Morgunblaðið - 23.05.1990, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAI 1990
Þá bara skrökva þeir aftur
eftirBraga
Michaelsson
Kosningabaráttan vegna bæjar-
stjómarkosninganna_ 26. maí nk.
er nú á lokaspretti. í þessari bar-
áttu hefur að vonum margt borið
á góma jafnt stórt og smátt. Al-
þýðubandalagsmenn í Kópavogi
hafa róið iífróður síðustu daga
enda málefnastaða þeirra ekki
góð.
Það verður að teljast undarleg
málefnafátækt í kosningabaráttu
þegar menn hafa ekki annað sér
til málsbóta en að ljúga upp sökum
á andstæðingana til þessa að geta
eignað sér allan heiður af verkefn-
um þess kjörtímabils sem er að
líða.
Fossvogsdeilan
Eitt þeirra mála sem þannig
háttar um er svonefnt „Fossvogs-
mál“, það er hin margfræga deila
um Fossvogsdalinn og sorpstríð
sem kostaði Kópavogsbúa tugi
milljóna. Hér er eftirliggjandi
dæmi um málatilbúnað þeirra al-
þýðbandalagsmanna í Kópavogi. í
þrígang hefur Valþór Hlöðversson
tekið sig til og skrökvað upp þeirri
sögu að ég hafi lagt til að fresta
skipulagi í Fossvogsdal til ársins
2000. Hver tilgangur hans er með
þessum rakalausa málflutningi
veit ég ekki, en líklega er þetfa
gamla „kommaaðferðin" að ljúga
bara nógu oft, þá muni einhver
kannski trúa þegar upp er staðið.
Meirihlutaflokkarnir vilja hrósa
sér af sigri í þessari deilu. En eini
sigur þeirra var að éta ofan í sig
eigin gerðir og setja samningana
við Reykjavík aftur í gildi við skrif-
borðið hjá borgarstjóranum í
Reykjavík. Félagsmálaráðherra
hefði ekki getað staðfest skipulag-
ið nema réttur okkar væri tryggð-
ur eins og samningurinn frá 1973
gerði ráð fyrir. Ásakanir A-flokk-
anna um að Sjálfstæðisflokkurinn
væri að þvælast fyrir er slík regin-
firra að það er ekki svaravert og
hrein ósannindi.
Skólamálin og Heimir Pálsson
Vinur minn Heimir Pálsson
sendir mér hlýjar kveðjur í blaði
þeirra alþýðubandalagsmanna í
Kópavogi.
Stuðningur Heimis við baráttu
Bragi Michaelsson
„ Jaftivel þótt sameigin-
legar tekjur ársins 1990
séu notaðar eru skuldir
yfir þeim hættumörk-
um sem ráðuneytið
leggur til grundvallar
sínu mati.“
okkar sjálfstæðismanna fyrir end-
urkjöri mínu í bæjarstjóm er að
sjálfsögðu vel þeginn. Ljóst er af
skrifum Heimis að skólamál í
Kópavogi eru ekki í eins góðu
horfí og þeir A-flokkamenn vilja
vera láta. Það er engin tilviljun,
Heimir minn, að þið meirihluta-
menn hafið árlega dregið lappirnar
í fjárveitingum til grunnskólanna.
Allt þetta kjörtímabil hefur skóla-
nefnd staðið í stöðugri baráttu
fyrir auknum framlögum og það
getur ekki talist til fyrirmyndar
að þurfa að innrétta sérstaka að-
stöðu í húsnæði úti í bæ til að sinna
6 ára kennslunni sem nú er að
verða lögboðin. Um þrengslin i
Hjallaskóla á komandi vetri er enn
ekki úttalað til fulis, en vonandi
verður þessi viðskilnaður A-flokk-
anna ekki til þess að gripa þurfí
til enn róttækari ráðstafana.
Um framhaldsskólann er það
að segja að barátta okkar sjálf-
stæðismanna leiddi til þess að
teikningar af matvælaiðjuskólan-
um voru samþykktar af Birgi ísl.
