Morgunblaðið - 24.05.1990, Qupperneq 66
66
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 1990
Þegar skerðingar verða
hækkanir og svik efiidir
eftir Sigurjón Þ.
Arnason
Ákveðins misskilnings virðist oft
gæta um Lánasjóð íslenskra náms-
manna. Margir virðast halda að lán-
in séu gjafalán sem ekki séu borguð
til báka. Staðreyndin er hins vegar
sú að lánin eru að fullu verðtryggð
og nær allir greiða öll sín lán 100%
til baka. Enda eðlilegt að svo sé,
þetta er leið fyrir ungt fólk í lang-
skólanámi að færa tekjur framtíðar
til nútíðar á meðan verið er að afla
sér þekkingar og færni til að gagn-
ast þjóðfélaginu. Jafnframt er vert
að taka fram að áður en námsmaður
fær lán þarf hann að sýna fram á
að hann standist þær kröfur sem
skólinn gerir um námsárangur, á
meðan verður hann að framfleyta sér
á almennum bankalánum þ.e. ef
hann á ekki góða að.
Hins vegar er rétt að til skamms
tíma voru námslánin óverðtryggð og
brunnu upp í óðaverðbólgunni á sama
hátt og húsnæðisstjómarián í eina
- Núverandi lög um lánasjóðinn,
sem eru frá 1982, tryggja að lánin
eru greidd til baka.
Hvers vegna alltaf læti
í kringum lánasjóðinn
Það eð lánin voru í eina tíð ekki
verðtryggð og fremur stutt er síðan
að núverandi kerfi var komið á veld-
ur því að enn sem komið er þarf ríkið
að leggja nokkra fjármuni í sjóðinn
uns hann nær jafnvægi og verður
gegnumstreymissjóður. Sumir
stjómmálamenn hafa séð ofsjónum
'•-^ýfir því fjármagni sem rennur í sjóð-
inn og ekki verið tiibúnir til að bíða
og leyfa kerfínu að jafna sig. Með
því að skera niður fjármagn til sjóðs-
ins er honum gert ókleyft að sinna
hlutverki sínu sem er að tryggja öll-
um jafnan rétt til náms óháð efnahag
og búsetu.
Er búið að leiðrétta skerðingu
Sverris?
Ástæða þess að ég sting hér niður
penna er að nauðsynlegt er-að skýra
hvaða breytingar hafa verið gerðar
og hvers vegna námsmenn fullyrða
að þeir hafi verið sviknir. Það að
tala bara um kaupmátt námslána og
að þau hafi hækkað svo og svo mik-
ið segir alls ekki alla söguna. Það
skiptir líka máli hveijir möguleikar
námsmanna eru á að fá lán. Þetta
er ekki ósvipað því að hækka hús-
næðisstjórnariánin en breyta síðan
úthlutunarreglunum svo mikið að
þegar íbúðarkaupendur koma og
sækja um lán þá komast þeir að því
að lánin tii þeirra hafa í raun lækk-
að, sérstaklega ef þeir eru duglegir
að vinna.
Samkomulagið við Svavar
Námsmenn og menntamálaráð-
herra gerðu með sér samkomulag
um hvernig leiðrétta ætti rúmlega
þriggja ára gamla skerðingu náms-
lána. En fyrir síðustu alþingiskosn-
ingar hafði Svavar, sem þá var
óbreyttur þingmaður, gefið stór lof-
orð um að kjör námsmanna yrðu leið-
rétt ef hann fengi að ráða. Þegar
Svavar varð svo menntamálaráð-
herra kröfðu námsmenn hann efnda
og eftir töluvert basl tóks að fá ráð-
herra að samningaborðinu.
í samkomulaginu fólst að leiðrétta
átti framfærslugrunn námslána í
þremur áföngum en á móti sættust
námsmenn á að auka tillit til tekna
við útreikning lána. í stað þess að
35% umfram ákv. upphæð kæmu til
frádráttar láni skyldi nú miðað við
50% tekna. Ýmsir urðu til þess að
benda á að óráðlegt væri að gera
samninga sem þessa þar sem ráð-
herra væri ekki treystandi og ólíklegt
væri að hann stæði við sinn hluta
samkomulagsins. Niðurstaðan er
eins og marga grunaði, samkomulag-
ið var svikið.
