Morgunblaðið - 24.05.1990, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 24.05.1990, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAI 1990 Skattarnir hækka jafiit og þétt: Ríkið siglir hraðbyri fram úr sveit- arfélögunum í skattheimtunni HIÐ opinbera tekur til sín æ stærri hlut af tekjum lands- manna. Fyrri hluta siðasta ára- tugar var hlutfall heildartekna hins opinbera af vergri lands- framleiðslu (VLF) nokkuð sveiflukennt og var í lágmarki á árunum 1987 og 1988, en heíur síðustu tvö ár farið hærra en fyrr, var í fyrra 37,4% af VLF, reiknað á rekstrargrunni. Sömu tvö ár hafa staðgreiðslu- skattar einstaklinga hækkað og nálgast hlutfallið nú jafnaðar- hlutfallið sem var áður en stað- greiðslan kom til sögunnar, um 40%. Stærsti hluti þessarar aukningar og hækkunar er til kominn vegna hærri skatta til ríkisins. í Þjóðarbúskapnum, marshefti, sem Þjóðhagsstofnun gefur út, kemur fram að heildartekjur ríkis- ins voru 33,3% af VLF árið 1980, reiknað á rekstrargrunni. Það hlutfall hækkaði í 35,6% árið 1982, en fór síðan lækkandi í 32,1% 1986 og 1987. Næstu tvö ár á eftir hækkaði það í 35,8% 1988 ogí áætluð 37,4% í fyrra. Þetta hlutfall liggur ekki fyrir um yfirstandandi ár, en hins veg- ar hefur Þjóðhagsstofnun gert áætlun á greiðslugrunni ríkis- sjóðs, sem sýnir nokkuð aðrar tölur. (Greiðslugrunnur sýnir greiðslustreymi innan ársins, en rekstrargrunnur uppgjör að með- töldum skuldbindingum.) Reiknað á greiðslugrunni var hlutur hins opinbera í heildartekjum lands- manna 33,5% af VLF í fyrra, en verður 33,1% í ár og hefur hækk- að úr 28,9% 1986. Skattahækkanir fylgja staðgreiðslukerfinu Á meðfylgjandi töflum sést að skatttekjur hins opinbera taka að hækka 1988 og hafa haldið því striki síðan. Svo virðist sem stað- greiðslukerfið hafi haft í för með sér þennan tekjuauka og þá um leið skattahækkanir. Einkum er þetta áberandi þegar skoðaðar eru tölur um beina skatta til ríkisins. Þannig sést að árin 1986 og 1987 er nokkuð jafnræði með ríki og sveitarfélögum hvað snertir hlut- deild í heildartekjum landsmanna. 1988 byrjar þróun sem verður áberandi í fyrra og á þessu ári, hærri hlutdeild hins opinbera í heildartekjum einstaklinga er nær öll vegna aukinnar skattheimtu ríkisins. „ Aldrei hærra en 35,5%“ Þegar Þorsteinn Pálsson, þá- verandi fjármáiaráðherra, lagði fram frumvarp um staðgreiðslu skatta í febrúar 1987, kom fram í ræðu hans, samkvæmt frásögn Morgunblaðsins, að gert væri „ráð fyrir að innheimtuhlutfallið verði aldrei hærra en 35,5%“. Þegar lögin komu til framkvæmda í jan- úar 1988 var hlutfailið 35,2%, þar af hlutur ríkisins 28,5%. I tengsl- um við fjárlagagerðina fyrir árin 1989 og 1990 samþykkti Alþingi síðan frumvörp fjármálaráðherra, Ólafs Ragnars Grímssonar, um hækkun tekjuskattshlutfallsins í 30,8% í fyrra og 32,8% þetta ár. Samtals hafa því 4,3 prósentustig bæst við hlutfallið til ríkisins, hlut- fallið hefur hækkað um 15,1%. Tekjuskattar til ríkis og útsvör til sveitarfélaga eru ekki einu beinu skattamir sem hafa hækk- að, þannig hækkaði eignarskattur sem lagður var á í fyrra, fyrir árið 1988, og um leið var tekið upp stóreignaþrep. Áætlað var að hækkunin gæfi af sér 900 milljón- ir króna í ríkissjóð. Virðisaukaskattur notaður til skattahækkana Neysluskattar hafa einnig hækkað. Þeirra stærstur er virðis- aukaskatturinn og fyrir hans tíð söluskatturinn. í lögum um virðis- aukaskatt frá 1988 var skatthlut- fallið 22% og átti að skila sömu tekjum í ríkissjóð og söluskattur- inn. Við fjárlagagerðina síðastlið- ið haust var gert ráð fyrir að hækka hann í 26%. Horfið var frá því og í stað þess var hann hækk- aður í 24,5%. Af því leiddi að ríkis- sjóður fékk ekki sömu tekjur af virðisaukaskattinum og fjárlaga- frumvarpið gerði ráð fyrir, og var það ein höfuð röksemdin sem fjár- hér í blaðinu síðastliðinn laugar- dag, að skattahækkanir ríkis- stjómar Steingríms Hermanns- sonar