Morgunblaðið - 06.04.1990, Page 21

Morgunblaðið - 06.04.1990, Page 21
21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1990 Námsmenn skulu ekki vinna! eftirHermann Þór Erlingsson Einu sinni var ungur maður sem sóttist eftir láni hjá lánastofnun ríkisins af því að hann taldi sig hafa þörf fyrir meira fé en hann hafði náð að vinna sér inn sjálfur. Ungi maðurinn fékk neitun á þeim forsendum að hann væri of dugleg- ur — hann ynni einfaldlega of mik- ið, og það væri alfarið stofnunar- innar að ákveða hversu mikla pen- inga hann þyrfti. Honum var sem sagt sagt að hann sjálfur hefði ekkert um það að segja hversu mikla peninga hann þyrfti til að framfleyta sér og sinni fjölskyldu. Þetta átti ungi maðurinn erfitt með að skilja. Að hann fengi ekki fyrirgreiðslu hjá stofnuninni vegna dugnaðar. Þá fáu mánuði á ári sem honum gafst tækifæri til að vinna. Nú gætu ef til vill sumir haldið að þetta væri bútur úr einhvers konar ævintýri eða draumi þar sem allt færi vel á endanum. En svo er ekki. Þetta er blákaldur veruleik- inn, sem blasir við námsmönnum þessa stundina. Það er stórlega vegið að þeim námsmönnum sem hafa unnið mikið á sumrin vegna þess að þeir telja sig þurfa á því að halda — ekki vegna þess að þeir hafi verulegan áhuga á að vinna 12 til 14 klst. á dag, á þeim tíma ársins þegar best mætti njóta frítíma. Nei, ráðamenn lánasjóðs íslenskra námsmanna qetla að hækka s.k. tekjutillit úr 50% í 75%. Þetta þýðir að námsmaður sem vinnur sér inn 100.000 kr. á mán- uði yfir sumarið fengi dregið af námslánum næsta skólaárs, upp- hæð sem svaraði til 75% af þeirri fjárhæð sem er umfram upphæð sem lánasjóðurinn hefur ákveðið að sé honum hæfileg til fram- færslu. Þessi upphæð er núna 61.040 kr. fyrir fjölskyldumann með eitt barn og í leiguhúsnæði. Nú kann svo að vera að einhvetjum finnist að þessi upphæð ætti að duga ef makinn hefur góða vinnu. Látum það liggja á milli hluta, en lítum á áhrif skerðingarinnar. Sú upphæð sem er umfram þessa framfærslu er skv. dæminu 100. 000-61.040= 38.960. 75% af þess- ari upphæð kæmi til skerðingar á láni næsta skólaárs, þ.e. 29.200 kr. Ef námsmaðurinn vinnur þrjá mánuði yfir sumarið yrði skerðing- arupphæðin því: 87.660 kr. Þessi upphæð yrði sem sagt dregin frá heildarupphæð námsláns næsta skólaárs. Hætt er við að einhverjum þætti þessi kjaraskerðing mikil, sérstaklega af því að hún er ein- göngu til komin vegna dugnaðar þess sem verður fyrir skerðingunni! Nú vill svo til að undirritaður hefur af einhveijum ástæðum ekki fundið tíma til þess að hlusta á kosningaloforð hæstvirts mennta- málaráðherra, en heyrst hefur að þau hafi verið á þá leið að hagur námsmanna skyldi bættur. Finnst fólki þessar aðgerðir vera í anda þeirra loforða? A síðustu misserum hefur verið hart vegið að launþegum í landinu vegna slæms efnahagsástands. Námsmönnum er full ljóst að þeir verða að axla þessa byrði líka, og telja sig hafa gert það með því að þola samdrátt lánanna undanfarin ár, og gleymum því aldrei í umræð- unni um kjör námsmanna, að hér er um lán að ræða — ekki tekjur. Og þó lánin séu vissulega hagstæð námsmönnum eru þau endurgreidd að fullu, og engin ástæða til ann- ars. En það að framkvæmda skerð- ingu lánanna á þennan hátt tel ég forkastanlegt og nánast mann- skemmandi þar sem stórlega er dregið úr hvata manna til vinnu og öflunar tekna. Ég tel að með þessu séu menn beittir misrétti, þannig að þeir sem hafa löngun og vilja til að skapa sér og fjöl- Hermann Þór Erlingsson „Að framkvæmda skerðingu lánanna á þennan hátt tel ég for- kastanlegt og nánast mannskemmandi.“ skyldu sinni sæmilega möguleika til lífsviðurværis allt árið eru bæld- ir með þessum óskiljanlegu aðgerð- um. Ilöfundur er nemandi IHáskóIa íslands. -r mSSs MMI Bilasýnmg laugardag og sunnudag á Akureyri á bifreiðaverk- stæði Siguróar Valdimarssonar og í Reykjavík kl. 14.00-1 7.00. Reynsluakstur. Uppítökur og sala , á notuðum bílum. f- gr-g-rl lll9Wa■,, AKTU EKKI ÚT í ÓVISSUNA "S" “ - AKTU A SUBARU sími 67-4000 B Y K O I r l B R E I I I D I PASKA- HLB0Ð PÁSKATILBOÐ Á INNIPLASTMÁLNINGU. BYKO BREIDDINNI BYKO HAFNARFIRÐI BYKO

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.