Morgunblaðið - 23.05.1990, Side 52

Morgunblaðið - 23.05.1990, Side 52
52 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 1990 Einvígi í Kuala Lumpur Karpov 6 '/> - Timman 2 '/■> Bg7, 4. g3 - c6, 5. Bg2 - d5, 6. 7.-28. mars 1990 eftir Guðmund Arnlaugsson Malasía er sambandsríki 13 smáríkja og nær yfir syðri hluta Malakkaskaga og norðurhluta. Bomeo. Það er rúmlega þrefalt stærra en íslatid að flatarmáli og íbúar eru um 16 milljónir að tölu. Höfuðborg sambandsríkjanna er Kuala Lumpur, borg með um milljón íbúa, fögur borg þar sem grann- vaxnir og hnarreistir skýjakljúfar gnæfa yfir stílhreinar byggingar frá eldri tímum og gætu sumar verið komnar beint úr þúsund og-einni nótt. Landið er gjöfult og mun óvíða framleitt jafn mikið af gúmmí, tini og pálmaolíu. Einnig er olíu dg jarðgas þar að finna. Landið er að miklu ieyti skógi vaxið og þar er talsvert framleitt af harðviði til út- flutnings. Þar er einnig ræktað mik- ið af hrísgjrónum sem eru mikilvæg- ur þáttur í fæðu manna á þessum slóðum. Hafið er líka gjöfult og er fiskur og ýmislegt annað úr sjó framreitt til matar á fjölmarga vegu. Iðnáður er talsverður og vex hratt. Jafnframt er gert mikið af því að kynna landið ferðamönnum, enda hefur það margt að bjóða í þeim efnum. Árið 1990 er helgað ferðamálum og landkynningu og einn þáttur í þeirri viðleitni var að halda lokaeinvígi áskorendakeppn- innar í ár. Þetta er mikið framtak og kostar marga milljónatugi íslenskra króna, en það tókst með ágætum og átti oíufélag landsins, Petronas, þar drýgstan þátt í fjár- mögnun, auk ferðamálaráðuneytis- ins, en fjölmargir aðilar lögðu hönd á plóginn. Þennan marsmánuð sem þeir Karpov og Timman sátu að tafli í ráðhúsi borgarinnar fór hitinn aldrei niður fyrir 30° og er það óvenju mikið á þessum árstíma. Á hvetjum degi kom gróðrarskúr, stundum með miklum fyrirgangi, eldingum óg þrumum. En að hálftíma liðnum var dottið í dúnalogn. Ekki var því að furða þótt gróðurinn væri grósku- mikill, enda minnist ég ekki að hafa annars staðar séð jafn grænan og þróttmikinn gróanda í stórborg. Einvígið fór hið besta fram og voru allir ánægðir þegar upp var staðið, jafnvel Timman sem hafði barist af miklum þrótti þótt árangur hans væri ekki góður þegar hann er mældur í vinningum; honum tókst ekki að vinna skák, Karpov vann fjórum sinnum en fimm skákum lauk í jafntefli. En margar voru skákimar tvísýnar og Timman var oftar en eínu sinni mjög nærri vinn- ingi. Þrír áttundu hlutar verðlauna- fjárin8 komu í hans hlut og var það mikið fé. Heimamenn stóðu að móts- haldínu af myndarskap og var það allt þeim til mikils sóma. Þar kom til mjög góð samvinna margra aðila, en á engan mun hallað þótt eitt nafn sé nefnt: Lawrence How, rit- ari malajíska skáksambandsins, ungur maður af kínverskum ættum. Hann hafði alla þræði í hendi sér og fór létt með. Ljóst er að skákin nýtur ekki enn viðlíka vinsælda á þessum slóðum og hér heima á ís- landi, enda er hún nýfarin að ryðja sér til rúms þar. í hinum stóra leik- sal ráðhússins þar sem skákmenn- irnir tefldu á