Morgunblaðið - 06.04.1990, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1990
Fiskeldi EyjaQarðar:
Lúðurnar á Hjalt-
eyri fara að hrygna
LÚÐUR í keipum Fiskeldis
EyjaQarðar á Hjalteyri fara að
^hrygna á næstunni og eru
starfsmenn farnir að búa sig
undir það.
Ólafur Halldórsson fram-
kvæmdastjóri Fiskeldis Eyjafjarð-
ar sagði að fiskurinn færi að
hrygna fljótlega, en ekki væri
nákvæmlega hægt að segja fyrir
um hvenær. „Þær láta ekki segja
Krossanes:
Sóttum
lóð undir
rækjumjöls-
verksmiðju
sér fyrir verkum, þessar elskur,“
sagði Ólafur.
„Við erum farnir að búa okkur
undir þetta og erum að gera klárt
áður en lúðurnar fara að hrygna.
Við tökum mið af reynslu okkar
frá í fyrra, en þá lærðum við heil-
mikið og einnig af reynslu annarra
sem stunda lúðueldi."
Frá því búið er að kreista fisk-
inn líða um þrjár vikur áður en
kviðpokastigið tekur við, en það
stendur yfir í um það bil einn
mánuð. Að því loknu er um að
ræða lirfu sem þarf að éta og
fjórða og síðasta stigið, seiði sem
tekið hefur á sig mynd lúðunnar,
rennur upp að liðnum þremur til
þremur og hálfum mánuði.
Fiskeldi Eyjafjarðar á nú tæp-
lega 40 lúður, en þær voru veidd-
ar í Breiðafirði sumarið 1988 og
fluttar norður á Hjalteyri.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Höepfhersbryggja rifín
Starfsmenn Akureyrarbæjar og haftiarinnar eru
byrjaðir að rífa gömlu Höepfnersbryggjuna og
mun hún því heyra sögunni til að nokkrum dög-
um liðnum. Til stóð að rífa bryggjuna í fyrra-
haust en af því varð ekkert. Flóabáturinn Drang-
ur, sem eitt sinn var og hét, myndaði syðsta
hluta Höepfhersbryggju. Mokað verður upp úr
brakinu og það síðan fjarlægt. Nokkrar trillur
hafa verið geymdar við bryggjuna en þeim vænt-
anlega fundinn annar staður að bryggjunni rif-
inni. Siglingaklúbburinn Nökkvi fær aðstöðu á
svæðinu.
Skipufagsnefnd hefur falið
skipulagsstjóra að gera tillögu
að aftnörkun lóðar við Krossa-
nes er henti undir starfsemi
rækjumjölsverksmiðju.
Jóhann P. Andersen hefur fyrir
hönd samstarfshóps um stofnun
og rekstur rækjumjölsverksmiðju
sótt um lóð undir slíka starfsemi
og í erindi hans til byggingar-
nefndar kemur fram að æskilegt
sé að lóðin sé í námunda við
Krossanes. Sótt er um 1.500 fer-
metra lóð. Byggingarnefnd vísaði
erindinu til skipulagsnefndar og
hún afgreiddi málið á fundi sínum
í fyrradag.
Istess tapaði 74 milljónum:
Hlutafé í fyrirtækinu verð-
ur aukið um 120 milljónir
Byggðastofnun og Hraðfrystistöð Þórshafnar koma inn sem nýir hluthafar
TAP varð á rekstri fóðurverk-
smiðjunnar Istess hf. á síðasta ári
og nam það um 74 milljónum
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Kristinn G. Jóhannsson listmálari hefur gefið Amtsbókasafninum á
Akureyri málverk af Einari Kristjánssyni rithöfundi, en þetta er
fimmta málverkið sem Kristinn gefur safninu.
Amtsbókasafiiið
feer málverk að gjöf
KRISTINN G. Jóhannsson list-
málari hefúr gefið Amtsbóka-
saihinu á Akureyri málverk af
Einari Kristjánssyni rithöfundi
að gjöf. Málverkið var afhent við
athöfn á Amtsbókasafhinu á
laugardaginn.
Kristinn G. Jóhannsson hefur
TISSOT
GÆÐIOG
GLÆSILEIKI
I
S. 96-24175
áður gefið safninu málverk af fjór-
um Akureyrarskáldum, Heiðreki
Guðmundssyni, Guðmundi Frí-
mann, Braga Sigurjónssyni og
Kristjáni frá Djúpalæk.
I móttöku sem efnt var til á safn-
inu af þessu tilefni gat Kristinn
þess að málverkin gæfi hann í þakk-
lætis- og virðingarskyni við þau
skáld sem settu svip sinn á bæinn
á æskudögum hans. Gunnar Ragn-
ars formaður menningarmála-
nefndar veitti gjöfínni viðtöku. Son-
ur skáldsins, Einar, lék tvö verk á
gítar og Steinunn Sigurðardóttir las
eina af smásögum Einars Kristjáns-
sonar, en að lokum flutti rithöfund-
urinn ávarp.--.........
króna. Rekstrarhagnaður fyrir
fiármagnsliði var 39 milljónir
króna, en fyrirtækið greiddi 85
milljónir króna í fjármagnskostn-
að á liðnu ári. Tap af reglulegri
starfsemi varð því 46 milljónir
króna. Aðalfúndur Istess hf. var
haldinn í Keflavík í gær þar sem
þetta kom fram. Á fundinum var
samþykkt að auka hlutafé fyrir-
tækisins um 120 milljónir króna,
úr 80 milljónum í liðlega 200 millj-
ónir. Heildarvelta fyrirtækisins
var um 635 milljónir króna.
