Morgunblaðið - 23.05.1990, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAI 1990
£
BRÉFA-
BINDIN
frá Múlalundi...
... þar eru gögnin á góðum stað.
Múlalundur
SfMI: 62 84 50
Námskeið:
INCOTERMS 1990
Þýðingamiklar breytingar á viðskiptaskilmálum
í milliríkjaverslun taka gildi 1. júlí 1990.
Námskeið um nýja og breytta INCO-skil-
mála verður haldið á Hótel Sögu, sal B,
mánudaginn 28. maí kl. 13.30.
Þátttökugjald er kr. 7.000
(fundargögn innifalin).
Leiðbeinandi verður CAROL XUEREF,
lögfræðingur hjá Alþjóða verzlunarráðinu.
Hún er sérfræðingur nefndarinnar sem sá
um endurskoðun INCO-skilmálanna.
Námskeiðið fer fram á ensku.
I
Þátttaka tilkynnist í síma 678910.
LANDSNEFND
ALÞIÓÐA VERZLUNARRAÐSINS
Icalcmd National Committoo oi tho IC C
HAGNYITHASKÓLANÁM
ÍKERFISFRÆÐI
Innritun í kerfisfræðinám á haustönn 1990 Tölvuháskóla Verzl-
unarskóla íslands fer fram á skrifstofu skólans til 31. maí.
Markmið námsins er að útskrifa kerfisfræðinga, sem geta unn- í
ið við öll stig hugbúnaðargerðar, skipulagt og séð um tölvuvæð- |
ingu hjá fyrirtækjum og annast kennslu og þjálfun starfsfólks.
Hægt er að hefja nám í september og janúar. Stúdentar af |
hagfræðibraut ljúka námi á þremur önnum en aðrir geta þurft
aó sækja tíma í fornámi allt að einni önn til viðbótar.
Kennt er eftir hádegi, en nemendur sem vilja halda áfram að
vinna hluta úr degi jafnframt námi, þurfa að ræða við kennslu- |
stjóra um möguleika á því.
Eftirtaldar námsgreinar verða kenndar:
Fyrsta önn: Vélamál
Forritun í Pascal
Kerfisgreining og hönnun
Stýrikerfi
Forritahönnun
Verkefni
Önnur önn: Gluggakerfi
Gagnaskipan
Fjölnotendaumhverfi
Gagnasafnsfræði
Verkefni á 2. önn
Þriðja önn: Hugbúnaðargerð
Fyrirlestrar um valin efni
Forritunarmál
Lokaverkefni
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu Verzlunarskól-
ans, Ofanleiti 1. Nánari upplýsingar veitir kennslu-
stjóri á skrifstofu skólans og í síma 688400.
OPIÐ HUS
erí dag, miðvikudag, frákl. 13-18.
Aðgangur er öllum heimill.
John Dvorak frá PC Magazine
flytur fyrirlestur kl. 14.00.
Aðgangurkr. 2.000.
TVI
Lykill að betri borg
eftir Sigrúnu
Magnúsdóttur
Það er alveg augljóst að til þess
að Reykjavíkurborg geti dafnað og
að hér verði haldið uppi manneskju-
legu samfélagi þarf að sjá tii þess
að atvinnulífið í borginni eflist.
Atvinnulífið er undirstaða þess að
hægt sé að veita borgurum góða
sameiginlega þjónustu og skapa
þeim manneskjulegt umhverfi og
skilyrði til menntunar og menning-
arlífs. Atvinnulífi má líkja við ttjá-
stofn en samfélagsþjónustunni við
greinarnar. Ef stofninn ber ekki
greinarnar þá fellur tréð. Það þýðir
ekki að hlaða á greinarnar. ef þess
er ekki gætt að stofninn sé nógu
sterkur.
Nýbreytni í atvinnulífi
í því skyni að efla atvinnulíf í
Reykjavík flutti ég í borgarstjórn
tillögu um að kannaðir verði mögu-
leikar á því að koma hér upp alþjóð-
legri umskipunar- og fríverslunar-
höfn. Tillagan fékk jákvæðar undir-
tektir og var henni vísað til umfjöll-
unar í hafnarstjóm.