sviði er rúm fyrir 800 manns eða fleiri, en áhorfendur voru oft um og innan við hundrað, nema um helgar, þá voru líklega 2-300 manns viðstaddir. Þótt talsvert. væri gert að því að auglýsa þann viðburð sem einvígið var voru frásagnir af því í blöðum heldur stuttorðar. í blaðinu The Starvar þó skemmtileg undantekning frá þessu laugardag- inn 24. mars, en þá skrifaði Quah Seng Sun greinargóða lýsingu á fjórðu einvígisskákinni eins og hún kom venjulegum áhorfanda fyrir sjónir. Frásögn af þessu tagi er einn- ig óvenjuleg í íslenskum blöðum, því er freistandi að snara henni á íslensku og kemur hún hér í laus- legri þýðingu, Spenna í einvíginu, eftir Quah Seng Sun. Þótt talsvert hafi verið fjallað um lokasprett áskorendakeppninnar hefur fjölmiðlum ekki tekist að koma spennu keppninnar til skila. Vonandi getur sú frásögn sjónar- votts sem hér fer á eftir bætt þar eitthvað úr. Þeir lesendur sem ekki hafa enn séð þennan viðburð sem er einstæður hér í Malasíu geta bætt úr því, en vissara er að láta það ekki dragast, einvíginu getur lokið fyr en varir. Hvítt: Anatolíj Karpov Svart: Jan Timman Fjórða einvígisskákin Klukkuna vantar fimm mínútur í fjögur þegar Timman birtist, hann kemur venjulega fyrr en Karpov. Hann gengur inn á sviðið, tekur í höndina á dómurunum, Guðmundi Arnlaugssyni frá íslandi og Manuel Aaron frá Indlandi, spjallar við þá nokkur orð en sest síðan í sæti sitt við taflborðið. Á slaginu fjögur kemur Karpov. Keppendur takast í hendur. Karpov sem hefur hvítt leikur drottningar- peðinu fram og þrýstir á hnapp til að stöðva sína klukku og setja klukku Timmans af stað. Báðir leika hratt, þeir endurtaka fyrstu leikina úr annarri skák einvígisins sem tefld var fjórum dögum fyrr. Dómararnir sitja þögulir skammt frá og fylgjast með taflinu, skrá leikina jafnharðan og flytja menn á litlu skákborði sem þeir hafa hjá sér. Þeir hafa líka skákklukku og reyna að láta hana fylgja klukku keppendanna eftir því sem við verð- ur komið. Til beggja handa á sviðinu eru stór sýningarborð. Á þeim geta áhorfendur úti í sal séð taflstöðuna og þann tíma sem hvor um sig hef- ur notað, að vísu með nokkurri óná- kvæmni. En á sjálft skákborðið og klukku keppenda verður ekki séð utan úr sal. " cd5 - cd5, 7. Rc3 - 0-0, 8. Re5 - e6 Þessi staða kom einnig upp í annarri skákinni. Þar lék hvítur 9. Bg5 og skákinni lauk í jafntefli. En nú víkur Karpov út af. 9. 0-0 - Rfd7, 10. f4 - Rbc6, 11. Be3 Nú fellur Timman í þunga þanka. Tuttugu mínútur líða áður en hann leikur. Karpov hverfur af sviðinu. Hann gengur til herbergis síns bak- sviðs, en þar hafa þeir hvor sitt herbergi, þar sem þeir geta séð tafl- stöðuna á sjónvarpsskjá. I sal fram- an við skáksalinn er Eugene Torre stórmeistari frá Filippseyjum að ræða skákina við áhorfendur og skýra hana, en skáksambandið hef- ur ráðið hann til þess. Þar er einnig annar salur, þar sem blaðamenn frá ýmsum löndum eru líka að ræða taflið og þaðan senda þeir fréttir sínar. 11. - 16, 12. Rd3 - Rb6, 13. b3 - De7,14. a4 - Bd7,15. Bcl - Hfd8 Vitaskuld er ekki hægt að leika 14. — Rxd4 vegna 15. Ba3. 