Morgunblaðið - 24.05.1990, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 1990
Skipulagsbreyt-
ingar SIS:
Jákvæð við-
brögð lánar-
drottnanna
ÓLAFUR Sverrisson, formaður
stjórnar Sambands íslenskra
samvinnufélaga, segir að lánar-
drottnar Sambandsins hafi í við-
ræðum undanfarna daga tekið
ágætlega undir hugmyndir um
þær skipulagsbreytingar á Sam-
bandinu sem nú eru til umræðu
innan stjórnarinnar. Sljórnin
stefnir að því að halda fund í
næstu viku, þar sem reynt verð-
ur að móta endanlegar tillögur
að skipulagsbreytingum, sem
lagðar verði fyrir aðalfúnd Sam-
bandsins, í byrjun júnímánaðar.
íviorgunDiaoio/ öjami
Fjölmenni á útifíindi sjálfstæðismanna
Fjölmenni var á útifundi sjálfstæðismanna, sem haldinn var á
Lækjartorgi í blíðskaparveðri í gær. Ræðumenn voru Anna K.
Jónsdóttir, varaborgarfulltrúi og Magnús L. Sveinsson, forseti
borgarstjórnar. Kom fram í máli þeirra, að í borgarstjómarkosning-
unum á laugardag yrði kosið um það hvort samhentur meirihluti
sjálfstæðismanna færi áfram með völd í borginni eða við tæki
margklofinn fylking vinstri manna. Fundarstjóri á útifundinum var
Ólafur B. Thors og bar hann fundarmönnum kveðju Davíðs Odds-
sonar borgarstjóra, sem ekki komst á fundinn vegna veikinda.
Hvatti Ólafur borgarbúa til að veita Sjáflstæðisflokknum brautar-
gengi í kosningunum og sagði að reynslan frá valdatíma vinstri
manna í borginni 1978 til 1982 mætti ekki endurtaka sig.
Reynt að ná Berg’vík upp
Báturinn er ellefti plastbáturinn sem ferst á undanförnum þremur árum
Sjóslysanefnd hefur hug á að
láta ná Bergvík RE 41 af hafs-
botni svo kanna megi orsakir
þess að hún sökk á Faxafióa að-
fararnótt þriðjudags. Áhöfninni,
Kapella séra Friðriks:
Borgarstjóri
tekur fyrstu
skóflustungu
DAVÍÐ Oddsson borgarstjóri,
tekur í dag kl. 16 fyrstu skóflu-
stunguna að kapellu til minn-
ingar um séra Friðrik Frið-
riksson, sem reist verður á
Hlíðarenda við Öskjuhlíð.
Athöfn verður við minnisvarða
sr. Friðriks. Þar verða flutt
ávörp, karlakórinn Fóstbræður
syngur og biskup íslands flytur
bæn. í íþróttahúsi Vals flytur
m.a. Gylfi Þ. Gíslason, fyrrver-
andi menntamálaráðherra ræðu
um séra Friðrik.
Komið hefur verið á fót styrkt-
armannakerfi og er stefnt að því
að tvö til þijú hundruð einstakl-
ingar leggi mánaðarlega fram
eitt þúsund krónur.
tveimur mönnum, var bjargað.
Engar skýringar hafa fúndist á
óhappinu en báturinn hafði að-
eins verið við veiðar frá því í
september. Bergvík er ellefti
plastbáturinn sem ferst á undan-
förnum þremur árum. Sjópróf
hafa ekki farið fram þar sem
skipstjórinn er enn á spítala.
