Morgunblaðið - 06.04.1990, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1990
25
Stjórnarskipti í Stúdentaráði:
Sigiujón Þ. Ámason kjörinn formaður
SKIPT var um stjórn í Stúdenta-
ráði Háskóla Islands á fyrsta
fimdi nýkjörins Stúdentaráðs
síðastliðinn föstudag. Nýr for-
■ ALÞÝÐUBANDALAGIÐ hef-
ur ákveðið framboðslista sinn fyrir
bæjarstjórnarkosningarnar I Nes-
kaupsstað 26. maí. Eftirtaldir ein-
staklingar skipa listann: 1. Smári
Geirsson, kennari, 2. Guðmundur
Bjarnason, starfsmannastjóri, 3.
Sigrún Geirsdóttir, skrifstofu-
maður, 4. Klara Sveinsdóttir,
verkamaður, 5. Einar Már Sigurð-
arson, kennari, 6. Magnús Jó-
hannsson, verkamaður, 7. Guð-
mundur R. Gíslason, nemi, 8.
Katrín Jónsdóttir, sjúkraliði, 9.
Steinunn Aðalsteinsdóttir, yfir-
kennari, 10. Guðjón B. Magnús-
son, sjómaður, Jóna Katrín Ara-
dóttir, húsmóðir, 12. Friðný Þor-
láksdóttir, hjúki-unarfræðingur,
13. Snorri Styrkársson, fjármála-
stjóri, 14. Guðrún Jónína Sveins-
dóttir, verkamaður, 15. Karl Jó-
hann Birgisson, framkvæmda-
stjóri, 16. Kolbrún Skarphéðins-
dóttir verslunarmaður, 17. Anna
M. Jónsdóttir, húsmóðir, 18. Hall-
dór Þorsteinsson, sjómaður.
— Agúst
maður ráðsins er Sigurjón Þor-
valdur Arnason, verkfræðinemi.
Fulltrúar Vöku, félags lýðræðis-
sinnaðra stúdenta, skipa stjórn-
ina einir, enda hafa þeir meiri-
hluta í ráðinu.
Siguijón var kosningastjóri
Vöku fyrir nýafstaðnar kosningar
í Háskólanum. Hann er stúdent
frá Menntaskólanum í Reykjavík
og _ hefur verið oddviti Vöku í
SHÍ, fulltrúi stúdenta í Háskólar-
áði og formaður Félags vélaverk-
fræðinema.
Hann sagði í samtali við Morg-
unblaðið að hann myndi leggja
áherzlu á að halda áfram því upp-
byggingarstarfi í Stúdentaráði,
sem Vökumenn í stjórn SHÍ hefðu
unnið að undanfarin tvö ár. „Það
má nefna baráttu fyrir færslu
prófa fram í desember, bætt ein-
kunnaskil, nánari útfærslu á könn-
un gæða kennslu, eflingu hús-
næðismiðlunar stúdenta og fleira,“
sagði Siguijón. Hann sagði að
undir lok apríl myndi atvinnumiðl-
un stúdenta fara af stað, en hún
hefur útvegað námsfólki starf yfir
sumartímann. í fyrra hefði tekizt
að útvega tæplega 400 manns
Sigurjón Þ. Árnason.
vinnu, og vonazt væri til að jafn-
vel gengi núna.
Stærsta verkefnið framundan
sagðist Sigurjón þó telja baráttu
gegn skerðingum menntamálaráð-
herra á námslánum. „í augnablik-
inu eru námsmannahreyfíngarnar
að kanna hvað sé hægt að gera í
þessari stöðu. Fulltrúar ríkis-
stjórnarinnar hafa meirihluta í
stjórn LÍN og hafa notfært sér
þá stöðu sína óspart til að keyra
mál í gegn í andstöðu við náms-
menn. Eina vopnið, sem við höfum,
er pólitískur þrýstingur,"- sagði
Siguijón.
Hann sagðist telja að náms-
menn yrðu einnig að reyna að
breyta þeirri ímynd, sem almenn-
ingur hefði af fyrirkomulagi
námslána. „Það eru ákveðnar
ranghugmyndir ríkjandi. í fyrsta
lagi halda margir að námsmenn
borgi aldrei lánin til baka. Stað-
reyndin er sú að langflestir greiða
upp öll sín lán. Önnur ranghug-
mynd er sú að menn fái lán án
þess að sýna neinn námsárangur.
Raunin er sú að það eru gerðar
miklar kröfur um árangur, einkum
hjá þeim, sem eru að byija í námi.
