Morgunblaðið - 23.05.1990, Síða 45

Morgunblaðið - 23.05.1990, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAI 1990 45 AF INNLENDUM VETTVANGI MARGRÉT ÞÓRA ÞÓRSDÓTTIR ÚD og SFD á Dalvík: Markmið KEA og Samherja að samhæfa veiðar og vinnslu og ná fram hagræðingu NOKKRAR svipting'ar urðu á Dalvík í kjölfar þess að Dalvík- urbær seldi öll hlutabréf sín í Utgerðarfélagi Dalvíkinga til Kaupfélags Eyfirðinga og KEA seldi síðan Samherja hf. á Akur- eyri hlutabréf sín í Söltunarfé- lagi Dalvíkur. Dalvíkurbær átti tæplega 49% hlut í Útgerðarfé- laginu og kaupfélagið einnig, en Björgvin Jónsson útgerðar- maður um 2%. Formlega var gengið frá kaupum Samheija á hlutabréfúm KEA í Söltunarfé- laginu á sunnudag, en hlutabréf Dalvíkurbæjar í ÚD verða af- hent KEA formlega þegar end- anlegt uppgjör síðasta árs ligg- ur fyrir. Illa horfði með rekstur beggja fyrirtækjanna, Útgerð- arfélags Dalvíkinga og Söltun- arfélags Dalvíkur, og á síðustu mánuðum hefúr leiða verið leit- að út úr vandanum, enda benti flest til þess að hjólin væru að stöðvast með ófyrirsjáanlegum afleiðingum fyrir atvinnulifið í bænum. Rekstur Útgerðarfélags Dalvíkinga gekk ekki sem skyldi á síðasta ári og varð 85 milljóna króna tap á starfseminni. Félagið rekur tvö dýr skip, Björgúlf EA og Björgvin EA, sem keyptur var nýr frá Noregi fyrir tveimur árum. Skipin hafa ekki nægan kvóta til að standa undir greiðsluskuld- bindingum sínum og var þegar í fyrrahaust farið að ræða hvaða leiðir væru færar til að tryggja starfsemina um komandi ár, en að öllu óbreyttu þótti sýnt að um áframhaldandi taprekstur yrði að ræða. Viðræður á milli Dalvíkur- bæjar og KEA beindust að því að viðhalda sem næst óbreyttu atvinnustigi á Dalvík og var það mat manna að það tækist best með því að tryggja áframhaldandi rekstur ÚD og SFD og að jafn- hliða yrði frystihúsi KEA tryggt nægt hráefni til vinnslu. Til tíðinda dró í málinu á vordögum, þegar KEA bauð að leggja togara sinn Baldur EA ásamt kvóta auk kvóta Sólfells EA, sem er í eigu dótturfyrirtækis KEA, inn í rekst- urinn og eignast við það 67% hlut í ÚD. Bæjarráð Dalvíkur hafnaði þeirri leið, en samþykkt var hins vegar að Dalvíkurbær seldi Kaup- félagi Eyfirðinga öll hlutabréf sín í félaginu. Reksturinn erfiður vegna vaxtabyrði í lqölfar kaupa á Björgvini EA Magnús Gauti Gautason kaup- félagsstjóri Kaupfélags Eyfirð- inga sagði að Útgerðarfélag Dalvíkinga hefði verið stofnað til að afla hráefnis fyrir frystihús KEA á Dalvík. Ljóst hafí verið snemma árs 1989 að rekstur fé- lagsins var mjög erfiður, m.a. þar sem vaxtabyrði var veruleg vegna kaupa á togaranum Björgvini EA. í fyrrahaust hafi menn farið að ræða hvað hafí verið unnt að gera og reynt að marka stefnuna fyrir komandi ár. Augu manna hefðu mjög beinst að því að lækka út- gerðarkostnaðinn í heild, m.a. , með því að leggja togaranum Baldri og færá kvóta hans yfir á ÚD-togarana og flytja einnig kvóta Sólfellsins yfir á þá. Baldur var í eigu KEA og Sólfellið átti dótturfyrirtæki þess, en síðar- nefnda skipið hefur verið gert út frá Hrísey. Hefði þessi leið þótt vænleg hefði ÚD þurft að kaupa skipin og kvótann, en KEA bauð Dalvíkurbæ að leggja Baldur ásamt veiðiheimildum og_ veiði- heimildir Sólfells inn í ÚD og skyldi ÚD greiða fyrir með hlut- afé, þannig að KEA ætti 67% hlut í félaginu á eftir. „Tilgangurinn með þessu er í fyrsta lagi að það er hagkvæmara að ná í aflann með tveimur skipum og þetta myndi auka tekjur fé- lagsins verulega og tilkostnaður á hvert tonn yrði minni. í öðru lagi myndum við eignast tvo þriðju hluta í fyrirtækinu þannig að við hefðum yfir því að ráða og gætum þar af leiðandi sam- hæft veiðar og vinnslu,“ sagði Magnús Gauti. Dalvíkurbær kaus fremur að fara þá leið að selja öll sín hlutabréf í ÚD til KEA og varð sú leið ofan á, en með því fengi bærinn fjármagn sem hægt væri að leggja í aðra atvinnustarf- semi og styrkja atvinnulíf staðar- ins. Samningur