næmu að minnsta kosti 7 milljörðum 1989 og 6 milljörðum á þessu ári, samtals 13 milljörðum á tveimur ámm. Af þessa árs hækkunum lá fyr- ir í desember síðastliðnum að bif- reiðaskattar hækkuðu um 900 milljónir, en breytingar voru gerð- ar á bifreiðagjaldi (kílógjaldi), þannig að í stað þess að skila 600 milljóna króna tekjuauka á árinu er nú gert ráð fyrir um helmingi þeirrar tölu. Tekjuskattshækkun- in skilar að líkindum yfir milljarði og hækkun virðisaukaskattsins skilar trúlega einhveiju. Þar greinir menn hins vegar verulega á. verið bent á, af Þorvaldi Gylfa- syni í tímaritinu Vísbendingu, að sóun í sjávarútvegi kosti meðal- fjölskyldu í landinu um 200 þús- und krónur á ári og að innflutn- ingsbann á kartöflur og kjúklinga kosti nokkra tugi þúsunda á ári. í síðari flokknum má nefna ríkisábyrgðir af ýmsu tagi. Þar ber hæst þijá sjóði í dag. Ríkis- endurskoðun hefur látið í ljós það álit sitt, að um tveir milljarðar af skuldbindingum Atvinnutrygg- ingarsjóðs muni falla á ríkissjóð. Guðmundur Malmquist forstjóri Byggðastofnunar hefur sagt í Morgunblaðinu að nokkur hluti um 1.200 milljóna króna framlags Hlutafjársjóðs sé tapað fé. Loks eru um tveir milljarðar króna frá Verðjöfnunarsjóði sjávarútvegs- Halli ríkissjóös skv. greiösluyfirliti. Milljónir kr. á verölagi hvers árs. -4560 -8621 -401 I--- -8000 ----1--- -7000 H- rt- 1990* 1989 1988 1987 1986 1985 £| 660 1984 1983 §282 1982 I97 1981 !, 1980 -6000 -5000 -4000 -3000 -2000 -1000 1000 * skv. þegar framkomnum fjáraukalögum. Hlutfall beinna skatta (ríkis og sveitar- félaga) af heildartekjum landsmanna 1986 10,6% þar af ríki 5,7% þar af sv.félög 4,9% 1987 1988 1989 1990 9,5% 11,2% 12,8% 13,8% 4,7% 5,8% 7,0% 8,0% 4,8% 5,4% 5,7% 5,8% Skattahlutfall í staðgreiðslu Tekju- Útsvar Heildar- skattur hlutfall 1988 28,5% 6,7% 35,2% 1989 30,8% 6,94% 37,74% 1990 Hækkun 32,8% 6,99% 39,79% ’88-’90 15,1% 4,3% 13% málaráðherra notaði á Alþingi fyrir hækkun tekjuskattsins og bifreiðagjalda, auk þess að taka upp nýjan skatt, tekjuskatt á orkufyrirtæki. 13 milljarðar á 2 árum Ekki ber öllum saman þegar rætt er um hve há upphæðin sé, sem ríkið tekur til sín í nýjum og hækkuðum sköttum í fyrra og á þessu ári. Samkvæmt upplýsing- um frá Ríkisendurskoðun er gert ráð fyrir, að tekjuauki ríkissjóðs 1989, samkvæmt áætlun fjárlaga og skattalaga sem tengjast þeim, sé um 4.955 milljónir króna, þar af tekjuskattar einstaklinga 850 milljónir, vörugjaldshækkun 1.200 milljónir og bensíngjald 850 milljónir. Ekki lágu fyrir upplýs- ingar um heildaráætlanir þessa árs. í Morgunblaðinu 20. desem- ber 1988 birtist greinargerð frá fjármálaráðuneytinu, þar sem því var haldið fram, að yrði ekki sam- þykkt á Alþingi að hækka tekju- skatta í 30,8% og um leið fellt úr gildi að miða upphæð persónu- afsláttar við lánskjaravísitölu, þýddi það þriggja milljarða króna tekjutap fyrir ríkissjóð. Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í grein 2 milljarðar í mínus eða 3 í plús? í greinargerð með frumvarpi til laga um breytingar á virðis- aukaskattslögum, var sagt að ríkissjóður tapaði tveimur mill- jörðum króna á því að hækka í 24,5% í stað 26%. Þingmenn stjómarandstöðu vefengdu þetta, sömuleiðis aðrir, til dæmis fram- kvæmdastjóri Verslunarráðs, Vil- hjálmur Egilsson. Hann sagði ríkissjóð græða um 1,5 milljarða á kerfsibreytingunni miðað við 24,5% skatthlutfall, hagdeild fjár- málaráðuneytisins sagði ríkissjóð sleppa á sléttu, eða með 500 millj- óna tapi, og í umræðum á Alþingi var rætt um allt að þriggja millj- arða tekjuauka ríkissjóðs. Dulin skattheimta Stundum er rætt um dulda skattheimtu og er ýmist átt við kostnað sem almenningur greiðir og er ekki innheimtur sem skattar eða gjöld, eða að átt er við skuld- bindingar ríkisins sem falla munu síðar á skattgreiðendur. Verðbólgan var helsti duldi skatturinn í fyrri flokknum allt þar til kjarasamningar í vetur komu henni niður í viðunandi horf, í bili að minnsta kosti. Þá hefur Barnabætur 1. ársfj. ’88 ........... 