Morgunblaðið - 24.05.1990, Page 81
-
000 r JAM ! í1' IDAŒ íTl/Jfi T'1 QT(1A J8MU0aOM
MORGUNBLAÐIÐ FlMMTÚDAGUR 24. MAI 1990
m
Húsnæðismál í Hafiiarfirði
eftir Sigurð T.
Sigurðsson
í Morgunblaðinu 10. mars sl. er
grein eftir mig þar sem ég ræði um
hinn mikla húsnæðisvanda í Hafn-
arfirði og slæleg viðbrögð stjórn-
valda gagnvart honum. Þó ég beini
orðum mínum aðallega til félags-
málaráðherra, Jóhönnu Sigurðar-
dóttur, sem er æðsti maður hús-
næðismála í landinu, þá undanskilur
það ekki aðra ráðherra og alþingis-
menn ábyrgð á málinu.
Eitthvað hefur umsögn mín um
dapran þátt núverandi stjórnvalda
í lausn húsnæðisvandans farið fyrir
bijóstið á Grétari J. Guðmundssyni,
aðstoðarmanni félagsmálaráðherra,
þar sem hann segir í grein í Morg-
unblaðinu 20. mars sl. að ástæða
sé til að leiðrétta ótrúlegan miskiln-
ing, sem fram komi í grein minni.
Hann reynir síðan með talnaleik
og meðaltalsútreikningi að draga
ijöður yfir þá staðreynd að hjá lág-
tekjufólki í Hafnarfirði ríkir neyðar-
ástand í húsnæðismálum.
Grétar virðist telja það afrek að
húsnæðisyfirvöld heimiluðu að
byggja 127 félagslegar íbúðir á
árunum 1987 til 1989, en að okkar
dómi sem til þekkjum hefði þurft
að byggja þrefalt fleiri íbúðir á fyrr-
greindu tímabili. í staðinn fyrir 127
íbúðir hefði þurft að byggja 400
íbúðir.
Húsnæðisvandinn í Hafnarfirði
verður ekki leystur með talnaleik
og meðaltalskjaftæði um íbúðir sem
nú þegar eru fullsetnar nema það
sé hugmynd Grétars að troða fleiri
en einni fjölskyldu í hveija íbúð.
Og þegar hann í grein sinni getui
um einstakan árangur núverandi
félagsmálaráðherra í húsnæðismál-
um, þá gleymir hann að geta þess
að aldrei fyrr, frá því að byijað var
að byggja félagslegar íbúðir í Hafn-
arfirði, hafa jafnmargar húsnæðis-
lausar fjölskyldur verið á biðlista
hjá stjórn verkamannabústaða eins
og einmitt nú. Það virðist því au-
glóst að hinn einstaki árangur í
húsnæðismálum láglaunafólks, sem
Grétar er að miklast af, nær ekki
til okkar Hafnfirðinga og það sýnir
einnig að lánum til félagslegra íbúð-
arbygginga er ekki úthlutað með
tilliti til umsókna og þarfa á hveij-
um stað eins og Grétar heldur fram,
heldur er þeim stýrt eins og hveijum
Krabbameinsfélagið:
Vorhappdrætt-
ið fellur niður
Hið hefðbundna vorhapp-
drætti Krabbameinsfélagsins,
sem dregið er í 17. júní, verður
ekki haldið að þessu sinni. Svo
skammt er síðan krabbameins-
samtökin leituðu til landsmanna
um þátttöku í Þjóðarátaki gegn
krabbameini og svo almenn og
rausnarleg voru viðbrögðin að
ákveðið var að e&ia ekki til fjár-
öflunar með happdrætti á þessu
vori.
Einnig var höfð hliðsjón af því
að framlög hafa verið að berast
til Þjóðarátaksins með giróseðlum
frá fólki sem ekki náðist til aðal-
söfnunardagana.
Vonast er til að þessi ákvörðun
mælist vel fyrir og efli enn þá
miklu velvild og stuðning sem
krabbameinssamtökin njóta meðal
þjóðarinnar.
Minnt er á að framlögum til
Þjóðarátaks verður fyrst og fremst
varið til sérstakra verkefna á veg-
um krabbameinssamtakanna en
happdrættið stendur eftir sem áður
undir ýmsum mikilvægum þáttum
í starfsemi þeirra. Hausthapp-
drætti Krabbameinsfélagsins verð-
ur því haldið eins og venjulega og
veltur mikið á að það fái sem best-
ar undirtektir.
öðrum pólitískum fyrirgreiðslumál-
um.