Gunnarssyni fyrrverandi mennta-
málaráðherra. Það er hinsvegar
Ijóst að sú mikla barátta er til
lítils þegar enginn árangur verður
í baráttu um fjárveitingar til að
byggja þennan skóla. Sú hugmynd
að skólinn yrði hluti af og í tengsl-
um við íþróttahöllina er síður en
svo verri hugmynd en byggja
grunnskóla í henni. Þannig mætti
ef til vill ná fjárveitingu til mat-
vælaiðjuskólans og um leið tryggja
að ljái-veitingar til íþróttahallarar-
innar verði viðunandi. En A-flokk-
arnir vildu ekki einu sinni ræða
þetta.
Menntaskólann í Kópavogi á að
styrkja og koma hér á fót fjöl-
breyttara námi. Að því vill Sjálf-
stæðisflokkurinn vinna á komandi
kjörtímabili.
Fjármál Kópavogs og
félagsmálaráðherra
í liðinni viku sendi félagsmála-
ráðherra frá sér yfirlýsingu um
að Kópavogur væri ekki á gjör-
gæslulista ráðuneytisins vegna
fjármála bæjarins. Ráðherrann var
þar með gamlar upplýsingar úr
ráðuneyti' sínu.
Nú liggja reikningar Kópavogs-
bæjar fyrir 1989 fýrir. Þar kemur
fram að „nettóskuldir bæjarins“
aru 685 m.kr. en brúttó skuldir
með Smárahvammsskuldabréfum
1.400 m.kr. Þegar hlutfall nettó-
skulda er reiknað er ekki tekið
tillit til þess að 200 m.kr. eru
mjög vafasamar eignir, útistand-
andi eldri gjöld og framlög ríkisins
sem ekki liggur samþykkt fýrir
og notaðar eru til þéss að lækka
nettóskuldir. Nettóskuldir Kópa-
vogsbæjar eru, ef ekki er tekið
mið af þessum vafasömu eignum,
um 860 m.kr. Sameiginlegar tekj-
ur sem félagsmálaráðuneytið not-
ar sem viðmiðun voru 1989 1.224
m.kr. og eru nettóskuldir því um
70% af sameiginlegum tekjum.
Jafnvel þótt sameiginlegar tekjur
ársins 1990 séu notaðar eru skuld-
ir yfír þeim hættumörkum sem
ráðuneytið leggur til grundvallar
sínu mati.
í kosningunum á laugardaginn
eiga Kópavogsbúar möguleika á
að gefa A-flokkunum áminningu.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur lagt
spilin á borðið. Frambjóðendur
flokksins hafa ekki komið til kjós-
enda með loforð sem ekki stand-
ast né reynt að blekkja. A-flokk-
arnir koma nú enn á ný og ljúga
aftur að ykkur.
Kópavogsbúar! Ég skora því á
ykkur að kjósa D-listann í Kópa-
vogi 26. maí.
Höfundur er bæjnrfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins í Kópa vogi.
Samstaða sjálfstæðismanna
eða sundurlyndi vinstrí manna
eftir Ólaf Ormsson
Kosningabaráttunni fyrir borg-
arstjórnarkosningarnar í
Reykjavík 26. maí er að ljúka. Það
er einkennandi fyrir kosningabar-
áttuna að Reykvíkingum er gefinn
kostur á að velja annars vegar á
milli traustrar forystu sjálfstæðis-
manna í borgarstjórn undir far-
sælli forystu borgarstjórans
Davíðs Oddssonar eða hins vegar
klofningshópa á vinstri væng
íslenskra stjórnmála, sem sumir
hveijir hafa kosið að lúta leiðsögn
fjölmiðlafólks á H-listanum, lista
Nýs vettvangs sem er þó gamall
ef grannt er skoðað. Sá listi nýtur
nefnilega forystu aðila sem Reyk-
víkingum eru vel kunnugir fyrir
að hafa birst á hinum ýmsu listum
vinstri manna og átt litlu fylgi að
fagna um árabil. Að fjölmiðlafólk-
ið reynist hafa heillavænleg áhrif
á gang borgarmála er ekki trú-
legt. Það kann ef til vill að komá
fyrir sig orði á sjónvarpsskermin-
um, reynslan sýnir aftur á móti að
í stjórnmálin hefur það hingað tii
varla átt erindi.
