Morgunblaðið - 23.05.1990, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MAI 1990
59
Minning:
Sveinn Brynjólfs-
son frá Þverhamri
í dag verður til moldar borinn
Sveinn Brynjólfsson, fyrrum bóndi
á Þverhamri í Breiðdal. í samfylgd
hans sleit ég barnsskónum í túninu
fyrir austan og í huga mínum verð-
ur hann alltaf afi minn, þótt sú
frændsemi hafi ekki verið með
okkur í raun, en hann var fóstur-
faðir móður minnar. Nú, þegar
Sveinn hefur kvatt þennan heim,
rifjast upp minningarnar um sam-
verustundir okkar, og þær minn-
ingar bernsku minnar eru allar
bjartar.
Sveinn Brynjólfsson fæddist 14.
febrúar 1896 á Seyðisfirði. For-
eldrar hans voru Brynjólfur Brynj-
ólfsson skósmiður og kona hans
Þórdís Margrét Bjarnadóttir. Föð-
ur sinn missti Sveinn þegar hann
var aðeins ijögurra ára og tveimur
árum síðar horfði hann á eftir
móður sinni stíga á skipsfjöl, er
hún fluttist alfarin til Kanada með
tvö yngri böm sín. Sveinn og Ari
bróðir hans, sem var tveimur árum
eldri, urðu eftir á íslandi, en föður-
bróðir þeirra, Ari Brynjólfsson,
fyrrum bóndi og alþingismaður á
Þverhamri, tók þá bræður í fóstur
og ól þá upp ásamt konu sinni
Ingibjörgu Högnadóttur. Er mér
minnisstætt hversu hlýlega Sveinn
minntist ætíð fósturforeldra sinna
og fóstursystra, Önnu og Rósu, og
hefur það vissulega verið þeim
bræðrum mikil sárabót fyrir for-
eldramissinn, að alast upp með því
sæmdarfólki á slíku fyrirmyndar-
heimili, og vísast hafa þeir alla tíð
búið að því góða atlæti sem þeim
hlotnaðist í uppvextinum á Þver-
hamri. Þeir bræður, Ari og Sveinn,
voru ákaflega samrýmdir, þótt
ólíkir væru um margt, og stunduðu
þeir báðir búskap á Þverhamri alla
sína tíð, en Ari lést fyrir allmörgum
árum.
Ari Brynjólfsson, fósturfaðir
Sveins, vildi koma honum til
mennta og stundaði Sveinn nám í
einn vetur á Búnaðarskólanum á
Eiðum og síðan lá leiðin í Gagn-
fræðaskólann á Akureyri, þar sem
hann var einn vetur. Hugur Sveins
var þó ætíð við búskapinn og sneri
hann heim að Þverhamri áður en
skólagöngunni lauk. Hann keypti
hluta í jörðinni og hóf þar búskap.
Hinn 25. maí 1930 kvæntist hann
Önnu Jónsdóttur, frá Hól í Breið-
dal, dóttur hjónanna Jóns Halldórs-
sonar bónda þar og Guðbjargar
Bjarnadóttur ljósmóður. Anna var
kennari að mennt og hafði þá
stundað kennslu í nokkur ár. Anna
átti dóttur þegar þau Sveinn gift-
ust, Dagrúnu Gunnarsdóttur, og
var hún þá sex ára og gekk Sveinn
henni í föðurstað. Ilún er gift
Guðjóni Emilssyni frá Seyðisfirði
og eiga þau fjögur böm. Saman
áttu þau Sveinn og Anna þrjú börn.
Ara Brynjólf, sem dó á fyrsta ári,
Ambjörgu, gift Ólafí Jóhannssyni,
búsett í Hafnarfirði og eiga þau
þqú.börn og Guðjón, rithöfund á
Breiðdalsvík, kvæntan Jóhönnnu
Sigurðardóttur frá Ósi í Breiðdal
og eiga þau fimm börn.
Sveinn var dæmigerður fulltrúi
þeirrar íslensku bændamenningar,
sem nú er nánast horfin. Eg sé
hann fýrir mér sveiflandi orfinu í
teignum, með snærisspotta í beltis-
stað, (honum fannst óþarfa bmðl
að eyða peningum í leðurbelti),
glaðbeittan á svip enda naut hann
sín best við vinnuna. Þegar búið
var að snúa í heyinu með hrífu,
var bundið í bagga, sem ýmist
voru fluttir heim í hlöðu á Rauðku
gömlu, meðan hennar naut við, eða
þá að Sveinn snaraði þeim á bakið
og bar í hlöðu þegar stutt var að
fara. Sveinn var léttur á fæti fram
á elliár og alltaf kom það mér jafn-
mikið á óvart er hann tók á rás á
eftir rollunum og hljóp þær stund-
um uppi. Hann var sívinnandi, eins
og bændur vora jafnan í þá daga,
en aldrei heyrði ég hann kvarta
yfir hlutskipti sínu. I lífi hans skipt-
ust á skin og skúrir eins og geng-
ur og eitt sinn missti hann, ásamt
öðru heimilsfólki á Þverhamri,
aleiguna er bærinn þar brann árið
1944 og þurfti hann þá að byggja
aftur upp frá granni því allt var
óvátryggt. Á gleðistundum gat
Sveinn verið allra manna kátastur
og einkum hafði hann gaman af
söng og hafði sjálfur fallega söng-
rödd. Sveinn missti konu sína Önnu
árið 1979 og tók hann sér það
mjög nærri. Eftir það bjó hann
ýmist hjá Guðjóni syni sínum á
Breiðdalsvík eða Arnbjörgu dóttur
sinni í Hafnarfirði, en af heilsu-
farsástæðum dvaldi hann síðustu
árin á Elli- og hjúkranarheimilinu
á Egilsstöðum, þar sem hann lést
Fæddur 23. maí 1972
Dáinn 16. maí 1990
í dag hefði Þórólfur Baldvin
Hilmarsson, Tóti kunningi minn
úr Aðaldalnum, orðið átján ára.