Skerðingar Svavars
Ríkisstjórnarfulltrúarnir í stjórn
LÍN hafa þvingað í gegn stórtækar
breytingar á úthlutunarreglum sjóðs-
ins sem eiga að spara tæpan hálfan
milljarð í ár og á næsta ári. Það er
því kiént þegar ráðherra lýsir því
yfir í fjölmiðlum að hann sé búinn
að standa við géfin fyrirheit og leið-
rétta námslánin en gleymir að segja
að samhliða hefur úthlutunarreglun-
um verið breytt svo mikið að erfið-
ara er fyrir marga að fá lán en áð-
ur, sérstaklega fyrir þá sem vilja
bæta kjör sín með því að vinna af
dugnaði yfir sumartímann.
Skerðingarnar felást í eftirfarandi:
1) Tekjutillit er hækkað í 75% (var
35% fyrir rúmu ári) sem þýðir að
allar tekjur umfram ákveðið mark
koma 75% til frádráttar láni. Þetta
þýðir að námsmaður sem vinnur vel
yfir sumartímann eða leggur á sig
vinnu samhliða námi fær lægri lán
en áður. Með þessu er verið að refsa
þeim sem eru duglegir jafnframt sem
reglurnar ýta undir skattsvik. Allir
vita að námslán eru í raun of lág til
að hægt sé að framfieyta sér og
sínum á þeim, því skiptir það náms-
menn miklu máli að geta unnið af
dugnaði yfir sumartímann og þannig
bætt kjör sín. Þessi breyting á að
spara sjóðnum 300 milljónir.
2) Meðallán vegna bóka- og efnis-
kaupa lækka um 36%. Þetta á að
spara sjóðnum 115 milljónir.
3) Aukið tillit til tekna maka.
Reglunum var breytt þannig að nú
hljóðar úthlutunarreglan svo: „Helm-
ingur af tekjum maka umfram fram-
færslu (nú 48.832) og allar tekjur
umfram tvöfalda framfærslu koma
til frádráttar láni til námsmanns."
Með þessari breytingu er verið að
kroppa peninga af láglaunafólki og
spara þannig í sjóðnum. Auk þess
sem þetta þýðir að námsmaður verð-
ur fjárhagslega háður maka sínum.
Þessi breyting á að skila sjóðnum
60 milijónum.
4) Lán til einstaklinga sem ekki
búa í eigin húsnæði eða leiguhús-
næði er lækkað um tæp 10.000 á
mánuði. Þetta á að skila sjóðnum
120 milljónum.
5) Reglur um möguleika á sumar-
lánum eru stórlega þrengdar. Nams-
menn með fjölskyldu í námi erlendis
hafa einkum nýtt sér þessa heimild.
Það borgar sig-ekki að flytja heim
með alla íjölskylduna í tvo til þijá
mánuði yfir sumartímann, betra er
að flýta námslokum og stunda nám
um sumarið. Nú hefur að mestu ver-
ið lokað fyrir þennan möguleika.
Þegar hefur þetta valdið fjölda náms-
manna stórtjóni. í mjörgum tilvikum
hefur námsmaður ekki atvinnuleyfi
Sigurjón Þ. Árnason
„Hann hefur ekki staðið
við þau fyrirheit sem
hann lofaði og því er
ekki hægt að tala um
sátt um lánasjóðinn
meðan skoðanir náms-
manna eru virtar að
vettugi og samningar
við þá sviknir.“
í því landi sem hann dvelur (t.d.
USA) og verður því að fara heim tii
íslands ef hann fær ekki lán yfir
sumartímann. Það er dýrt að rifta
leigusamningi á húsnæði sem búið
.er að gera fyrir sumarið auk þess
sem farmiði heim til íslands og út
aftur fyrir heila ijölskyldu er ekki
gefins. Hvað á vesalings námsmað-
urinn svo að gera þegar hann kemur
heim, varla leggst hann upp á ætt-
ingja með alla fjölskylduna?
Oþolandi er að hægt sé svona fyr-
irvaralaust að kippa stoðunum undan
fjölda Ijölskyldna. Þessi breyting á
að skila sjóðnum 60 milljónum.
Nokkur dæmi
Staðreyndin er þess vegna sú að
í stað þess að efna gefin loforð og
samninga hefur ráðherra svikið það
samkomulag sem hann gerði við
námsmenn. Þar sem ráðherra var
með nokkur dæmi í sínum skrifum,
máli sínu til stuðnings, þá er við
hæfi að ég geri slíkt hið sama, en
ég ætla ekki að segja bara háifa
söguna, heldur söguna til enda. Nið-
urstaðan verður þá líka önnur og
óhagstæðari fyrir námsmenn:
I útreikningum er gert ráð fyrir
eftirfarandi forsendum: Framfærsla
yfir sumarmánuðina: 48.832. Fram-
færsla næsta vetur (6,4% hækkun):
51.957. Meðalbókakostnaður fyrir
skerðingu: 23.000. Meðalbókakostn-
aður eftir skerðingu: 14.600.