Einnig er að fínna á H-listanum
brotabrot úr Borgaraflokknum
sem rær nú lífróður á vettvangi
stjómmálanna, á fleyi sem engar
líkur eru á að nái nokkurn tímann
landi.
Gegn sameiginlegum og sterk-
um meirihluta Sjálfstæðisflokks-
ins er nú teflt sex listum vinstri
manna sem yfirgnæfandi líkur eru
á að geti ekki sameinast um eitt
eða neitt. Hið eina skynsamlega í
þeirra stöðu hefði auðvitað verið
það að reyna að bjóða fram sam-
eiginlagan lista, en eins tvístraðir
og sundurlyndir og vinstri menn
eru einmitt þessa dagana, þá er
slíkt auðvitað útilokað.
Það er löng og góð reynsla feng-
in fyrir því að þegar Sjálfstæðis-
flokknum er treyst fyrir málefnum
Reykvíkinga þá er unnið mark-
visst og skipulega að upþbyggingu
Reykjavíkurborgar.
Hvarvetna blasa við hinar miklu
framkvæmdir sem átt hafa' sér
stað á liðnu kjörtímabili. í bygg-
ingarmálum aldraðra hefur verið
unnið stórvirki. Þjónustuíbúðir
aldraðra við Lönguhlíð, Snorra-
Betri skóli
eftir Valgerði
Eiríksdóttur
Fyrir skömmu horfði ég á þátt
í sjónvarpinu sem fjallaði um að-
búnað íslenskra barna. Þar var
rætt við ýmsa aðila sem vinna
með börn eða tengjast málefnum
þeirra á einhvern hátt. Það kom
berlega fram hjá öllum viðmæ-
lendum að börnin og þarfír þeirra
mæta afgangi í okkar ‘auðuga
samfélagi. Þama kom fram hversu
gífurleg vandkvæði það eru sem
margir foreldrar og börn þeirra
þurfa að takast á við vegna vistun-
ar og of stutts skóladags.
Reykjavíkurborg er vel efnum búin
og ætti því að geta séð sómasam-
lega fyrir sínum þegnum, en börn
eru einnig þegnar hennar (þótt þau
hafí ekki atkvæðisrétt). Skóladag-
heimili eru skammarlega fá, en
margir sem þurfa á þeim að halda.
Það er ótrúlegt en satt að núna
þegar síðasti áratugur tuttugustu
aldarinnar er hafinn skuli aðeins
einn skóli í Reykjavík vera heils-
dagsskóli, en Fossvogsskóli telst
vera tilraunaskóli með slíkt skipu-
lag, og nýtur til þess sérstakrar
fjárveitingar, í nýjasta hverfi
borgarinnar við Grafarvog er að-
„Alþýðubandalagið hef-
ur hvatt til meira
hverfalýðræðis og er
tilbúið að vinna að slíku
skipulagi fái fúlltrúar
þess einhverju ráðið
hér í borginni að lokn-
um kosningum.“
eins einn skóli, og vísir að öðrum,
enda getur það varla kallast skóli
þegar lausum stofum er hrúgað
saman á lóð þar sem í framtíðinni
á að risa hin eiginlega skólabygg-
ing. Af því verður þó ekki á þessu
ári, lausu stofunum verður einung-
is fjölgað. Þetta er glöggt dæmi
um hvernig íbúahverfín rísa eitt
af öðru á undan þeirri þjónustu
sem þau þurfa á að halda, og allt-
af á kostnað barnanna.