Ég tel að hér hafi ég hreyft mjög
mikilvægu máli. Miklar pólitískar
breytingar hafa átt sér stað í
Austur-Evrópu og andrúmsloftið á
alþjóðavettvangi hefur batnað. Þró-
unin í Sovétríkjunum mun leiða til
stóraukinna viðskipta þeirra við
Vestur-Evrópu og Ameríku og
sennilega verður þess vegna mikil
aukning á vöruflutningum um norð-
urhöf.
N orðausturleiðin
Breytt tækni veldur því að sigl-
ingar um Norður-íshafið eru orðnar
mögulegar í mun ríkari mæli en
áður hefur verið. Sú tækni er veld-
ur þáttaskilum' um þessar mundir
er einkum tvenns konar. ísbijótar
eru orðnir miklu öflugri en áður og
fjarkönnun úr veðurtunglum miklu
nákvæmari. Siglingatækni tengd
gervihnöttum hefur tekið stórstíg-
um framförum og mikilvægrar
reynslu hefur verið aflað. Nú er svo
komið að það er tæknilega unnt að
halda uppi siglingum um Norður-
íshafið milli Atlantshafs og Kyrra-
hafs mikinn hluta ársins. Norðaust-
urleiðin liggur vel við siglingum
milli austurstrandar Ameríku og
Japans.
Atvinnumálin í brennidepli
Verslunarráð íslands hefur látið
taka saman skýrslu um verslun og
þjónustu sem útflutningsgrein. Nið-
urstöður þeirrar skýrslu benda til
þess að ísland geti vegna legu
sinnar haft ýmsa möguleika og ég
legg til að þeir verði nýttir til at-
vinnusköpunar og hagsældar hér.
Miðstöð vörudreifingar í miðju
Norður-Atlantshafi gæti haft mjög
mikla efnahagslega þýðingu og
stuðlað að margháttaðri atvinnu-
uppbyggingu.
Betri borg
I borgarstjórn Reykjavíkur höf-
um við framsóknarmenn á liðnu
kjörtímabili lagt mikla áherslu á
það að gera borgina manneskju-
legri og betri borg til að búa í. Við
höfum flutt margar tillögur um
umhverfismál og umferðaröryggis-
mál og hafa nokkrar þeirra fengið
framgang, svo sem tillaga um borg-
argarða, aðstöðu hestamanna og
vegrið í Ártúnsbrekku.
Þá höfum við flutt tillögur um
upphitun gatna og gangstétta og
nýverið fékk ég samþykkta tillögu
um að kynningarbæklingur verði
sendur til borgarbúa um hvernig
nýta megi affallsvatn hitaveitunnar
til upphitunar gangstétta.
Nú viku fyrir kosningar stekkur
svo íhaldið á hugmyndir okkar um
upphitun gatna og gangstétta, sem
þeir hafa fellt allt kjörtímabilið.
Auðvitað er það ágætt þegar þeir
sjá að sér.
Sigrún Magnúsdóttir
„í borgarstjórn
Reykjavíkur höfum
við framsóknarmenn á
liðnu kjörtímabili lagft
mikla áherslu á það að
gera borgina mann-
eskjulegri og betri borg
til að búa í.“
Allt stuðlar þetta að því að gera
Reykjavík að betri borg en undir-
staðan undir félagslegri þjónustu
og sameiginlegum verkefnum er
traust og vaxandi atvinnulíf — það
er lykilatriði.
Höfíindur er borgarfulltrúi
Framsóknarflokksins ogskipar 1.
sætiá lista ílokksins við
borgarstjórnarkosningarnar.
