Morgunblaðið - 24.05.1990, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 24.05.1990, Qupperneq 26
Grípandi málning á grípandi verði tíntvrinn Síðumúla 15. sími 84533 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAI 1990 Sjálfstætt fólk - eða sjálfstæðisfólk? eftir Guðrúnu Jónsdóttur Á undanförnum árum hef ég sannfærst æ betur um það að Sjálf- stæðisflokkurinn er í blindgötu. Eitt sinn var litið til Sjálfstæðisflokksins sem flokks allra stétta: nú er honum svo komið að hann sinnir hinum fáu og fjársterku á kostnað fjöldans. Og flokkurinn sem eitt sinn hafði lýðræði að leiðarljósi hefur tileinkað sér vinnubrögð sem fylgja fámenn- isveldi. í fyrsta skipti í tvo áratugi hélt flokkurinn nú ekki prófkjör: Framboðslistinn var ákveðinn af fámennri uppstillingarnefnd sem ekkert lét uppi um störf sín. Lýð- ræði og valddreifingu var hafnað. Það hefur ekki borið mikið á frambjóðendum Sjálfstæðisflokks- ins í kosningabaráttunni. Þar á bæ virðast menn líta á kosningar sem hveija aðra hvimleiða skyldu til að fullnægja lagabókstaf. Þó héldu sjálfstæðismenn nokkra fundi og spurðu hæstvirta kjósendurtveggja spurninga. I fyrsta lagi: Um hvað snýst kosningabaráttan í Reykjavík? Og í annan stað: Hver eru steínumál Sjálfstæðisflokks- ins? Auðvitað vissu reykvískir kjós- endur ‘ekki hver stefnumál Sjálf- stæðisflokksins eru. Þau voru ekki kynnt í áróðursbæklingunum. Þar var einblínt á hið liðna: minnisvarð- ann í Tjörninni til dæmis. Og það skyldi þó aldrei vera að sjálfstæðismenn lumuðu á öðru álíka trompi og ráðhúsinu? Ekki grunaði menn fyrir síðustu borgar- stjórnarkosningar að til stæði að reisa ráðhús í Tjöminni. Hver bað um ráðhúsið? Það var ekki fólkið í borginni. En það skyldi þó aldrei vera að eftir kosningar verði hafist handa við að fylla upp í Tjörnina — til að búa tii ráðhústorg sunnan við ráðhúsið? Spyr sá sem ekki veit. Þegar sjálfstæðismenn spurðu kjósendur hver stefnumál flokksins væru, þá varð reykvískum kjósend- um eðlilega svarafátt. Stefnan sú arna hefur aldrei verið kynnt. Hitt virtist þó öllu lakara að frambjóð- endur Sjálfstæðisflokksins höfðu ekki heldur hugmynd um stefnu- málin. Málefnafátæktin var alger. En loksins, loksins! Fjórum dög- um fyrir kosningar birtist „loforða- listi“ Sjálfstæðisflokksins í viðhafn- arauglýsingum. Flokkurinn vill að fólkið í borginni fái fjóra daga til að kynna sér stefnumálin. Og það er verið að kjósa til næstu fjögurra ára! Það sem vantar Loforðalisti sjálfstæðismanna er athyglisverð lesning. Það er til dæmis afráðið að ráðhúsið verði vígt hinn 14. apríl 1992 — kl. 15. Hins vegar er ekki stafkrók að finna um heildarstefnu í málefnum aldr- aðra Reykvíkinga. Það er ekki minnst á gamla fólkið á biðlistun- um eftir húsnæði og hjúkrun. Úr- ræðaleysi Sjálfstæðisflokksins gagnvart neyð gamls fólks er al- gert. Enda virðist áhuginn vera takmarkaður. í loforðalistanum er ekki minnst einu orði á húsnæðismál, sem þó brenna sérstaklega á ungu fóllri. Reykjavíkurborg virðist hér eftir sem hingað til ætla að hunsa kaup- leigukerfið, sem þó gerir ungu fólki kleift að fá húsnæði án þess að ieggja allt undir. Sjálfstæðismenn í borgarstjórn virðast ekki hafa kynnt sér nýsamþykkt lög sem marka tímamót í húsnæðismálum. Hins vegar stendur í loforðalist- anum að „áfram verður tryggt að lóðaframboð svari eftirspurn". Þetta er beinlínis rangt. Sjálfstæð- ismenn hafa ekki tryggt nægar lóðir fyrir fjölbýlishús. Þess vegna eru yfirlýsingar þeirra um gott ástand í lóðamálum