Skólanefiidir í hverfín
Það kom einnig fram hjá flest-
um viðmæjendum í áðurnefndum
sjónvarpsþætti að svo virðist sem
foreldrar sætti sig við þetta
ástand. Þeir telji að hér verði engu
um breytt. Yfirvöldin eru fjarlæg
og fara sínu fram óháð vilja íbú-
Valgerður Eiríksdóttir
anna í hverfunum. Þessu þarf að
breyta. Ein leið til þess að auka
möguleika fólks til að hafa áhrif
á skólamálin í sínu hverfí er að
skipta borginni í skólahverfi þar
sem sérstakar skólanefndir sinna
málefnum hverfisins. Með slíku
fyrirkomulagi væri íbúum eins
hverfis auðveldað að hafa áhrif á
mikilvæg álitamál eins og t.d.
hvort aka skuli nemendum milli
hverfa þegar yfirvöld telja að hús-
næði skóla í einhveiju öðru hverfi
sé vannýtt, og því megi spara frek-
ari skólabyggingu í hverfinu sem
er að rísa. Dæmi um þetta er að
nemendum 7.-9.. bekkjar í Ár-
túnsholti hefur verið ekið í Lauga-
lækjarskóla, en margir íbúar
hverfisins eru aldeilis ekki sáttir
við að velja þá leið. Annað dæmi
er hið fræga Ölduselsmál þar sem
íbúar hverfisins reyndu að hafa
áhrif, en ekkert tillit var tekið til
þeirra.
Alþýðubandalagið hefur hvatt
til meira hverfalýðræðis og er til-
búið að vinna að slíku skipulagi
fái fulltrúar þess einhveiju ráðið
hér í borginni að loknUm kosning-
um. Alþýðubandalagið er einnig
tilbúið til að nýta þá fjármuni sem
erú til ráðstöfunar í þágu þegna
þessarar borgar. Það mun ekki
gleyma börnum og öldruðum. Sá
meirihluti sem nú situr við völd
er á móti auknu lýðræði fólksins.
Hann kýs að nota peninga okkar
borgarbúa til að reisa glæsihallir,
sem einungis útvaldir og efna-
meiri muni nýta. En hvað viljum
við borgarbúar? Það ræðst laugar-
daginn 26. maí er við göngum að
kjörborðinu.
Höíúndur er kennari og skipar 10.
sætið á lista Alþýðubandalagsins
i Reykjavík.
Ólafiir Ormsson
braut, Vesturgötu, inn við Sund-
laugaraveg og úti á Granda er ljós
vottur þess að ekki hefur verið
setið auðum höndum þegar bygg-
ingarmál aldraðra eru annars veg-
ar, og nú eru hafnar framkvæmd-
ir við stórbyggingu við Lindar-
götu.
Uppbyggingin í Viðey, endur-
reisn Viðeyjarstofu, bygging
Borgarleikhússins, stórkostlegar
framkvæmdir í Grafarvogi, Nesja-
vallavirkjun; framkvæmdir við
Perluna í Öskjuhlíð og bygging
ráðhússins í miðborg Reykjavíkur
eru einnig ljós dæmi þess að við
stjórnvölinn í Reykjavíkurborg eru
menn sem láta verkin tala. Og nú
síðast fyrirhugaðar stórfram-
kvæmdir við uppbyggingu Korp-
úlfsstaða sem framtíðar menning-
ar- og listamiðstöðvar Reykjavík-
ur. Og þannig mætti lengi telja.
Það er því ábyrgðarhluti að
kasta atkvæði á einhvern hinna
sex lista vinstri manna og eiga
það á hættu að velja í borgar-
stjórn fólk sem allar líkur eru á
að muni eiga það eitt sameiginlegt
að ná samstöðu þegar annars veg-
ar eru kosningar í ráð og nefndir
og þarf að huga að hinum ýmsu
bitlingum sem vinstri menn munu
standa að.
Það er ef til vill líkt því og að
freista gæfunnar í lottói eða
happaþrennu að veðja á hin sex
sundurleitu framboð vinstri
manna. í happdrættum er þó ein-
hver von um stóran vinning. Sá
eða sú sem veðjar á einhvem hinna
sex lista vinstri manna getur hæg-
lega keypt köttinn í sekknum.
Fylkjum liði um D-listann í
borgarstjórnarkosningunum 26.
maí. Forðumst glundroða og upp-
lausn í málefnum Reykjavíkur-
borgar.
MíÆnáúr er ríÓi^unSfir.* ***■***“*