Morgunblaðið - 23.05.1990, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 1990
Hafskipsmííl
líklega dóm-
tekið í dag
HAFSKIPSMÁLIÐ verður að
öllum líkindum dómtekið i dag
en þá er stefiit að því að ljúka
málflutningi, sem staðið hefur
samfleytt frá 24. apríl. Fyrri
ræða sérstaks saksóknara, Jón-
atans Þórmundssonar, tók átta
daga í flutningi, og frá 4. maí
til síðastliðins mánudags færðu
þrettán veijendur sakborning-
anna sautján fram varnir. Kraf-
ist er sýknu fyrir hönd allra
hinna ákærðu. Saksóknari lauk
síðari ræðu sinni í gær og talið
er að dagurinn í dag nægi verj-
endum til andsvara.
Skjöl Hafskipsmálsins, rann-
sóknargögn og endurrit yfir-
heyrslna og vitnaleiðslna fyrir
dómi, telja um 11 þúsund blaðs-
íður. Dómarar málsins, sakadóm-
aramir Sverrir Einarsson dóms-
formaður, Ingibjörg Benedikts-
dóttir og Amgrímur Isberg, stefna
að því að kveða upp dóm sinn um
mánaðamótin júní-júlí.
Sjá bls. 46 og 47.
Leikvollur
Logafold
Hjólabretta-
brekka í
Grafarvog
Borgarráð hefur samþykkt til-
lögu umhverfismálaráðs um
að komið verði upp hjóla-
brettabrekku í nýjum lysti-
garði neðan við Logafold í
Grafarvogi. Garðinum er ætl-
aður staður í brekku á móti
suðri og verður hann í stöllum.
Gert er ráð fyrir grillaðstöðu
og bekkjum auk þess sem
yngsta kynslóðin fær hom fyr-
ir sig og sömuleiðis þau sem
eldri era. Samsíða hjólabretta-
brautinni verður hlaupaköttur
fyrir þá sem vilja sveifla sér
niður brekkuna. Neðst í brek-
kunni verður lítill körfubolta-
völlur. Að sögn Jóhanns Páls-
sonar garðyrkjustjóra, hefjast
framkvæmdir um leið og vor-
verkum er lokið og gróður-
setningu í borginni og er gert
ráð fyrir að verkinu ljúki í
sumar, ef undan er skilin gróð-
ursetning, sem geymd verður
til vors. Áætlaður kostnaður
er um 5,7 milljónir króna.
VEÐURHORFUR í DAG, 23. MAÍ
YFIRLIT í GÆR: Um 500 km suðsuðaustur af Hornafirði er 1.005
mb lægð sem þokast austur, en 1.034 mb hæð yfir Grænlandi.
SPÁ: ! dag verður norðan- og norðvestangola eða hæg, breytileg
átt á landinu. Skýjað verður á annesjum norðanlands, en léttir
heldur til yfir daginn í innsveitum. í öðrum landshlutum verður frem-
ur bjart veður, en hætt við síðdegisskúrum á Suðurlandi.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG: Norðvestangola eða
hæg, breytileg átt. Skýjað, sums staðar þokubakkar og svalt í veðri
við norðurströndina. Sennilega víða léttskýjað og sæmilega hlýtt
yfir daginn í öðrum landshlutum.
TÁKN:
Heiðskírt
x Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
Alskýjað
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
10 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
ý Skúrir
*
V E'
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—|* Skafrenningur
j-^ Þrumuveður .
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hiti veður
Akureyri 5 alskýjað
Reykjavik 8 skýjað
Bergen 10 skýjað
Helsinki 13 skýjað
Kaupmannahöfn 14 skýjað
Narssarssuaq 4 léttskýjað
Nuuk +1 þoka
Osló 9 skúr
Stokkhólmur 11 skýjað
Þórshöfn 7 rigning
Algarve 22 léttskýjað
Amsterdam 16 léttskýjað
Barcelona 21 hálfskýjað
Berlfn 20 léttskýjaö
Chicago 9 heiðskírt
Feneyjar 21 skýjað
Frankfurt 20 skýjað
Glasgow 13 rigning
Hamborg 14 skýjað
Las Palmas 22 léttskýjað
London 16 léttskýjað
LosAngeles 14 léttskýjað
Lúxemborg 20 skýjað
Madríd 22 hálfskýjað
Malaga 22 skýjað
Maliorca 24 skýjað
Montreal 7 skýjað
NewYork 12 skýjað
Orlando 24 skýjað
París 18 þokumóða
Róm 23 alskýjað
Vin 20 skýjað
Washington 11 rigning
Winnipeg 8 úrk. ígrennd
Mannbjörg er 6 tonna bátur, Bergvík
RE, sökk á Faxaflóa:
Skipveijimiim tveimur
bjargað úr gúmmíbáti
TVEIMUR mönnum, Sigurði Jóhannssyni 41 árs og Ragnari Má
Sveinssyni 19 ára, var bjargað köldum og hröktum úr gúmmibát
um borð í Ljósafoss er 6 tonna bátur, Bergvík RE 41 sökk um 13
mílur norður af Garðskaga um klukkan hálftvö í fyrrinótt. Mennirn-
ir voru tveir á og vöknuðu við að leki var kominn að bátnum, sem
tekinn var að hallast á stjórnborða. Þeir komust í gúmmíbát og
gerðu vart við sig með því að skjóta upp neyðarblysum.
