Morgunblaðið - 24.05.1990, Síða 18

Morgunblaðið - 24.05.1990, Síða 18
" , *g££te*Xj?**sc^"- ■PUSéiBS&MhmmWzrZ'. ' i. 1 mmmÆ v*sÆmÉBBS*éSKm'ó zmmm tm\ :-v í «r ~ ■ífisMœp /,*/?,{ »* Útsölustaðir: Mikligarður Samkaup, Keflavík Kaupstaður, K.Á., Selfossi Vöruhús Vesturlands, Borgarnesi Skagfirðingabúð, Sauðárkróki Kaupfélögin um land allt. *OKiA Höfundur er forma ður fulltrúa- ráðs og stjórnar Sólheima. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAI 1990 Gunnar Ásgeirsson heimilis- vinur Sólheima í Grímsnesi Gunnar Ásgeirsson í aðrar framkvæmdir ráðist án þess að Ægisfélagar hafi ekki stutt þær með einum eða öðrum hætti. Þegar íþróttaleikhúsið var byggt fyrir söfnunarfé hinnar frækilegu göngu Reynis Péturs gáfu Ægisfélagar gólfefni, leiksvið, lýsingu og hljóm- flutningstæki í húsið. Nokkru síðar eldvarnarviðvörunartæki fyrir allan staðinn. Nú er verið að byggja vist- einingu á Sólheimum, hús, sem ein- göngu verður treyst fyrir gjafafé. Til þeirrar byggingar hafa Ægisfé- lagar gefið 1,6 milljónir króna. Hér hafa aðeins verið nefndar nokkrar af fjölmörgum gjöfum og fram- kvæmdum Ægisfélaga. Kúttmagar, súkkulaði og bingó Að baki þessum stórkostlegu gjöfum eru þúsundir vinnustunda við fjáröflun. í því starfi hafa ekki alltaf verið farnar troðnar slóðir. Má þar nefna til fyrsta sjónvarps- bingó á íslandi, auglýsingar á leigubílum, og sölu sælgætis. Eitt sinn var farið með húsvagn, skemmtikrafta og hljómsveit að skólum Reykjavíkur til ijáröflunar. Það eru þó án efa hin landskunnu kúttmagakvöld Ægis, sem fært hafa þeim drýgstar tekjur. Enginn hér á landi hefur sennilega notið kúttmaga í jafn ríkum mæli og Sólheimar. Heimilisfólkið á Sól- heimum metur mikils gjafir Ægis- félaga, en meira þó sanna vináttu þeirra og félagsskap. Tvisvar á ári koma Ægisfélagar í „opinbera" heimsókn. A vorin í gróðursetningarferð með fjölskyld- um sínum og í desember á „litlu jólin“. í hópi þeirra Lionsfélaga eru margir landskunnir skemmtikraft- ar, meðal annarra Svavar Gests, Ómar Ragnarsson, Sigfús Halldórs- son og Haraldur Sigurðsson (Halli). Auk þessara ágætu listamanna eru þar fjölmargir aðrir sem kunna ýmislegt_ fyrir sér á sviði, eins og Tómas Árnason, galdrakarlinn úr Seðlabankanum, og Guðmundur Guðmundarson. í einni Sólheima- ferðinni varpaði Ómar fram þessari vísu: Tómas Árna genpr um gólf með gylltan staf í hendi, Gunnar Ásgeirs sópar gólf og flengir með Gvendi. Höfðingi heiðraður Allir eru þeir félagar í Ægi „heiðursféjagar" á Sólheimum. Gunnar Ásgeirsson er fremstur meðal jafningja. Heimsókn Ægisfélaga- til Sólheima í dag er liður í fjölbreyttri dagskrá_ vegna 60 ára afmæiis Sólheima. í meira en 30 ár hefur Gunnar verið fremstur í flokki Ægismanna í starfi fyrir Sólheima. Þetta mikla og fórnfúsa starf þakkar stjórn Sólheima og heimilisfólk af alhug. Enn er til fólk á íslandi, sem spyr ekki um laun, fatapeninga, áhættu- álag, símapeninga og bílastyrk fyrir störf sín að mannúðar- og líknarmálum. Störf Ægismanna eru gott dæmi um þetta. Þar sjá menn ekki eftir tíma né fyrirhöfn í hugsjónastarfi. Heimilisfólk Sólheima fagnar Gunnari Ásgeirs- syni heimilisvini Sólheima. eftir Pétur Sveinbjarnarson í dag, 24. maí, fer fram athöfn að Sólheimum í Grímsnesi. Lýst verður kjöri fyrsta „heiðursborg- ara“ Sólheima, Gunnars Ásgeirs- sonar, stórkaupmanns, félaga í Li- onsklúbbnum Ægi. Það er hinsveg- ar samdóma álit aðstandenda Sól- heima að nota fremur nafnbótina heimilisvinur fyrir langt og fórnfúst starf í þágu Sólheima. Af þessu til- efni verða Ægismenn og konur þeirra gestir að Sólheimum í dag. Framkvæmda- og mann- ræktarstarf í 30 ár Sólheimar í Grímsnesi eru sjálfs- eignarstofnun á vegum þjóðkirkj- unnar, sem Sessilía Sigmundsdóttir stofnaði 1930 og stjómaði til dauða- dags 8. nóvember 1974. Sólheimar eru heimili og vinnustaður 40 fatl- aðra einstaklinga, en starf heimilis- ins hefur öðru fremur byggt á stuðningi einstaklinga, fyrirtækja og félagasamtaka. Framlag Lions- klúbbsins Ægis hefurþó skipt sköp- un fyrir Sólheima og er án efa stærsta verkefni sem þjónustu- klúbbur á íslandi hefur tekist á hendur. Allt frá stofnun Ægis 1957 hafa Sólheimar verið viðfangsefni klúbbsins, sem jafnframt hefur sinnt fjölmörgum öðrum verkefnum á sviði mannúðarmála. Ástæðan mun einkum hafa verið „að heimilið „Heimilisfólkið á Sól- heimum metur mikils gjafir Ægisfélaga, en meira þó sanna vináttu þeirra og félagsskap.“ virðist hafa orðið útundan með að- stoð og aðra hjálpsemi" eins og það er skráð í fundargerð klúbbsins. Framkvæmda og mannræktarstarf Ægis á Sólheimum hefur því staðið í yfir 30 ár. Hús og tæki fyrir tugi milljóna I þessari grein er því miður ekki hægt að tíunda öll hin góðu verk Ægismanna á Sólheimum. Fyrstu árin færðu þeir heimilinu heimilis- tæki og húsbúnað. Rafmagn kom að Sólheimum eftir að heimilið hafði starfað í 28 ár. Gáfu Ægisfélagar m.a. strauvél, saumavél, þvottavél og eldhústæki. 1961 tók klúbburinn að sér byggingarframkvæmdir. Byggð voru tvö hús fyrir vistfólk, skemma og hafin bygging stórrar viðbyggingar við Sólheimahúsið, sem er stærsta verkefnið sem klúbburinn hefur ráðist í. í þessari byggingu er m.a. eldhús, borðsalur, gestastofa, frystigeymsla, þvotta- hús og fleira. Réttara er ef til vill að nefna að frá 1958 hafi ekkert hús verið byggt á Sólheimum eða _
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.