Morgunblaðið - 24.05.1990, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 24.05.1990, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAI 1990 9 Sjá, ég kem í skýjum eftir sr. HJÁLMAR JÓNSSON Guðspjall: Lúk. 24: 46-53. Hann sagði við þá: Sjá ég kem í skýjum og sólin brosti í tærum augum hans. Þeir skildu ei það ljós, sem lýsti af honum, en lutu þöglir ásýnd þessa manns. Þannig hefst sálmur Matthías- ar Johannessen, skálds, helgaður uppstigningardegi. Upphaf sálms- ins undirstrikar tiltekinn skilning á uppstigningu Jesú Krists og erindi hans yfirleitt. Við himnaför og meinta brottför hans úr þess- um heimi hvílir áherslan ekki á orðunum ég fer, heldur ég kem. Himnaför Jesú er nefnilega ekki hluti af geimferðasögunni, ekkert frekar en að sköpunarsögurnar séu heimiidaritgerð í náttúru- fræði. Kristur var ekki að fara þannig, að hann hyrfi burt úr heiminum með farangur sinn. Hann breytti návist sinni, sam- kvæmt fyrirheiti föðurins. Hann segir við lærisveinana: Verið um kyrrt „uns þér íklæðist krafti frá hæðum“. Síðan segir guðspjallið frá því að Jesús hóf upp hendur sínar og blessaði þá. En meðan hann var að blessa þá skildist hann frá þeim. Jesús hvarf þeim sýnum. Hann fór til himins Guðs, en sá himinn er hugtak ætlað til að segja frá því ósegjanlega, því sem er ofar heimi okkar og skiln- ingi. Á líkingamáli segir trúar- játningin, að hann sitji við hægri hönd Guðs, föður, almáttugs. Auk þess segir hann sjálfur: „Allt vald er mér gefið á himni og jörðu ... Ég er með yður alla daga, allt til enda veraldar." Hann er ekki fjar- lægur stjórnandi eða velgerða- maður fólks. Hann hvarf sýnum í miðri blessun, — og er ennþá að blessa heiminn. Hann sneri ekki baki við mannkyni til að fara burt, heldur snýr hann ásýnd sinni og opnum faðmi að jarðarbörnum. Algengasta myndefnið á altaris- töflum kirknanna er Kristur að blessa. Með upplyftum höndum til hálfs, með blessun yfir barna- fjöld, með brotningu og blessun brauðs og í sérhverri annarri mynd er hann að blessa. Til árétt- ingar um ósýnilega nálægð sína lét hann eftir áþreifanlegu táknin: Heilaga skírn og helga kvöld- máltíð. Nú á dögum er hann jafn ná- lægur mönnunum og hann var daginn, sem hann lyfti upp hönd- um og skildist frá þeim. Ennþá er honum lotið með sama hætti og ennþá skilja menn ekki ljósið, sem lýsir af honum. Vissulega hindrar það sumt fólk í því að nálgast hann og að ganga í birtu himneska ljóssins. Fæstir skilja til hlítar eðli rafljóssins. Engum dettur þó í hug að nýta sér það ekki af þeim sökum. Því síður að neita tilvist þess. Merki um nálægð Jesú Krists eru augljós öllum, sem vilja sjá. Ljós hans er ljós fyrir heiminn og lýsir til allrar framtíðar. Hann er svo á jörðu sem á himni. Að vilja föðurins starfar hann allt til þessa að bót og blessun, friði og frels- un, — eða eins og segir í áður ívitnuðum sálmi: Og enn hann segir: Sjá ég kem í skýjum, og sendir þá, er lúta ásýnd hans, að boða líkn og lífið í hans nafni og leiða saman vegu Guðs og manns. Þessi sálmur er nr. 165 í sálma- bók kirkjunnar. Ég hvet þig til þess að lesa hann í dag. Hann inniheldur hjálpræðissöguna í hnotskurn. Mér finnst hann líka vera erindisbréf þess, sem játar kristið nafn. UTANKJORSTAÐASKRIFSTOFA SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS VALHÖLL, Háaleitisbraut 1,3. hæð Símar 679053 - 679054 - 679056 Upplýsingar um kjörskrár og aðstoð við kjörskrárkærur. Fyrst um sinn fer utankjörstaðakosning fram hjá borgarfógetanum í Reykjavík, Skógarhlið 6, kl. 10-15 alla daga. SjáKstæðisfólk! Hafið samband við skrifstofuna ef bið verðið ekki heima á kjördag. TOYOTA NOTAÐIR BÍLAR FIAT UNO 45 S ’84 Grár. 4 gíra. 3 dyra. Ekinn 75 þús/km. Verð kr. 200 þús. TOYOTA COROLLA DX '86 Drapp. 4 gíra. 5 dyra. Ekinn 49 þús/km. Verð kr. 500 þús. NYBYLAVEGI 6-8, KOPAVOGI MMC COLT GLX ’88 Blár. 5 gíra. 3 dyra. Vökvastýri. Ekinn 18 þús/km. Verð kr. 560 þús. staðgr. VW JETTA GL ’86 Grár. Sjálfsk. 4 dyra. Ekinn 75 þús. Verð kr. 560 þús. stgr. 44144 - 44 7 33 TOYOTA MERCEDES BENS 190E ’83 Hvítur. 4 gíra. 4 dyra. Ekinn 120 þús/km. Verð 850 þús. TOYOTA COROLLA XL ’88 Blár. Sjálfskiptur. 3 dyra. Ekinn 38 þús. Verð kr. 600 þús. staðgr. Viltu gerast áskrifandi að Einingabréfum? Nú getur þú lagt reglulega til hliðar ákveðna upphæð til kaupa á Einingabréfum og safnað þannig smám saman þínum eigin varasjóði. • UPPHÆÐINNBORGUNAR RÆÐUR ÞÚ SJÁLF(UR). • SJÓÐURINN ER ÆTÍÐ ÓSKIPT EIGN ÞÍN EÐA AFKOMENDA ÞINNA. • HÆGT ER AÐ GREIÐA MEÐ GREIÐSLUKORTIEÐA GÍRÓ- SEÐLI. • YFIRLIT YFIR HEILDARINN- EIGN SENT ÁRSFJÓRÐUNGS- LEGA. SUMARTÍMI Við tökum daginn snemma í Kaupþingi í sumar og höfum opið frá kl. 8-16. Verið velkomin til okkar í Kringluna 5. SÍMSVARI GEFUR UPPLÝSINGAR UM GENGI VERÐBRÉFA 68 93 53 Sölugengi verðbréfa 24. mat 1990: EININGABRÉF 1.......................4.872 EININGABRÉF2........................2.662 EININGABRÉF3........................3.211 SKAMMTÍMABRÉF.......................1.652 i KAUPÞING HF Löggilt verðbréfafyrirtœki, Kringlunni 5, 103 Reykjavík, simi 91-689080
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.