Morgunblaðið - 06.04.1990, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1990
Minning’:
Bjami Sveinsson,
verslunarmaður
Fæddur 5. september 1908
Dáinn 26. mars 1990
Við undirritaðir starfsmenn Út-
vegsbanka Islands minnumst nú við
vistaskipti mannkostamannsins
Bjarna Sveinssonar verslunar-
manns með mikilli virðingu.
Það hefði verið skylt, að Bjarna
hefði verið minnst rækilega, en eigi
verður það gert í línum þessum.
Hefði vel farið á því, að ýmsir
lærisveina hans, íþróttamenn, hefðu
skrifað greinar um hann. Þá hefði
mátt vænta þess, að allskýr mynd
Bjarna hefði komið fram.
Bjarni var gáfumaður, skilning-
urinn hvass, hugsanimar skjótar
og íjörugar, dómgreind mikil, og
tilfinningin næm fyrir fögru og
réttu máli.
Bjami var fríður maður sýnum
og höfðinglegur, andlitið gáfulegt,
augun snör og fögur, og svipurinn
góðmannlegur. Bjarni var kurteis í
klæðaburði og allri háttsemi og hinn
ágætasti verslunarmaður.
Bjami varð ógleymanlegur við-
skiptamönnum sínum, svo voru
áhrifin mikil, sem hann hafði í þá
með persónu sinni og allri fram-
komu.
Hann var manna skemmtilegast-
ur, samræður hans fjörugar og
fyndnar og þótti mönnum hin bezta
skemmtun á að hlýða. Eigi skorti
gnótt orða né hugsana.
Eftirlifandi eiginkona Bjarna er
Fanney Sigrún Jónsdóttir frá
Isafirði og aðstoðaði hún mann sinn
af kostgæfni í Tóbakshúsinu í Aust-
urstræti 17.
Bjami Sveinsson var hvers
manns hugljúfi.
Við vottum eiginkonu og öðrum
ástvinum dýpstu samúð.
Adolf Björnsson,
Sigurður Valdimarsson.
Látinn er hér í borg Bjarni
Sveinsson líkamsræktarmaður frá
ísafirði, fyrrv. verslunarmaður,
kennari, þýðandi og bókaútgefandi
á 82. aldursári.
Bjarni var fæddur á ísafirði 5.
sept. 1908. Foreldrar hans voru
hjónin Sveinn Halldorsson sjómaður
og Ingibjörg Jónsdóttir. Var hann
af merku fólki kominn úr ísafjarð-
ardjúpi í báðar ættir.
Tólf ára gamall hafði Bjarni
misst báða foreldra sína og fluttist
til systur sinnar Guðfínnu, f. 29.
nóv. 1898 látin 2. apríl 1975, er
lengst bjó á Hverfisgötu 98, gift
Sigurði Stefánssyni símaverkstjóra.
Önnur systkini Bjarna voru Guð-
mundur, Hermann starfsmaður
Landsímans, Halldór veitingamaður
og Maja verslunarkona.
t
Eiginmaður minn og faðir okkar,
ELLIÐI NORDAHL GUÐJÓNSSON,
er látinn.
Sótrún Valsdóttir,
og börn hins látna.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ARNDÍS BALDURS,
verður jarðsungin frá Blönduóskirkju laugardaginn 7. apríl kl.
14.00.
Theodóra Berndsen, Knútur Berndsen,
Jóhann Baldurs, Ása Þ. Baldurs,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Maðurinn minn, faðir, bróðir og mágur,
ÞORGILS BENEDIKTSSON,
læknir,
Kársnesbraut 47,
Kópavogi,
sem lést á Vífilsstaðaspítala 1. apríl verður jarðsunginn frá Kópa-
vogskirkju þriðjudaginn 10. apríl kl. 13.30.
Emma Benediktsson,
Guðmundur Hjörtur - Baldur - Björn,
Björn Benediktsson, Ásta Björnsdóttir.
