Morgunblaðið - 24.05.1990, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAI 1990
Til ungra kjósenda
Katrín Gunnarsdóttir
„Nýr vettvangur er
ekkert annað en gamalt
vín á nýjum belgjum,
súrt og vont á bragðið.“
manna til að breiða jrfír uppruna
sinn. Þó fundu þeir fljótlega út að
vænlegra væri samt að setja nýjan
kandidat í efsta sætið svona líkt
og þegar gulrót er veifað framan í
asna sem illa gengur að koma úr
sporunum. En ekki er öruggt að
þeim Kristínu Á. Ólafsdóttur og
Bjarna P. Magnússyni verði kápan
úr því klæðinu. Nýr vettvangur er
ekkert annað en gamalt vín á nýjum
belgjum, súrt og vont á bragðið.
Málflutningur þeirra er heldur ekki
nýr; aðferð vinstri manna notuð,
sannleikanum hagrætt og ósann-
indum bætt inn í þar sem þurfa
þykir. Ekkert er til sparað að koma
þessum graut niður háls borgarbúa
og boðið upp á bjór til að skofa
óþverranum niður ef önnur ráð
duga ekki; a.m.k. bera frambjóð-
endur Nýs vettvangs ekki við að
efna til funda með kjósendum ann-
ars staðar en á bjórkrám borgarinn-
ar.
Framsóknarflokkurinn rembist
sem rjúpan við staurinn og leitar
logandi ljósi að kjósendum í
Reykjavík. Auglýsa þeir nú grimmt
eftir Akureyringum, Þingeyingum
og Eyfirðingum í Reykjavík að
mæta á fundi til að hlýða á boðskap-
inn. Frambjóðendur Framsóknar
boða að siðareglur verði að setja
borgarfulltrúum, því sjálfír virðast
þeir ekkert kannast við almennar
samskiptareglur heiðursmanna;
þeirra líklega aldrei getið þar á bæ.
Framsóknarmenn reyna á allan
hátt að breiða yfir þátttöku sína í
meirihlutastjórn vinstri manna
1978-1982.
Græna framboðið hefur umhverf-
ismál á oddinum og Flokkur manns-
ins manngildið að leiðarljósi. Hvort
tveggja er að finna á stefnuskrá
sjálfstæðismanna.
Sjálfstæðisflokknum er
treystandi
Sjálfstæðisflokkurinn hefur sýnt
á tveimur síðustu kjörtímabilum að
honum einum er treystandi fyrir
stjórn Reykjavíkurborgar. Frá því
að hann fékk meirihluta á nýjan
leik 1982 hefur borgin verið í örum
vexti og uppbyggingu. Fjármála-
stjórn hefur verið örugg og farsæl
og stórsókn hafin á öllum sviðum
borgarlífsins.
Á næstu dögum mun loforðalisti
sjálfstæðismanna frá 1986 verða
birtur. Hvet ég alla unga kjósendur
að kynna sér vel og vandlega hverj-
ar efndirnar hafa verið. Eftir þann
lestur er ég ekki í vafa um að ung-
ir kjósendur í Reykjavík setja x-ið
við D-listann 26. maí nk.
Höfundur er framkvæmdastjóri og
skipar 19. sæti íramboðslista
sjálfstæðismanna við
kosningarnar 26. maínk.
PREVENANCE. HELDUR í VIÐ TÍMANN.
PREVENANCE, Á UNDAN SINNI SAMTÍÐ
Prevenance notist kvölds og morgna, fyrir allan aldur,
konur sem karla.
PREVENANCE... AÐEINS A UNDAN
eftirKatrínu
Gunnarsdóttur
I þessum kosningum, sem og
öðrum, munu margir ungir Reyk-
víkingar ganga að kjörborði í fyrsta
sinn. Oft reynist þeim erfitt að
ákveða hvaða flokki þeir eiga að
gefa atkvæði. sitt. Það er því brýn
nauðsyn fyrir alla unga kjósendur
að kynna sér vandlega hvað í boði
er.
Hvað er í boði?
Nú eru 7 flokkar eða flokkslíki
í framboði og ætla mætti að erfið-
ara væri en oft áður að fínna þann
flokk sem er verður þess trausts
að stjórna málefnum Reykjavíkur-
borgar næstu 4 árin. En eru málin
í raun svo flókin? Lítum á hvað er
í boði:
Alþýðubandalag stjórnaði mál-
efnum Reykjavíkurborgar kjörtíma-
bilið 1978-1982. Eftir það timabil
hlaut Sjálfstæðisflokkurinn rúm-
lega helming greiddra atkvæða í
borgarstjórnarkosningunum 1982
og ætli það segi ekki sína sögu um
framgang kommanna í borgarmál-
unum. Loforð þeirra féllu hvert á
fætur öðru og eftir stóðu í tjúkandi
rúst fjármál borgarinnar, dagvistar-
mál, húsnæðis- og lóðamál og fleira
sem auðvelt væri að telja þó ég
láti þetta nægja.
Nýr vettvangur er tilraun vinstri
SÍMINN ER
689400
BYGGT & BÚIÐ
KRINGLUNNI
mxmmn
FOSTUDAGUR TIL FJAR
,'ui‘ÍíiúC>'íí'ÍVlv« r><*. ’aó "uiVuuiVóW
cíöív ivd 'iöi