Morgunblaðið - 24.05.1990, Page 16
Yf
16
oeer iam ,t>s huoagiitmmw gig/.iíi/'iohom
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 1990
I HXTCi
ItllJ
ÓDÝRASTI KOSTURINN
Höfum fengið aukasæti fyrir flug og bíl
og getum boðið vikulegar brottfarir
LUXEMBORG._... frákr 30.320,-
Miðvikudagar - föstudagar - laugardagar - 2 vikur flokkur A
KAUPMANNAHÖFN frákr 31.720,-
Föstudagar - 2 vikur flokkur A
FRANKFURT_____________ frákr 32.600,-
Laugardagar — 2 vikur flokkur A
LONDON________________frákr 34.300,-
Föstudagar - 2 vikur flokkur A
PARÍS................frá kr. 34.800,-
Föstudagar — 2 vikur flokkur A
SALZBURG.............frákr 39.100,-
Föstudagar - 2 vikur flokkur B
ÍTALÍA________________frákr 42.500,-
28. maí - 18. júní og 8. júlí - 3 vikur flokkur A
Staögreiðsluverð pr. gengi 1.4.90.
Miðað er við 4 saman í bíl
FERÐASKRIFSTOFAN
Suðurgötu 7
S.624040
FLUGLEIDIR
» Metsölublaó á hverjum degi!
ih
co
Hver segir ósatt?
eftir Ólínu
Þorvarðardóttur
Kosningabarátta er sérkennileg
lífsreynsla. Sumpart skemmtileg og
krefjandi, en á vissan hátt hættuleg
sálartetrinu. Einkum og sér í lagi
þegar menn gleyma sér svo í hita
leiksins, að eðlileg átök um málstað
og málefni snúast upp í blóðug
mannvíg þar sem engu er eirt,
hvorki æru né einkalífi. Þá eru hlut-
irnir teknir að snúast upp í and-
stæðu sína: tilgangurinn farinn að
helga meðalið. Þannig haga sjálf-
stæðismenn sér í þeirri kosninga-
baráttu sem nú er háð í Reykjavík.
Baráttuaðferðir þeirra minna
óþægilega mikið á aðferðir Ric-
hards gamla Nixon sem voru af-
hjúpaðar um leið og Watergate-
hneyklsið. Hans aðferð var einfald-
lega þessi: „Let them deny it“ eða
m.ö.o. „látum þá bara þræta“. Þetta
þýðir á mannamáli: Ötum andstæð-
inginn auri og persónuníði, hann
getur aldrei þvegið það af sér þótt
logið sé.
Þessa dagana hamast sjálfstæð-
ismenn gegn andstæðingum sínum.
Sá hamagangur einkennist af
sárgrætilegri málefnafátækt og
beinist að manneskjum en ekki
málum. Fólk er vænt um ósann-
indi, jafnvel látið að því liggja að
eitthvað sé bogið við einkahagi þess
og fjölskyldulíf. Á síðum Morgun-
blaðsins hafa sjálfstæðismenn auk
þess reynt að telja kjósendum trú
um það, að öll sú gagnrýni sem
beinist að stefnu Sjálfstæðisflokks-
ins í borgarmálum sé „lygi“. Það
er hinsvegar ekki rökstutt fyrir
kjósendum, í hveiju þessi „lygi“ er
fólgin — þess í stað er beitt rangind-
um og útúrsnúningum til þess að
koma höggi á þá sem gagnrýna.
Ég get vel skilið það að málefna-
leg gagnrýni frambjóðenda Nýs
vettvangs fari fyrir brjóstið á sjálf-
stæðismönnum — hún gerir það
vegna þess að hún er sönn. Sann-
leikanum er hver sárreiðastur.
Mannorð og starfsheiður einstakra
frambjóðenda fer líka í taugarnar
á sjálfstæðismönnum, og því reyna
þeir af fremsta megni að hnekkja
æru þeirra og heiðri með því að
kalla þá „lygara“. Það gefur auga-
leið að slíkar baráttuaðferðir taka
sinn toll af þeim sem fyrir verða,
enda geta menn trauðla setið þegj-
andi undir röngum ásökunum. Því
fer mikill tími og orka í að koma
leiðréttingum og athugasemdum á
framfæri; athugasemdum sem
sjaldan hljóta jafn virðulegan sess
á síðum Morgunblaðsins og ásakan-
imar. Af málflutningnum mætti
hinsvegar ætla að einn allsheijar
lygavefur hafi nú verið spunninn í
kringum Sjálfstæðisflokkinn, að all-
Ólina Þorvarðardóttir
„ Af málflutningnum
mætti hinsvegar ætla
að einn allsherjar lyga-
vefur hafí nú verið
spunninn í kringum
Sjálfstæðisflokkinn, að
allir þeir sem gagnrýna
— einstaklingar, hópar
og fjölmiðlar — séu lyg-
arar upp til hópa. Allir
aðrir en sjálfstæðis-
menn. Þetta er ærið til-
efíii til þess að ræða hér
lítillega nokkur „lygi-
mál“ sem reifuð hafa
verið undanfarið.“
ir þeir sem gagnrýna — einstakling-
ar, hópar og fjölmiðlar — séu lygar-
ar upp til hópa. Allir aðrir en sjálf-
stæðismenn. Þetta er ærið tilefni
til þess að ræða hér lítillega nokkur
„lygimál" sem reifuð hafa verið
undanfarið,
Er það t.d. „lygi“ að í stjómartíð
sjálfstæðismanna sl. átta ár hafi
meðalbiðtími eftir heilsdagsvist
fjórfaldast — þrátt fyrir það að á
sama tíma hafí skráningarskilyrðín
verið hert með því að banna giftum
foreldrum að skrá þar börn sín?
