Morgunblaðið - 24.05.1990, Síða 1

Morgunblaðið - 24.05.1990, Síða 1
120 SIÐUR B/C 116. tbl. 78. árg. FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 1990 Prentsmiðja Morgunblaðsins Hernámssvæði Israels: Bandaríkin vilja ræða eftirlit SÞ * Israelsstjórn and- víg hugrnyndinni Washington. Reuter. Bandaríkjamenn eru reiðu- búnir að ræða þann möguleika að senda eftirlitssveitir Samein- uðu þjóðanna til hernámssvæða Israels. Kom þetta fram á irétta- mannafundi James Bakers ut- anríkisráðherra Bandaríkjanna í Washington í gær. Oryggisráð SÞ kemur saman á morgun til að fjalla um málið. Israelsstjórn heíur þegar lýst andstöðu við hugmyndina um eftirlitssveitir. „Við höfum ávallt verið andvígir slíkum hugmyndum," sagði Avi Panzner, talsmaður Yitzhaks Shamirs forsætisráðherra, „því að þær stofna sjálfræði okkar í hættu. Við vonum að Bandaríkjamenn beiti sér gegn þessu.“ Arabaríki fóru fram á fund Ör- yggiráðsins og er tilefnið hin mikla ólga á hernumdu svæðunum í kjöl- far þess að geðveikur gyðingur myrti sjö Palestínumenn á sunnu- dag. 21 Palestínumaður og einn gyðingur hafa fallið í átökum síðan og rúmlega 800 manns særst. Yass- ir Arafat, leiðtoga Frelsissamtaka Palestínu, verður boðið að ávarpa fundinn. Hann ætlar að leggja til að Sameinuðu þjóðirnar sendi eftir- litssveitir til hernumdu svæðanna. Fastlega er búist við að fundur Öryggisráðsins verði í Genf en ekki í New York vegna þess að Banda- ríkin neita að veita Arafat vega- bréfsáritun. Morgunblaðið/Einar Falur Sumarstemmning á Lækjartorgi Eystrasaltslöndin: Vcrkíalli Rússa í Eistlandi aflýst að beiðni Gorbatsjovs Baker neitaði því á fréttamanna- fundinum að stjórn sín hefði boðist til að opna landið fyrir sovéskum gyðingum. Aðstoðarmaður Hosni Mubaraks, forseta Egyptalands, sagði í gær að George Bush Banda- ríkjaforseti hefði tjáð egypskum starfsbróður sínum að svo væri. Baker sagði að ekki yrði tekið við fleiri en 70.000 gyðingum á þessu ári en það væru þó 20.000 fleiri en árið 1989. Sjá viðtal við sendiherra ísra- els á íslandi á bls. 46. Litháar vilja fresta gildistöku nýrra laga - Gorbatsjov ræðst harkalega á Jeltsín Moskvu, Reuter. RÚSSNESKIR verkamenn í Eistlandi bundu í gær enda á þriggja daga verkfall sem hafið var í mótmælaskyni við sjálfstæðisáform Eistlendinga. Að sögn talsmanna verkfallsmanna bárust þeim skila- boð frá Mikhail S. Gorbatsjov Sovétforseta þar sem hann lýsti stuðn- ingi við sjónarmið þeirra en hvatti þá jafnframt til að hefja aftur vinnu vegna hins alvarlega efnahagsástands í Sovétríkjunum. Verk- fallið lamaði helstu höfn Eistlands og olli miklum samgöngutruflun- um. Ákveðið var að verða við ósk forsetans en verkfallsmenn áskilja sér rétt til að heija aðgerðir að nýju. Þing Litháens bauðst í gær til að fresta gildistöku allra laga sem sett hafa verið eftir sjálfstæðisyfir- lýsinguna 11. mars gegn því að Moskvustjórnin hæfi viðræður um sjálfstæði landsins. Talsmaður Bandarískir vísindamenn: Tímamótauppgötvun í ofttrleiðni? Lundúnum. Reuter. BANDARÍSKIR vísindamenn segjast hal'a gert tímamótauppgötvun, scm geti rutt brautina fyrir fjöklaframleiðslu ofurleiðara og þannig valdið byltingu í hátækniiðnaði. Paul Chu