Að svelgjast á sakramentinu
eftir Asgeir Hannes
Eiríksson
Ég vorkenní alltaf blessuðu
íhaldinu mínu þegar dregur að
kosningum. Sjálfstæðisflokkurinn
hefur að vísu sagt skilið við al-
menna pólitík fyrir löngu og stend-
ur nú orðið eingöngu vörð um
kolkrabbann í Eimskip með vinstri
hönd fast upp að kaskeitinu. En
á fjogurra ára fresti þarf Sjallinn
minn að setja upp sparisvipinn og
pakka varðhundinum sínum inn í
gjafapappír með krossbandi. Þá
gæta menn sín ekki alltaf á guð-
spjöllunum og svelgist því stund-
um á sakramentinu.
Mogginn og glundroðinn
Undanfaraa daga hafa sendi-
menn D-listans verið á þönum í
sjálfu Morgunblaðinu til að koma
þessum bögglapósti áleiðis til kjós-
enda í Reykjavík. Það er ekki öf-
undsvert hlutskipti. Enda er þessi
málflutningur afar merkilegur á
köflum og einkum og sérílagi þeg-
ar minnst er á gamalkunn orð eins
og glundroða í forystugreinum
blaðsins.
Það heitir nefnilega glundroði
hjá elsku Mogganum okkar þegar
fólk kemur sáman í hóp úr fleiri
en einni átt. Þetta er merkileg
kenning. Þannig kallar blaðið til
dæmis framboð Nýs vettvangs til
borgarstjórnar glundroða í nýjum
búningi. Fer nú að verða nokkuð
erfitt fyrir venjulegt fólk að koma
saman í friði fyrir augliti Morgun-
blaðsins. I rauninni eru því öll
mannamót orðin glundroði í aug-
um blaðsins nema ef vera skyldi
að eineggja tvíburar slyppu fyrir
horn í heimsókn hvor til annars.
Það eru hálf lúin vinnubrögð
að draga fólk í dilka á þennan
hátt og heyra til köldu stríði. Hóp-
ar fólks á borð við stjórnmála-
flokka ná einfaldlega ekki að
stækka nema þeim bætist við liðs-
auki úr öðrum áttum. Alvöru
flokkar sortera ekki fólk í pólitík
frekar en kaupmaðurinn á horninu
velur sér kúnna eftir flokksskír-
teinum. Þetta á Moggi að vita.
Eða .velur blaðið sér ennþá kaup-
endur og auglýsendur á þessum
nótum?
Mogginn og atkvæðin
En með þessu móti er Morgun-
blaðið ekki bara að velja úr það
fólk sem blaðinu þóknast að kjósi
D-listann í næstu kosningum.
Mogginn er líka að hafna því fólki
sem gengið hefur til liðs við Sjálf-
stæðisflokkinn síðustu árin eða
áratugi og jafnvel lengur enda
hafi það komið úr öðrum flokkum
eða verið utan flokka. Mega þá
margir búa' sig undir að axla
skinnin og líti nú kjósendur flokks-
ins í eigin barm.
Nýlega gengo tveir þingmenn
úr öðrum flokki til liðs við Sjálf-
stæðisflokkinn við dynjandi lófa-
tak. Sú viðbót hefur þá væntan-
lega aukið á glundroðann í flokkn-
jim. Stutt er síðan helsti hug-
myndafræðingur D-listans í Val-
höll gekk í Sjálfstæðisflokkinn eft-
ir að hafa árum saman fundið
sannleikann vinstra megin við
sjálfan Karl heitinn Marx. Meiri
glundroði. Ekki eru í sjálfu sér
mörg pólitísk ár síðan öll Engeyj-
arættin gekk í flokkinn eftir deilur
í Framsókn. Glundroði og aftur
glundroði. Og Sjálfstæðisflokkur-
Ásgeir Hannes Eiríksson
„Alvöru flokkar sortera
ekki fólk í pólitík frekar
en kaupmaðurinn á
horninu velur sér
kúnna eftir flokksskír-
teinum.“
inn var jú sjálfur búinn til við
samruna Fijálslynda flokksins og
íhaldsflokksins og hefur því sam-
kvæmt kenningu Morgunbiaðsins
fæðst í glundroða. 0, jamm! Oft
eru hlátur og grátur í sama mal.
Ilöfundur erþingmaður
Borgaraflokksins í Reykja vík.