Morgunblaðið - 24.05.1990, Síða 62
62
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAI 1990
Valfrelsi for eldra!
eftir Helgu Margréti
Guðmundsdóttur
V íkverjavéfréttin
Málefni fjölskyldunnar eru ofar-
lega á baugi nú þegar hinir ýmsu
flokkar keppast við að koma á fram-
færi stefnumálum sínum.
í þeirri umræðu hafa dagvistar-
mál verið ofarlega á baugi og er
gott eitt um það að segja en þó
finnst mér að einn hópur fólks hafi
ekki fengið nægan hljómgrunn hjá
frambjóðendum og á ég þar við
heimavinnandi húsmæður. En eins
og allir vita sinna þær m.a. umönn-
unarstörfum, dagvistun barna
(umönnun barna) og oft á tíðum
dagvistun aldraðra og fatlaðra.
Mig langar að vekja sérstaka
athygli á grein Rannveigar
Tryggvadóttur sem birtist í Morg-
unblaðinu 19. maí sl. en kveikjan
að þeirri grein eru ummæli
„Víkvetja" um vanda barna í dag
þar sem sum þeirra ganga meira
og minna sjálfala lungann úr degin-
„Víkverji" segir, að þeir sem boði
þá lausn að börn fái að hafa móður
sína heimavinnandi séu líklega ekki
uppi á réttum tíma. Ég álít hins
vegar að hið óhóflega vinnuálag á
mæðrum hér á landi sé tíma-
skekkja. Borið saman við Norður-
löndin vinna konur hérlendis 20-30
klst. á viku lengur en stöllur þeirra
á Norðurlöndum. (Ól. Ólafsson
landlæknir á stofnfundi Landssam-
taka heimavinnandi fólks 14. okt.
sl.)
Fólk vill val
Ég vil vitna um það hér og nú að
í þessu landi eru til mæður sem
vilja vera heimavinnandi og sinna
sínum börnum sjálfar — sérstaklega
mæður ungra barna, en þær hafa
ekki skilyrði til þess.
Skv. könnun Baldurs Kristjáns-
sonar sem hann kynnti á stofnfundi
Landssamtaka heimavinnandi fólks
hefur atvinnuþátttaka mæðra yngri
barna (0-6 ára) dregist saman á
síðustu árum og segir það okkur
að breyttir tímar eru í vændum
hvað varðar vilja kvenna til að vinna
utan heimilis á meðan þær eru með
ungbörn.
Foreldrar þurfa að hafa frjálst
val um það hvort þeir kjósa að ann-
ast börn sín sjálfir eða láti aðra um
það en eins og þetta er í dag þá
er ekki um mikið val að ræða. í
mörgum tilfellum mætti segja að
heimavinnandi fólki sé „refsað".
Við það að gerast heimavinnandi
missir fólk ýmis sjálfsögð mannrétt-
indi eins og það að vera 100% skatt-
þegnar. Aðeins 80% af persónufrá-
drætti þeirra er millifæranlegur til
maka af einhveijum óskiljanlegum
ástæðum sem ekki hafa verið skýrð-
ar opinberlega og að sjálfsögðu
verða þær fyrir tekjumissi. Einnig
fá þær lægsta fæðingarorlof og lág-
marks bætur í almannatrygginga-
kerfinu.
Á stofnfundi Landssamtaka
heimavinnandi fólks 14. okt. sl.
sagði Davíð Oddsson borgarstjóri:
„Ég held að við stjórnmálamenn
hljótum að fara að beina kröftum
okkar í annan farveg en við höfum
hingað til gert. Við eigum að nýta
það afl sem fyrir hendi er hjá fjöl-
skyldunum og ekki eingöngu tala
til ijölskyldunnar á tyllidögum held-
ur sýna það í verki að við viljum
stuðla að því að reglum sé breytt.
Þannig að fólki sé kleift að eiga
um það val, hvort það vill sinna
sínum skyldum heima hjá sér eða
annars staðar."