út í hött. í loforðalistanum er heldur ekki minnst einu orði á fíkniefhavanda ungs fólks. Ekki orð um forvarnar- starf. Ekki orð um aðstoð við ung- menni sem þurfa hjálpar við. Og sjálfstæðismenn ætla ekki heldur að bæta almannavarnir í Reykjavík, ef marka má tossalist- ann. Álmannavarnir eru í lamasessi \ Reykjavík. Það þurfti óhapp í Áburðarverksmiðjunni til að vekja athygli á því. Hvað þarf að gerast til að öryggi Reykvíkinga verði eitt af áhugamálum sjálfstæðismanna? Svona mætti lengi áfram telja það sem ekki rúmast á loforðalista sjálfstæðismanna. Raunar er listinn harla flausturslegur og því líkast sem hann hafi verið settur saman í nokkurri skyndingu — kannski þegar Reykvíkingar báðu vinsam- legast um að fá að sjá stefnu Sjálf- stæðisflokksins? Og um hvað er svo kosið? En frambjóðendur Sjálfstæðis- flokksins spurðu líka um hvað kosn- ingabaráttan snerist. Mér vitanlega hafa þeir ekki svarað þeirri spurn- ingu. Kosningarnar á laugardaginn snúast um það, hvort Sjálfstæðis- flokkurinn verður í yfírburðaað- stöðu í borgarstjórn. Þær snúast um það, hvort flokknum verður veitt sterkt aðhald. í Reykjavík þarf trausta stjórn og kröftuga stjórnarandstöðu. Ella heldur Sjálf- stæðisflokkurinn áfram að hunsa vilja fólksins. Þess vegna þarf að Guðrún Jónsdóttir „Hins vegar stendur í loforðalistanum að „áfram verður tryggt að lóðaframboð svari eftirspurn“. Þetta er beinlínis rangt. Sjálf- stæðismenn hafa ekki tryggt nægar lóðir fyrir flölbýlishús. Þess vegna eru yfirlýsingar þeirra um gott ástand í lóða- málum út í hött.“ efla einn lista til mótvægis við Sjálfstæðisflokkinn. Það eru göm- ul sannindi, að of mikii og langvar- andi völd spilla og stöðnun fer að ríkja í hugsun og framkvæmd. Hvaða listi er þá best fallinn til að veita Sjálfstæðisflokknum þetta aðhald, sem flokkurinn — og borgin — þarfnast svo sárlega. Skoðana- kannanir sýna ótvírætt, að æ fleiri Reykvíkingar eru þeirrar skoðunar að einungis H-listi Nýs vettvangs sé fær um að veita þetta aðhald. En það munar um hvert at- kvæði! Höfundur er arkitekt og skipar 4. sæti H-Iista Nýs vettvangs. Iþróttir í Reykjavík næstu árin eftir Júlíus Hafstein í ljósi þeirra þjóðfélagsbreytinga sem hafa orðið á síðustu árum hef- ur komið í ljós mikill áhugi fólks á öllum aldri til að stunda hverskonar íþróttir sér til ánægju og heilsubót- ar. Þetta hefur m.a. komið fram í aukinni aðsókn að sundstöðum, skíðasvæðum, golfvöilum og íþróttahúsum svo eitthvað sé nefnt. Borgaryfirvöld hafa komið til móts við þennan áhuga m.a. með lengd- um opnunartímum í mannvirkjum borgarinnar, uppbyggingu nýrra mannvirkja og stórauknum styrkj- um til félaga og samtaka sem vinna að þessum málum. Laugardalurinn í Laugardalnum er miðdepill íþróttastarfs í borginni. Þar eru stærstu mannvirkin, Laugardals- sundlaugin, írþóttahöllin og vellim- ir. Nú er verið að byggja vélfryst skautasvell austan við Laugardals- höllina, svell sem er í fullri stærð fyrir skautaíþróttir. Svellið verður tekið í notkun síðar á þessu ári og reiknað er með að byggja yfir það á næstu árum. Þá er gert ráð fyrir því í framtíðinni að byggja frekari íþróttamannvirki sunnan og suð- austan við Laugardalshöll en þar er frátekið land til þessarar starf- semi, hér er t.d. um að ræða mjög stórt íþrótta-, sýninga- og ráð- stefnuhús. Nokkuð hefur verið óljóst með framtíð fijálsra íþrótta í Reykjavík. Nú er ákveðið að leggja fullkomið gerviefni af bestu tegund á hlaupa-, kast- og stökkbrautir aðalleikvangs í Laugardal. Verkið