og samstarfsmenn hans í Houston-háskóla í Texas skýra frá því I breska vikuritinu Nature, sem kemur út í dag, að þeir hafi búið til litla stöng úr frum- efnunum yttríum, barín og kopar, sem geti leitt rafstraum án nokk- urs viðnáms. Stöngin er 0,5 sm að lengd og 0,3 sm að breidd og segja vísindamennirnir að fræðilega séu 1 éngjn takmörk fyrir því( hversu langír slíkir ofurleiðarar geti orðið. Þó verði þess langt að bíða að kíló- metra langir kaplar af þessari teg- und verði framleiddir. Rafstraumur berst miklu hraðar með ofurleiðurum en sú tækni, sem nú er notuð, býður upp á. Ef vísindamönnum tækist að full- komna þá yrði hægt að framleiða ofurhraðvirkar tölvur og geysilega hraðfara lestir, auk þess sem orku- framleiðsla yrði mun ódýrari en nú er. Ýmis ríki hafa varið samanlagt um 450 milljónum Bandaríkjadala (27,5 milljörðum ísl. kr.) í rann- sóknir á ofurleiðni og talið er að sala á ofurleiðurum geti numið 36 milljörðum dala (2.200 milljörðum ísl. kr.) á ári um aldamótin, verði hægt. að hefja fjöldaframleiðslu á þeim. Talið var í fyrstu að ofur- leiðni væri aðeins möguleg við al- kul (+273 gráður á Celsius) en á undanförnum árum hafa fundist efni sem veita ekkert viðnám gegn rafstraumi við mun hærra hitastig (alltl að +150 gráðúr á Celsiús).1' > þingsins sagði í símaviðtali við iíeuters-fréttastofuna að með þessu vildu þingmenn sýna góðan hug og vilja til að semja við Sovétmenn. „Eitt er þó ljóst; við munum ekki falla frá sjálfstæðisyfirlýsingunni,“ bætti talsmaðurinn við. Efnahags- þvinganir Moskvustjórnarinnar valda æ meiri erfiðleikum í Litháen, einkum eldsneytisskortur. Algirdas Brazauskas aðstoðarforsætisráð- herra segir á hinn bóginn að eina kjarnaknúna raforkuver landsins komist aftur í gagnið í vikulokin eftir viðgerð og muni það bæta stöð- una. Gorbatsjov forseti ávarpaði þing Sósíalíska sovétlýðveldisins Rúss- lands, stærsta og fjölmennasta Sov- étlýðveldisins, í gær og gagnrýndi harðlega málflutning umbóta- sinnans Borís Jeltsíns, er býður sig fram til forseta í lýðveldinu. I ræðu sinni á þriðjudag sagði Jeltsín að miðstýringaráráttan væri aðalorsök skelfilegrar efnahagsóreiðu í landinu. Gorbatsjov sagði að tillög- ur Jeltsíns um aukið sjálfræði Rúss- lands líktust helst ákalli um upp- lausn Sovétríkjanna; þingmaðurinn vildi gera Rússland brottrækt úr heimi sósíalismans. „Orðið sósíal- ismi kom aldrei fyrir í máli hans. Hann notaðj ekki ,einu sinni orðin sósíalískur og sovóskur er hann Reuter Mikhaíl Gorbatsjov ávarpar þing Sovétlýðveldisins Rússlands í gær. nefndi lýðveldið á nafn ... Fyrir okkur Rússa, fyrir alla landsmenn, er sósíalíski kosturinn, vald sovét- anna, ekki aðeins orð. Þetta eru grundvallargildi okkar,“ sagði for- setinn. Júríj Masljúkov, aðstoðarforsæt- isráðherra Sovétríkjanna, sagði á blaðamannafundi í gær að stjórn- völd myndu leggja umbótaáætlun, þar sem kveðið er á um breytingar í átt til markaðskerfis, fyrir Æðsta ráðið í dag. Fari svo að þingmenn felli tillögurnar álítur Masljúkov að ríkisstjórnin eigi að segja af sér. Hann sagði stjórnina reiðubúna að bera tiljögurnar undir þjóðarat- kvæði....... .
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.