Morgunblaðið - 23.05.1990, Síða 32

Morgunblaðið - 23.05.1990, Síða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 1990 Sjálfstæðisflokkurinn hef- ur mótað svipmót bajarins - segir Benedikt Sveinsson, oddviti sjálfstæðismanna í Garðabæ í GARÐABÆ hafa sjálfstæðismenn verið við vðld allt frá því fyrst var kosið pólitískri kosningu til sveitarfélagsins 1966. Benedikt Sveinsson hæstaréttarlögmaður og bæjarfulltrúi í Garðabæ, sem skipar efsta sætið á lista Sjálfstæðisflokksins til bæjarstjórnar, telur Garðabæ vera táknrænt dæmi um það hvernig bæjarfélag líti út sem sjálfstæðismenn hafa stjórnað alla tíð. „Sjálfstæðisflokkurinn hefúr mótað svipmót bæjarins." Benedikt Sveinsson, formaður bæjarráðs Garðabæjar og efsti maður á lista Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ. Að sögn Benedikts hefur síðasta kjörtímabil einkennst af styrkri stjórn sjálfstæðismanna, sem hald- ið hafi áfram á þeirri braut sem mörkuð hefur verið undanfarin ár. Þau verkefni og mál sem unnið hafi verið að beri vott um það. íþróttamiðstöð Garðabæjar Benedikt telur byggingu íþrótta- miðstöðvarinnar hafa verið viða- mesta verkefni kjörtímabilsins, en tekið hafi verið í notkun fullkomið íþróttahús og sundlaug. „Við klár- uðum sundlaugina á 10 mánuðum og íþróttahúsið á 16, og kostaði framkvæmdin í heild 250-300 millj- ónir. Við höfum tekið þá stefnu að leggja íþróttafélögunum til mann- virki, en síðan verða félögin sjálf að sjá um reksturinn. Er þar unnið mikið og fómfúst sjálfboðaliða- starf. Þeir sem veljast til forystu í íþróttafélögunum geta með þessu einbeitt sér að rekstri þeirra og félagsstarfi í stað þess að standa í byggingarframkvæmdum. Ég tel að þessi stefna sem sjálfstæðis- menn hafa mótað, hafi gefist mjög vel. Við leggjum mjög mikla áherslu á íþrótta- og æskulýðsmál, enda má segja að Garðabær sé mikill íþrótta- og æskulýðsbær því af um 7.000 íbúum bæjarins eru um 2.000 á skólaaldri; frá leik- skóla til loka framhaldsskóla." Umræðan beinist því næst að skólamálum í Garðabæ. „Við höf- um verið að efla skólastarfíð mark- visst og síðustu ár höfum við lagt sérlega rækt við Fjölbrautaskói- ann, en hann er fjölmennasti fjöi- brautaskólinn á höfuðborgarsvæð- inu utan Reykjavíkur. Við teljum að almennt sé gott ástand í skóla- málum í bænum; til vitnis um það er sífelld ásókn fjölskyldufólks í bæinn. Sama á við um íþrótta- og æskulýðsmálin, sem og um leik- skólamálin," segir Benedikt og bendjr á að dagvistarrými verði tvöfaldað á næstu níu mánuðum, en leikskólapláss eru nú 200 og fjölgar í um 300 á árinu 1991. Traust fjárhagsstaða Traustur fjárhagur bæjarfélags- ins er eitt af aðalsmerkjum sjálf- stæðismanna í Garðabæ, að mati Benedikts. „Lausafjárhlutfall bæj- arsjóðs er rúmlega 1,70 og gerist það ekki víða hærra. Skuldastaðan er einnig mjög vel viðunandi. Vaxtagjöld á síðastliðnu ári voru aðeins 18 milljónum króna meiri en vaxtatekjurnar, en heildartekjur bæjarins eru nú tæplega 525 millj- ónir. Vegna hinnar tryggu fjár- hagsstöðu gátum við auðveldlega aflað lánsfjár til að byggja íþrótta- miðstöðina og verða þau lán greidd á næstu 10 árum. Aðaltekjustofn