16. e3 - Be7, 17. Ba3 - Df7, 18. Hcl - Bf8,19. Bxf8 - Dxf8, 20. g4 Karpov stendur betur að vígi og þessi leikur gefur til kynna að hann muni ekki hika við að leggja til at- lögu á kóngsvæng ef svo ber undir. En Timmán þarf einnig að gæta sín við fléttum og fómum á miðborði. 20, - De7, 21. Dd2 - Hac8 Ögurstundin nálgast óðum. Taflið er flókið og báðir tefla hægt. Meðal áhorfenda liggur spenna í loftinu. Annaðhvort horfa þeir hugfangnir á sýningarborðin eða þeir athuga möguleikana á litlum vasatöflum sem þeir hafa í fórum sínum. Í skýr- ingarsalnum ræðir Torre horfurnar við tilheyrendur sína og í þeim umræðum hefur menn borið langt frá þeirri stöðu sem er á borðinu hjá Karopv og Timman. 22. Re2 - Hc7, 23. Hc5 - Rc8, 24. f5 Timman hefur styrkt drottning- arpeð sitt, en Karpov sækir nú að því úr annarri átt. Leiki svartur 24. - ef5, kemur 25. Bxd5+ og tök hvíts á miðborði tryggja honum betra tafl. 24. - g5, 25. Rg3 - e5, 25. Dcl Það tók Karpov 15 mínútur að velja þennan leik. Torre taldi að heims- Guðmundur Arnlaugsson „Einvígið fór hið besta fram og voru allir ánægðir þegar upp var staðið, jafnvel Timman sem hafði barist af mikl- um þrótti þótt árangur hans væri ekki góður þegar hann er mældur í vinningum.“ meistarinn fyrrverandi hefði ekki hag af því að drepa á d5, Timman fengi góð færi fyrir peðið. En nú eru báðir teflendur að komast í tíma- þröng. Þeir þurfa að Ijúka 40 leikj- um á tveimur stundum. Samkvæmt því á Karopv aðeins 15 mínútur eftir fyrir 14 leiki, Timman er litlu betur staddur, hann á 18 mínútur eftir. Torre telur að Karpov hafi ekki fundið besta leikinn hér, því að nú tekst Timman að jafna taflið. 26. - b6, 27. Hc2 - e4, 28. Rf2 - Rd6, 29. Dd2 - Hdc8, 30. Hfcl - a5, 31. Bfl - Rb4, 32. Hc3 - Dd7, 33. Rdl - Hc6, 34. Hxc6 Nú á hvorugur nema fimm mínút- ur eftir og naumlega það svo að næstu leikir koma hratt. Áhorfendur standa á öndinni. 34. - Hxc6, 35. Hxc6 - Dxc6, 36 Rc3 - Kf8, 37. Kf2 - Ke7, 38. Kel - Kf8, 39. Kdl - Dc8, 40. Kel - Kg7 Báðum hefur tekist að ljúka 40 leikjum fyrir tímamörkin og nú hugsar Karpov næsta leik sinn í stundarfjórðung. Timman hverfur af sviðinu, en ýmsir í áhorfendasaln- um standa upp og hreyfa sig. Það veldur dálitlum óróa, Guðmundur Arnlaugsson yfirdómari gengur fram á sviðsbrún og horfir alvarleg- ur út í salinn. Það nægir til að koma kyrrð á. 41. Ra2 - Rxa2, 42. Dxa2 - Dc7, 43. Kf2 - Kf8, 44. Db2 - Ke7, 45. Be2 - Kd8, 46. Kel - Kc8, 47. Kd2 - Kb7, 48. Dcl - De7, 49. Kel - Bd7, 50. Kf2 - Re8, 51. Dhl Timman virðist reiðubúinn að taka jafnteflisboði, en heimsmeist- arinn fyrrverandi er ekki á því og kemur öllum á óvart með því að sveifla drottningunni út í horn. 51. - Db4, 52. h4 Karpov er að komast í tímaþröng að nýju, hann hugsaði 13 mínútur áður en hann lék þennan leik. Um annað er naumast að ræða, 52. Ddl væri viðurkenning á-því að 51. Dhl hefði ekki verið nógu vel grundaður leikur. Nú eru báðir keppendur greinilega spenntir og víkja ekki frá taflborðinu. Hreyfí annar sig lítil- lega gerir hinn það e.innig. Karpov strýkur hendi yfir fitugljándi hárið, slengir síðan peðinu fram og þrýstir á klukkuhnappinn. 