Morgunblaðið - 23.05.1990, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 23.05.1990, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAI 1990 47- skipti ákæravaldsins við dómstól þar sem andlagið væra manneskjur og ástæða væri til að kanna hvort sérstakur saksóknari hefði í starfi sínu beitt réttum aðferðum, fylgt lögbundnum leikreglum. Hafskips- menn væra ákærðir fyrir blekking- ar með því að beita ekki viður- kenndum reikningsskilaaðferðum en við hvaða „reikningsskilaaðferð- ir“ hefðu bankaeftirlit og lögskipuð rannsóknarnefnd stuðst þegar eftir- litið gaf umsögn um starfsemi sem það vissi ekki um og nefndin byggði störf sín að eigin sögn á skýrslu bankaeftirlits, umfjöllun Helgar- póstsins og umræðum á Alþingi. Hvernig eigi að meta þessar reikn- ingsskilaaðferðir sem hluta af rann- sókn fyrir útgáfu ákæra. Fullnægi þessi rannsókn þeim kröfum réttar- farslaga til slíkrar rannsóknar. Telj- ist svo ekki vera sé til í 132. grein hegningarlaga ákvæði som unnt sé að krefjast ábyrgðar samkvæmt gagnvart handhafa ákæruvaldsins og sé sambærilegt við 158. grein sem Hafskipsmenn séu taldir hafa brotið. Þá rakti lögmaðurinn að í bréfi til RLR hefði saksóknari óskað eft- ir rannsókn á ætluðum ávirðingum Útvegsbankamanna en í stað þess að fara fram á hlutlæga rannsókn hafi skýrsla hinnar lögskipuðu nefndar verið send til hliðsjónar. Lögmaðurinn kvaðst túlka þessa sendingu á þann veg að saksóknari hefði verið að benda lögreglunni á eða hvetja hana til að rannsaka málið með þeim hætti að renna stoðum undir þær ásakanir sem þar kæmu fram og væri ekki óeðlilegt að lögregla teldi að lögskipuð nefnd hefði unnið svo mikilvæga skýrslu í samræmi við eðlilegar leikreglur. Hann kvaðst telja að'þarna hefðu ákæruvaldinu orðið á mistök og það brugðist þeirri skyldu sinni að sjá til þess að fram færi hlutlæg rann- sókn. Sú hlutlæga rannsókn hefði aldrei farið fram fyrr en fyrir saka- dómi. Sveinn rakti efni ákærunnar á hendur bankaráðsmönnum, sem gefið er að sök að hafa í starfi sýnt af sér saknæma vanrækslu við yfir- stjórn bankans og við eftirlit með starfsemi hans og þannig látið hjá líða að fylgjast með skuldbindingum og tryggingum bankans við Haf- skip, sem meðal annars komi fram í því að ekki hafi verið fjallað um málefni Hafskips á starfstíma hinna ákærðu fyrr en 1. mars 1985. Hann mótmælti ákærum, á hendur skjól- stæðingum sínum og krafðist sýknu og reifaði varakröfur sínar um fyrn- ingu sakar, en sagðist þó leggja áherslu á að orðið yrði við kröfum um efnislega sýknu. Hann rakti áð bankaráði hefði ávallt á tíma hinna ákærðu verið kunnugt um stöðu Hafskipsmálsins og að mál fyrirtækisins hefðu verið rædd á fundum þess. Ráðið hefði fylgst með viðræðum við Eimskipa- félag Islands og aðrar aðgerðir í málinu. Um það að ráðið hefði látið hjá líða að kanna tryggingar rakti lögmaðurinn að ársþóknun banka- ráðsmanna 1985 hefði numið um 90 þúsund krónum og fundir hefðu verið haldnir tvisvar í mánuði. Fyr- ir þá þóknun og á þeim tíma væri vart hægt að ætlast til að menn gengju úr skugga um verðmæti allra veðandlaga í viðskiptum bank- ans, könnuðu hvort skip væru vélar- vana, botnhreinsuð og öxuldregin og