Garðabæjar er útsvarið, en það er nú 7%. Er það svipað og meðaltal- ið yfír landið. Aðstöðugjöld eru hins vegar lág, meira að segja lægri en í Reykjavík og fasteignagjöldin eru svipuð og víðast. Opinber gjöld í Garðabæ hafa ekki hækkað að raunvirði og eini nýi skatturinn á kjörtímabilinu er 0,13% holræsa- gjald til að fjármagna hreinsun strandlengjunnar. Alögur á hvern íbúa í Garðabæ eru lægstar á höf- uðborgarsvæðinu, og rekstrar- kostnaður bæjarfélagsins á hvern íbúa er lægstur á höfuðborgar- svæðinu. Jafnframt er mestu fé á hvern íbúa varið til framkvæmda, að Seltjarnarnesinu einu undan- skildu." Um málefni aldraðra segir Bene- dikt að bærinn hafi haft forgöngu um stofnun byggingarfélags eldri borgara. „Við beittum okkur fyrir úthlutun lóðar til þeirra, sem Al- þýðubandalagið var að sjálfsögðu á móti. 45 íbúðir eru nú í smíðum á vegum samtakanna og eru þær fyrstu að verða tilbúnar. Þetta er eitt dæmið um árangursríkt sam- starf bæjaryfirvalda og ftjálsra fé- laga innan bæjarins. Við þessar byggingar er síðan ýmis þjónustu- og félagsstarfsemi á vegum bæjar- ins.“ Byggingar aldraðra eru ekki einu framkvæmdirnar í bænum, því bæjaryfirvöld hafa gætt þess að sögn Benedikts að skapa nokkuð gott jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar eftir byggingarlóðum. „Um 60-70 nýjar íbúðir eru byggð- ar á ári og í vor keyptum við nýtt byggingarsvæði í landi Arnarness í Hæðarhverfi, sem er tæpir 10 hektarar að stærð. Einnig má þess geta að bæjarstjórnin beitti sér fyrir stofnun hlutafélags um bygg- ingu á kaupleiguíbúðum, sem þeg- ar er hafin bygging á. Húsnæðis- stofnun hafnaði umsóknum um frekari kaupleiguíbúðir á þessu ári, án þess að fullnægjandi skýr- ingar hafi fengist." Áframhald framfara Benedikt kveður kjörtímabil áframhaldandi framfara og upp- byggingar vera framundan, veiti Garðbæingar sjálfstæðismönnum áframhaldandi brautargengi. „Stærsta verkefnið verður án efa holræsaframkvæmdirnar. Það er reyndar ekki aiveg ljóst á þessari stundu hvaða leið verður valin í þeim efnum, en þar koma þijár leiðir til greina; misdýrar. Sú ódýr- asta kostar 130 milljónir, en hún felst í því að leiða skolpið 1,5 km út á Skeijafjörð. Dýrasta leiðin, sem kosta myndi 230 milljónir, felst í samstarfi við Reykjavík og Kópa- vog og veita þannig skólpinu út fyrir Akurey. Það kemur okkur til góða nú að hafa lagt til hliðar tekj- ur af holræsagjaldinu, en þær nema nú um 60 milljónum. Bæjarfulltrúi Alþýðubandalagsins greiddi á sínum tJma atkvæði gegn holræsa- gjaldinu, þannig að áhersla E-list- ans á holræsaframkvæmdimar í kosningunum nú er því nokkuð hjákátleg." Sjálfstæðismenn munu áfram starfa að sömu grundvallarmálum, eftir sömu meginreglum og áður, að sögn Benedikts. „Við munum halda opinberum gjöldum í lág- marki og beita aðhaldi í útgjöldum. Við munum halda áfram að efla æskulýðs- og íþróttastarf. Við munum halda áfram gatnagerðar- framkvæmdum af krafti og við munum taka í notkun nýjan skóla í austurhluta bæjarins." Málflutningur minnihlutans fráleitur Um horfurnar í komandi kosn- ingum segir Benedikt: „Samstarfíð við minnihlutann á