Námsmaður sem býr ekki í eigin
húsnæði eða leiguhúsnæði:
Árstekjur Samningur Niðurst. Lækkun
50.000 350.329 248.407 29,09%
100.000 350.329 228.343 34,82%
150.000 326.603 190.483 41,57%
200.000 301.603 153.343 49,16%
250.000 276.603 115.843 58,12%
350.000 226.603 40.843 81,98%
405.000 199.103 0 100,00%
Námsmaður í leiguhúsnæði:
Arstekjur Samningur Niðurst. Lækkun
100.000 490.613 482.213 1,71%
150.000 488.861 479.585 1,90%
200.000 463.861 442.085 4,69%
250.000 438.861 404.585 7,81%
400.000 363.861 292.085 19,73%
600.000 263.861 142.085 46,15%
700.00 213.861 67.085 68,63%
800.000 163.861 0 100,00%
Námsmaður sem er einstætt for-
eldri með eitt barn.
Árstekjur Samningur Niðurst. Lækkun
100.000 724.420 716.020 1,16%
150.000 724.420 716.020 1,16%
200.000 724.420 716.020 1,16%
250.000 709.292 693.328 2,25%
400.000 634.292 580.828 8,43%
600.000 534.292 430.828 19,36%
700.000 484.292 355.828 26,53%
800.000 434.292 280.828 35,34%
Nárasmenn eru sárir, sviknir
og svekktir
Eins og sést af þessum dæmum
skiptir máli að segja alla söguna og
hvernig lánamöguleikar námsmanna
eru háðir þeim tekjum sem þeir afla
sér. Það er mikið óheillaspor að
hækka tekjutillitið, duglegu fólki er
refsað fyrir að vinna vel.
Það væri ósanngjarnt gagnvart
ráðherra að segja að hann hafi ekki
gert neina góða hluti í lánasjóðnum,
hins vegar stendur eftir að hann
hefur ekki staðið við þau fyrirheit
sem hann lofaði og því er ekki hægt
að tala um sátt um lánasjóðinn með-
an skoðanir námsmanna eru virtar
að vettugi og samningar við þá svikn-
ir.
Höfundur er formaður
Stúdentaráðs.
Fimmtudaginn 12. apríl ritar
menntamálaráðherra, Svavar Gests-
son, grein í Þjóðviljann þar sem hann
hreykir sér af því að hafa leiðrétt
skerðingar sem gerðar voru á námsl-
ánunum fyrir tæpum fjórum árum.
Hönnun nýrrar íþróttahall-
ar í Kópavogi gagnrýnd
Misskilningur og rangar forsendur, seg-
ir Valdimar Harðarson arkitekt hússins
GUNNAR I. Birgisson, oddviti
sjálfstæðismanna í bæjarstjórn-
arkosningunum í Kópavogi, hef-
ur gagnrýnt hönnun íþróttahall-
arinnar sem fyrirhugað er að
reisa í Kópavogi í tengslum við
heimsmeistaramótið í hand-
knattleik 1995.
Gunnar segir meðal annars að
brunavarnir og of stutt bil milli
sætaraða brjóti í bága við reglu-
gerðir. Af þessum sökum þurfi
að stækka það með miklum til-
kostnaði. „Fáránleikinn í málinu
var að gera samning við ríkið um
hugmynd sem menn vissu ekki
hvað myndi kosta mikið,“ sagði
Gunnar í samtali við Morgunblað-
ið. Valdimar Harðarson arkitekt,
einn hönnuða hússins, sagði í
samtali við Morgunblaðið að
gagnrýni Gunnars væri byggð á
misskilningi og röngum forsend-
um. Hann sagði þetta hús byggt
á sönpji hönnun og önnur hús, sem
__________________L__________
reynist vel, eins og í Kaplakrika.
Valdimar segir að brunavarnif
verði leystar með bráðabirgðaráð-
stöfunum, þar sem hönnunin sé
miðuð við 4.500 manns með full-
komnum brunavörnum, en á með-
an mótið stendur taki það 7.000
manns.
„Samkvæmt byggingareglu-
gerð eiga að vera 80 sentimetrar
frá aftari brún sætis til aftari
brúnar næstu sætaraðar. Þarna
eru 58 sentimetrar," segir Gunn-
ar.
í öðru lagj segir hann sjónlínur
frá áhorfendapöllunum inn á völl-
inn vera verulega skertar, tals-
verður hluti áhorfenda sjái ekki
allan völlinn.
