 23.600,-
nú 17.900,- stgr.
Breska verslunarfélagið
Faxafeni 10- Húsi Framtíðar
108 Fteykjavík
91-82265
LEISUREWISE
1000S
áður 14.900,-
nú 9.900,- stgr.
OPIÐ LAUGARDAG OG SUNNUDAG KL. 10-16
að þeir hafa aldrei viðurkennt
landamæri Sovétríkjanna við
Eystrasalt.) Síðan þessi yfirlýsing
var gefin út hefur Litháum verið
haldið í helgreipum óttans með sí-
auknu hernaðarbrölti Sovétmanna
í og yfir landinu. Byijað var á því
að ógna þeim með „heræfingum"
en nú eru sovéskir hermenn á
hveiju strái í landinu, búnir að ráð-
ast inn í sjúkrahús auk ýmissa ann-
arra opinberra bygginga, hafa troð-
ið sínum manni í embætti saksókn-
ara, rekið erlenda fréttamenn úr
landi og svo mætti lengi telja.
Það var skoðun margra á Vest-
urlöndum, að Gorbatsjov þyrði ekki
að beita hervaldi í Eystrasaltsríkj-
unum þótt þau lýstu yfir sjálf-
stæði. Menn töldu að hann væri of
hræddur við almenningsálitið fyrir
vestan og mundi því sleppa þessum
ríkjum þegar þau færu fram á það.
Nú hefur annað komið í ljós. Her-
valdi hefur þegar verið beitt í Lithá-
en þótt mannfall hafi ekki orðið,
þar sem Litháar reyndu ekki að
veijast.
Hver skyldi svo afstaða ríkis-
stjórnar Islands vera í þessu máli?
Hún virðist ekki hafa af því miklar
áhyggjur þó farið sé með hernaði
á hendur fullvalda smáríki í Evr-
ópu. Hún hengir sig í gamlar yfir-
lýsingar frá því Island tilheyrði
Danaveldi, í stað þess að taka á
málinu af þeirri_ reisn og þeim
myndarskap sem íslendingum væri
sæmandi.
Telur rikisstjórnin ef til vill að
íslendingum þyki léttvægt hvernig
er komið fram við fámennar vina-
þjóðir, rétt eins og hún telur að
Islendingum þyki siðleysið hér inn-
anlands léttvægt? Hvað mun svo
gerast nú þegar Eistlendingar
reyna að öðlast sjálfstæði? Eða þeg-
ar Lettar fylgja á eftir? Þeir geta
líklega ekki heldur treyst á ötulan
stuðning íslensku ríkisstjórnarinn-
ar.
Krafan um formlega
viðurkenningu
Ríkisstjórnin gengur meira að
segja svo langt að hún neitar að
láta samþykkja á Alþingi þings-
ályktunartillögu, sem sjálfstæðis-
menn og frjálslyndir hægri menn
lögðu fram fyrir skömmu, þess efn-
is að viðurkenna nú fullveldi og
sjálfstæði Litháen með formlegum
hætti og styðja þannig við bakið á
Litháum af öllum mætti. íslending-
ar ættu þjóða best að hafa skilning
á mikilvægi þess fyrir smáþjóðir
að fá formlegar viðurkenningar
með þessum hætti, enda ekki langt
síðan við þurftum sjálfir á slíkum
yfirlýsingum að halda. En ef menn
eru enn í einhveijum vafa um áhrif
þess og tilgang að gefa út formlega
yfirlýsingu, ættu þeir held ég að
taka orð Landsbergis forseta Lithá-
ens trúanleg. En hann segist, í við-
tali við Moggann á sunnudag, „að
sjálfsögðu" mundu vilja að Island
gengi lengra en það hefur gert í
stuðningi sínum og telur formlega
yfirlýsingu mjög mikilvæga, staðan
sé í dag ótrygg.
Það hlýtur því að vera lágmarks-
krafa almennings á hendur þessari
ómögulegu ríkisstjórn, sem situr
þvert á vilja mikils meirihluta þessa
sama almennings, að hún lýsi nú
þegar yfir viðurkenningu íslands á
hinu fullvalda Litháen og beijist
auk þess með öllum tiltækum ráðum
gegn hernaðaríhlutun Kremlar-
stjórnar í landinu.
Ilöfundur á sæti í stjórn
Heimdallar, féiags ungra
sjálfstæðismanna í Reykja vík.
Kork»o*Plast
GÓLF-GLJÁI
Fyrir PVC-filmur,
linolcum, gúmmí, parkctt
og steinflísar.
Notió aldrei salmiak eða
önnur sterk sápuefni á
Kork*o*Plast
Kinkiiumhoó á Islnndi:
Þ.ÞORGRlMSSON&CO
Árnuilii 29, Múlutorgi, s. .18640.