Morgunblaðið - 24.05.1990, Síða 82
82
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 1990
+
Ástkaer eiginkona mín og systir okkar,
INGUIMN RUNÓLFSDÓTTIR
frá Kornsá,
Sunnubraut 48,
Keflavík,
lést í Keflavíkurspítala 22. maí.
Kristján Óddsson,
Ásgerður Runólfsdóttir,
ísleifur Runólfsson.
Eiginmaður minn,
GUÐMUNDUR STEFÁNSSON,
andaðist laugardaginn 12. maí sl. á Hrafnistu, DAS.
Útförin hefur farið fram. Þökkum innilega samúð og vinarhug.
Petrea Sigtryggsdóttir.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
INGIBERGUR KRISTINSSON,
Hellisgötu 36,
Hafnarfirði,
andaðist að kvöldi 21. maí.
Ásdis Guðmundsdóttir,
börn, tengdabörn
og barnabörn.
+
Eiginmaður minn og faðir okkar,
JÓHANN HJÁLMARSSON
fyrrum bóndi á Ljósalandi, Skagafirði,
síðar húsvörður í Menntaskólanum við Hamrahlíð,
lést á hjartadeild Borgarspítalans 22. maí.
Fyrir hönd vandamanna,
María Benediktsdóttir
og synir.
+
Hjartkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
HELGA DAGBJÖRT ÞÓRARINSDÓTTIR,
Hátúni 47,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Neskirkju föstudaginn 25. maí kl. 15.00.
Andrew Þorvaldsson,
Sigrún Andrewsdóttir, Grétar Áss Sigurðsson,
Kristín Andrewsdóttir, Kristján Jóhannsson,
Hulda Hjálmarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar,
MAGNÚS E GUÐJÓNSSON,
framkvæmdarstjóri
Sambands ísienskra sveitarfélaga,
verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju mánudaginn 28. maí
kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vildu
minnast hins látna, er bent á Krabbameinsfélagið eða aðrar liknar-
stofnanir.
Alda Bjarnadóttir,
Kolfinna S. Magnúsdóttir, Alda S. Magnúsdóttir,
Hauður Helga Stefánsdóttir.
+
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓHANN ANGANTÝSSON
frá Brautarholti,
Skarðshlfð 18G,
Akureyri,
verður jarðsunginn frá Glerárkirkju föstudaginn 25. maí kl. 14.30.
Gunnar Jóhannsson,
Benný Jóhannsdóttir,
Guðbjörg Jóhannsdóttir,
Númi Jóhannsson,
Páll Jóhannsson,
Hilmar Jóhannsson,
Guðrún Jóhannsdóttir,
Heiðar Jóhannsson,
Helga Alice Jóhanns,
Edle Jóhannsson,
Haraldur Hannesson,
Gary Salow,
Ásgerður Gústafsdóttir,
Svanhildur Árnadóttir,
Árni Sigurðsson
Bergrós Ananíasdóttir,
Haraldur Pálsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Arndís Einarsdóttír
Af eilífðar Ijósi bjarma ber,
sem brautina þungu greiðir.
Vort líf, sem svo stutt og stopult er,
það stefnir á æðri leiðir.
Og upphiminn fegri’ en auga sér
mót öllum oss faðminn breiðir.
(Einar Ben.)
Hún „amma“ Arndís er dáin, eft-
ir stranga og erfiða baráttu við
þann sjúkdóm sem að lokum náði
yfirhöndinni.
Ég var svo heppin að fá að kynn-
ast Arndísi og eftirlifandi manni
hennar, Einari Bjarnasyni, þegar
ég kom til náms hér í Reykjavík,
ásamt dótturdóttur hennar og
nöfnu, Arndísi Björk, og fékk að
búa á heimili þeirra fyrstu þijú ár-
in. Velvild hennar í minn garð var
ótakmörkuð, hún studdi mig með
ráðum og dáð, það var allt svo sjálf-
sagt í hennar augum. Hún tók mér
eins og ég væri eitt af barnabörnun-
um. Þó að samband okkar minnk-
aði eftir að ég flutti og stofnaði
mitt heimili, þá minnkaði ekki um-
hyggja hennar í minn garð. Hjarta-
hlýja, umhyggja og ást sem Arndís
hafði til að bera, þekkjum við öll
sem vorum þess aðnjótandi að
kynnast henni, alltaf hafði hún nóg
til að gefa af sjálfri sér, fórna fyrir
okkur.