Guðmundur Stefánsson fram-
kvæmdastjóri ístess hf. sagði
margvíslegar ástæður liggja að baki
tapi á rekstri fyrirtækisins á síðasta
ári. Reiknað hefði verið með að tek-
ið yrði af meiri myndugleik á málefn-
um fiskeldisins í landinu en raunin
hafi orðið. Fyrirtækið hefði undir-
búið sig fyrir aukningu og tekið til-
lit til þess hvað varðar mannskap
og hráefni, en annað hefði verið upp
á teningnum þegar upp var staðið.
Á síðasta ári seldi fyrirtækið lið-
lega 9 þúsund tonn af fóðri og fór
nálega fjórðungur þess á innan-
landsmarkað, en hitt var flutt út til
Færeyja og Noregs. Samdráttur
varð á sölu fóðurs til Færeyja, en
nokkur aukning á sölunni til Noregs.
Gert er ráð fyrir að afskrifa kröf-
ur að upphæð tæplega 29 milljónir
króna, sem Guðmundur sagði fyrst
og fremst koma til í kjölfar gjald-
þrota fiskeldisfyrirtækja á síðasta
ári. Rekstrarhagnaður fyrirtækisins
á liðnu ári nam um 39 milljónum
króna, en fjármagnskostnaður þess
nettó á árinu nam um 85 milljónum
króna, þannig að tap af starfseminni
varð um 46 milljónir króna í allt. Á
árinu 1988 tapaði fyrirtækið um 15
milljónum króna.
Á aðalfundi félagsins var sam-
þykkt að auka hlutafé um 120 millj-
ónir króna, úr 80 milljónum í tæp-
lega 200 milljónir og hafa núverandi
eigendur samþykkt að leggja fram
hlutafé, en þeir eru Akureyrarbær,
Kaupfélag Eyfirðinga og Skretting
A/S í Noregi. Auk þess bætast tveir
nýir hluthafar við, Byggðastofnun
og Hraðfrystistöð Þórshafnar. Rúm-
lega helmingur hlutafjárins verður
greiddur út strax, en afgangurinn á
þessu og á næstu tveimur til þremur
árum.
Guðmundur sagði að samhliða
væri í gangi önnur fjármögnun og
myndi það breyta öllu varðandi
reksturinn. „Vissulega verður róður-
inn þungur áfram, en við erum mun
betur í stakk búin að takast á við
erfiðleikana eftir þessar aðgerðir,“
sagði Guðmundur. Rekstur fyrirtæk-
isins hefur gengið mun betur fyrstu
þrjá mánuði þessa árs og salan meiri
en búist var við og hefur nokkur
hagnaður orðið af starfseminni.
Fyrstu mánuðir ársins eru að jafn-
aði þyngstir, en framundan er að-
altíminn í fóðurfrarnleiðslunni, þann-
ig að Guðmundur kvaðst nokkuð
bjartsýnn á framhaldið.
Slippstöðin:
Tveggja vikna páskafrí
vegna verkefiiaskorts
STARFSMENN Slippstöðvarinnar
fara í páskaleyfi að loknum vinno-
degi í dag og stendur það í hálfan
mánuð, en vinna hefst aftur í stöð-
inni 23. apríl.
Gunnar Skarphéðinsson starfs-
mannastjóri sagði að ástæða þess
að farið er í svo langt páskaleyfi sé
fyrst og fremst verkefnaskortur.
Afar lítið hafi verið að gera alla þessa
viku, en menn vonuðu að eitthvað
myndi lifna yfir þegar komið væri
fram í maí.
„Við sjáum ekki fram á nein stór
verkefni, en það er það sem okkur
vantar. Þá eru menn áhyggjufullir
vegna þess hve lítið er um útboð og
það gerir menn talsvert svartsýna á
framtíðina, en þessi hefðbundnu við-
haldsverkefni sem framundan eru
nægja okkur ekki,“ sagði Gunnar.
Tónleikar
í Ýdölum
Konur í Kvennakórnum Lissy í
Þingeyjarsýslu ætla að gera þriðju
tilraun til að halda tónleika í Ýdöl-
um á sunnudaginn, en tvívegis hef-
ur þurft að fresta tónleikum kórsins
vegna veðurs og ófærðar. Tónleikar
kórsins í Ýdölum hefjast kl. 21 á
sunnudagskvöld.
Opnir dagar í Dynheimum
NEMENDUR í starfsdeildunum
við Löngumýri 9 og 15 efna til
sýningar sem þeir neíha „Opnir
dagar“ í Dynheimum um helgina.
A laugardaginn og sunnudaginn
verður sýningin opin frá kl. 14-18.
Sýndar verða myndir eftir nemend-
ur skólanna, en á sýningunni verður
listiðkun í skólunum kynnt. Tónlist-
aruppákoma verður báða dagana
kl. 14.30. Selt verður kaffi og kök-
ur til ágóða fyrir ferðasjóð nemend-
anna, en myndir nemanna eru einn-
ig tii sölu.