Morgunblaðið - 24.05.1990, Blaðsíða 75
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAI 1990
75
vinur vor, er sofnaður. En nú fer
ég að vekja hann.“ Þegar lærisvein-
arnir misskildu Jesú og töldu að
hann ætti við venjulegan svefn „þá
sagði Jesús þeim berum orðum:
Lasarus er dáinn...“ (Jóh.
11.11-14). Skömmu síðar reisti
Kristur vin sinn upp frá dauðum
og gaf honum líf á ný.
Upprisa Lasarusar, og annarra
sem Biblían greinir frá, er fyrirheit
um að síðar munu allir þeir sem
dáið hafa í trú á frelsarann einnig
upp rísa, þ.e. þegar Kristur kemur
aftur í skýjum himinsins. Því sem
þá gerist með dána og lifandi er
vel lýst í orðum Páls postula þegar
hann skrifaði til hinna trúuðu í
Þessaloníku. Þeir voru sannfærðir
um að Jesús kæmi aftur til jarðar
að sækja sitt fólk, en svo virðist
sem þeir hafi haft áyggjur af því
hvað yrði um þá sem höfðu dáið,
og myndu deyja, áður en Kristur
kæmi aftur. Þeim til uppörvunar
skrifaði Páll eftirfarandi boðskap:
„Ekki viljum vér, bræður, láta yður
vera ókunnugt um þá, sem sofnaðir
eru, til þess að þér séuð ekki hrygg-
ir eins og hinir, sem ekki hafa von.
Því að ef vér trúum því að Jesús
sé dáinn og upprisinn, þá mun guð
fyrir Jesú leiða ásamt honum fram
þá, sem sofnaðir eru.“ Og postulinn
heldur áfram: „Því að það segjum
vér yður, og það er orð Drottins,
að vér, sem verðum eftir á lífi við
komu Drottins, munum alls ekki
fyrri verða en hinir sofnuðu. Því
að sjálfur Drottinn mun stíga niður
af himni með kalli, með höfuðeng-
ils raust og með básúnu Guðs, og
þeir, sem dánir eru í trú á Krist,
munu fyrst upp rísa. Síðan munum
vér, sem eftir lifum, verða ásamt
þeim hrifnir burt í skýjum til fund-
ar við Drottin í loftinu. Og síðan
munum vér vera með Drottni alla
tíma.“ (1. Þessal. 4.13-17).
Þar sem Drottinn er enn ókom-
inn, hafa dánir enn ekki risið upp.
Þess vegna, og þar til Drottinn
kemur, eru þeir hvorki í himnaríki
eða annars staðar. Þeir eru því
hvorki í sælustað eða kvalastað.
Þeir einfaldlega hvíla enn í gröfum
sínum og sofa hinum langa svefni
þar til Drottinn kallar þá til lífsins
á ný. Kristur segir ennfremur:
„Undrist ekki þetta. Sú stund kem-
ur, þegar allir þeir, sem í gröfunum
eru, munu heyra raust hans og
ganga fram, þeir, sem gjört hafa
hið góða, munu rísa upp til lífsins,
en þeir, sem drýgt hafa hið illa, til
dómsins." (Jóh. 5.28-29). Sjálfur
sagði Drottinn: „Þegar ég er farinn
burt og hefi búið yður stað, kem
ég aftur og tek yður til mín, svo
að þér séuð einnig þar sem ég er.“
(Jóh. 14.3). Ennfremur segir: „Sjá,
hanrr kemur í skýjunum og hvert
auga mun sjá hann ...“ (Opinb.
1.7).
Eitt höfuðefni Biblíunnar er boð-
skapurinn um endurkomu Jesú
Krists til jarðarinnar til að reisa upp
dána og gefa þeim eilíft líf. Allt
Guðs orð, allt fagnaðarerindið, og
öll viðleitni himinsins til að fræða
mannkynið um eilífðarmálin miðar
að því að undirbúa jarðarbúa fyrir
þennan mesta viðburð mannkyns-
sögunnar. „Þegar Mannssonurinn
kemur í dýrð sinni og allir englar
með honum, þá mun hann sitja í
dýrðarhásæti sínu.“ (Matt. 25.31).
Ennfremur segir orð Guðs: „En nú
kynni einhver að segja: „Hvernig
rísa dauðir upp?“ ... „Sjá, ég segi
yður leyndardóm: Vér munum ekki
allir sofna, en allir munum vér
umbreytast í einni svipan, á einu
augabragði, við hinn síðasta lúður.
Því lúðurinn mun gjalla og þá munu
hinir dauðu upp rísa óforgengilegir,
og vér munum umbreytast." (1.
