Morgunblaðið - 24.05.1990, Side 94
94
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 1990
KNATTSPYRNA / 1. DEILD
„Hétt ég ætti ekki eftir
að leika aftur í 1. deild“
- segirÁrni Sveinsson fyrirliði Stjörnunnar
Arni Sveinsson hefur ástæðu til
að brosa þessa dagana. Hann
er fyrirliði nýliðanna úr Garðabæ,
Stjörnunnar, sem nú eru í 2. sæti
og er markahæstur í deildinni ásamt
Ríkharði Daðasyni með tvö mörk.
Hann segir sjálfur að þetta hafi
komið sér nokkuð á óvart: „Fyrir
þremur árum hélt ég að ég ætti
ekki eftir að leika aftur í 1. deild
en þetta hefur gengið betur en við
þorðum að vona,“ sagði Árni.
Hann segir að Stjarnan eigi góða
möguleika á að halda sæti sínu:
„Það er alltaf eðlilegt að spá nýliðum
botnsæti og þetta hef ég líklega
gert sjálfur þegar ég var á Skagan-
um. En við ætlum að afsanna það
og Stjarnan er með gott og vel spil-
andi lið. Mér líst ágætlega á leikinn
gegn KR-ingum og ef við náum upp
stemmningu getum við vel staðið í
þeim.
Árni féllst á að spá í leikina í dag
og á morgun. Hann sagðist búast
við hörkuleik hjá ÍBV og Þór. „Þeim
var spáð á botninn en ég held að
það búi meira í liðunum en þau sýndu
í 1. umferð." Hann sagðist einnig
eiga von á spennandi leik Fram og
ÍA, enda yfirleitt skemmtilegir leik-
ir. „Ég sá Skagamenn gegn Val og
þeir eru með gott lið..“
Árni sagðist vera nokkuð viss um
að FH-ingar sigruðu Víkinga á
morgun. „FH-ingar eru sprækir og
léku vel gegn KA. Ég hef að vísu
ekki séð Víkinga en skilst að þeir
hafi verið óheppnir að tapa fyrir KR.
Leikur Vals og KA ætti að vera jafn
og liðin ættu að geta meira en þau
sýndu í fyrstu leikjunum," sagði
Árni Sveinsson.
Morgunblaöið/Guðmundur Svansson
Landslidsmenn Stjörunnar. Sveinbjöm Hákonarson, Magnús Bergs, Lárus Guðmundsson og Ámi Sveinsson hafa
leikið samtals 91 landsleiki.
KORFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN
Detroit óstöðvandi
Iþróttir í dag
og á morgun
ÞRÍR leikir verða í 1. deild karla á
íslandsmótinu í knattspyrnu í dag.
Fram og í A eigast við á Laugardals-
FELAGSLIF
Krakkamót Víkings
Víkingar standa fyrir hinu árlega
Pepsi-móti fyrir 6. flokk í knatt-
* spyrnu í dag, fimmtudag. Leikið
verður á gamla Víkingsvellinum frá
kl. 9-19. Kaffiveitingar verða í fé-
lagsheimilinu.
Landsbankahlaupið
Frjálsíþróttasamband íslands og
Landsbankinn gangast sameigin-
lega fyrir hinu árlega Landsbanka-
hlaupi á kosningadaginn, laugar-
daginn 26. maí. Þetta er í fimmta
sinn sem slíkt hlaup er haldið og
er það ætlað 10-13 ára börnum.
Hlaupið fer fram á öllum þeim stöð-
. ura á landinu þar sem Landsbank-
inn hefur útibú, en í Reykjavík fer
það fram í Laugardal. Alls er hlaup-
ið á 27 stöðum og hefst hlaupið í
Laugardal kl. 11, en á landsbyggð-
inni eru upplýsingar um hvenær það
hefst gefnar í útibúunum.
Öll börn fædd 1977, 1978, 1979
og 1980, um 17.000, hafa fengið
sent sérstakt boðsbréf frá Lands-
bankanum um að taka þátt í hlaup-
inu og eru þau hvött til að skrá sig
tímanlega. Skráning fer fram í öll-
um útibúum bankans. Fjöldi barna
hefur þegar látið skrá sig og eru
þau svo mörg að ljóst er að þátttak-
an í ár verður mun meiri en nokkru
sinni fyrr. í gær höfðu t.d. 1.500
- - börn skráð sig í Reykjavík, en þar
hlupu um 200 í fyrra! Börnum er
því bent á að mæta á vettvang eigi
síðar en hálftíma áður en hlaupið
á að hefjast svo nægur tími gefist
til að raða í riðla og afhenda rás-
merki.