síðastliðnu kjörtímabili hefur verið ágætt og þau stutt okkur í ýmsum góðum málum. Málflutningur þeirra við kosningarnar nú er hins vegar frá- leitur, þar sem ýmist er um yfirboð eða undirboð að ræða. Við sjálf- stæðismenn erum hins vegar ánægðir með hlut okkar í framfara- málum undanfarinna ára og við treystum okkur til þess að gera enn betur. Sjálfstæðismenn hafa mótað svipmót bæjarins og við teljum að bæjarfélagið sé á mikilli framfara- braut. Garðabær er að stækka og dafna; íbúum fjölgar og bæjarbrag- ur að fá á sig meiri festu; íbúunum til hagsbóta. Það er von okkar að bæjarbúar kunni að meta það sem vel er gert og styðji Sjálfstæðis- fiokkinn til áframhaldandi góðra verka.“ Fundur um dagvistunarmál: Ekkert því til fyrirstöðu að leysa dagvistunarvandann - segir Anna K. Jónsdóttir, Sjálfetæðisflokki FJOLDI plássa á dagvistunarheimilum, og menntunar- og launamál hjá faglærðum fóstrum voru efst á baugi á fundi um dagvistunarmál, sem Foreldrasamtökin í Reykjavík héldu með fulltrúum allra þeirra flokka sem bjóða fram í borgarstjórnarkosningum. Fyrir fulltrúana var lögð spurningin: „Hvernig getum við stuðlað að betri dagvistunarheimil- um og jalnframt stuðlað að hraðari uppbyggingu? Fundurinn var fá- mennur, hann sóttu tæplega tuttugu manns. Morgunblaðið/Bjami Hörður Svavarsson, framkvæmdasljóri Foreldrasamtakanna í ræðu- stól. Til hliðar við hann silja Anna K. Jónsdóttir, Kristinn .Jóiisson, Hallur Magnússon og Kristín Dýrflörð. Að Foreldrasamtökunum standa foreldrar barna á dagvistaraldri í Reykjavík og eru félagar rúm 2000. Hörður Svavarsson, framkvæmdar- stjóri samtakanna ræddi í opnunar- ræðu fundarins um dagvistarvand- ann og sagði samtökin tilkomin vegna hans. Til skýringar á vandan- um nefndi hann starfsmannaskort sem væri tilkominn vegna lágra launa. í sama streng tók fulltrúi Nys Vettvangs, Kristín Dýrfjörð. í máli hennar kom fram að byijunarlaun fóstra værú 54.000 kr. á mánuði. Sagði Kristín að auk þess sem hækka þyrfti launin, þyrfti að bæta aðbúnað á dagheimilum og Ieikskólum og gera starfíð áhugavert. „Én við verð- um einnig að halda áfram að byggja dagheimili, halda námskeið fyrir ófaglært starfsfólk og hækka styrki til dagheimila. Fóstrur í dag telja að starf þeirra þyki ekki virðingarvert og vilja vita hvort í framtíðinni eigi að greina milli barnagæslu og mark- viss uppeldisstarfs?" Hallur Magnússon, Framsóknar- flokki, sagði dagvistunarmál einn mikilvægasta hlekkinn í menntunar- ferlinum og Reykjavíkurborg hefði brugðist í þeim. „Við viljum sveigjan- legan leikskóla, þ.e. bæði dagvistar- heimili og ieikskóla, að foreldrar geti ráðið hversu. lengi bömin eru í vistun og að þeir geti fengið vistun fyrir börn sín hvort sem foreldrarnir em giftir, í sambúð eða einstæðir." Formaður stjórnar Dagvistar barna og fulltrúi Sjálfstæðismanna, Anna K. Jónsdóttir sagði staðreynd- ina vera þá að þetta kjörtímabil hefði verið stærsta uppbyggingartímabil í sögu borgarinnar. „Við höfum komið á nýjungum innan leikskólanna, t.d. í hálfsdagsvistun og eigum nú einnig skráðar heimildir um sögu leikskól- ans. Við höfum tekið í gegn eldri