Kristján Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Sjóslysanefndar, seg-
ir menn vera uggandi vegna fjölda
þeirra báta er hafa farist. Mann-
björg hefur orðið utan einu sinni
er einn maður fórst. Haraldur
Blöndal, formaður Sjóslysanefndar,
segir að leit sé ekki enn hafin að
bátnum. Forvitnilegt sé að komast
að orsökum slyssins en m.a. hamli
fjárskortur því að leit hefjist. „Það
kostar tugi, jafnvel hundruð þús-
undir króna að ná bátnum upp og
skoða hann. Við munum leita til
hagsmunaaðila; m.a. tryggingarfé-
laga og samgönguráðuneytisins
með fjárhagsaðstoð. Aðspurður um
mögulegar skýringar á slysinu
sagði Haraldur ómögulegt að full-
yrða nokkuð en röng hleðsla eða
bilun hefðu verið nefndar sem
líklegar orsakir.
Bergvík RE 41 var rúmlega sex
tonna plastbátur, smíðaður í Búð-
ardal eftir teikningum frá Bret-
landi. Að sögn Guðlaugs Jónssonar
sem smíðaði bátinn var Bergvík sjó-
sett fyrir ári og fór í fyrsta róður
í september. Að sögn Olafs Aðal-
steinssonar, skoðunarmanns hjá
Siglingarmálastofnun, samþykkti
stofnunin Bergvíkina sem fískibát,
til nota allt árið. Báturinn var ör-
yggisprófaður og vélbúnaður hans
athugaður, þar með talin sjóinntök
og lokur. Báturinn var raðsmíðaður
og í þeim tilfellum er hver og einn
bátur ekki velti- og hallaprófaður
heldur er látið er nægja að prófa
fyrsta bát úr smíði og síðan velja
báta af handahófi til prófunar. Að
sögn Ólafs hefur nokkrum sinnum
verið reynt að ná bátum upp sem
sökkva. í þeim tilvikum sem það
hefur tekist, hefur komið í ljós að
ekki hafi verið um galla að ræða.
Þó hefur ekki fundist viðhlítandi
skýring á skipskaða sem varð á
svipuðum slóðum og Bergvík fórst.
Þar var um að ræða nokkru stærri
bát sem sökk fyrir 2-3 mánuðum
og þrátt fyrir prófanir stofnuninnar
hefur engin skýring fundist. Að-
spurður sagði Ólafur að ekki væru
á döfinni auknar eða breyttar mæl-
ingar á bátum þar sem ekki væri
talið að um galla væri að ræða.
Kæmi slíkt í ljós kæmi vel til greina
að endurskoða skoðunarreglurnar.
Ólafur Sverrisson sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær að
hann hygðist ekki gefa kost á sér
til endurkjörs sem formaður Sam-
bandsstjórnar á aðalfundi Sam-
bandsins. „Ég held að það sé kom-
inn tími til þess að gefa öðrum
og yngri mönnum tækifæri til þess
að spreyta sig,“ sagði Ólafur.
Þeir sem m.a. hafa verið nefnd-
ir sem hugsanlegir arftakar Ólafs
eru, samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins, Sigurður Markússon,
framkvæmdastjóri Sjavarafurða-
deildar Sambandsins, Þorsteinn
Sveinsson, fyrrverandi kaupfé-
lagsstjóri Kaupfélags Héraðsbúa,
Egilsstöðum, og Hermann Hans-
son, kaupfélagsstjóri Kaupfélags
Austur-Skaftfellinga (KASK),
Hornafirði, en enn hafa línur eng-
an veginn skýrst hver verði líkleg-
asta niðurstaðan í þeim efnum.
Ólafur sagði að í þeim viðræðum
sem farið hefðu fram við lánar-
drottna Sambandsins að undan-
förnu, hefði ekkert það komið
fram, sem benti til þess að
óyfirstíganlegir þröskuldar væru í
vegi þeirra skipúlagsbreytinga,
sem til umræðu væru, þótt menn
væru misjafnlega hrifnir af hug-
myndunum.
Vegna bilunar i rafbúnaði
prentvélar Morgunblaðsins
urðu verulegar tafir á prentun
og dreifingu þess i gær og eru
kaupendur Morgunblaðsins
beðnir velvirðingar á því.