Mér er þungt um hjartarætur
sem ég skrifa þessar línur. Ég
hafði ekki séð Tóta í tvö ár og ég
get ómögulega sætt mig við þá
staðreynd að ég eigi aldrei eftir
að sjá hann aftur. Við urðum aldr-
ei sérstakir vinir en samt fannst
mér ég vera svikin þegar ég frétti
um afdrif hans. Óréttlæti heimsins
eru engin takmörk sett.
Elsku Ása, Hinni, Jóhanna,
Hemmi, Pési og Ester: Megi Guð
og allt sem gott er styrkja ykkur
og hugga í þessari miklu raun.
aðfaranótt mánudagsins 14. maí
síðastliðinn, 94 ára að aldri.
Sveinn var ekki mikið fyrir að
bera tilfinningar sínar á torg, en
hann lét níig þó alltaf finna að
honum þótti vænt um mig og var
það gagnkvæmt af minni hálfu.
Hjá honum lærði ég öll almenn
sveitastörf og ég man hversu stolt-
ur ég var þegar hann trúði mér
fyrir því vandasama verki að vaka
yfir ánum í sauðburðinum, marka
lömbin og bólusetja þau, en ég hef
þá líklega verið níu eða tíu ára.
Og enn þann dág í dag hreyki ég
mér af því að kunna að fara meo
orf og ljá. Það hefur eflaust verið
vegna áhrifa af vinnugleði Sveins
og viðhorfum að mér líkaði svo vel
í sveitinni sem raun bar vitni og
langt fram á unglingsár var ég
staðráðinn í að feta í fótspor hans
og gerast bóndi. Þrátt fyrir kröpp
kjör lengst af held ég að Sveinn
hafí verið á réttri hillu í starfi bónd-
ans og ég get raunar ekki séð
hann fyrir mér i neinu öðru. Ef til
er líf eftir þetta líf er ég viss um
að Sveinn er nú kominn á kaf í
sauðburðinn þarna fyrir handan.
Góður og hjartahlýr maður er
nú genginn á vit feðra sinna. Ég
kveð Svein Brynjólfsson hinstu
kveðju með þakklæti fyrir sam-
verustundir okkar. Guð blessi
minningu hans.
Sveinn Guðjónsson
Eftir stendur minning um góðan
dreng. Kristín Vilhjálmsdóttir
Þórólfur B. Hilm-
arsson - Kveðja
SÖLUAÐILAR GARFIELD: Reykjavi'k: Toppskórinn Veltusundi,
Skólinan Laugavegi, Sparta Laugavegi, Skóbær Laugavegi, Skóverslun Helga Völvufelli,
Glæsiskórinn Glæsibæ, Skóhöllin JL-húsinu. Hafnarfjörður: Skóhöllin Reykjavíkurvegi,
Keflavík: Skóbúð Keflavíkur. Hveragerði: Byggingavöruv. Hveragerðis. Grindavik:
Málmey. Selfoss: Kaupfélag Árnesinga. Akranes: Sfaðarfell. Borgarnes: Kaupfélag
Borgfirðinga. Akureyri: Skótískan. Húsavfk: Skóbúð Húsavíkur. Egilsstaðir: Krummafótur.
Sauðárkrókur: Kaupfélag Skagfirðinga. Patreksfjörður: Versl. Ara Jónssonar. Djúpivogur:
E.H. búðin. Hvolsvöllur: Kaupfél. Rangteyinga. Ólafsfjörður: Blóm og gjafavörur. Þingeyri: 1
Kaupfél. Dýrfirðinga. Höfn Hornarf.: Orkuver. Ólafsvík. Versl. Vík. I
G0LFV0RUR
íúmu
Vorum að taka upp sendingar af
golfsettum, pokum, kerrum o.fl.
- HAGSTÆTT VERD -
ÍÞRÓTTABÚÐIN,
Borgartúni 20, sími 20011.
<
í
*
s
í GARÐINUM BYRJA HJÁ 0KKUR
REYNSLA - RÁÐGJÖF - ÞJÓNUSTA
ipfpl SÖLUFÉLAG
larnr garðyrkjumanna
^ SMIOJUVEGI 5. 2ÓOKÓPAVOGUR. SÍMI 43211