„í þriðja lagi er brunavörnum
áfátt,“ segirGunnar. „I bygginga-
reglugerð segir að útgangar skuli
vera einn sentimetri fyrir hvern
sem er inni í húsinu. Þegar leikirn-
ir verða hvað fjölmennastir verða
þáijtja, á milli, .sjö þú^upþ.og sjö t
þúsund og fimm hundruð manns
í húsinu, þannig að opin þurfa að
vera samtals milli 70 og 75 metr-
ar í þvermál. í núverandi hönnun
er aðeins talað um 16 metra.“
• Þá kveðst hann telja fordyri
vera allt of lítið, „þó svo að sé
hægt að telja með alls konar horn
og skúmaskot, þangað_ er ekkert
hægt að koma fólki. Ég sé ekki
heldur hvar á að koma fyrir sjón-
varpsmönnum og öðrum frétta-
mönnum meðan á ieikjunum
stendur. Þetta allt þýðir það, að
húsið, sem er 64 sinnum 64 metr-
ar, þarf að stækka upp í 70 sinn-
um 95, ef farið verður eftir öllum
þessum kröfurn."
Gagnrýni Gunnars var rædd á
fundi bygginganefndar íþrótta-
hússins á mánudag. Hann kveðst
ekki hafa fengið þar nein haldbær
rök gegn henni frá hönnuðum
hússins, sem komu á fundinn.
Meðal annars ekki við þeirri
spurningu, hvað ætti að gera ef
eldur brytist út og almenn skelf-
ing gripi um sig meðal sjö þúsund
áhorfenda. „Síðan lét ég bóka til-
lþgU um að;ifá uj^tjaðkomandi
aðila, sem hefði reynslu í þessum
efnum, til að athuga hvort mínar
ásakanir væru á rökum reistar,
en henni var hafnað. Fyrir Kópa-
vog eru gífurlegir fjárhagslegir
hagsmunir í húfi. Samningurinn
við ríkið er um allt of lágt fram-
lag þess, 300 milljónir króna og
bundið við þá krónutöiu, en þyrfti
að vera 700 milljónir. Hvað þá
heldur ef þetta bætist ofan á,
kostnaðarauki upp á 100 til 200
milljónir," sagði Gunnar Birgis-
son.
Valdimar Harðarson arkitekt,
einn hönnuða hússins, sagði gagn-
rýni Gunnars vera misskilning og
byggða á röngum forsendum.
Hann segir ekki vera rétt að 58
sentimetrar séu ætlaðir í hveija
sætaröð, heldur 61. Þá sé ekki
rétt að það bijóti í bága við reglu-
gerð, ákvæði um 80 sentimetra
eigi aðeins við séu bekkirnir með
baki. „Þetta er sama breidd og í
nýjum gerðum íþróttahúsa, til
dæmis í Kaplakrika, Garðabæ,
Laugardalshöll og á Seltjarnar-
nesi,“ sagði hann.
Sjónlínur áhorfenda falla allar
innan vallar og sagði Valdimar
það vera hreinan misskilning hjá
Gunnari að halda öðru fram.
„Sjónlínur á neðri sætum eru þær
sömu og í Kaplakrikahúsinu og
þar þykja þær mjög góðar. í efri
sætum eru þær brattari og minna
skertar en niðri í sal.“
Um brunavarnir sagði Valdi-
mar, að húsið sé hannað með til-
liti til fullkominna brunavarna
miðað við að það taki 4.500
manns. Á meðan það tekur 7.000
manns, verði öryggismálin leyst
með bráðabirgðaráðstöfunum,
enda yrði geysidýrt að byggja
húsið með tiiliti til fullkominna
brunavarna fyrir 7.000 manns.
Bráðabirgða flóttaieiðir verði í
húsinu, brunavörður og slökkvibíll
á staðnum. Tillaga um þetta hefur
verið kynnt Brunamálastofnun
ríkisins, að sögn Valdimars, en
svar hefur ekki borist þaðan. „Það
verður enginn í hættu þarna,“
sagði Valdimar.
Þá sagði hann að fordyri nægi
fyrir 4.500 manna hús, en á með-
an leikarnir standi verði hluti
skólans nýttur, fólki verði hleypt
inn á fjórum stöðum til að upp-
fylla kröfur um fordyri.
Aðstaða fyrir fréttamenn sagði
Valdimar að verði fullkomin, lík
þeirri sem er í Kaplakrika. Hann
sagði hugmyndina að þessari
hönnun grundvallast á að halda
öllum stærðum í lágmarki, þar
sem ekki þurfi fulla stærð hússins
nema í skainnián tíma.
■laí.s.ýji j.g. |.