Fijálsíþróttasambandið sér um
skipulag hlaupsins. Keppendum er
skipt í riðla eftir kynjum og aidri
þannig að krakkar fædd 1977 og
1978 hlaupa 1500 m og krakkar
fædd 1979 og 1980 hlaupa 1100
m. Allir þátttakendur fá viðurkenn-
ingarskjal og bol. Þrír fyrstu hlaup-
ararnir í hveijum riðli fá verðlauna-
peninga. Ennfremur verður dregið
um sérstök þátttökuverðlaun sem
eru óháð frammistöðu í hlaupinu,
kjörbækur með 3.500 króna inni-
stæðu Þá verður sparibaukurinn
Trausti veittur í þátttökuverðlaun
og verða verðlaunahafar valdir á
sama hátt.
Eftir hlaupið verður boðið til alls-
heijar grillveislu. Foreldrar og
systkini eru hvött til að koma með
og helga daginn samveru fjölskyld-
unnar, útiveru og skemmtun.
(Fréttatilkynning).
Handbottaskóli ÍR
Jh Handboltaskóli ÍR hefst 28. maí
í íþróttahúsi Breiðholtsskóla. Farið
verður í undirstöðuatriði hand-
knattleiks auk almennrar líkams-
þjálfunar í leikjaformi. Meðal gesta
verða Þorbergur Aðalsteinsson,
landsliðsþjálfari í handknattleik,
Einar Þorvarðarson og Þorgils Ótt-
ar Mathiesen. Aðalþjálfari er Guð-
mundur Þórðarson. Innritun verður
í íþróttahúsi Breiðholtsskóla á
föstudag og laugardag frá kl.
11-13.
Stúkukvöld KR
Vinnie „örbylgjuofn" Johnson var
maðurinn á bak við sigur
Detroit á Chicago, 102:93, í örðum
úrslitaleik Austurdeildarinnar á
þriðjudagskvöld.
Frá Detroit hefur unnið
Gunnari báða leikina og
Valgeirssyni stendur vel að vígi
iBandaríkjunum þar gem uðið þarf
aðeins tvo sigra úr fimm næstu leikj-
um til að tryggja sig í úrslit NBA-
deildarinnar.
Detroit byijaði vel og komst í
20:5 og staðan í leikhléi var 53:38.
Chicago náði að bíta frá sér eftir
leikhlé og náði að komast í fyrsta
sinn yfir í leiknum er staðan var
66:67. En þá var komið að þætti
Vinnie Johnson, sem gengur undir
nafninu örbylgjuofninn. Hann gaf
þann neista sem þurfti og sigur
Chicago var verðskuldaður og ör-
uggur í lokin.
Það munaði miklu að leikmenn
Detroit náðu að halda Michael Jord-
an niðri. Hann gerði aðeins 20 stig,
en hann hefur gert 36 stig að meðal-
tali í leik í vetur. Hann náði aðeins
að skora úr 5 af 16 skotum sínum
og segir það allt um frammistöðu
hans. Joe Dumars lék mjög vel fyrir
Detroit og var stigahæstur með 31
stig og Vinnie Johnson kom næstur
með 18 stig.
Eftir tvo fyrstu leiki þessara liða
virðist fátt geta komið í veg fyrir
að meistararnir frá Detroit leiki til
úrslita um NBA titilinn annað árið
í röð. Næstu tveir leikirnir fara fram
í Chicago, á laugardag og sunnudag.
íþróttir í dag
og á morgun
ÞRÍR leikir verða í 1. deild karla á
íslandsmótinu i knattspyrnu í dag.
Fram og ÍA eigast við á Laugardals-
velli kl. 16.00 og kl. 20.00 leika ÍBV
og Þór í Eyjum og Stjarnan og KR
í Garðabæ. Á morgun, föstudag kl.
20.00 leika Víkingur og FH á
Víkingsvelli og Valur og KA á Vals-
velli.
Dalvík og Reynir leika í 3 deild á
Dalvík í kvöld kl. 20.00. f 4. deild
verða tveir leikir á dagskrá í dag;
Ernir og Ármann leika á Selfossi kl.
14.00 og Víkveiji og Afturelding á
gervigrasinu kl. 20.00.
Fyrsta umferðin í 2. deild karla
fer fram annað kvöld kl. 20.00. UBK
og Víðir leika á Kópavogsvelli,
UMFG og UMFT í Grindavík, ÍR og
Fylkir á IR-velli, Leiftur og Selfoss
á Ólafsfirði og ÍBK og KS í Keflavík.
í 3. deild leika Haukar og Þróttur
Neskaupstað á Hvaleyrarholtsvelli
annað kvöld kl. 20. Á sama tíma eru
tveir leikir í 4. deild; Léttir og Árvak-
ur leika á gervigrasinu og Valur og
Umf. Stjarnan á Reyðarfírði.
fpRÚm
FOI_K
■ S VEINBJÖRN Hákonarson
úr Stjörnunni, sem tók út leikbann
gegn Þór, verður með er Stjarnan
mætir KR í kvöld á grasvellinum í
rio rníihíP
■ LEIKURINN í dag er fyrsti
leikur Stjörnunnar á heimavelli í
1. deild. Árni Sveinsson, fyrirliði
Sljörnunnar, sagðist eiga von á
Ijölda áhorfenda. „Það hafa ekki
verið mjög margir á leikjum okkar
í annarri og þriðju deild en ég er
illa svikinn ef það verður ekki vel
mætt á morgun," sagði Árni.