í ávarpi verkalýðsfélaganna í
Hafnarfirði 1. maí sl. segir m.a.:
„Húsnæðismálin hljóta ætíð að vera
eitt stærsta hagsmunamál verka-
fólks og þá sérstaklega félagslegar
íbúðarbyggingar, en neyðarástand
ríkir nú í þeim málum hér í Firðin-
um. Á þriðja hundrað umsókna
liggja nú fyrir óafgreiddar hjá
verkamannabústöðum og yfir tvö
hundruð aðilar hafa sótt um 15
kaupleiguíbúðir, sem verið er að
hefja byggingu á. Menn skyldu
ætla að stjórnvöld gripu inn í þegar
saman fer neyðarástand í húsnæðis-
málum og atvinnuleysi eins og ver-
ið hefur hér í Hafnarfirði síðustu
misserin. En því miður hafa þau
haldið að sér höndum þrátt fyrir
ítrekaðar beiðnir frá verkalýðsfé-
lögunum um úrbætur.
Með átaki í byggingu félagslegra
íbúða, þar sem gert væri ráð fyrir
a.m.k. 200 leigu- og eignaríbúðum,
mætti gera tvennt samtímis; draga
úr atvinnuleysinu og bæta verulega
úr húsnæðisvandræðum láglauna-
fólks.“
Húsnæðisekla lágtekjufólks er
blettur á þessu þjóðfélagi og því
miður hafa stjórnvöld staðið sig illa
með úrbætur í þeim málum. T.d.
sótti stjórn verkamannabústaða í
Hafnarfirði um lán til að byggja
120 félagslegar íbúðir á árinu 1990.
Fjármagn fékkst aðeins fyrir 40
íbúðir á 15 mánaða byggingartíma.
Sigurður T. Sigurðsson
„Húsnæðisekla lág-
tekjufólks er blettur á
þessu þjóðfélagi og því
miður hafa stjórnvöld
staðið sig illa með úr-
bætur í þeim málum.“
Þarna var umbeðið fjármagn skorið
niður um 73%. Þetta er alveg ótrú-
leg afgreiðsla og auðséð að hús-
næðismál launafólks hafa ekki þann
forgang hjá stjórnvöldum sem þau
ættu að hafa, en önnur minni áríð-
andi látin ganga fyrir.
Ég kalla ráðamenn þjóðarinnar
til ábyrgðar á þessuu ófremdar-
ástandi og minni þá á eftirfarandi
tillögu sem samþykkt var á 15.
þingi Verkamannasambands ís-
lands síðastliðið haust: „15. þing
Verkamannasambands íslands lýsir
yfír áhyggjum sínum vegna hús-
næðisvanda launafólks og okur-
Ieigu, sem íjölmargar fjölskyldur
verða að greiða til þess að hafa þak
yfir höfuðið. T.d. er algengt að 3ja
herbergja íbúð á höfuðborgarsvæð-
inu sé leigð fyrir um og yfir 40.000
krónur á mánuði. Það er ljótur blett-
ur á þjóðfélaginu þegar verkafólki
með 37-45 þúsund krónur í dag-
vinnulaun á mánuði er gert að
keppa um húsnæði á slíkum leigu-
markaði.
Því beinir þingið þeim ákveðnu
tilmælum til ríkisstjórnarinnar að
hafa sem fyrst forgöngu um stórt
átak í byggingu félagslegs íbúðar-
húsnæðis í þeim byggðarlögum sem
þörfin er mest og aflétta þannig
þeirri neyð sem ríkir í húsnæðismál-
um.“
Ég vona að Grétar J. Guðmunds-
son, aðstoðarmaður félagsmálaráð-
herra, verði ánægður með þessa
grein, því hún er skrifuð til að upp-
lýsa bæði hann og aðra um hvernig
húsnæðisástandið er í raun og veru.
Höfundur er formaður
Verkamannafélagsins Hlifar í
Hafnarfírði.
TZiitancb
Heílsuvörur
nútímafólks
UTIFLISAR
Vegna hagstæðra innkaupa
getum við boðiö gegnheilar
útiflísar á ótrúlegu verði.
20x20, fullt verð 2.573.
Nú á kr. 1.796 m2
30x30, fullt verð 2.900.
Nú á kr. 1.966 m*
Ávallt ódýrar flísar!
# AiFABORG ?
BYGGINGAMARKAÐUR
SKÚTUVOGI 4 SÍMI 686755
STUDENTABLOM
Blómaval skartar
gífurlegu úrvali í
afskornum blómum
og
blómaskreytingum.
Undanfarið hafa
skreytingameistar-
arnir lagt áherslu á
stúdentablóm og
stúdenta-
skreytingar.
Fjölbreytni og
fagmennska i
fyrirrúmi
Gróðurhúsinu v/Sigtún Sími:
■■
(Fréttatilkynning)