Morgunblaðið - 24.05.1990, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAI 1990
17
Um lóðamál eldra
fólks í Reykj avík
eftirÁrmann Órn
Ármannsson
Stundar borgarstjórn lóðarbrask
á kostnað eldra fólks?
Það orkar ætíð tvímælis hvort
svara skuli rakalausum óhróðri eða
láta sem vind um eyru þjóta. Minni-
hlutaflokkarnir í Reykjavík hafa
nokkrum sinnum á umliðnum árum,
og þó einkum nú fyrir kosningar,
talið það bera vott um spillingu
borgaryfirvalda í Reykjavík að lóð-
um til byggingar íbúða fyrir eldra
fólk hefur verið úthlutað til bygg-
ingarfyrirtækja ásamt áhugasam-
tökum fólksins sjálfs. Síðan eiga
byggingarfyrirtækin að hafa selt
umræddar íbúðir á okurverði eins
og þeir orða það.
Þar sem það fyrirtæki, sem ég
veiti forstöðu, Ármannsfell hf., er
annað þeirra fyrirtækja sem starfað
hafa á þessu sviði í Reykjavík, þyk-
ir mér að athuguðu máli rétt að
koma örfáum staðreyndum í þessu
máli á framfæri.
I fyrsta lagi hafa Samtök aldr-
aðra frá upphafi sjálf óskað eftir
samstarfi við okkar fyrirtæki og
gerðu það að eigin frumkvæði.
Sjálfstæðismenn hafa aldrei verið
ráðandi í þeim samtökum. Reyndar
hef ég aldrei hugsað út í hvar í
flokki þeir stæðu í pólitík, því við
erum ekki að fást við þá hluti. En
svo vill til að núverandi formaður
samtakanna er fyrrverandi ráð-
herra Alþýðuflokksins, og á lista
Nýs vettvangs í komandi borgar-
stjórnarkosningum.
I öðru lagi hafði varaborgarfull-
trúi Framsóknarflokksins, Alfreð
Þorsteinsson, forgöngu um að gerð
var könnun á meðalverði íbúða fyr-
ir eldra fólk á vegum Reykjavíkur-
borgar. Sú könnun var framkvæmd
af Verkfræðistofu Stanleys Páls-
sonar hf., sem er eitt virtasta eftir-
lits- og ráðgjafarfyrirtæki á sviði
„í fyrsta lagi hafa Sam-
tök aldraðra frá upp-
hafi sjálf óskað effcir
samstarfí við okkar fyr-
irtæki og gerðu það að
eigin frumkvæði. Sjálf-
stæðismenn hafa aldrei
verið ráðandi í þeim
samtökum.“
byggingariðnaðar, og enginn dreg-
ur í efa að vinnur fullkomlega sjálf-
stætt og óháð. Úr þeirri könnun
kom íbúðarverð Ármannsfells hf.
mjög vel út og þótti engum ástæða
til athugasemda.
í þriðja lagi: Ármannsfell hf.
hefur nú hafið byggingu fjölbýlis-
húss fyrir félagasamtökin Réttar-
holt, sem eru samtök eldra fólks í
Fossvogs- og Bústaðahverfi. Eftir
að hönnun var nægilega komin á
veg var gengið frá nákvæmri kostn-
aðaráætlun og hún yfirfarin og
samþykkt af Verkfræðistofu Stanl-
eys Pálssonar hf. Framkvæmdir era
þar komnar í fullan gang fyrir
nokkru enda þótt áhugamannasam-
tökin Réttarholt hafi enn ekki getað
gengið svo frá sínum fjármálum að
Ármannsfell hf. hafi fengið greitt
fyrir þær. Það stendur sem betur
fer til bóta en nú kemur í ljós einn
af þeim kostum sem borgarstjórn
hefur séð við þessar saméiginlegu
úthlutanir.
í fjórða lagi. Rétt þykir í þessu
sambandi að nefna að t.d. síðasta
haust keypti stjórn Verkamannabú-
staða 29 íbúðir í byggingu af Ár-
mannsfelli hf. Ekki munu sjálfstæð-
ismenn ráða þeirri stjórn. (Ég held
að formaðurinn sé í Framsókn, án
þess mér komi það við.) Þær íbúðir
sem era í par- og raðhúsum era
um 25% dýrari en meðalfermetra-
verð okkar í íbúðum fyrir aldraða
og þóttu nokkuð dýrar þar til ná-
kvæmlega hafði verið farið yfir-
kostnaðaráætlun af stjórn Verka-
mannabústaða og Húsnæðisstofn-
unar. Það er nú svo með fermetra-
verð, sem gjarnan er beint borið
saman, að fjölmargir þættir gera
þennan samanburð oft marklítinn.
Hér er hvorki staður né stund til
Ármann Örn Ármannsson
þess að rekja það en hönnun húsa
og lóða er sem betur fer mjög fjöl-
breytt hér á landi og við viljum
halda því.