■ SIGURÐUR Bjarnason, leik-
maður Stjörnunnar í handbolta og
fótbolta sem lék með Stjörnunni
gegn Þór í fyrstu umferð, leikur
ekki meira með 1. deildarliði félags-
ins í knattspyrnunni í sumar. Sig-
urður hefur ákveðið að taka hand-
knattleikinn framyfir knattspyrn-
una og er nú að hefja undirbúning
með 21 árs landsliðinu í handbolta.
■ GUNNAR Oddsson, leikmaður
KR, meiddist í leik KR og Víkings
um síðustu helgi og í gær var ekki
talið öruggt að hann gæti leikið
gegn Stjörnunni í kvöld. Ragnar
Margeirsson, sem kom inná sem
varamaður gegn Víking, verður
líklega í byijunarliðinu í kvöld.
Rúnar Kristinsson verður hins
vegar ekki með þar sem hann tekur
út leikbann næstu fjóra leiki.
■ ELÍAS Friðriksson kemur inn
í 16 manna hópinn hjá IBV er liðið
mætir Þór í Eyjum í dag. Eins
verður Ingi Sigurðsson með, en
hann var í leikbanni í fyrsta leiknum
gegn Fram.
■ BJARNI Sveinbjörnsson,
framheiji Þórs, meiddist í baki í
leiknum gegn Stjörnunni og verður
ekki með í Eyjum í dag.
■ SÆVAR Árnason kemur því
væntanlega inn í byijunarliðið í stað
Bjarna, og verður í framlínunni við
hlið Árna Þórs Árnasonar. Þess
má geta að þeir eru ekki bræður!
I JÚLÍUS Tryggvason leikmað-
ur Þórs verður í hópnum sem fer
til Eyja. Hann hefur verið meiddur
og enn ekkert leikið í vor.
■ ALEXANDER Högnason leik-
ur með ÍA gegn Fram á Valbjarn-
velli í dag kl. 16. Alexander var
í leikbanni í fyrsta leik íslandsmóts-
ins.
■ MAGNÚS Pálsson úr FH hefur
einnig tekið út leikbann og má því
leika með FH gegn Víkingum ann-
að kvöld.
■ KARL Þórðarson verður hins
ekki með. Hann er í Frakklandi
þar sem hann leikur í dag afmælis-
leik með Laval, liðinu sem hann
var atvinnumaður hjá fyrir nokkr-
um árum.
■ STEINAR Guðgeirsson og
Pétur Arnþórsson meiddust gegn
ÍBV og verða ekki með í dag gegn
ÍA. Inn í hópinn í þeirra stað koma
Marteinn Guðgeirsson og Haukur
Pálmason.
■ FRAMARAR vonast til þess að
Pétur verði orðinn leikfær fyrir
viðureignina við Þór í 3. umferð-
inni nyrðra 2. júní.
Hið árlega Stúkukvöld KR verður
haldið í Súlnasal Hótel Sögu föstu-
daginn 25. maí. Húiið opnar kl.
— 19.30. Miðasala er hafin í KR-
heimilinu.
tATH.:
BREYTTUR LEIKUR
Leikur
VALS og KA
fer fram á Valsvelli, Hlídarenda,
á morgun, föstudag, kl. 18.00
PILUKAST / NORÐURLANDAMOTIÐ
Landsliðið til Svíþjóðar
Islenska landsliðið í pílukasti er á
förum til Stokkhólms, þar sem ís-
lendingar taka í fyrsta skipti þátt í
Norðurlandamótinu í pílukasti.
„Strákarnir hafa æft vel og mæta
nokkuð vel undirbúnir til leiks,“ sagði
Óðinn Helgi Jónsson, landsliðsþjálf-
ari.
Það sem íslensku landsliðsmennina
skortir er reynsla á alþjóðlegum mót-
um,“ sagði Óðinn Helgi. Landsliðið
er skipað þessum mönnum: Kristinn
Þ. Kristinsson, Ægir Ágústsson,
Guðjón Hauksson, Friðrik Jakobsson,
Friðrik Diego, Kristinn Magnússon,
Emil Þór Emilsson og Óli Sigurðsson.
íslandsmeistaramótið í liðakeppni
lauk um sl. helgi. „KLEDA,“ lið lög-
reglumanna í Keflavík, varð meist-
ari. Liðið hefu'r leikið af miklu öiyggi
á keppnistímabilinu.
Keflvíkingarnir Óskar Halldórsson
og Gunnars Schram urðu íslands-
meistarar í tvímenningskeppni.
Þess má geta að næsta pílukasts-
mót fer fram í Grindavík á laugar-
dag. Það er firmakeppni og keppt
verður í 501. Það er reiknað með
góðri þátttöku í mótinu, sem hefst
kl. 13.
‘ J*: I 4 nu f ójj 1 U9. é