+
SÆUNN B. JÓNSDÓTTIR,
ættuð frá Helgadal, Mosfellssveit,
Grenimel 25,
er látin. Reykjavík,
Bálförin hefur farið fram.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Landakotsspítala og Hafnar-
búða.
Systkini og aðstandendur.
+
Móðir okkar og fósturmóðir,
SIGRÍÐUR KRISTJÁNSDÓTTIR
frá Sólstöðum,
Súgandafirði,
verður jarðsungin frá Suðureyrarkirkju laugardaginn 7. apríl kl.
14.00. Sólveig Guðmundsdóttir,
Pálmi Guðmundsson,
Sólveig Jónsdóttir.
Bjarni fluttist innan við fermingu
frá Isafirði til Reykjavíkur og byrj-
ar strax að vinna fyrir sér m.a. við
blaðaútburð. Margir eldri Reyk-
víkingar kannast við Bjarna er hann
var sendisveinn hjá Stefáni Gunn-
arssyni skókaupm. í Austurstræti.
Bjarni va_r fermdur í Fríkirkjunni
af séra Ólafi Ólafssyni. Snemma
vaknaði áhugi Bjarna fyrir líkams-
rækt, hann var í knattspymufélag-
inu Fram og í Ármanni og hafði
alla ævi áhuga á útivist hverskon-
ar, göngutúrum og sundi.
Aðeins 12 ára gamall skrifaði
Bjami Carles Atlas í New York,
fékk svar og bytjaði að æfa líkams-
ræktarkerfi Atlas, síðar á ævinni
stofnaði hann Bókaútgáfuna Atlas
og þýddi 12 bækur úr ensku, og
gaf út, um heilsu og líkamsrækt.
Bjami var Ieitandi sál alla ævi
og því ekki að undra þótt hann
aðhylltist skoðanir Guðspekifélags
íslands og eignaðist vináttu Grétars
Fells er hann mat að verðleikum
mikils. Grétar Fells var mikill and-
legur fræðari og leiðtogi, sem leiddi
með skoðunum sínum fólk inn á
svið þekkingar, tilrauna og vitund-
arlífs. Sálarrannsóknarfélag ís-
lands átti og hug Bjarna og sann-
færing hans að persónuleikinn lifir
líkamsdauðann. Hann las ijölda frá-
sagna að dánir hafa gert vart við
sig og sótti fáeina fundi hjá Haf-
steini Björnssyni miðli. Fáir íslend-
ingar hafa gert meira en Hafsteinn
til að færa sönnur á framhaldslíf,
enda var hann fæddur með sjald-
gæfum hæfileikum og markverð-
um.
Bjarni Sveinsson gekk að öllu er
að höndum bar um ævina, með ósér-
hlífni og dug. Höfðingsskap og
drenglund sýndi hann í hvívetna,
og hjálpfýsi hans á margur að minn-
ast.
Kona Bjarna, Fanney Sigrún
Jónsdóttir frá ísafirði, lifir mann
sinn. Bjó hún honum yndislegt
heimili og vafði mann sinn kær-
leiksörmum. Voru þau gefin saman
af séra Jóni Auðuns dómprófasti
25.12.1954.
Fyrir hjónaband eignaðist Bjarni
dóttur, Fanný, f. 2.6.1946, húsmóð-
ir hér í borg, gift Jóni Brynjólfssyni
verkstjóra frá Staðarbakka á Akra-
nesi. Eiga þau Ingibjörgu Elísabet
og Brynjólf.
Sonur Fannýjar, Daníel Karl
Pálsson, kappkostaði að hlynna að
móður sinni og Bjarna á hinn feg-
ursta hátt. Karl er kvæntur'Líneik
Guðlaugsdóttur og eru börn þeirra
þijú.
Biðjum góðan Guð að vernda
hinn framliðna og alla hans ástvini.
Helgi Vigfússon
Mig langar til að minnast afa
míns, Bjarna Sveinssonar, með
nokkrum orðum. Hann fæddist 5.
september 1908. Foreldrar hans
voru þau Ingibjörg Jónsdóttir og
Sveinn Halldórsson.
