Morgunblaðið - 24.05.1990, Page 58
58
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 1990
Hafiiargörður;
Yiljum framkvæma meira
með minni tilkostnaði
- segir Jóhann G. Bergþórsson, efsti maður á lista Sjálfstæðisflokksms
JÓHANN G. Bergþórsson, efsti maður á lista sjálfstæðismanna í
Hafnarfírði við bæjarstjórnarkosningarnar á laugardag segir að
losarabragur hafi verið á fjármálasfjórn HafnarQarðarbæjar á
kjörtímabilinu, sem nú er að ljúka. Hann segir að sjálfstæðismenn
vilji bæta rekstur bæjarfélagsins og treysti sér til að framkvæma
meira með minni tilkostnaði en gert hafi verið á undanförnum
Morgunblaðið/Bjarni
Jóhann G. Bergþórsson, efsti maður á lista Sjálfstæðisflokksins í
Hafharfirði.
árum.
Jóhann G. Bergþórsson er bor-
inn og barnfæddur Hafnfirðingur.
Hann lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík og
fyrrihlutaprófi í verkfræði frá
Háskóla Islands og lauk verk-
fræðiprófí í Danmörku. Hann
starfaði í eitt ár í Danmörku að
prófi loknu en tók síðan við starfi
deildarverkfræðings hjá Hafnar-
fjarðarbæ. Þar starfaði hann í
fjögur ár þar til hann stofnaði
eigin verkfræðistofu í bænum
1973.
Árið 1979 hóf Jóhann þátttöku
í virkjunarframkvæmdum við
Hrauneyjafoss og stofnaði verk-
takafyrirtækið Hraunvirki og
síðar Hagvirki árið 1981.
Jóhann segist ekki hafa tekið
þátt í pólitísku starfi fyrr en árið
1970, en þá hafi hann tekið sæti
í iðnþróunamefnd Straumsvíkur-
svæðisins fyrir hönd Sjálfstæðis-
flokksins. Árið 1974 hefði hann
svo tekið þátt í prófkjöri sjálfstæð-
ismanna í Hafnarfirði og lent í
áttunda sæti. Hann hefði síðan
verið varamaður Sjálfstæðis-
flokksins í bæjarstjóm til 1982
og meðal annars setið í rafveitu-
nefnd og skipuiagsnefnd, en þar
hafi hann verið formaður frá 1978
til 1986. Formaður Fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaganna í Hafnarfirði
hafi hann verið frá 1979 til 1982.
„Ég dró mig að mestu út úr
þessu starfi 1982 enda var ég
aðallega á fjöllum á þessum tíma
vegna virkjunarframkvæmdanna.
Árið 1986 var ég hins vegar beð-
inn að taka aftur sæti á lista Sjálf-
stæðisflokksins og var þá stillt
upp í fjórða sæti. Frá því ári hef
ég setið sem bæjarfulltrúi og átt
sæti í bæjarráði og ýmsum nefnd-
um bæjarins. Samhliða þessu hef
ég sinnt rekstri fyrirtækis míns
og fleiri fyrirtækja og þannig
kynnst af eigin raun útgerð, fisk-
vinnslu, fiskeldi, matvælafram-
leiðslu, véismiðjurekstri, fram-
leiðslu rafeindabúnaðar og fiug-
rekstri."
Sjálfstæðismenn hafa verið í
minnihluta í bæjarstjórn Hafnar-
fjarðar á því kjörtímabili sem nú
er að Ijúka. „Við í minnihlutanum
höfum gagnrýnt fjármálastjórn
meirihlutans harðlega og flutt
afar víðtækar, rökstuddar breyt-
ingartillögur við afgreiðslu fjár-
hagsáætlana bæjarins en á þær
hefur ekki verið faliist. Jafnframt
höfum við gert athugasemdir við
undirbúning einstakra fram-
kvæmda og hvemig að þeim hefur
verið staðið en við teljum að í
mörgum tilvikum hafi fjármunum
verið eytt langt umfram það sem
nauðsynlegt hefði verið. Til dæm-
is hefði átt að viðhafa útboð oftar
en gert hefur verið. Við höfum
almennt verið sammála meirihlut-
anum um að ráðast í þessar fram-
kvæmdir en hins vegar hefur oft
verið ágreiningur um leiðir."