8.944 1. ársfy ’90 ........... 12.602 hækkun .................. 40,9% Persónuafsláttur jan. ’88 ............... 14.797 jan. ’90 ............... 20.850 hækkun .................. 40,9% Sjómannaafsláttur jan. ’88 .......... 408 kr./dag jan. ’90 .......... 575 kr./dag hækkun .................. 40,9% Lánskjaravísitala des. ’87 ............ 1886 stig des.’89 ............. 2722 stig hækkun .................. 44,3% Skattleysismörk jan. ’88 ............ 42.037 jan. ’90 .......... 52.400 hækkun .................. 24,7% Launl Hækkunlauna Hækkunskatta des.’87 íjan.’90 frájan.'88 skv. launavísit. tiljan.’90 50.000 73,5% 80.000 29,7% 52,4% 120.000 49,5% Tekjur ríkisins af beinum skött- um einstaklinga (milljónir króna) 1988 1989 1990 Hækkun (áætlun) 1988-1990 10.275 13.993 17.945 74.6% ins sem ekki á að innheimta aft- ur. Allar þessar skuldbindingar falla á ríkissjóð 1993 eða fyrr. Samanlagt er talið að þessar skuldbindingar séu um 5 milljarð- ar króna. Þá er ótalinn halli ríkis- sjóðs, sem fjármagnaður er með lánum. Þorsteinn Pálsson segir um þessa duldu skattheimtu hér í blaðinu síðastliðinn laugardag, að „uppsafnaður halli vinstri stjómarinnar eftir mestu skatta- hækkanir sem um getur verði milli 14 og 15 milljarðar króna“, og að meðtöldum skuldbindingum millifærslusjóðanna hafi „vinstri stjórnin skrifað 20 milljarða króna ávísun á framtíðina". Erlendar skuldir 663 þúsund krónur á mann Hallinn á ríkissjóði hefur valdið aukinni söfnun erlendra skulda. Staðan í árslok 1989 var þannig, samkvæmt Hagtölum mánaðar- ins, að heildarskuldir þjóðarinnar námu 165,9 milljörðum króna. Það jafngildir því, að hvert mannsbarn í landinu skuldi um 663 þúsund krónur og að hver fjögurra manna fjölskylda skuldi um 2,5 milljónir. Erlendar skuldir í árslok 1988 voru 112,8 milljarðar og hækkuðu því í fyrra um liðlega 53 milljarða króna, eða um rúm 47%. Hækkun umfram gengisbreytingar nam um 16,7 milljörðum króna. Vantar 8.250 krónur á skattleysismörkin Skattbyrði einstaklinga hefur aukist, eins og fyrrgreindar tölur og meðfylgjandi töflur sýna. En, aukin skattbyrði kemur ekki að- eins fram sem hækkaðir skattar eða nýir. Ein orsök hennar er skertar endurgreiðslur. í stað- greiðslulögunum var gert ráð fyr- ir að endurgreiðslur úr ríkissjóði og persónuafsláttur miðuðust við lánskjaravísitölu þegar upphæð- irnar yrðu leiðréttar. Um áramót 1988—89 var þessi regla afnumin. Hefði persónuafsláttur hækkað miðað við núgildandi láns- kjaravísitölu allt frá byijun stað- greiðslú, væri hann 506 krónum hærri á mánuði en hann er í dag, eða 21.356 krónur í stað 20.850. Af persónuafslættinum og skatthlutfallinu ráðast síðan svo- kölluð skattleysismörk. Þau eru upphæð tekna, sem einstaklingur getur unnið sér inn á mánuði, án þess að greiða staðgreiðsluskatt. I janúar 1988 voru skattleysis- mörkin 42.037 krónur, en eru í dag 52.400. Ef skattheimtan hefði orðið eins og þáverandi fjármála- ráðherra talaði um í febrúar 1987, það er 35,2% skatthlutfall og per- sónuafsláttur uppreiknaður eftir lánskjaravísitölu, væru skattleys- ismörkin í dag 60.670 krónur á mánuði, eða 8.270 krónum hærri en þau eru. Endanlegar upplýsingar um aukna skattheimtu áranna 1989 og 1990 koma smám saman í ljós á næstu misserum, það er að segja þær stærðir sem mælanlegar eru. Nú þegar sést á tölum Þjóðhags- stofnunar, að aukningin þessi ár er að lang mestu leyti konfin til vegna hærri skatta til ríkisins. Sveitarfélögin hafa líka þækkað útsvörin, en mun minna. Útsvarið er í dag 6,99% og er vegið meðal- tal innheimtuhlutfalls allra sveit- arfélaga í landinu. Algengustu hlutföll eru 7% og 7,5%, en hins vegar vegur Reykjavík lang þyngst í meðaltalinu með 6,7% og Iækkar þar með heildarhlutfal- lið í innheimtu staðgreiðslunnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.