Þegar maður lítur til baka og fer
að rifja upp atvik frá því maður var
Þórgnýr Guðmunds-
son - Kveðjuorð
Fæddur 6. apríl 1902
Dáinn 5. febrúar 1990
Okkur larígar í örfáum orðum
að minnast frænda okkar, sem lést
5. febr. sl., en hann hefði orðið 88
ára í dag, 6. apríl.
Þórgnýr Guðmundsson fæddist á
Sandi í Aðaldal 6. apríl 1902, sonur
Guðmundar Friðjónssonar skálds
og bónda þar og Guðrúnar Lilju
Oddsdóttur konu hans. Hann var
annar í röðinni af tólf börnum þeirra
hjóna, og komust ellefu þeirra til
fullorðinsára.
Þórgnýr lauk kennaraprófi 1943,
en hafði áður verið tvo vetur í Al-
þýðuskólanum á Eiðum og starfað
sem farkennari í Eiðaþinghá um
nokkurra ára skeið.
I meira en þijá áratugi var hann
kennari og skólastjóri í Aðaldal. í
þá daga var farskóli í Aðaldæla-
hreppi, og aðstæður ólíkar því sem
nú er, raunar svo ólíkar að engu
er saman að jafna. Kennt var á
bæjunum til skiptis, einn mánuð í
senn á hveijum stað og urðu þá
heimilin að leggja til húsnæði og
fæði fyrir kennara og nemendur,
auk kennsluhúsnæðis. Aðstæður
voru auðvitað með ýmsu móti og
þættu líklega ófullkomnar í dag,
en við börnin fundum ekkert fyrir
því, þekktum ekki annað og okkur
leið vel í þessum skóla. Þótt kennar-
inn yrði að aðlaga sig nýjum stað
og nýjum nemendahópi mánaðar-
lega gekk þetta allt ótrúlega vel.
Þórgnýr var einstaklega vandvirkur
og samviskusamur kennari og lagði
sig allan fram til þess að nemendur
hans fengju þá bestu menntun sem
hann gat veitt.
Við systkinaböm hans á Sandi
vorum nær öll nemendur hans í
barnasköla, sum allan okkar barna-
skólaaldur. Við eigum góðar minn-
ingar frá þessum árum. Við hlökk-
uðum alltaf til skólans og enginn
námsleiði hijáði okkur. Kennt var
annan hvern mánuð og oft var skól-
inn heima á Sandi. Var þá stofan
rýmd og borðum og stólum komið
þar fyrir. Síðan fór öll kennsla fram
í þessari litlu stofu, meira að segja
leikfimi.
Þórgnýr tók gjarnan þátt í leikj-
um nemenda sinna. Oft fór hann
með okkur út í frímínútum þegar
gott var veður og „hljóp í skarðið"
og þótt skóladegi lyki var hann
ekki búinn að sleppa hendinni af
hópnum. Á kvöldin fór hann stund-
um með okkur á skauta eða skíði
og alltaf gátum við leitað til hans
með heimaverkefnin ef á þurfti að
halda.
Þórgnýr var mikill göngugarpur
og fór flestra sinna ferða fótgang-
andi eða á skíðum. Oft gekk hann
margra kílómetra leið milli bæja
þegar hann var að kenna fjarri
heimili sínu. Hann átti aldrei bíl en
komst vel af án þess.
Svo kann að virðast að skóla-
ganga barna í sveit á þessum árum
hafi verið stopul og skilyrði frum-
stæð, en þrátt fyrir það er óhætt
að segja að nemendur Þórgnýs hafi
verið vel undir lífið og framhalds-
nám búnir, og líklega ekkert ver
en börn eru í dag úr okkar ágætu
grunnskólum.
Þórgnýr kvæntist ekki og átti
engin börn, en hann átti vissulega
stóran þátt í uppeldi og menntun
flestra barna í Aðaldal um 30 ára
skeið.
