Morgunblaðið - 06.04.1990, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 6. APRIL 1990
31
Hvanneyri:
*
Abyrgð ríkis á kindakjöts-
fmnileiðslu verði sveigjanleg
Hvannatúni í Andakíl.
Landbúnaðarráðherra Steingrímur J. Sigfússon sagði á bænda-
fundi á Hvanneyri fyrir skömmu að stefna sín væri sú, að hafa vænt-
anlegan búvörusamning, sem gilda mun til aldamóta, þannig að ríkið
ábyrgist verð á kindakjöti er tengist þörfúm markaðarins innanlands.
Nemendur og starfsfólk Bænda- hann orðið sveigjanlegur, þannig
Morgunblaðið/Diðrik Jóhannsson
Frá bændafúndi á Hvanneyri. Við háborðið eru Egill Jónsson t.v.
og Steingrímur J. Sigfússon. Haukur Halldórsson stendur við ræðup-
últ.
skólans á Hvanneyri stóðu fyrir
opnum bændafundi þar sem land-
búnaðarráðherra skýrði frá undir-
búningi og hugmyndum að búvöru-
samningi, sem tekur við núgildandi
samningi sem rennur út 1992. Hann
taldi að hann yrði að liggja fyrir
efnislega næsta haust, til að veita
bændum nægan aðlögunarfrest,
Hann sagði að hugsanlega gæti
Alþj óðaheilbrig-ðisdagur helg-
aður „umhverfi og heilbrigði“
Alþjóðaheilbrigðisdagurinn er laugardaginn 7. apríl 1990. Er hann
að þessu sinni helgaður þemanu „Umhverfi og heilbrigði".
Þetta er 42. árið, sem aðildarríki
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinn-
ar minnast gildistöku stofnskrár
hennar7. apríl 1948. Stofnskráraðil-
ar voru upphaflega 61 ríki en nú
eiga 166 ríki aðild að stofnuninni.
Með alþjóðaheilbrigðisdeginum er
hvetju sinni vakin athygli heimsins,
þjóða og staða á málefnum, er varða
almannaheill og sérstök ástæða er
til að menn geri sér grein fyrir og
sinni.
Dr. Hiroshi Nakajima fram-
kvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnunarinnar segir svo í ávarpi
sínu:
„Það er enn ljósara en áður að
stöðugt fleiri sjúkdómar stafa af
spillingu mannsins á umhverfi sínu.
Við þekkjum betur en áður skaðleg
áhrif iðnþróunar á vistkerfi heimsins.
Eyðing ósonlagsins, súrt regn, veður-
farsbreytingar og efnamengun era
nokkur dæmi um áverka, sem maður-
inn hefur veitt jörðinni okkar.
Við erum á tímamótum. Viðvaran-
ir gerast sífellt háværari um þann
skaða, sem heilsu okkar og lífsgæð-
um er búin. Því fólki fjölgar stöð-
ugt, sem vinnur gegn spillingu um-
hverfis okkar.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin
vill benda á aðgerðir, sem einstakl-
ingar, sveitarfélög og þjóðir geta og
verða að sinna, til þess að stöðva
frekari skaða á heilnæmi okkar
hnattar, jarðarinnar. Okkar eigin
heilsa og heilsa þeirra kynslóða, sem
á eftir koma, veltur á því.
Við leitum, í fullri alvöru, eftir
samstöðu meðal iðnaðar- og þróun-
arríkja. Varanlega valkosti verður
að finna fyrir áframhaldandi þróun
og vemdun heilbrigðis, hvar sem er
á jörðinni okkar.
Ákvarðanir teknar af einu ríki
geta haft víðtækar afleiðingar, ekki
aðeins fyrir nágrannaríki, heldur öll
ríki heims.
í tilefni alþjóðaheilbrigðisdagsins
hvetjum við öll aðildarríki Alþjóða-
heilbrigðisstofnunarinnar, opinber og
óopinber samtök og alla-er láta sig
einhveiju skipta velferð heimsins, að
FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA
5. apríl.
FISKMARKAÐUR hf.
Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 78,00 73,00 74,76 49,474 3.698.870
Þorskur(óst) 82,00 64,00 80,03 2,821 225.756
Ýsa 90,00 69,00 84,47 12,726 1.074.921
Ýsa(óst) 59,00 59,00 59,00 0,054 3.186
Karfi 44,00 20,00 37,64 12,479 469.644
Ufsi 34,00 20,00 32,74 46,822 1.533.073
Steinbítur 40,00 38,00 39,24 17,430 ' 683.877
Steinbítur(óst) 32,00 32,00 32,00 0,106 3.392
Langa 43,00 43,00 43,00 0,593 25.499
Lúða 340,00 150,00 278,22 0,200 55.644
Lúða(frosin) 185,00 150,00 159,35 0,232 36.970
Koli 30,00 30,00 30,00 0,105 3.150
Keila 28,00 22,00 27,03 1,050 28.368
Skötuselur 115,00 115,00 115,00 0,045 5.175
Hrogn 200,00 190,00 195,75 2,755 539.300
Samtals 57,06 147,290 8.404.311
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 116,00 50,00 79,57 41,055 3.266.631
Þorskur(ósl.) 71,00 35,00 68,06 4,349 295.994
Ýsa 95,00 53,00 82,52 49,455 4.081.040
Ýsa(óst) 85,00 73,00 77,50 4,042 313.237
Karfi 44,00 ' 39,00 39,81 17,722 705.527
Ufsi 37,00 28,00 35,81 81,119 2.904.709
Hlýri+steinb. 43,00 40,00 40,17 2,935 117.901
Langa 40,00 40,00 40,00 3,218 128.739
Lúða 265,00 200,00 239,78 1,476 353.915
Skarkoli 35,00 35,00 35,00 0,179 6.265
Keila 20,00 20,00 20,00 0,169 3.380
Skata 220,00 220,00 220,00 0,103 22.660
Rauðmagi 72,00 50,00 52,89 0,305 16.130
Hnísa 25,00 15,00 19,41 0,068 1.320
Hrogn 230,00 205,00 207,45 1,988 412.415
Samtals 60,56 209,432 12.682.935
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 89,00 51,00 72,34 45,650 3.302.461
Ýsa 97,00 54,00 79,15 14,167 1.121.283
Karfi 39,00 18,00 36,69 9,481 347.841
Ufsi 33,00 18,00 31,80 6,782 215.639
Steinbítur 33,00 19,00 24,88 7,539 187.555
Hlýri 26,00 26,00 26,00 0,132 3.432
Langa 40,00 20,00 36,52 0,325 11.870
Lúða 365,00 230,00 292,35 1,434 419.230
Skarkoli 49,00 37,00 40,97 0,696 28.512
Keila 12,00 12,00 12,00 0,089 1.068
Skata 80,00 80,00 80,00 0,091 7.280
Skötuselur 395,00 370,00 391,45 0,317 124.090
Rauðmagi 50,00 50,00 50,00 0,039 1.950
Undirmál 25,00 25,00 25,00 0,180 4.500
Hrogn 200,00 200,00 200,00 0,316 63.200
Samtals 66,81 87,483 5.844.594
standa að kynningarátaki um þessi
mál. Vara verður alla við þeim hætt-
um, sem stafa af heilsuspillandi
umhverfi og benda á til hvaða ráða
hver og einn verður að grípa, til
þess að afstýra þeim. Því hafa eftir-
farandi slagorð verið valin:
„Jörðin okkar — Heilbrigði okkar.“
„Hyggðu að heimi við dagleg störf.“
að ríkið ábyrgist verð á því magni
sem seldist á árinu á undan að við-
bættri hugsanlegri markaðsaukn-
ingu. Hann sér ekki fyrir sér mikla
breytingu á kindakjötsneyslu lands-
manna á allra næstu árum.
Steingrímur hefur trú á að í fram-
tíðinni verði dilkakjöt okkar verð-
mætara á heimsmarkaði vegna
lítillar mengunar hér á landi.