Slysavamafélaginu barst til-
kynning frá lögreglunni á Akranesi
klukkan 1.35 að sést hefðu neyð-
arblys á himni vestur eða norðvest-
ur af bænum og um svipað leyti
tilkynntu nærstödd skip um blys á
lofti og sneru til leitar. Ljósafoss
kom auga á mennina í gúmmíbát
um klukkan 2.20, náði þeim um
borð og kom með þá inn til
Reykjavíkur á sjötta tímanum í
gærmorgun. Mennimir voru þá
hraktir og blautir en einkum var
af Sigurði dregið og var hann flutt-
ur í sjúkrahús og lagður þar inn.
Ragnar fór einnig til rannsóknar
en fékk að fara heim að henni lok-
inni.
Mennirnir munu hafa farið í koju
um klukkan 22.30 en Sigurður, sem
var eigandi Bergvíkur, vaknað um
klukkan hálftvö og séð að leki var
komið að bátnum, sem var nýsmíð-
aður og í sinni annarri veiðiferð.
Hann vakti Ragnar sem sjósetti
gúmmíbátinn meðan Sigurður náði
í neyðarblys. Á leiðinni féll Sigurður
tvisvar fyrir borð, í fyrra skiptið
komst hann um borð af eigin ramm-
leik og náði í blysin en féll aftur
og hjálpaði Ragnar honum þá um
borð í gúmmíbátinn. Þeir skáru
gúmmíbátinn frá og skömmu síðar
sökk Bergvíkin. Tæpar fimmtíu
mínútur liðu frá því þeir skutu upp
blysi þar til Ljósafoss kom til bjarg-
ar.
Auk Ljósafoss vora skipin Har-
aldur Kristjánsson og Þuríður Hall-
dórsdóttir, í nágrenni slysstaðarins
og leituðu mannanna. Þyrla Land-
helgisgsælunnar fór til leitar en var
snúið við þegar tilkynnt var um
björgunina.
Kvennalistinn spyr um
kostnað fimdaherferðar
Kvennalistinn hefúr sent fyrirspurn til forsætisráðherra um hvort
kostnaður af nýafstaðinni fundaherferð Ijármálaráðherra hafi verið
greiddur úr ríkissjóði.
Ólafur Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra hefur undanfarið
haldið fundi víða um land um ríkis-
fjármál í nafni fjármálaráðuneytis-
ins. í bréfi sem þingflókkur Sam-
taka um kvennalista hefur sent
Steingrími Hermannssyni forsætis-
ráðherra segir að fjármálaráðherra
hafi í aðdraganda þessara funda
gefið út sérstakan áróðursbækling
til dreifingar og með fundaherferð-
inni hafi hann efnt til tilkostnaðar,
sem að líkindum hlaupi á milljónum
króna, ekki til hlutlægrar fræðslu
heldur til að koma á framfæri einlit-
um áróðri.
Kvennalistinn segir síðan í bréf-
inu, að eðlilegt sé að spyrja, hvort
fjármálaráðherra greiði þennan
kostnað úr eigin vasa, eða þá Al-
þýðubandalagið sem hann sé for-
maður fyrir. Sé kostnaður af þess-
um ferðum greiddur af almannafé,
vill Kvennalistinn fá að vita hversu
háar fjárhæðir komi til greiðslu úr
ríkissjóði vegna fundaferða fjár-
málaráðherrans innanlands í maí-
mánuði, af hvaða fjárlagalið og
samkvæmt hvaða heimildum sá
kostnaður sé greiddur, og hvert sé
álit forsætisráðherra á þeirri með-
ferð almannafjár sem hér virðist
stofnað til.
Jón Sveinsson aðstoðarmaður
forsætisráðherra sagði við Morgun-
blaðið að hann myndi leita eftir
upplýsingum hjá fjármálaráðuneyt-
inu, vegna fyrirspurna Kvennalist-
ans.