Að síðustu þetta: Ármannsfell
hf. hefur stundað íbúðabyggingar
um aldarfjórðungsskeið og hyggst
halda því áfram. Verklegar fram-
kvæmdir við næsta byggingar-
áfanga, 52 íbúðir, fyrir Samtök
aldraðra, heijast í næsta mánuði.
Fyrirtækið er stolt yfir því trausti
sem eldri Reykvíkingar hafa sýnt
því með þessum byggingarfram-
kvæmdum og hyggst ekki bregðast
því trausti.
Með von um að kosningaskjálft-
inn renni fljótlega af mönnum.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Ármannsfells hf.
Hótel KEA greiði
ekkju dánarbætur
BORGARDÓMUR Reykjavíkur
hefur dæmt eigendur húss Hótels
KEA við Hafnarstræti á Akureyri
til að greiða ekkju og tveimur
börnum hennar um 2,1 milljón
króna í skaðabætur vegna slyss
sem varð í húsnæðinu í nóvember
1986 með þeim hætti að eiginmað-
ur konunnar, faðir barnanna, féll
út um dyraop á 5. hæð hótelsins
og niður í port þess og beið bana.
Hann var þá gestur á hótelinu.
Vegna vinnu við viðbyggingu
hafði verið reist bráðabirgðastigahús
úr timbri við hótelið. Það var á þess-
um tíma notað sem neyðarútgangur
og dyr að því merktar sem slíkar. Á
hurð fyrir þeim var búnaður sem
felldi hurðina að stöfum en plasthlíf
sem átti að vera yfir neyðarlæsing-
unni hafði verið fjarlægð til að auð-
velda umgang að vinnusvæðinu. Á
móti dyranum af gangi 5. hæðar
hótelsins út í stigahúsið var vöruop
á stigahúsinu með vængjahurðum á
útvegg og opnuðust þær út. Framan
við hurðimar var opið beint niður á
steypt planið. Slagbrandur var fyrir
hurðunum en engar viðvaranir við
þær.
í niðurstöðum dómsins segir að
þegar litið sé til ástands og fyrir-
komulags í stigahúsinu, meðal ann-
ars umbúnaðar vöraopsins, og haft
í huga að hótelrekstri fylgir umferð
fjölda fólks sem dvelur um skamman
tíma á staðnum og er því ókunnugt
staðháttum og jafnframt að sala
áfengis er þáttur í rekstri hótelsins,
hafi sú ráðstöfun að fjarlægja plast-
hlífina, sem vera átti yfir neyðarlæs-
ingunni, sérstaklega þegar litið sé
til þess að ekki varð við snúið að
stigapallinum og inn á hótelganginn,
verið svo vítavert athæfi að fella
verði á eigendur hússins fébóta-
ábyrgð í málinu að 2A hlutum en
rétt þótti að stefnendurnir bæra
þriðjung tjónsins.
Dóminn kváðu upp Auður Þor-
bergsdóttir borgardómari, Bragi
Þorsteinsson verkfræðingur og dr.
Ragnar Ingimarsson verkfræðingur.
VARIO
<0>
IÐNLAIMASJOÐUR
Iðnlánasjóður
kt. 540172-0139
Ármúla 13a, Reykjavík
Skuldabréfaútboð 2. flokkur 1990
Heildarfjárhæð kr. 285.000.000.
Utgáfudagur 5. apríl 1990
Flokkur Gjalddagi Upphæð
2.A.A 1990 ■ 05.04.1996 65.000.000
2-fl.B 1990 05.04.1998 65.000.000
2.11.C 1990 05.04.2000 77.500.000
2-fl.D 1990 05.04.2002 77.500.000
Skuldabréfin eru verðtryggð skv. lánskjaravisitölu.
Grunnvísitala er 2859
Nafnvextir 6%
Ávöxtim yfir hækkun lánskjaravísitölu er nú 6,5-6,75%
Umsjón: Verðbréfamarkaður íslandsbanka hf.
VlB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF
Ármúla 13a, 108 Reykjavík. Sími 68 15 30. Telefax 68 15 26
®
GAMMA/4
ProMinent
Skömmtunardælur
Eigum fyrirliggjandi skömmtunar-
dælur og fylgihluti fyrir allar tegundir
af vökvum t.d. klór, hreinsiefni, áburð-
arlausnir o.s.frv.
Útvegum einnig sjálfvirk stýritæki
fyrir klór, sýrustig og leiðni.
Helstu notkunarstaðir: fiskvinnsla,
matvælaiðnaður, sundlaugar og heitir
pottar, gróðurhús, efnaiðnaður og
annars staðar þar sem nákvæmrar
skömmtunar er krafist.
Það borgar sig að velja það besta.
Einkaumboð á íslandi:
Þekking Reynsla Þjónusta
FALKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8 SÍMI84670
i