Undir þessi sjónarmið ráðherra
tók Haukur Halldórsson, formaður
Stéttarsambands bænda, og sagði
að á meðan okkur tækist að fram-
leiða hollan og góðan mat þyrftum
við ekki að kvíða sölu slíkrar fram-
leiðslu hér á landi. Hún yrði að
vera í sátt við náttúruna og mætti
ekki ganga nærri þeim auðlindum,
sem hún býr yfir. Haukur sagði að
íslenskir bændur hefðu ræktað búfé
og jörðina en ræktun markaðarins
hefði orðið útundan. Hann taldi að
komandi samningar við Evrópuríkin
kynnu að hafa einhveijar breyting-
ar á stefnu okkar í framtíðinni í för
með sér. Hauki þótti vert að vekja
athygli á að í nútímaþjóðfélagi
væru margskonar tryggingar.
Landbúnaðurinn væri grundvallar-
trygging fyrir matvælum. Þessari
tryggingu virtust margir vilja
gleyma.
I máli Egils Jónssonar alþingis-
manns kom fram að útgjöld ríkisins
til landbúnaðarins hefðu verið um
8 milljarðar árið 1979 á núvirði en
svipuð tala í fyrra. Ríkið hafði í
fyrra tekjur af söluskatti þannig að^r
í raun eru útgjöld til landbúnaðarins
nú um helmingi minni. Egill sagði
að grundvöllur fyrir afkomu bænda
hér væri heimaaflað fóður og minni
útgjöld búanna, áframhaldandi
styrkur til jarðræktar og mundi
skapa grundvöll til minni kjarnfóð-
urkaupa. - D J
Leiðrétting
I frétt í Morgunblaðinu í gær var
nafn Guðna Ágústssonar, Framsókn-
arflokki, ranglega nefnt meðal þeirra
níu nafna alþingismanna er óskað
hafa eftir umsögn Lagastofnunar um
nokkur atriði frumvarps um stjórn
fiskveiða. Þar átti að vera nafn Guð-
mundar Ágústssonar, Borgaraflokki.
Morgunblaðið biðst velvirðingar á
þessum mistökum.
Reiðhöllin í Víðidal:
Sýning sunnlenskra hestamanna
HESTAMENN og hrossaræktendur á Suðurlandi efna til mikiilar sýn-
ingar í Reiðhöllinni í Víðidal um helgina og er sýningin nefnd „Stórsýn-
ing Sunnlendinga“.
Fjöldi þekktra hesta og hesta-
manna munu koma við sögu á sýn-
ingunum, en alls verða þær þijár;
ein á föstudagskvöldi, ein síðdegis á
laugardegi og á laugardagskvöldi.
Sýndir verða gæðingar í A- og B-
flokki, þekktir stóðhestar koma fram,
smalahundur leikur listir sínar,
hrossaræktarbú á Suðurlandi sýna
hross og fjölmargar kynbótahryssur
verða sýndar.
Af stóðhestum, sem fram koma'
má til dæmis nefna þá Sikil 1041 frá
Stóra-Hofi, Stíg 1017 frá Kjartans-
stöðum, Pilt 1114 frá Sperðli og
Gust frá Vindási. Þrír hinna fyrst-
nefndu hafa allir hlotið 1. verðlaun
Sýning á
tölvulist
ÞANN 7. apríl verður opnuð sýn-
ing á verkum bandaríska lista-
mannsins Darcy Gerbarg í Menn-
ingarstofiiun Bandaríkjanna,
Neshaga 16, Reykjavík.
Darcy Gerbarg er í fremstu röð
svokallaðra tölvulistamanna i
Bandaríkjunum í dag. Tölvugrafík
hefur á undanförnum árum verið í
síauknum mæli að ryðja sér til rúms
í kvikmyndum, sjónvarpi, auglýs-
ingagerð, tónlistarmyndböndum og
hvers kyns útgáfustarfsemi. Banda-
rískir listamenn hafa ekki farið
varhluta af þessari þróun og eru æ
fleiri farnir að nota tölvu við list-
sköpun sína. Þeir skipta hundruðum
þeir bandarísku háskólar sem nú
bjóða upp á námskeið í tölvugrafík
og sérstakar tölvulistadeildir hafa
verið settar á fót í sumum myndlist-
arskólum.
