Morgunblaðið - 24.05.1990, Síða 59

Morgunblaðið - 24.05.1990, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 1990 59 i§SSziÉmZÉkgMM *T;í'> -S&í&í KOSNINGA VAKA Kosningavaka sjálfstæðismanna verður í Súlnasal Hótel Sögu á kjördag, laugardag 26. maí, frá kl. 23 til 3 eftir miðnætti. Einsdæmi leikur fyrir dansi. Ragnar Bjarnason syngur og spjallar um úrslit kosninganna. Risasjónvarpsskjár verður í hliðarsal, þar sem hægt verður að fylgjast með kosningasjónvarpi. Sjálfstæðisfélögin i Reykjavík Borgarstjómarkosningar 26. maí 1990 'Mhiést'. Alþjóðlegur reyk- laus dagur fimmtu- dagínn31.maí ÞRIÐJI Alþjóðlegi reyklausi dagurinn er fimmtudaginn 31. maí nk. Að þessu sinni hefiir Alþjóðaheilbrigðismálastofiiunin (WHO) helgað hann börnum og ungmennum án tóbaksreyks undir kjörorð- unum: „Reyklaus uppvöxtur og þroski.“ Blásarakvintettinn „Framton ingen“ leikur í Norræna húsinu. Norræna húsið: Sænskur blásarakvintett BLÁSARAKVINTETTINN „Framtoningen" frá Sollefteá í Svíþjóð heldur tónleika í Norræna húsinu laugardaginn 26. maí kl. 16. Á eftiisskránni eru verk eftir Paul Hindemith, Bo Nilsson, Joonas Kokkonen og György Ligeti. Kvintettinn skipa Patrik Wendel, flauta, Gunnar Stál- hand, óbó, Inge Magnusson, klarinett, Ingemar Náslund, horn, og Sixten Lindström, fag- ott. Þeir stofnuðu kvintettinn 1979 og hafa haldið tónleika víða í Svíþjóð. Auk þess hafa þeir heimsótt Færeyjar, England, Þýskaland og fleiri lönd og hald- ið tónleika. Á efnisskránni eru bæði gömul og ný verk allt frá 18. öld til vorra daga. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis. Það er sjaldgæft að börn undir 12 ára aldri reyki að jafnaði og reglulegar reykingar meðal ungl- inga hér á landi eru á hröðu undan- haldi vegna öflugs forvarnarstarfs í skólum. Hins vegar er ekki óal- gengt að þekkingar- og hugsunar- leysi fi(llorðinna reykingamanna bitni á börnum. Þannig stofna barnshafandi konur fóstri sínu í hættu með tóbaksreykingum, korna- og ungbörn þjást oftar af öndunarfæra- og eyrnakvillum ef reykt er í kringum þau, börn og unglingar reykja frekar ef systk- ini, foreldrar eða vinir reykja og unglingar eru viðkvæmir fyrir hvers konar óbeinum auglýsingum .sem hvetja til lífsstíls, sem höfðar til reykinga, segir í frétt frá skóla- yfirlækni. Ungmenni, sem reykja daglega sígarettur, neyta oftar áfengis og prófa oftar önnur ávana- og fíkni- efni en þau, sem ekki reykja. Nem- endur, sem reykja eru oftar fjar- verandi frá skóla en þeir, sem ekki reykja meðal annars vegar tíðari öndunarfærasýkinga og kvilla. Þessir nemendur geta dreg- ist aftur úr í námi, sem aftur eyk- ur líkurnar á frekari fjarveru frá skóla og seinna jafnvel fíkniefna- neyslu. Slíkan vitahring þarf að koma í veg fyrir. Því fyrr, sem börn og ungmenni ánetjast reykingum og reykja reglulega sem fullorðin því meiri líkur eru á að þau deyi fyrir aldur fram en ella vegna krabbameina, lungna- sjúkdóma, hjarta- og æðasjúk- dóma og slysa. Hefur verið áætlað að haldi núverandi tóbaksneysla áfram í sama takti og áður, muni um 150 milljónir núlifandi barna í heimin- um deyja í nánustu framtíð vegna ■ DR. EKKEHARD Wagner, prófessor í sagnfræði og vararektor Georg Simon Ohm tækniháskól- ans í Nurnberg flytur opinberan fyrirlestur í boði Heimspekideildar Háskóla íslands á morgun, föstu- daginn 25. maí, kl. 17.15 í stofu 101 í Odda. Fyrirlesturinn sem verður fluttur á ensku, íjallar um stjómmálasögu 20. aldar í Þýska- landi. Fyrirlesturinn er öljum opinn. - (Frétt frá Háskóla íslands) ■ ELLIMALANEFND Þjóð- kirkjunnar minnir sóknarpresta og söfnuði á Kirkjudag aldraðra í dag, uppstigningardag. Safnaðar- fólk er hvatt til að sækja guðsþjón- ustur dagsins og gera þeim öldnu kleift að taka einnig þátt í því kirkjulega starfi sem fram fer á þessum degi um allt land. Uppá síðkastið hefur það færst æ í vöxt, að þeir öldmðu taki sjálfir þátt í guðsþjónustunni á þessum degi svo sem með ritningarlestri og kórsöng í samráði við safnaðarprest. Stuðlar þessi nýjung mjög að auknu sam- starfi eldri sem yngri við presta og starfsfólk kirkjunnar og er það vel. (Fréttatilkynning) tóbaksreykinga. Til að koma í veg fyrir og draga úr beinu og óbeinu heilsutjóni meðal barna og ung- menna vegna tóbaksreykinga verða allir að leggja sitt af mörk- um, foreldrar, kennarar, heilbrigð- isstéttir, áhuga- og hagsmuna- samtök og hið opinbera. Hér gegnir heilsuvernd í skólum mikilvægu hlutverki, bæði sem frumkvöðull, faglegur leiðbeinandi og samstarfsaðili. Halda verður uppi stöðugri fræðslu og upplýs- ingastarfsemi meðal skólabarna og ungmenna um hvers konar skaðsémi tóbaksreykinga þar sem áhersla er lögð á hinar jákvæði hliðar lífsstíls án tóbaksreykinga. Gefum sérhveiju barni og ung- menni kost á að alast upp, vaxa og þroskast í reyklausu umhverfi, segir í fréttatilkynningunni. má PÉ .w T J
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.