leikskóla og bætt starfsaðstöðuna auk þess sem byggðir hafa verið nýir leikskólar." Anna sagði starfs- mannaskortinn ekki hafa aukist. Svipaðan fjölda fóstra skorti og árið 1981 en tuttugu skólar og heimili hefðu bæst við. Þá hefði Reykjavík- urborg oft haft frumkvæði að því að bæta kjör fóstra og auka virðingu starfsins. Aldrei hefði verið jafnmik- ill kraftur í uppbyggingunni og nú. Að hálfu Græns' framboðs talaði Kjartan Jonsson. Hann rakti stutt- lega ástæður framboðsins og taldi dagvistarmál falla undir svonefndar hverfisstjórnir, sem framboðið hefði áhuga á að koma á fót. Þær ættu að koma í stað miðstýringar og sjá m.a. um féiagsmál borgarinnar. Sigríður Hulda Mýrdal frá Flokki mannsins sagði ástandið í dagvistun- armálum vissulega hafa batnað en enn skorti töluvert á til að þau væru í lagi. „Dagvistun á ekki að vera geymsla, börnum og starfsfólki á að líða vel og það er varla hægt á þess- um launum. Börnin eru ekki einka- mál foreldra sinna, þau eru fram- tíðararfur þjóðarinnar. Reykjavíkur- borg er auðug en ver aðeins 7% tekna sinna í dagvistarmál. Þetta er spurn- ingin hvort við metum meira, börnin eða steinsteypu." Sigríður Lillí Baldursdóttir, Kvennaframboði, tók undir með Sigríði Huldu að börnin væru ekki einkamál foreldranna. Þeir ættu ekki að bera alla ábyrgð á uppeldinu. „Við lifum í þjóðfélagi þar sem er lítið pláss fyrir börn. Það skiptir því öllu máli að hagsmunum barna sé vel gætt svo snúa megi þessari þróun við.“ Guðrún Ágústsdóttir, Alþýðu- bandalagi, sagði flokkinn leggja að- aláherslu á að bæta við rúmum 2000 dagvistarplássum á næstu fjórum árum og veija til þess 15% af fram- kvæmdafé borgarinnar. Þa yrði að hækka laun fóstra 10-15% til að ná nágrannasveitarfélögunum Ólestur í dagvistunarmálum kallaði á áður óþekkt félagsleg vandamál. Að loknum framsöguræðum voru fyrirspurnir úr sal. Þar kom m.a. fram að í nokkrum hverfum hefur fækkun barna orðið til þess að fram- boð á dagvistunarplássum er meira en eftirspurn, þó að í öðrum hverfum sé enn skortur á plássum. Þá var sú spurning lögð fyrir Önnu K. Jóns- dóttur hvað væri því til fyrirstöðu að leysa dagvistai-vandann. Sagði hún fyrirstöðuna enga enda væri ætlunin að leysa úr vandanum. Arnarflugr Aætlunarflugið í eðlilegt horf ÁÆTLUNARFLUG Arnarflugs er nú komið í eðlilegt horf, eftir að leiguflugvél félagsins kom til landsins sl. föstudagskvöld, að sögn markaðsstjóra félagsins. Óli Tynes, markaðsstjóri Arnar- flugs, sagði við Morgunblaðið að bókanir hjá Arnarflugi í sumar hefðu verið furðugóðar miðað við aðstæður. Frekar dauft hefði verið yfír þeim fyrri hluta maí, vegna vandræða félagsins, og því kæmi sá mánuður líklega heldur verr út en á síðasta ári. En um Ieið og flug- vélin kom til landsins hefði komið kippur í aðsókn. Ýmsar erlendar og innlendar ferðaskrifstofur höfðu sett fyrir- vara í samninga við Amarflug, kæmust flugvélarmál félagsins ekki í )ag fljótlega. Óli sagði að ekki hefði komið til þess að ferða- skrifstofur riftu samningum hann ætti ekki von á öðru en það sam- starf gæti gengið snurðulaust í sumar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.