svo framvegis. Ráðsmenn hafi hins vegar fylgst með og vitað að fyrirtækinu hefðu verið sett skilyrði um áð kaupa tryggingu fyrir því að lögveð skertu ekki samningsveð. í því sambandi skjóti skökku við að Hafskipsmenn séu í 7. kafla ákærannar ákærðir fyrir skilasvik fyrir að hafa greitt tryggingaiðgjöld til að standa við þær skuldbindingar gagnvart bankanum. Hann rakti að Helgi V. Jónsson hrl, verjandi Halldórs Á. Guðbjarnasonar banka- stjóra, hefði sýnt óyggjandi fram á í málflutningi sínum að á árunum 1983-1985 hefðu ný lán numið lægri fjárhæð en þeim tryggingum sem á sama tíma voru teknar og sannað væri að bankaráð hefði haft fullkomið eftirlit með málinu og fullnægt þeirri lagaskyldu að hafa yfirumsjón með starfsemi bankans. Sú yfirumsjón fælist ekki í að skoða veðandlög heldur í því að yfirfara og gagnrýna skýrslur bankastjóm- ar og annarra starfsmanna. Endurkjörnir viku eftir upphlaupið Loks rakti lögmaðurinn að hann teldi bankaráðsmenn ekki opinbera starfsmenn í skilningi hegningar- laga fremur en laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Hann vitnaði til þess að menn sem kjörn- ir væru opinberri kosningu teldust ekki opinberir starfsmenn enda sættu þeir því aðhaldi að ef þeir stæðu sig ekki í starfi yrði umboð þeirra ekki endurnýjað. Þetta ætti við um bankaráð og til staðfesting- ar á því að hinir ákærðu hefðu rækt skyldur sínar væri sú stað- reynd að Alþingi hefði endurkosið þá til fjögurra ára daginn eftir að skipuð var með lögum rannsóknar- nefnd til að kanna viðskipti Útvegs- bankans og Hafskips. Hann mót- mælti því einnig að það sannaði að umræður hefðu ekki orðið í ráðinu um málefni Hafskips fyrr en 1. mars 1985 og rakti í því sambandi framburði ráðsmanna og reglugerð þar sem segi að í gerðarbók eigi ráðsmenn rétt á að bókaðar séu athugasemdir þeirra, jafnframt því sem þar séu færðar sameiginlegar ákvarðanir ráðsins og bankastjórn- ar, ákvarðanir um vaxtakjör eða ákvörðun um að taka inn nýjan, stóran aðila sem búi við erfiðan fjár- hag í viðskipti. Þesar reglur skýri að gerðarbók hafi verið sparlega notuð í bankaráði enda engin skylda að bóka þar allar umræður. Ákæra- valdinu hefði ekki tekist að sanna neinar ávirðingar á bankamenn. Að lokum sagði Sveinn Snorra- son að líklega ætti Hafskipsmálið í framtíðinni eftir að verða grund- vallarheimild í kennslu í opinberu réttarfari hér á landi og þá einkum rannsóknin víti til að varast. Síðastur veijenda talaði Örn Hös- kuldsson hrl, veijandi Arnbjörns Kristinssonar bankaráðsmanns. Hann sagði að engar skráðar réttar- heimildir, hvorki lög, reglugerðir né annað, legðu bankaráði á hendur þá skyldu að fylgjast með ti-ygg- ingastöðu eða öðrum atriðum í við- skiptum einstakra aðila við bank- ann. Hann rakti tilurð laganna um Útvegsbankann, sem sett hefðu verið á sama tíma og lög um Lands- bankann og vitnaði til framsögu Hermanns Jónassonar þáverandi forsætisráðherra sem sagði á Al- þingi að lögin væru sett í þeim til- gangi að ijúfa einokunaraðstöðu Sjálfstæðisflokksins í bankakerf- inu, dreifa valdi og stjórnun. Auk þátttöku í vaxtaákvörðunum væri tilgangur bankaráðs sá einn að dreifa valdi. Ráðinu væri ekki ætlað neitt