mun hefjast í sumar með því að stækka brautirnar og efnið síðan lagt niður á næsta vori. Næstu verkefhi Verið er að ljúka við nýtt íþrótta- hús í Fella- og Hólahverfi. Það er sambyggt við sundlaugina í hverf- inu og mun nýtast skólunum á dag- inn og íþróttafélögum eftir skóla- dag. Þetta hús er með áhorfenda- sæti (stæði) á þijá vegu sem er nýbreytni. Annað stórt íþróttahús sem byggt verður á næstu 2-4 árum verður í Grafarvogshverfinu, á milli Foldahverfis og Húsahverfis þ.e. á nýju íþróttasvæði Fjölnis. Þetta verður stór bygging með stórum sal, áhorfendaaðstöðu, veitingasölu og aðstöðu fyrir iþróttafélagið Fjölni og sambyggt við húsið verður sundlaug og það sem til þarf. Þessi mannvirki eru á hönnunarstigi. Verið er að undirbúa byggingu nýrrar sundlaugar í Árbæjarhverfi. Hún verður staðsett við íþrótta- svæði Fylkis í Elliðaárdal. Sundlaug þessi verður með öðru sniði en þær almenningssundlaugar sem fyrir eru í Reykjavík. Þessi sundlaug verður eins og það nefnist í dag, fjölskyldubaðstaður, þ.e. heitir pott- ar, sérstakar barnalaugar, renni- brautir, inni- og útilaug, yfirbyggð- ur garður, sem jafnframt er veit- ingastaður, o.s.frv. Reiknað er með því að taka þetta mannvirki í notk- un 1993. Að mörgum fleiri áhugaverðum verkefnum er verið að vinna og önnur í athugun. Samstarf við íþróttafélögin Samstarf við íþróttafélögin í borginni er náið. Á hveiju ári veitir Reykjavíkurborg styrki til íþrótta- starfsins. Á þessu ári fær íþrótta- hreyfingin um 240 millj. kr. í styrki sem skiptast á ýmsa rekstrarþætti Júlíus Hafstein * „ A næsta kjörtímabili er gert ráð fyrir að styrkja framkvæmdir íþróttafélag-anna á fé- lagssvæðunum með allt að 500 milljóna króna framlagi úr borgar- sjóði.“ og ýmsar framkvæmdir. A því kjörtímabili sem er að líða hefur áhersla verið lögð á að bæta aðstöð- una á íþróttasvæðum félaganna og hefur borgin veitt 165 millj. kr. styrk til þess, og hann notaður til að greiða 80% af framkvæmda- kostnaði við hvert verk. Annað áhersluatriði hefur verið að breyta rekstrarstyrkjum félaganna þannig að nú er öll húsaleiga félaganna styrkt að fullu sem áður var 50%. Þriðja áhersluatriðið hefur verið að lækka verulega keppnishúsaleigu og afnema húsaleigu á keppni yngri aldursflokka. Öll þessi atriði hafa verið unnin í nánu samstarfi við íþróttabandalag Reykjavíkur. 500 milljónir til framkvæmda á félagssvæðum Þótt ýmislegt hafi verið vel gert í framkvæmdum á íþróttasvæðum félaganna eru ótal verkefni fram- undan. Áherslan sem lögð var á vellina á þessu kjörtímabili hefur skilað þeim vel á veg og því svigrúm til að sinna stærri verkefnum eins og t.d. íþróttahúsum. Á næsta kjörtímabili er gert ráð fyrir að styrkja framkvæmdir íþróttafélag- anna á félagssvæðunum með allt að 500 milljónum króna framlagi úr borgarsjóði. Þetta er stórmikil breyting frá því sem verið hefur og mun þegar upp er staðið gjör- breyta aðstöðu íþróttafélaganna í Reykjavík. Að framan er aðeins getið hluta þeirra verkefna sem unnið er að og framundan eru. Á þessu má sjá að verkefnin eru mörg og fjölbreyti- leg og umsvif mikil. Við ákvarðanir um helstu framkvæmdir hefur jafn- an verið haft samráð við Iþrótta- bandalagið og mun það verða gert áfram, en Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á sjálfstæði íþrótta- hreyfingarinnar og vill taka sem mest tillit til skoðana forystumanna ÍBR. Höfundur er borgarfulltrúi og cr 7. maúur á lista Sjdlfstæðistlokksins.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.