Ég man hvað það var yndislegt
að vakna á sunnudagsmorgnum við
matarlyktina og fá steikina hennar
„ömmu“ Arndísar, og sjá hvað hún
var alltaf hress, sama hvað gekk
á. Það er svo margs að minnast,
allar góðu stundirnar sem hún gaf
okkur. Arndís var tignarleg og
glæsileg kona, ég stolt af því að
hafa fengið að kynnast henni.
Ég þakka Guði fyrir að hafa
fengið að kynnast Arndísi. Ég get
aldrei fullþakkað Arndísi allt sem
hún gerði fyrir mig og fjölskyldu
mína, Guð varðveiti hana.
Elsku Einar, Sigrún, Affa, Ás-
geir, Rikki, æskuvinkona mín
Arndís, Lára, Sara og fjölskylda,
Guð veiti ykkur styrk_í sorginni.
Ásta Sigr.
Rósa J. Sigurþórs-
dóttir - Minning
Fædd 13. júní 1936
Dáin 22. mars 1990
Vort líf er lán frá þér
þú ijóssins faðir hár
hver geisli á braut
hver ganga í þraut
hver gleði og sorgar tár.
(S.G.)
Þetta fallega erindi kom í huga
minn, er ég frétti lát æskuvinkonu
minnar, Rósu J. Sigurþórsdóttur, en
fráfall hennar var sviplegt og kom
öllum að óvörum.
En enginn ræður sínum næturstað
og ýmislegt fer á annan veg í lífi
okkar, en við óskum eftir, og við
erum svo oft minnt á, að ferðinni
ráðum við aðeins að litlu leyti sjálf.
Þess vegna verðum við að taka því,
sem að höndum ber og treysta guði
okkar og skapara.
Foreldrar Rósu fluttu til Ytri-
Njarðvíkur árið 1943. Þau byggðu
húsið Sæból, sem stendur við Þóru-
stíg. Þá var Rósa 7 ára gömul og
bræður hennar tveir yngri að árum
en hún, þeir Páll og Erlendur.
Systkinahópurinn var samrýndur
mjög og góður og kærleiksríkur andi
ríkti á heimili þeirra. Foreldrar Rósu,
þau Ástbjörg Érlendsdóttir og Sigur-
þór Runólfsson, voru gestrisin og
góðgerðarsöm. Barngóð voru þau
einnig, en Sigurþór stofnaði barna-
stúku í Ytri-Njarðvík, en þar átti
æska byggðarlagsins bjartar og
skemmtilegar stundir, ásamt því
ágæta fólki, sem lagði þessu málefni
lið, til fræðslu og leiðbeiningar fyrir
æskuna í þá daga.
En æskuárin liðu fljótt, við, nám
og ýmiskonar leiki. En barnstórar
fjölskyldur bjuggu þá við Þórustíginn
og boltaleikir og feluleikir stundaðir
af lífi og sál.
Á unglingsárum gengum við í
skátahreyfinguna og áttum þar
margar skemmtilegar stundir í þeim
ágæta félagsskap. Þá var mikið
sungið og margt gert okkur og öðr-
um til ánægju og uppbyggingar.
Þegar Rósa fermdist var fjölskylda
hennar flutt í húsið Fagrahvol, en
það hús byggði Sigurþór einnig. En
nokkuð seinna flutti fjölskyldan til
Hveragerðis.
Veturinn 1954-55 fórum við vin-
konurnar til náms í Húsmæðraskól-
anum á Staðarfelli. Þaðan áttum við
sameiginlegar minningar um dvöl
okkar þar, en Rósa var gefin fyrir
hannyrðir og matreiðslu, og naut sín
vel í hópi skólasystra og leiðbeinenda
skólans.