alvörastarf eða þátttaka í dag- legum rekstri bankans heldur að- eins yfirurffsjón með stofnuninni sem líkja mætti við hlutverk stjórn- ar hlutafélags nema hvað verkefni bankaráða og ábyrgð væri langtum minni. Þá vék hann að því að í ein- um lið ákæra væri bankaráðsmönn- um gefið að sök að hafa ekki rækt eftirlitsskyldu með þingkjörnum endurskoðendum stofnunarinnar en í málinu væri aðeins annar þeirra endurskoiðenda ákærður og sá hefði jafnframt verið löggiltur end- urskoðandi bankans. Þar sem hinn þingkjörni endurskoðandinn væri ekki ákærður hlyti að verða að álykta sem svo að ekki væri ákært fyrir misfellur í starfi þingkjörinna endurskoðenda heldur aðeins lög- gilts endurskoðanda bankans. Af þeim sökum blasi við að sýkna ráð- ið af þessum ákærulið, þar sem því sé ekki falin nein eftirlitsskylda með löggiltum endurskoðanda bankans, aðeins hinum tveimur þingkjörnu. Hann hafnaði því að ráðið hefði eftirlitsskyldu með tryggingastöðu einstakra skuldu- nauta og fullyrti að undir þeim kringumstæðum væri seta í banka- ráði meira en fullt starf. Hann vék að því að saksóknari hefði sagt að bankaráð hefði ekki sinnt fyrirmæl- um viðskiptaráðherra um að gera úrbætur í stjórnun bankans en minnti á að enginn hinn ákærðu hefði setið í ráðinu 1979 þegar ráð- herra hefði sent umrætt erindi og ljóst væri að það hefði aldrei verið kynnt hinum ákærðu bankaráðs- mönnum. Selljarnarneskirkja ■ UPPSTIGNINGARDAGUR hefur um árabil verið helgaður öldr- uðum í kirkjunni. Af því tilefni mun Seltjarnarnessöfiiuður sérstak- lega bjóða eldri sóknarbörn velkom- in til guðsþjónustu, sem verður kl. 14 þann 24. maí. Þar mun Jóhann Guðmundsson halda stólræðuna, en sóknarpresturinn sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir þjónar fyrir altari. Anna Júlíana Sveinsdóttir'' syngur stólvers og organisti er Gyða Halldórsdóttir. Að guðs- þjónustu lokinni er eldri bæjarbúum boðið í veislukaffi í safnaðarsal kirkjúnnar á neðri hæð. Þá mun Anna Júlíana skemmta gestunum með því að syngja nokkur sumar- lög. Er það von sóknarnefndar og sóknarprests, að sem flestir sjái sér fært að njóta góðrar stundar í kirkju sinni á þessum hátíðisdegi. (Fréttatilkynning) Áskríftarsiminn er 83033 Reykjavíkurhátíð Nýs vettvangs í tilefni borgarstjórnarkosninganna, sem fram fara í Reykjayík þann 26. maí nk., v efnir H-listi Nýs vettvangs til Reykjavíkurhátíðar á Hótel íslandi miðvikudag- inn 23. maí. Hátíðarhöldin hefjast kl. 21.00 og munu standa fram eftir nóttu. Húsið opnað kl. 20.00. Hrafn Ólína Þeir, sem koma fram eru m.a. Bubbi Morthens, Ómar Ragnarsson, Síðan skein sól, Ríó tríó, hljómsveit Hauks Morthens, Sigrún (Diddú) Hjálmtýsdóttir, Danshljómsveit fslandso.fi. Ávörp flytja þau Ólína Þorvarðardóttir, Kristín Á. Ólafsdótt- ir, Bjarni P. Magnússon, Guðrún Jónsdóttir, Hrafn Jökulsson og Ásgeir Hannes Eiríksson, en þau skipa sex efstu sæti H-lista Nýs vettvangs. Veislu- og fundarstjóri Jakob Frímann Magnússon. Aldurstakmark er 18 ár / Aðgangseyrir kr. 500 / Frjáls klæðnaður. - - Kosningaskrifstofa, Þingholtsstræti 1, símar 625525 og 626701. Guðrún Kristín Bjarni Ásgeir Hannes
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.