Morgunblaðið - 27.09.1990, Page 1
64 SIÐUR B
218. tbl. 78. árg.
FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 1990
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Indland:
Sjálfsmorðsalda vegna
boðaðra réttarbóta
Nýju Dclhí. Reuter.
LÖGREGLUSVEITIR á Indlandi skutu ekki færri en sex manns til
bana í gær er hópar fólks komu saman til að mótmæla þeirri ákvörð-
un stjórnvalda að fjölga atvinnutækifærum til handa fólki, sem telst
til réttlausra stéttleysingja (paría), samkvæmt hindúasið.
Fjölmörg ungmenni hafa freistað
þess að binda enda á líf sitt með
sjálfsíkveikju og eiturdrykkju sök-
um þessara áforma, sem talin eru
skerða afkomumöguleika þeirra
sem bornir eru til stjórnsýslustarfa.
Síðustu vikuna hafa að minnsta
Bandaríkin:
40.000 her-
menn fluttir
frá Evrópu
Washington. Reuter.
DICK Cheney, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, skýrði frá
því í gær að 40.000 bandarískir
hermenn í Vestur-Evrópu yrðu
fluttir heim á næstu 12 mánuðum.
I tilkynningu sem Cheney birti í
gær sagði að tímbært væri að draga
saman styrk heraflans í Evrópu bæði
vegna breyttra aðstæðna og minnk-
andi framlaga til varnarmála. Banda-
rískir embættismenn sögðu að mest-
ur yrði niðurskurðurinn í Vestur-
Þýskálandi.
Talsmaður varnarmálaráðuneytis-
ins sagði þessa fækkun hafa verið
ákveðna með hliðsjón af væntanleg-
um sáttmála um fækkun liðsafla og
vígtóla í Evrópu. Leiðtogar risaveid-
anna höfðu orðið um það ásáttir að
fækka í herliðinu þannig að hvort
stórveldið um sig hefði mest 195.000
hermenn í álfunni en nú er almennt
talið að samið verði um mun stór-
felldari niðurskurð. Þá hafa Banda-
ríkjamenn afráðið að loka einhliða
rúmlega 130 herstöðvum víða um.
heim á næstu árum en flestar þeirra
eru í.Þýskalandi.
kosti 13 ungmenni reynt að fremja
sjálfsmorð með því að kveikja í
sjálfum sér á opinberum vettvangi
og í gær bættist það fjórtánda við
er 13 ára gamali drengur reyndi
að fremja sjálfsmorð í Nýju Delhí.
26 ára gamall námsmaður batt
enda á iíf sitt með sjálfsíkveikju og
a.m.k. fimm aðrir freistuðu þess að
gera slíkt hið sama í gær. Fyrr um
daginn hafði 15 ára gömul stúlka
framið sjálfsmorð með því að
stökkva fyrir járnbrautarlest. Vitað
er um tvö ungmenni sem frömdu
sjálfsmorð með því að drekka skor-
dýraeitur og fregnir bárust í gær
af 15 ára stúlku sem sögð var þungt
haldin eftir eiturdrykkju.
Lögreglumenn bera ungan námsmann á brott eftir mótmæli í Nýju Delhí.
Reuter
Irakar fordæma viðvaranir sovéskra stjórnvalda:
Hóta að hengja flóttamenn
í sendiráði Bandaríkianna
RntrrlnH Nilrnsíii Nnu; Ynrlí Snmniniidu UiÁAiittiim Rontnr rlníi
Bagdad, Nikósíu, New York, Sameinuðu þjóðunum. Reuter, dpa.
STJORNVOLD í Irak fordæmdu í gær Sovétstjórnina og þá harðorðu
ræðu sem sovéski utanríkisráðherrann, Edúard Shevardnadze, flutti
á þriðjudagskvöld er samþykkt var á vettvangi Sameinuðu þjóðanna
(SÞ) að koma í veg fyrir alla flutninga loftleiðina til íraks. James
Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, staðfesti í gærkvöldi að
írösk stjórnvöld hefðu farið fram að fá afhentan lista með nöfnum
óbreyttra borgara, sem leitað hefðu skjóls í bandaríska sendiráðinu
í Bagdad, og hótað að hengja hvern þann sem ekki teldist opinber
stjórnarerindreki.
Baker sagði _ þessa orðsendingu
hafa borist frá írak, kvað hana við-
urstyggilega og lýsti yfir því að
Reuter
Mótmæli við Kremlarmúra
Fullorðin kona gægist út úr bráðabirgðabústað sinum við Kremlar-
múra í Moskvu. Tjaldinu var slegið upp til að mótmæla þeim pólitíska
og efnahagslega vanda sem stjórn kommúnista hefur komið lands-
mÖnnum í. Á myndinni af Míkhaíl S. Gorbatsjov Sovétleiðtoga stend-
ur: „í embættiseið forsetans er heitið að tryggja réttindi fólksins.