Listi sjálfstæðismanna í Hafn-
arfirði var valinn í opnu próf-
kjöri, sem fram fór í desember
og varð Jóhann þar í efsta sæti.
„Það átti sér stað mikil endurnýj-
un á listanum í prófkjörinu og
aðeins þrír af sex efstu mönnun-
um hafa áður setið í bæjarstjórn-
inni og enginn lengur eh í fjögur
ár. Það er mikil samstaða í þess-
um hópi, sem hefur víðtæka þekk-
ingu og reynslu að baki og mikinn
áhuga á hagsmunamálum bæjar-
ins.
Helstu baráttumái okkar í
kosningunum eru að fjármála-
stjórnin verði með öðrum hætti. Á
síðasta ári fóru 27% útsvarstekna
bæjarins í að greiða vexti, dráttar-
vexti og verðbætur af lánum og
á þessu ári er útlit fyrir þetta
hlutfall verði 50% útsvarstekna.
Meginstefna okkar er sú, að nauð-
synlegar framkvæmdir verði fjár-
magnaðar með samtímatekjum,
en átaksverkefni verði fjármögn-
uð með iántöku. Á þessu kjörtíma-
bili hafa hins vegar verið tekin
dýr skammtímalán og að öllu leyti
verið losarabragur á fjármála-
stjóminni.“
Jóhann segir, að meirihlutinn
hafi hækkað gjöld á borð við fast-
eignaskatt, en sjálfstæðismenn
telji sig hins vegar geta lækkað
álögurnar. „Við teljum að það
megi gera meira fyrir minna fjár-
magn hér í bænum. Ef núverandi
meirihluti heldur áfram á sömu
braut verður hins vegar innan
skamms ekki til neitt fjármagn
til framkvæmda. Af þeim sökum
óttumst við sjálfstæðismenn
áframhaidandi stjóm Aiþýðu-
flokksins.
Meðal annarra stefnumála
Sjálfstæðisflokksins í þessum
kosningum er að taka fastar á
ákveðnum nauðsynlegum verk-
efnum er gert hefur verið; til
dæmis málefnum Vatnsveitunnar
og Tónlistarskólans. Jafnframt
viljum við stuðla að frekari upp-
byggingu Iðnskólans, betrum-
bæta almenningssamgöngurnar
og herða baráttuna gegn fíkniefn-
um, svo fátt eitt sé nefnt,“ segir
Jóhann G. Bergþórsson að lokum.
Mosfellsbær:
Leggjum mikla áherslu
á trausta Qármálastjóm
- segir Magnús Sigsteinsson, forseti bæjarstjórnar
„VIÐ viljum stuðla að heilbrigðu og góðu mannlífi hér í Mosfells-
bæ og koma til móts við óskir fólksins sem hér býr,“ segir Magn-
ús Sigsteinsson, forseti bæjarstjómar í Mosfellsbæ og efsti maður
á lista Sjálfstæðisflokksins við bæjarstjórnarkosningarnar á laug-
ardaginn. Hann segir mikla áherslu hafa verið lagða á trausta
Ijármálastjórn í bænum og að nauðsynlegt sé að haldið verði áfram
a sömu braut.
Magnús Sigsteinsson er inn-
fæddur Mosfellingur og hefur alla
tíð búið á Blikastöðum. Hann lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólan-
um í Reykjavík og lagði að því
loknu stund á búvísindi í Ási í
Noregi og sérhæfði sig í landbún-
aðarbyggingum og bútækni. Frá
árinu 1968 hefur hann starfað
sem bygginga- og bútækniráðu-
nautur hjá Búnaðarfélagi Islands.
Magnús hóf afskipti af málefn-
um bæjarfélagsins árið 1970 er
hann tók sæti í skipulagsnefnd.
Hann var varamaður í hrepps-
nefnd frá 1974 til 1978 og hefur
síðan verið aðalmaður fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn. Forseti bæjar-
stjómar hefur hann verið frá árinu
1982.
„Við sjálfstæðismenn höfum
lagt mikla áherslu á að fjármála-
stjórn bæjarins sé traust og hag-
kvæmni sé gætt í rekstri," segir
Magnús. „Jafnframt höfum við
kappkostað að tryggja bæjarbú-
um góða þjónustu. Staðan í dag
er líka mjög góð; nettóskuldir
bæjarfélagsins eru aðeins um 25
milljónir króna, sem eru um 8,5%
af ársveltu. Veltufjárhlutfallið er
1,53, sem verður að teljast gott.