Darcy Gerbarg er stödd hér á
landi til að kynna tölvulist í Mynd-
lista- og handíðaskólanum í
Reykjavík og verður hún með
þriggja vikna námskeið þar í þess-
um mánuði.
Sýningin í Menningarstofnun
Bandaríkjanna opnar kl. 14 á morg-
un, laugardag, og verður opin alla
virka daga frá kl. 8—18 en um
helgar frá kl. 14—18. Henni lýkur
20. apríl. (Fróttatilkynning)
sem einstaklingar, og Gustur hefur
vakið athygli á Vetrarmóti Geysis í
tölti í vetur. Stóðhesturinn Piltur
1114 verður sýndur í ræktunarsýn-
ingu frá Sperðli í Landeyjum, en að
auki munu þessi hrossaræktarbú
sýna hross: Bjarnastaðir og Orms-
staðir í Grímsnesi, Árbakki og Skarð
á Landi, Helgastaðir í Biskupstung-
um og ef til vill fleiri.
Á Stórsýningunni er ætlunin að
sýna „yfirferð" á nokkrum gangteg-
undum, en yfirferð er það nefnt þeg-
ar hross ná miklum hraða • á ein-
hverri gangtegund svo sem tölti,
brokki og skeiði.
Allir aðgöngumiðar að sýningun-
um munu gilda sem happdrættis-
miðar og meðal vinninga verða tvö
folöld úr ræktun Sunnlendinga; ann-
að frá Sperðli í Landeyjum og hitt
frá Bjarnastöðum í Grímsnesi.
Morgunblaðið/Sigurður P. Björnsson
Hjónin Sharpm Thompson, sópransöngkona og David B. Thompson,
píanóleikari héldu tónleika í Húsavíkurkirkju.
Bandarísk hjón með tón-
leika í Húsavíkurkirkiu
Húsavík. **
SHARPM Thompson, óperusöngkona, hélt tónleika í Húsavíkurkirkju
á dögunum við undirleik manns síns David B. Thompson, sem jafii-
framt lék nokkur verk á orgel. Voru tónleikarnir vel sóttir og listafólk-
inu vel fagnað með lófataki og blómum.
Thompsonshjónin hafa í tvö ár
verið kennarar við Tónlistarskóla
Húsavíkur og hann jafnframt verið
organisti Húsavíkurkirkju og hún
söngstjóri kirkjukórsins. Þetta er
mjög mehntað tónlistarfólk. Frúin
hefur lokið BA-prófi í tónlistar-
kennslu og meistaragráðu í söng við
háskólann í Suður-Karólínu og verið
söngkennari við þekkta . háskóla.
Hennar er getið í bókinni „Who’s
Who in Music“. Sérgrein Davids er
píanóleikur og stjórnun tónlistar við
Land míns föður, sem frumsýna á
hjá Leikfélagi Húsavíkur um næstu
helgi.
Þessi hjón hafa hlotið almenna
hylli tónlistarunnenda á Húsavík og
vildu Húsvíkingar hafa þau sem
lengst, en þau fara vestur til frekara
náms á komandi hausti og verður
þeirra hér saknað. - Fréttaritari
Opið prófkjör
um heigina
OPIÐ prófkjör nýs bæjarmálafé-
lags á Seltjarnarnesi verður 6. og
7. apríl í Félagsheimili Seltjarnar-
ness. Einnig verður skoðanakönn-
un um áherslur í bæjarmálum.
Alls bjóða 13 manns sig fram í
prófkjöri bæjarmálafélagsins sem öll
starfandi stjórnmálasamtök á Selt-
jarnarnesi, fyrir utan Sjálfstæðis-
flokkinn, standa að.
Kosið verður föstudaginn 6. aprí!
kl. 15-21, og laugardaginn 7. apríl
kl. 10-19.