Kor. 15.35,51-52).
Koma Krists til jarðar í annað
sinn og upprisa dauðra eru viðburð-
ir sem tilheyra framtíðinni. Þar sem
enga áætlun frá Heilbrigðisstofn-
uninni um manndauða af völdum
áfengis næsta aldarfjórðung.
Margir telja þó að þar sé stærsta
heilbrigðisvandamálið.
Hvað sem líður röðun mann-
skæðustu eiturtegunda er rétt að
nefna hvers vegna ríkið selur
áfengi og tóbak. Meiri hluti manna
vill að þetta sé fáanlegt í landinu.
Þá finnst okkur að sú verslun sé
best komin hjá ríkisvaldinu, þó að
skítverk sé. Þar ber tvennt til.
Annað er það að ríkinu er best
trúandi til að versla með þennan
óþverra án þess að gylla hann og
fegra með auglýsingaskrumi.
Hitt er það að ríkisvaldið ræður
verðlagi vörunnar og hefur það
hátt af tveimur ástæðum.
Önnur er sú að hátt verðlag á
tóbaki og áfengi er hemill á söl-
unni.
Hin er að þar sem ríkissjóður
verður að bera þungar byrðar
vegna slæmra áhrifa af notkun
landsmanna á tóbaki og áfengi
þykir maklegt að þeir sem neysl-
una stunda séu látnir bera eitt-
hvert af þeim tilkostnaði sem hún
veldur ríkinu.
Án þess að hæla tóbakinu eða
draga úr sök þess í manntjóni skul-
um við þó muna að það breytir
ekki persónuleika neytenda sinna
eins og áfengið. Menn fara ekki í
vígahug að leita uppi fyrrverandi
sambýliskonu þó þeir kveiki sér í
pípu. Engar sögur fara af því að
menn beiji konur sínar eða ógni
þeim þó að þeir keðjureýki. Hér
er því um ærið mikinn mun að
ræða.
Er nú ekki rétt að reyna að
nota dómgreindina og draga réttar
ályktanir af staðreyndum. Fyllum
frásögn Hákonar með upplýsing-
um Arnars um þátt áfengisins í
vímuefnaneyslunni. Lesum svo
jafnframt útdrátt þann sem Morg-
unblaðið birtir vikulega úr dagbók-
um lögreglunnar í Reykjavík. Þetta
er heppileg lexía þegar það kemur
saman.
Svo erum við eflaust talsvert
mörg sem erum spennt að heyra
og sjá hverjar ráðstafanir Morgun-
blaðið vill gera til að hindra sölu
og útbreiðslu þeirrar óþverravöru
sem hér er um að ræða. Vonandi
verður því vel til manna í þeirri
baráttu.
En öllu öðru fremur viljum við
þó binda vonir við að menn fari
nú að nota dómgreindina og hug-
leiða hvað þeir geti gert og hvað
okkur beri að gera hveijum og ein-
um til að hnekkja neyslu þessara
voðalegu tegunda.
Vilja ekki allir verða að liði?
Höfundur er fyrrverandi bóndi á
Kirkjubóli.
Við bjóðum upp á:
★ Macrobiotiskt fæði (fullt fæði) ★ Líkamsæfingar, yoga og
Do-ln (sjálfsnudd) ★ Hugkyrrð og slökun ★ Erlendan matreiðslu-
meístara ★ Fræðslu og uppskriftir úr Macrobiotik ★ Vatnslita-
málun ★ Sund ★ Kvöldvökur ★ Rúmgóð 2ja manna herbergi
★ Bátsferð um eyjarnar ★ Nudd ★ Reiki o.fl.
Nánari upplýsingar í símum 32553 alla daga milli kl. 9.00 og
10.00 á morgnana og 6.00 og 7.00 á kvöldin.
Sigrún Ó. Olsen,
Þórir Barðdal.
þessu er þannig farið, og þar sem Biblían, sem þetta boðar, er grund- völlur kristinnar trúar, hvers vegna er þá almennt prédikað í kirkjum landsins að látnir lifi handan við gröf og dauða áður en Drottinn hefur vakið þá upp til lífsins?
Höfundur er safnaðarprestur aðventista á Suðurnesjum og er s Meísölublaó á hverjum degi! co
doktor í guðfræði.
• •
vosftmr uin lof
New York
Seattle
Los Angeles
Fargjöld þessi gilda frá 1. júní til 1. september.
Flogiö er um Kaupmannahöfn en þar er
heimilt að stoppa á báðum leiðum.
Hafðu samband við ferðaskrifstofuna þína.
Laugavegi 3 sími 62 22 11
GOTT FÓLK/SlA