Með því að tryggja hagkvæmni í
rekstri hefur okkur tekist að veija
góðum hluta tekna bæjarins til
framkvæmda; oft á bilinu 25% til
30%.
Það hefur líka átt sér stað mik-
ii uppbygging hér í Mosfellsbæ á
undanförnum árum og sem dæmi
má nefna, að frá árinu 1970 hef-
ur fjöldi íbúa fjórfaldast. Hins
vegar höfum við reynt að varð-
veita ýmis sérkenni byggðarinnar
þótt þéttbýlið hafi vaxið. Þannig
höfum við lagt mikla áherslu á
útivistarmöguleika og skoðun mín
er sú, að bærinn sé hrein perla
fyrir íþrótta- og útivistarfólk, ékki
síst eftir uppbyggingu íþrótta-
svæðisins hjá Varmá á síðasta
kjörtímabili. Auk þessarar upp-
byggingar á vegum bæjarins hef-
ur verið úthlutað svæðum til
hestamanna, flugáhugamanna og
golfáhugamanna og hafa þeir
byggt upp þessi svæði sín af mikl-
um myndarskap með lítils háttar
aðstoð frá bænum.
Á síðari árum höfum við lagt
mikla áherslu á umhverfísmálin
og á þessu kjörtímabili hefur ver-
ið lokið við gerð holræsis meðfram
Varmá. Eftir að það hefur verið
tekið í notkun verður nær allt
skólp frá bænum hreinsað í rotþró
áður en það fer í út í sjó. Að þessu
leyti erum við í fararbroddi sveit-
arfélaga í landinu. Jafnframt
þessu höfum við sinnt töluvert
frágangi opinna svæða í byggð-
inni og eins hefur verið reynt að
ganga jafnóðum frá slitlagi á göt-
um og nú er verið að malbika
nýjustu göturnar í bænum.
I þessu sambandi má nefna,
að mótframboð okkar hér í bæn-
um, Eining, hefur reynt að gera
sorpurðun í Álfsnesi að kosninga-
máli. Staðreyndin er hins vegar
sú, að bæði meirihluti og minni-
hluti núverandi bæjarstjórnar
hafa verið sammála um að mót-
mæla áformum um að urða sorpið
á þessum stað. Þar af leiðandi er
þetta ekki kosningamál heldur
sameiginlegt baráttumál."
Magnús segir, að meðal helstu
stefnumála sjálfstæðismanna í
Mosfellsbæ sé að tryggja að fjár-
Magnús Sigsteinsson, forseti bæjarstjómar Mosfellsbæjar.
málastjóm bæjarins verði áfram
traust. „Meðal þeirra verkefna
sem við viljum sinna er að ljúka
við íbúðir aldraðra, en stefnt er
að því að þær verði teknar í notk-
un árið 1992. Við viljum stuðla
að áframhaldandi uppbyggingu í
miðbæjarkjarnanum, þar sem
meðal annars á að rísa skrifstofu-
og stjórnsýsluhús, sem hýsa á
bæjarskrifstofumar og Héraðs-
bókasafn Kjósarsýslu. Um leið
þarf að tengja miðbæjarkjamann
og íbúðarhverfi með hjólreiða- og
göngustígum og er það átak haf-
ið. Auk þess viljum við ganga frá
götum í iðnaðarhverfinu við
Hlíðartún og halda áfram vinnu
við deiliskipulag íbúðarhverfis
vestan Tangahverfis, en stefnt er
að því að úthlutun lóða hefjist þar
næsta vor. í húsnæðismálum er
það okkar stefna, að sem flestir
geti eignast eigið húsnæði, en
hins vegar viljum við jafnfram
fjölga félagslegum íbúðum á veg-
um bæjarfélagsins. Á nýja íbúðar-
svæðinu er fýrirhugað að hafa á
boðstólum fjölbreytta kosti í hús-
næðismálum."
Magnús nefnir einnig, að sjálf-
stæðismenn hyggist gera átak í
uppbyggingu leikvalla, eíla at-
vinnustarfsemi í bænum og auka
atvinnumöguleika skólafólks.
Styðja ötullega við bakið á íþrótta-
og æskulýðsstarfi og starfi að
menningarmálum, auk þess sem
hugsa þurfi fyrir viðbótarhúsnæði
fyrir grunnskólann.