52. - Dxb3 Torre stakk upp á 52. - h6 til að halda peðakeðjunni óslitinni. 53. hg5 - fg5, 54. Dxh7 Nú á Karpov aðeins þtjár mínútur eftir fram að næstu tímamörkum sem eru eftir 60. leiki. Hins vegar á Timman 17 mínútur. 54. - Dxa4, 55. e7 - Dc6, 56. Dxg5 - a4, 57. De7 - Dd6, 58. Dxd6 - Rxd6, 59. Bdl - Bb5 Torre gagnrýndi þennan leik og taldi 59. - b5 vera betra. 60. Re2 - a3, 61. Rcl Nú er greinilegt, í fyrsta skipti í skákinni, að Karpov hefur slakað á. Hann gengur um sviðið og stað- næmist síðan fyrir aftan stól sinn til þess að virða fyrir sér taflið áður en hann hverfur á brott með föru- neyti sínu. Klukkan er orðin tíu og Timman á að innsigla leik sinn, bið- leikinn, áður en skákin fer í bið. Timman sigur lengi einn á svið- inu, djúpt hugsi. Það tekur hann 27 mínútur að ákveða sig, en loks tekur hann ákvörðun, ritar leikinn, setur blaðið í umslag, lokar því og afhendir dómaranum. Fari hvorugur fram á frestun verður tefld ný skák á morgun, en síðan verður biðskáic- in tefld áfram hinn 15. mars. Skoðanir eru skiptar um biðstöð- una. Þótt fáir menn séu á borði gera frelsingjar beggja taflið ákaf- lega tvísýnt. Svartur á einkum um tvennt að velja; að leika 61. - Bc4 til að ryðja peðunum brautina fram eða leika 61. - Kc7 tií þess að reyna að hafa hemil á frelsingjum Karpovs. Nú er kominn 15. mars. Timman kemur að vanda fímm mínútum fyr- ir fjögur. Klukkan Ijögur tilkynnir Guðmundur að taflið hefjist og setur klukku Karpovs í gang, en umslagið með biðleiknum verður ekki opnað fyrr en Karpov sýnir sig. Níu mínítur líða áður en hann kemur. Svo virð- ist sem sovéska sveitin hafi verið að rannsaka taflið fram á síðustu stundu og Karpov hafí þá flýtt sér á skákstað en tafðist á leiðinni vegna mikillar umferðar. 61. - Kc7, 62. Kg4 - Rc4, 63. Be2 - Be8, 64. Kf4 - Rb2, 65. Kg5 - Rd3, 66. Rb3 Að sjálfsögðu ekki 66. Rxd3 - ed3, 67. Bxd3 - a2 og peðið rennur upp í borð. 66. - a2, 67. Ral - b5, 68. Bdl - b4, 69. Bd3 - Rcl Nú eru komnir níu leikir frá bið- stöðunni. Staða Timmans virðist hafa versnað þrátt fyrir heimarann- sóknimar. Kóngur Karpovs er orð- inn býsna öflugur og Timman 'verð- ur að láta peð af hendi til þess að koma kóngi sínum nógu fljótt í vöm- ina. Hefði hann leikið 69. - Kd6, átti Karpov vinning á hendi: 70. Kf6 og rennir síðan g-peðinu upp í borð. 70. Bxd5 - Kd6, 71. Bc4 - Bb5, 72. Bg8 Nú virðist áhorfanda staða Karpovs orðin sigurvænleg og frammi í skýringarsal er Torre far- inn að spá honum sigri. En heims- meistarinn fyri-verandi má ekki víkja biskupi sínum af hornalínunni a2-g8, því að þá verða peð Timmans á undan: 72. Bxb5 - b3. En eftir 72. Bg8 er 72. - Ba3 síðasta tæki- færi svarts til að ná jafntefli. 72. - Ke7, 73. Kh6 - Kf8, 74. Be6 - Bd7, 75. g5 Nú er Timman orðið ljóst að tafl- inu verður ekki bjargað. Hann hugs- ar sig um í nokkrar mínútur, síðan 1. d4 - Rf6, 2. c4 - g6, 3. Rf3 -

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.