Málaferli vegna gjaldþrots Kaupfélags Svalbarðseyrar:
Aðför og fjámám felld
úr gildi í Hæstarétti
Bolungarvík:
Bæjarfógeta veitt lausn
PÉTRI Kr. Hafstein, sýslumanni og bæjarfógeta á ísafirði, var í gær
veitt lausn frá embætti bæjarfógeta í Bolungarvík frá og með 25.
maí, en hann var settur í það embætti frá 14. janúar síðastliðnum
til 31. maí. Hjördís Hákonardóttir borgardómari var sett í embættið
frá 25. maí til 1. ágúst næstkomandi, en þá verður skipað í embættið
til frambúðar.
HÆSTIRÉTTUR hefúr fellt úr gildi aðfararáritun bæjarþings Akur-
eyrar á tvær áskorunarstefhur Iðnaðarbanka íslands gegn Jóni Lax-
dal, fyrrum stjórnarmanni Kaupfélags Svalbarðseyrar, og eftirfar-
andi flámámsgerðir. Frávísunin byggist á gölluðum málatilbúnaði
bankans sem gert hafi að verkum að héraðsdómara hafi borið að
vísa málinu frá. Þá hafi meðferð málsins í bæjarþingi verið aðfinnslu-
verð.
Pétur Kr. Hafstein ritaði Óla Þ.
Guðbjartssyni, dómsmálaráðherra,
bréf 21. maí síðastliðinn þar sem
hann baðst lausnar frá embætti
bæjarfógeta í Bolungarvík. Nokkr-
um dögúmáður háfði fúlltrúi dófns-"
málaráðuneytis farið þess á leit við
Pétur að hann gegndi embættinu
til 1. ágúst og hafði hann fallist á
það. 21. maí setti dómsmálaráð-
herra síðan Hjördísi Hákonardóttur
borgardómara í embættið og baðst
Pétur þá lausnar.
Bankinn hugðist ganga að Jóni,
ásamt tveimur öðrum forsvars-
mönnum Kaupfélags Svalbarðs-
eyrar, sem tekist höfðu á hendur
sjálfsskuldarábyrgð á tveimur
skuldabréfalánum til kaupfélagsins,
samtals að höfuðstóli um fjórar
milljónir króna.
Kaupfélagið var tekið til gjald-
þrotaskipta 1986. Stefnur bankans
beindust að þrotabúinu og ábyrgð-
armönnunum en þær voru -aldrei -
birtar forsvarsmönnum þrotabúsins
og við þingfestingu voru kröfur
gegn búinu afturkallaðar. í þingbók
var ekki frá þessu greint en málið
skráð sem mál Iðnaðarbankans
gegn Kaupfélagi Svalbarðseyrar.
Þá var stefnufjárhæð ekki sundur-
liðuð, vaxtafótar og víxitölu ekki
getið, né skammstafanir skýrðar.
Þessa galla taldi Hæstiréttur þess
eðlis að vísa bæri málunum. frá
héraðsdómi.
-í dómi -Hæstaréttar er-ekki tekin
afstaða til þeirrar fullyrðingar lög-
manns Jóns Laxdals, Jóns Oddsson-
ar hrl., að þar sem bankinn hafí
ekki lýst kröfu sinni réttilega í
þrotabúið, kunni hann að hafa misst
rétt gegn ábyrgðarmanninum.
Þessu hafði verið mótmælt af hálfu
bankans.
Jón Laxdal hefur einnig sam-
kvæmt heimild í gjaldþrotalögum
stefnt Sambandi íslenskra sam-
vinnufélaga fyrir bæjarþing
Reykjavíkur til að fá viðurkennt að
draga beri undir skipti þrotabúsins,
2% af hreinni eign SÍS á árinu
1986, en sú hafi verið eignarhlut-
deild kaupfélagsins, sem var einn
þriggja stofnenda SÍS, í Samband-
mu. Þess er vænst að það mál komi
til meðferðar í haust.
------------------------------j