Hvenær verður það gert?“ Á borðanum á tjaidinu er háðsleg kveðja:
„Bestu þakkir til Kommúnistaflokks Sovétríkjanna.“
ekki kæmi til greina að verða við
þessari kröfu.
írakar brugðust í gær hinir verstu
við ræðu E. Shevardnadze en í henni
hvatti hann Saddam Hussein forsetá
íraks til að láta skynsemina ráða
og kalla heim innrásarliðið frá Kú-
væt. Að öðrum kosti kynnu Samein-
uðu þjóðirnar að grípa til sam-
ræmdra hernaðaraðgerða gegn
írökum. Stjórnmálaritstjóri INA,
hinnar opinberu fréttastofu íraks,
fordæmdi þær breytingar sem orðið
hefðu á afstöðu Sovétstjórnarinnar
til Iraka og annarra ríkja Araba.
Sagði hann „hótanir“ utanríkisráð-
herrans greinilegt merki um að Sov-
étmenn hefðu gerst „mútuþegar
Bandaríkjanna og bandamanna
þeirra, olíufurstanna".
í gær var birt í Amman í Jórd-
aníu yfirlýsing frá utanríkisráðherra
landsins þar sem sagði að stjórnvöld
hygðust virða loftferðabann SÞ. í
gærkvöldi sögðu Jórdanir hins vegar
að reglulegir loftflutningar milli
Bagdad og Amman yrðu „endur-
skoðaðir". Fyrr um daginn höfðu
tvær flugvélar haldið frá Bagdad
og lent á fiugvellinum í Amman en
í gærkvöldi iá ekki fyrir hvort fólks-
flutningar sem þessir teldust brot
gegn samþykkt Oryggisráðs SÞ frá
því á þriðjudag. Dick Cheney, varn-
armálaráðherra Bandaríkjanna,
kvaðst í gær efast um að nauðsyn-
legt reyndist að fela flugher Banda-
ríkjanna að tryggja loftferðabannið.
Utanríkisráðherrar risaveldanna
komu saman til fundar í gær og
boðuðu frekari viðræður um sam-
starf í Persaflóadeilunni.
David Levi, utanríkisráðherra
ísraels sem staddur er í Banda-
ríkjunum, sagði í gær að ísraelar
hefðu afráðið að hafa ekki afskipti
af Persaflóadeilunni nema þeir
neyddust til að veija hendur sínar.
Hefðu Bandaríkjamenn hvatt ísra-
elsk stjórnvöid til að fylgja þessari
stefnu og hefði verið akveðið að
verða við þeirri beiðni. Á hinn bóg-
inn myndu ísraelar grípa til snöggra
og þungra hefndaraðgerða réðist
Sadöam Hussein, sem Levi nefndi
„hinn nýja Satan“, á land þeirra.
Jafnframt sagði ísraelski utanríkis-
ráðherrann það ávallt og ævinlega
hafa verið markmið Saddams að
leggja ísrael í auðn og hefði herför-
in inn í Kúvæt aðeins verið þáttur
í þeim áformum.
Réttindi trúaðra leidd
í Yög í Sovétríkjunum
Deilur um trúfræðslu tefja fyrir end-
anlegri samþykkt Æðsta ráðsins
Moskvu. Reuter.
ÆÐSTA ráðið, þing Sovétríkjanna, samþykkti í gær sérstaka viljayfír-
lýsingu þess efnis að endi verði bundinn, með lögum, á ofsóknir á
hendur trúuðum og að tryggð verði réttindi hinna ýmsu trúarhópa þar
í landi. Ákafar deilur blossuðu hins vegar upp um tiltekna grein lag-
anna er varðar trúfræðslu í skólum og var af þeim sökum ekki unnt
að afgreiða þau með formlegum hætti en það verður gert síðar.
Unnið hefur verið að gerð laga-
frumvarpsins í tvö ár en allt frá því
Míkhaíl S. Gorbatsjov hófst til valda
í Sovétríkjunum fyrir fimm árum
hafa samskipti ríkisvaldsins og
hinna ýmsu trúarhópa þar eystra
farið batnandi.
í samþykktinni er kveðið á um
að allir trúarhópar skuli jafnir fyrir
lögum og að öllum Sovétborgurum
sé fijálst að móta eigin afstöðu tii
trúarbragða. Ríkisvaldinu er óheim-
ilt að hafa afskipti af trúarlegum
málefnum en stofnanir sem starfa á
þessu sviði mega á hinn bóginn ekki
taka þátt í stjórnmálastarfsemi.
Ekki reyndist unnt að samþykkja
lögin með formlegum hætti vegna
deilna um hvort veita megi trú-
fræðslu í skólum eftir að hefðbundn-
um skóiatíma lýkur. Höfðu sumir
þingmenn á orði að þetta myndi leiða
til deilna og jafnvel átaka milli hinna
ýmsu hópa trúaðra og vísuðu til
þess að nóg væri sundrungin iyrir
í samfélagi Sovétmanna.