Ung að árum kynntist Rósa, Guð-
mundi Tyrfingssyni bifvélavirkja,
ættuðum frá Lækjartúni í Rangár-
vallasýslu. Honum giftist hún og
heimili stofnuðu þau á Selfossi. Þar
eignuðust þau einbýlishús, og dæt-
umar urðu fjórar, þær Kristín Mar-
grét, Sigurbjörg, Ingunn Lilja og
Hraundís. Allar eru þær vel af guði
gerðar og hafa stofnað heimili fyrir
sig og sínar fjölskyldur.
Þá kom að því að leiðir Guðmund-
ar og Rósu lágu ekki lengur saman,
þau slitu samvistir. Rósa bjó um
skeið á Selfossi með dætrum sínum,
þar til hún flutti til Grundarfjarðar.
Þar giftist hún eftirlifandi manni
sínum, Guðbjarti Ceeilssyni, en hann
og bræður hans eru útgerðar- og
athafnamenn í sínu byggðarlagi.
Guðbjartur reyndist dætrum henn-
ar sem besti faðir og barnabörnin
sóttu fast eftir, að fá að dvelja hjá
þeim í lengri eða skemmri tíma. Á
heimili þeirra ríkti samstaða, elsku-
legt viðmót og gestrisni, var því
ávallt gott að dvelja hjá þeim á góð-
um stundum, þegar að tími gafst
til. Þau höfðu þann sið að ferðast
til sólarlanda einu sinni á ári, sér til
hvíldar og hressingar. í Grundarfirði
tók Rósa virkan þátt í félagsmálum.
Hún starfaði fyrir slysavarnafélagið
og kvenfélagið. Og margar ánægju-
stundir átti hún, er hún söng og
starfaði í kirkjukórnum á Grundar-
firði. Hún fór í eftirminnilega ferð
til ísraels cg fleiri landa með Jökla-
kórnum svonefnda. I þeim kór var
söngfólk frá Grundarfirði, Ólafsvík
og Stykkishóimi. Þetta ágæta fólk
söng við útför hennar og heiðraði
minningu hennar með hlýjum huga
og fallegum söng.
Og björt og heið, er minningin um
góða konu, en útför hennar var gerð
frá Grundarfjarðarkirkju 31. mars
sl., að viðstöddu fjölmenni. Kveðjur
mínar sendi ég til ættingja og vina
hennar á Grundarfirði og þakka hlýj-
ar móttökur fyrir mig og tvær æsku-
vinkonur Rósu, er við kvöddum hana
í hinsta sinn.
Ég bið guð að styrkja ástvini henn-
ar og enda orð mín á þessa leið:
Ó, gleði er skín á götu manns,
í gegnum lífsins sorgarský.
Hinn skúradimmi skýja fans,
er skreyttur litum regnbogans
og sólin sest á ný.
(Sbj.Sv.)
Ilólmfríður Snorradóttir
+ Eiginkona mín og móðir okkar, SIGRÚN SIGURJÓNSDÓTTIR hjúkrunarf ræðingur, Melseli 4, lést 18. maí. Útförin fer fram frá Seljakirkju föstudaginn 25. maí kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á sjúkrasjóð Hjúkrunar- félags íslands, Suðurlandsbraut 22. Guðjón Guðjónsson, Tómas Óskar Guðjónsson, Sigríður Guðjónsdóttir, Katrrn Guðjónsdóttir.
+ Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför mágs míns og föðurbróður okkar, GUÐJÓNS FJELDSTED TEITSSONAR, fyrrv. forstjóra Skipaútgerðar ríkisins, , Hofsvallagötu 55. Unnur Bergsveinsdóttir, Teitur Daníelsson, Örn Ragnar Símonarson, Helga Danfelsdóttir, Teitur Símonarson, Ragnheiður Daníelsdóttir, Sigrún Símonardóttir, Sigurður Dani'elsson, Sigurbjörg Símonardóttir, Bergsveinn Símonarson.