Nei. Þetta er sannleikur, skrifaður
og skjalfestur í skýrslum Dagvistar
barna.
Á sama tíma reynir borgarstjóri
að halda því fram að nú njóti 80%
reykvfskra barna dagvistunar á
vegum Reykjavíkurborgar eða
styrkt af Reykjavíkurborg. Er þetta
satt?
Nei. Þetta er ekki satt — ekki
einu sinni þó að við miðum einung-
is við forskólabörn á aldrinum 3-6
ára, og reynum að setja inn í þetta
hlutfall öll börn á einkareknum
dagheimilum og í gæslu dagmæðra.
Með slíkri velvild er hægt að toga
þetta hlutfall upp í 50% ef frá em
talin dagvistarheimili sjúkrahú-
sanna sem borgin hefur ekkert með
að gera en borgarstjóri virðist þó
hafa tekið með í reikinginn.
Borgarstjóri hefur líka fullyrt að
Reykjavík skari fram úr öðrum
höfuðborgum á Norðurlöndum hvað
varði dagvistarúrræði. Er það satt?
Nei, það er ekki satt. Staðreyndin
er sú að í Reykjavík njóta einungis
14-18% forskólabarna heilsdags-
vistunar á sama tíma og hlutfallið
er 41% í Osló og 60% í Stokk-
hólmi. Slík er„forysta“ Reykjavíkur
í dagvistarmálum.
Sjálfstæðismenn segja það „lygi“
að 35 milljónum króna hafi verið
varið í framkvæmdir vegna æsku-
lýðsmála, og halda því fram að
deilt hafi verið með tíu í fram-
kvæmdaféð. Þetta er heldur ekki
satt, því í sínum útreikningum bæta
þeir við heilum málaflokki sem
nefnist íþróttir og tómstundir. En
til framkvæmda við íþróttamann-
virki var varið 314 milljónum króna
á árunum 1987-1990. Báðar tölurn-
ar er hægt að fá staðfestar í reikn-
ingum borgarinnar. íþróttamál eru
hinsvegar ekki sami málaflokkur
og æskulýðsmál, enda eiga íþrótta-
mannvirki að gagnast fleirum en
æskunni, þótt vissulega njóti hún
góðs af.
Lygimálin eru fleiri, og of langt
mál að eltast við þau hér. Öll þjóna
þau þeim tilgangi að þyrla ryki í
augu kjósenda og fela staðreyndir.
Já, það er ljótur leikur að standa í
pólitík, og vandasamt að halda
hreinleika sálar sinnar í þeim at-
gangi öllum. Þó er það hægt, ef
menn missa ekki sjónar á málstaðn-
um og halda sig við það sem máli
skiptir.
Það sem öllu skiptir núna, er það
að láta persónulegt níð ekki blinda
dómgreind sína, og hafna þeirri
þröngu hagsmunapólitík sem Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur rekið í ára-
raðir. Miklu valdi fyigir mikil spill-
ing eins og dæmin sanna. Nýr vett-
vangur er aflið sem getur veitt heil-
brigt aðhald. H-lista Nýs vettvangs
er stefnt gegn þröngum sérhags-
munum, í þágu lýðræðis og al-
mennrar velferðar. Við erum sterk-
asta mótvægið við veldi Sjálfstæðis-
flokksins, eins og sannast best á
því hvernig hamast er á okkur frá
bæði hægri og vinstri. Það er eng-
inn vafí á því að H-listi Nýs vett-
vangs er „hitt framboðið" í vor.
Og það er satt!
Höfundur er bókmennta.fræðingur
og skipar efsta sæti á H-lista Nýs
vettvangs.
SKÓRNIR SEM STINGA AF
SPORTVAL, HLEMMI
BIKARINN, SKÓLAVÖRÐUSTÍG
MÚSlK & SPORT, HAFNARFIRÐI
SPORTHLAÐAN, ÍSAFIRÐI
VERSL. ÓÐINN, AKRANESI
SPORTVAL, KRINGLUNNI
SÚN, NESKAUPSTAÐ
ÚTILÍF, GLÆSIBÆ
TORGIÐ, SIGLUFIRÐI
BÓKAVERSL. ÞÓRARINS STEFÁNS-
SONAR, HÚSAVÍK
SPORTHÚSIÐ, AKUREYRI
I
Rccbóh