En Þórgnýr var ekki aðeins upp-
alandi á vetrum. Allan ársins hring
fylgdist hann grannt með leikjum
okkar og störfum og var óþreytandi
að vara okkur við hættum og leggja
ungviðinu lífsreglurnar. Á Sandi var
lengst af ijórbýli og stór barnahóþ-
urinn sem þar ólst upp auk margra
sumardvalarbarna víðs vegar að
sem komu til lengri eða skemmri
dvalar.
Öllum þessum stóra hóp lagði
hann gott til og fylgdist með
lífshlaupi hvers og eins löngu eftir
að leiðir þessa fólks lágu frá Sandi.
Á sama hátt lét hann sér annt um
næstu kynslóð, og þó heilsu hans
lítill, þá koma upp margar skemmti-
legar minningar tengdar afa.
Á þessum árum var pabbi mikið
á sjó og mamma því mikið ein með
okkur systkinin, Þá voru sunnu-
dagsheimsóknirnar til ömmu og afa
í Skipasundi hápunktur vikunnar.
Þar var margt skemmtilegt gert sér
til dundurs. Ef veðrið var gott þá
fór afi með okkur út í garð eða í
göngutúr um hverfið. Þa var komið
við í litlu búðinni á horninu og eitt-
hvað góðgæti keypt.
Á sumrin fórum við oft austur í
Hveragerði með ömmu og afa en
þau ætluðu þá að dvelja á Heilsu-
hælinu í Hveragerði í nokkrar vik-
ur. Þá var iðulega komið við í Eden
og keyptur ís.
Eitt sumarið fóru mamma og
pabbi í frí til sólarlanda og þá fluttu
amma og afi í Hafnarfjörðinn til
að vera hjá okkur systkinunum og
þá var nú gaman og margir göngu-
túramir gengnir.
Þegar maður komst á táningsald-
urinn fór heimsóknunum í Skipa-
sundið fækkandi en alltaf var samt
jafn gaman að koma í heimsókn
þangað.
Afi var mjög duglegur og viljug-
ur að miðla okkur systkinunum
þekkingu sinni á enskri tungu og
lánaði okkur þá mjög gjarnan bæk-
ur.
‘Afi hafði mjög gaman af litlum
börnum og það var gaman að koma
í heimsókn til hans með barna-
barnabörnin.
Elsku amma mfn, þinn missir er
mikill en eftir stendur minningin
um góðan mann. Megi góður Guð
styrkja þig í sorg þinni. Afa mínum
þakka ég fyrir allt gamalt og gott.
Guð blessi minningu hans.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem)
Fanney Björk Karlsd.
hrakaði síðustu árin hélt hann
áfram að vaka yfir velferð upprenn-
andi æsku.
Þórgnýr átti heimili sitt á Sandi
alla ævi. Á vorin, þegar skóla lauk,
tók hann til við vorverkin og öll þau
störf sem til falla á sveitaheimili. Á
Sandi er fjölskrúðugt fuglalíf, þar
verpa m.a. endur, kría og æðar-
fugl. Sérstaka ánægju hafði hann
af að hugsa um varpið og sinnti
því af stakri alúð. Hann stundaði
og garðrækt og gekk að heyskap
með bræðrum sínum sumar hvert.
Þórgnýr lifði langa og starfsama
ævi og er margt ótalið, svo sem
nefndarstörf ýmis konar og ritstörf,
en hann tók virkan þátt í þjóðfélags-
umræðum með greinaskrifum í dag-
blöð og tímarit, einkum varðandi
uppeldis- og skólamál, enda prýði-
lega ritfær. En tilgangurinn með
þessum skrifum var ekki að gera
nákvæma grein fyrir ævi og störf-
um Þórgnýs Guðmundssonar, held-
ur sá að festa á blað nokkrar þeirra
minninga sem komu í hugann við
fráfall aldraðs manns sem markaði
farsæl spor í þroska okkar og mátti
ekki vamm sitt vita í neinu. Margt
er það sem vert er að muna og
þakka.
Blessuð sé minning hans.
Systkinabörn frá Sandi