Réttindaleysi heimavinnandi
Fæðingarorlof til heimavinnandi
er það lægsta sem greitt er vegna
þeirrar kaldhæðnislgeu rökleysu að
ekki sé um tekjumissi hjá þeim að
ræða.
Varðandi almannatrygginga-
kerfið er einnig víða pottur brotinn
hvað málefni heimavinnandi varðar
en þar er þó einhver von um leiðrétt-
ingu eftir að starfshópur á vegum
félagsmálaráðuneytisins hefur Ijall-
að um réttarstöðu heimavinnandi
fólks en þar er ekki talin ástæða
til að leiðrétta • fæðingarorlof eða
reglur um persónufrádrátt.
Ef kona annast ung börn sín,
fatlað barn eða aldraðra á heimili
sínu þá er það ekki viðurkennt sem
vinnuframlag því hún vinnur ekki
fyrir „sannanlegum tekjum". Hún
hefur þó sparað þjóðfélaginu stórfé
og bæjarfélagið sjúkrahúspláss fyr-
ir sjúka aldraða sem hún annast.
Ef þessi kona ákveður nú að eign-
ast barn þá fær hún lægsta fæðing-
arorlof því talið er að hún hafi ekki
orðið fyrir tekjumissi.
Atvinnurekendur greiða 2% ið-
gjald af öllum launum til lífeyris-
deildar Tryggingastofnunarinnar.
Árið 1988 var sú upphæð 1.978
milljónir króna, en útgjöld Trygg-
ingastofnunar vegna fæðingaror-
lofs það ár var kr. 606 milljónir.
Hvað verður um mismuninn sem
þarna myndast?
í skýrslu um réttarstöðu heima-
vinnandi fólks frá okt. 1989 segir:
„Starfshópurinn telur ekki mögu-
leika á að breyta ákvæðum um
fæðingarorlof að svo stöddu. Fæð-
ingardagpeningar eru greiðslur
vegna tekjumissis í orlofi, en þær
konur sem vinna heima missa ekki
tekjur. Líta má á fæðingarstyrk
sem almennan rétt fjölskyldu og
barna. Starfshópurinn bendir þó á
að útgjöld Tryggingastofnunar
vegna fæðingardagpeninga greið-
ast af 2% iðgjaldi atvinnurekenda
á öll laun en ekki eingöngu á laun
kvenna. Þannig má imkki því fram,
að framlag sem greitt er af eigin-
manni heimavinnandi konu nýtist
ekki þeirri ijölskyldu.“ (Leturbreyt-
ing mín.)
Fjölskyldan í frjálsu samfélagi
í Aldamótaályktun Sjáífstæðis-
flokksins segir:
„Þeim foreldrum sem kjósa að
ala börn sín upp sjálfir en ekki leita
á náðir dagvistarheimila er stórlega
mismunað þar sem að utanaðkom-
andi dagvistun nýtur hárra styrkja.
Þannig myndast hvatning til allra
foreldra að senda börn sín fremur
á dagvistarstofnanir og um leið
myndast skortur á dagvistarrým-
um. Eðlilegt væri og í samræmi við
j afnréttisstefnu Sj álfstæðisflokks-
ins að allir foreldrar fengju fjár-
hagsaðstoð, hvern kostinn sem þeir
veldu. Foreldrar gætu þá sjálfir
ákveðið hvort þeir nýttu styrkinn
til að hafa börn sín heima eða þeir
myndu nota hann til að kaupa pláss
á barnaheimili. Slíkt fyrirkomulag
er líklegt til að styrkja fjölskyldu-
böndin og í annan stað útrýmir
þetta misrétti þar sem núverandi
kerfi styrkir suma en aðra ekki.“
Lengi býr að fyrstu gerð
Undanfarin ár hefur mjög færst
í vöxt að mæður hafi börn sín á
bijósti og er það skoðun mín að
aukin fræðsla og lenging fæðingar-
orlofs séu þar mikilvægur hvati.