Allir, sem hafa kynnt sér málin,
sjá hins vegar að námslánin eru í
raun of lág. Nýsamþykktar skerð-
ingar menntamálaráðherra hjálpa
námsmönnum heldur ekki að rétta
af kjör sín með því að vinna af
dugnaði yfir sumartímann. Skerð-
ingar ráðherra hafa falið í sér að
sífellt meira tillit er tekið tii sumar-
tekna námsmanna, sem koma til
frádráttar námslánum. Á tveimur
árum hefur tekjutillit hækkað úr
35% í 75%, sem gerir námsmönn-
um erfiðara að drýgja tekjur sínar
með sumarvinnu. Það samkomu-
lag, sem námsmenn höfðu gert
við ráðherra fyrir rúmu ári síðan,
gerði ráð fyrir að tekjutillit yrði
hækkað í 50% gegn því að fyrri
skerðing lánanna fengist bætt.
Nú fáum við þetta framan í okk-
ur, auk þess sem lán til ákveðinna
hópa eru skert verulega."
Stjórn SHI skipa, auk Sigur-
jónSj Erna Gísladóttir varaformað-
ur, Áshildur Bragadóttir gjaldkeri,
Arna Schram ritari, Bjarni Ár-
mannsson og Stefán Jón Friðriks-
son.
Aðsókn á Ekið með Daisy jókst
um leið og hún hlaut Oskarinn
KVIKMYNDIN Ekið með Daisy hafði verið sýnd í Laugarásbíói í
þrjár vikur og aðsókn verið heldur dræm þegar hún hlaut fern
Oskarsverðlaun. Eftir það hefur aðsóknin aukist mikið og nú kemur
mun fjölbreyttari hópur fólks að sjá myndina að sögn Grétars Hjart-
arsonar forsljóra Laugarásbíós.
Grétar sagði að fyrir verðlauna-
afhendinguna hefðu áhorfendur
aðallega verið fullorðið fólk, en eft-
ir hana jókst aðsóknin mikið og
meira fór að bera á unglingum í
hópi bíógesta.
Aðspurður sagði Grétar að ekki
þyrfti að kvarta yfir aðsókninni því
að á undanförnum mánuðum hefði
hún aukist um 30-40%
„Ég held að fólk sé orðið þreytt
á að sitja heima yfir myndbands-
tækinu og vilji heldur fara í bíó.
Við tókum upp á því að hafa helm-
ingi ódýrari sýningar á þriðjudögum
og hefur það mælst vel fyrir. Að-
gangseyrir á nýjar myndir lækkar
samt ekki fyrr en eftir að þær hafa
verið sýndar í tvær vikur,“ sagði
hann.
Laugarásbíó sýnir einnig Oskars-
verðlaunamyndina Fæddur 4. júlí,
en aðsókn á hana hefur verið góð
frá upphafi.
Fyrstu mán-
aðarbækur
Laxness-
klúbbsins
TVÆR skáldsagna Halldórs
Laxness eru nú komnar á
markað í endurútgáfum frá
Vöku-Helgafelli, Salka Valka
og Brekkukotsannáll.
Bækurnar sem hér um ræðir
eru fyrstu mánaðarbækur Lax-
nessklúbbsins, en það er bóka-
klúbbur sem var stofnaður á
síðastliðnu hausti í tilefni af
sjötíu ára rithöfundarafmæli
Halldórs Laxness. Það er forlag
skáldsins, Vaka-Helgafell, sem
stendur að klúbbnum og gefur
mánaðarlega út sérstakt kynn-
ingarrit um verk skáldsins fyrir
félagsmenn, en þeim standa
verk Nóbelsskáldsins til boða á
lægra verði en gildir á almenn-
um markaði.
Skáldsögurnar tvær sem nú
koma á markað að nýju eru
endurprentanir af síðustu útgáf-
um þessara bóka, bundnar með
þeim sígilda svip sem verið hefur
á ritsafni Halldórs Laxness en
nýjar kápur prýða bækurnar.
Kápumynd Sölku Völku er eftir
Jón Reykdal en Halldór Baldurs-
son gerði kápumynd Brekku-
kotsannáls.
Bækurnar eru settar í
Víkingsprenti hf. Steinholt hf.
annaðist prentun en bókband fór
fram í Félagsbókbandinu Bók-
felli hf.
(Ur fréttatilkynningu)
SÍMINN ER
689400
BYGGT & BÚIÐ
KRINGLUNNI
D
<