var gerður um kaupin og varð niðurstaðan sú að KEA keypti hlutabréf Dalvíkur- bæjar á 81,4 milljónir króna. Veiðar og vinnsla rek- in sem ein heild Stefna Kaupfélags Eyfirðinga með kaupum á hlutabréfum í UD er að reka útgerð og fiskvinnslu sem eina heild og verður hráefnis- öflun fyrir fískvinnslu félagsins tryggð með því að togarar þess munu landa afla sínum að lang- mestu leyti til eigin vinnslustöðva. Magnús Gauti sagði að sú erfiða staða sem félagið hefði átt við að glíma hefði leitt til þess að æ meir af aflanum hefði verið selt á erlenda markáði þar sem gott verð hefði fengist, en á sama tíma hefði fiskvinnslan ekki haft nægt hráefni. Kostnaður við hráefnis- öflun verður lækkaður með því að færa saman aflakvóta af skip- um og leggja eða selja þau skip sem kvóti verður færður af. Sjó- menn á þeim skipum sem gerð verða út fá aukin laun með aukn- um afla, en ekki með því að selja aflann erlendis eða á mörkuðum innanlands. Þá er stefnt að þvi að skip félagsins verði mönnuð heimamönnum, þannig að að öðru jöfnu ganga heimamenn fyrir um þau skipspláss sem losna kunna í framtíðinni. Hráefhi til SFD hefur dregist mikið saraan Söltunarfélag Dalvíkur var einnig rekið með tapi á síðasta ári, eða sem nemur um 35 milljón- um króna. Erfiðleikar SFD liggja fyrst og fremst í því að innlagt hráefni til vinnslunnar hefur dreg- ist mjög mikið saman, eða úr 2.050 tonnum árið 1986 í 680 tonn á síðasta ári. Þar sem lítið hafði verið gert til að tryggja verksmiðjunni hráefni var fyrir- sjáanlegt að starfsfólk byggi ekki við örugga atvinnu. Nauðsynlegt þótti að taka skjótar ákvarðanir varðandi framtíð SFD, svo takast mætti að komast hjá lokun verk- smiðjunnar. Viðræður KEA og Dalvíkurbæjar beindust að því að 1 fínna fjársterkan aðila sem tilbú- inn væri til að endurreisa rækju- verksmiðjuna og var það mat bæði KEA-manna og forráða- manna Dalvíkurbæjar að Sam- heiji á Akureyri þætti þarna heppilegur aðili. Kaupfélag Ey- firðinga átti 64% hlut í SFD og hefur Samheiji keypt þann hluta, en bæjarstjórn Dalvíkur hefur afsalað sér forkaupsrétti sínum að hlutabréfunum. Markmiðið að reka öfluga rækjuvinnslu allt árið Þorsteinn Már Baldvinsson framvæmdastjóri Samheija sagði það stefnu fyrirtækisins að sam- tengja veiðar og vinnslu og reka góða rækjuverksmiðju á staðnum. Verulegt tap varð á rekstrinum á síðasta ári, og sagði Þorsteinn að ætlunin væri að snúa vörn í sókn hvað það varðar og miðuðu áætl- anir Samheija að því að fyrirtæk- ið stæði undir sér. „Okkar mark- mið er að reka öfluga rækju- vinnslu á ársgrundvelli, og stefn- an er að sjálfsögðu sú að fyrirtæk- ið skili hagnaði og skilaboð okkar til framkvæmdastjórnar þar að lútandi eru skýr,“ sagði Þorsteinn. Fyrir liggur samþykkt aðal- fundar um að auka hlutafé í fyrir- tækinu um-33 milljónir króna og munu Dalvíkurbær og Samheiji, í hlutfalli við eignaraðild sína að fyrirtækinu, taka þátt í hlutafjár- aukningunni. Finnbogi A. Bald- vinsson framkvæmdastjóri Sölt- unarfélags Dalvíkur sagði að þar sem rekstur fyrirtækisins hefði gengið illa á liðnu ári væri fjár- hagstaða þess slæm og því bæri brýna nauðsyn til að auka hlutafé þess. í áætlunum félagsins væri gert ráð fyrir að á næstu árum verði tekið á móti um 1.500 tonn- um af hráefni, en það tryggir rekstrargrundvöll fyrirtækisins og með því móti verður unnt að halda upp jafnri og öruggri atvinnu fyr- ir starfsfólkið. Fimm skip eru nú í viðskiptum við Söltunarfélagið og hefur á síðustu tveimur vikum verið tekið á móti um 150 tonnum af rækju. Um 50 manns eru á launaskrá hjá fyrirtækinu og hef- ur verið unnið allan sólarhringinn á þrískiptum vöktum síðustu daga. uppstigningardag kl. 15-17 LEIKLIST - TÓNLIST - UPPLESTUR tVivgat Kynnir: Elfn G. Ólafsdóttir Guðrún Ögmundsdóttir Ingibjörg Hafstað Guðrún Agnarsdóttir BETRIBORG FYRIR ALLA, KONUR, BÖRN OG KARLA V J

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.