Við það að móðir hefur barn sitt á
bijósti myndast ákveðið tilfinninga-
samband þeirra í milli sem erfitt
getur reynst að ijúfa. Þetta er m.a.
ein af ástæðunum fyrir því að
mæður ungra barna kjósa æ meira
,að ,vera JieimaviiWAdi-. Jíetta. pfv,
um.
HVITASUNNUFERÐ
í SÓLINA Á
MALLORKA
Sérstök vikuferð um hvítasunnuna
29. maí til 5. júní (aðeins 4 vinnudagar).
Gist verður á hinum frábæru rai|altur hótelum.
Og verðin ættu ekki að spilla fyrir:
4 i íbúð 27.900*
3 i íbú& 29.600*
2 í ibúð 34.400*
2 i stúdíó 30.600*
Hringdu strax, siðast var uppselt!
DAGFLUG
*VerS pr mann og miSast vi6 staSgreiSslu.
dTidÁtTHC
HALLVEIGARSTÍG 1, SÍMI 28388 OG 28580
Helga Margrét Guðmundsdóttir
„Ef kona annast ung
börn sín, fatlað barn
eða aldraða á heimili
sínu þá er það ekki við-
urkennt sem vinnu-
framlag því hún vinnur
ekki fyrir „sannanleg-
um tekjum“.“
oft á tíðum ungar konur sem ólust
upp á dagvistarstofnunum sjálfar
og hafa reynslu af útivinnandi móð-
ur.
Á sama hátt og kjarninn í trénu
býr bernskan í okkur ævina á enda.
Við vöxum aldrei frá þeim þörfum
sem fram komu á fyrstu árum okk-
ar. Þörfin fyrir umhyggju, ástúð
og hlýju hefur ekki breyst þrátt
fyrir alla jafnréttisbaráttu og
breytta þjóðfélagshætti.
Við vitum að einstaklingsfrelsi
er jafnrétti í reynd, og fátt ógnar
því meir en að menn glati hinni
siðferðilegu leiðsögn og aðhaldi,
sem nauðsynleg er og foreldrar og
fjölskylda geta best veitt með kristi-
lega lífsskoðun að leiðarljósi.
Skyldur sljórnmálamanna
Fjölskyldulíf og barnauppeldi er
einna mikilvægast í þróunarferli
mannsins. Það hlýtur því að vera
skylda sjálfstæðismanna sem beita
sér fyrir frelsi einstaklingsins að
vernda friðhelgi fjölskyldunnar og
tryggja þannig mildi og mannúð í
nútíma þjóðfélagi.
Það er hlutverk stjórnmála-
manna að skapa skilyrði fyrir fólk
að lifa mannsæmandi lífi og að sjá
til þess að þegnum þessa lands sé
ekki mismunað.
Ég fagna því að Davíð Oddsson
oddviti sjálfstæðismanna í
Reykjavík og einn virtasti stjórn-
málamaður landsins hefur lýst vilja
sínum til að rétta kjör heimavinn-
andi fólks.
Ilöfundiir er heima vinnandi
húsmóðirmeð 3 börn ogá sæti í
fulltrúaráði Landssamtaka
heimavinnandi fólks.
Tveir styrkir
á leiklist-
arhátíðina
í Avignon
FRANSKA sendiráðið býður
tveimur frönskumælandi íslend-
ingum á aldrinum 18-25 ára styrk
til að sækja leiklistarhátíðina í
Avignon, dagana 10.-19. júlí og
21.-30. júlí nk.
Leiklistarhátíðin í Avignon, sem
er þekktasta leiklistarhátíð í
Frakklandi, býður ungum leiklistar-
unnendum frá ýmsum löndum að
dvelja í 10 daga í Avignon og kynn-
ast starfi leikara, leikstjóra og
hinna ýmsu leikhópa. Uppihald er
þátttakendum að kostnaðarlausu
en ferðakostnað greiða þeir sjálfir.
Nánari upplýsingar fást hjá
Menningardeild franska sendiráðs-
.ins^Túngötv,?^ Reykjayík.