Morgunblaðið - 27.09.1990, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 1990
29
FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA
26. september.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 91,00 82,00 89,13 36,409 3.245.223
Þorskur(óst) 81,00 70,00 77,44 3,264 252.791
Þorskur(st.) 103,00 97,00 97,90 2,073 202.953
Ýsa 117,00 84,00 100,96 5,689 574.384
Ýsa(ósl.) 100,00 65,00 88,39 1,777 157.068
Karfi 46,00 20,00 44,50 16,155 718.993
Ufsi 46,00 36,00 39,07 16,295 636.690
Steinbítur 75,00 64,00 70,17 2,097 147.144
Steinbítur(óst) 75,00 75,00 75,00 0,150 11.250
Keila 38,00 38,00 38,00 0,677 25.745
Keila(óst) 38,00 38,00 38,00 0,222 8.436
Langa 63,00 54,00 62,02 0,872 54.081
Langa(óst) 54,00 54,00 54,00 0,314 16.956
Lúða 340,00 160,00 231,37 0,190 43.960
Lúða(óst) 345,00 335,00 335,65 0,230 77.200
Koli 79,00 50,00 56,79 0,047 2.669
Smáþorsk. 79,00 79,00 79,00 1,567 123.793
Skata 51,00 51,00 51,00 0,015 765
Lýsa(óst) 50,00 50,00 50,00 0,113 5.650
Tindaskata 5,00 5,00 5,00 0,036 180
Háfur 5,00 5,00 5,00 0,038 190
Lýsa 50,00 50,00 50,00 0,086 4.300
Ufsi(óst) 36,00 36,00 36,00 0,018 648
Samtals 71,44 88,336 6.311.069
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 101,00 81,00 94,07 33,930 3.191.722
Þorskur(ósL) 79,00 79,00 79,00 0,620 48.980
Ýsa 126,00 36,00 105,62 8,969 947.320
Ýsa(óst) 95,00 85,00 87,15 0,933 81.315
Karfi 49,00 36,00 51,39 3,763 193.368
Ufsi 51,00 40,00 43,03 16,545 711.962
Steinb./Hlýri 61,00 55,00 57,44 0,330 18.954
Langa 55,00 48,00 51,04 0,481 25.062
Keila 39,00 36,00 37,64 1,195 44.976
Lúða 350,00 100,00 262,58 1,875 482.340
Lýsa 12,00 12,00 12,00 0,038 456
Skata 115,00 115,00 115,00 95,00 10.925
Skarkoli 90,00 49,00 62,84 0,397 24.947
Skötuselur 490,00 165,00 194,21 0,089 17.295
Grálúða 21,00 21,00 21,00 0,012 252
Frosinnfiskur 82,00 82,00 82,00 1,400 114.800
Blandað 20,00 20,00 20,00 0,507 10.140
Undirmál 80,00 35,00 76,05 1,743 132.555
Samtals 83,19 72,932 6.067.359
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 145.00 76,00 92,21 37,346 3.443.680
Ýsa 116,00 53,00 86,16 11,375 980.111
Karfi 48,00 40,00 43,11 7,393 318.719
Ufsi 53,00 29,00 47,75 33,964 1.621.711
Steinbítur 70,00 65,00 69,53 0,900 62.581
Hlýri 61,00 61,00 61,00 0,063 3.843
Langa 63,00 56,00 58,92 4,616 271.985
Lúða 380,00 315,00 333,77 0,527 175.895
Skarkoli 66,00 66,00 66,00 0,025 1.650
Sólkoli 66,00 66,00 66,00 0,006 396
Sandkoli 5,00 5,00 5,00 0,157 785
Keila 39,00 16,00 30,09 13,038 392.252
Lax 185,00 185,00 185,00 0,042 7.770
Skata 86,00 78,00 80,45 0,141 11.344
Skötuselur 300,00 150,00 215,63 0,048 10.350
Koli 66,00 32,00 58,76 0,484 28.442
Lýsa 22,00 15,00 20,22 0,357 7.219
Blá og langa 63,00 57,00 58,98 0,474 27.958
Humar 1600,00 999,00 1600,00 0,005 8.000
Náskata 10,00 10,00 10,00 0,193 1.930
Tindaskata 29,00 5,00 10,30 0,220 2.267
Blandað 30,00 26,00 28,71 0,933 26.786
Undirmál 69,00 69,00 69,00 0,122 8.418
Samtals 65,94 112,429 7.414.092
Seld voru m.a. 40 kör úr Kópi GK, og úr dagróðrabátum. Á morgun verður
selt úr Albert Ólafssyni og jafnvel Kópi GK.
Olíuverö á Rotterdam-markaði
1. ág. - 25. sept., dollarar hvert tonn
Olíumengunin við Laugarnes:
Umhverfísrádherra krefst
skýrslu um mengunina
Morgunblaðið/RAX
Björgnnarsveitarmenn kanna fjörur við Viðey í gær.
UMHVERFISRÁÐHERRA, Júlíus
Sólnes, hefur óskað eftir að Sigl-
ingamálastofnun skili í dag
skýrslu um olíumengunarslysið
sem varð á mánudag, þegar verið
var að losa svartolíu úr flutninga-
skipi í tanka Olís við Laugarnes.
Skýrsluna á að ræða í ríkisstjórn.
Rannsóknarlögreglu ríkisins hef-
ur verið falið að kanna orsakir
óhappsins.
Magnús Jóhannesson siglinga-
málastjóri segir ekkert hafa komið
fram sem bendi til þess að ekki hafi
verið rétt staðið að losun olíuskips-
ins, né heldur að menn hafi ekki
hætt dælingu um leið og lekans varð
vart. Á fundi siglingamálastjóra og
hafnaryfirvalda með forráðamönn-
um Olís í gær kom fram, að leiðslan
var skoðuð af kafara fyrir ári, og
reyndist ekkert athugavert að sjá
við hana þá.
Leiðslur sem þessar eru prófaðar
og röntgenmyndaðar suður á þeim
áður en notkun hefst og þarf Sigl-
ingamálastofnun að viðurkenna þær.
Eftir að notkun er hafin, gilda engar
sérstakar reglur um reglulegt eftir-
lit, en Magnús segir að í undirbún-
ingi sé að setja slíkar reglur. Þessi
leiðsla verður að kröfu Siglingamála-
stofnunar tekin upp og rannsökuð í
kjölfar slyssins. x
Magnús segir að dreifing olíunnar
með dreifíefnum, sem hófst strax
og lekans varð vart, virðist hafa
tekist mjög vel og það væri lán í
óláni, hvað varðaði fuglalíf, að slysið
hafi orðið á þessum árstíma, en ekki
þegar fuglalif er meira og viðkvæm-
ara á vorin og sumrin.
Siglingamálastofnun á 550 metra
flotgirðingu til að hefta útbreiðslu
olíu, á Akranesi er til 100 metra
girðing og 90 metrar á ísafirði, alls
740 metrar. Von er á um 200 metr-
um í viðbót nú í haust. Auk girðing-
anna hefur Siglingamálastofnun yfir
að ráða tveimur tækjum, sem hvort
um sig getur mokað upp 12 tonnum
af olíu úr sjó á hverri klukkustund.
Magnús Jóhannesson segir að
áætlun sé til fyrir sveitarfélög að
koma sér upp lágmarksbúnaði til að
verjast olíumengunarslysum í höfn-
um, en því miður virðist viðbrögð
þeirra vera allt of lítil, einkum í ljósi
þess, að ríkissjóður greiði 75% stofn-
kostnaðarins við búnaðinn.
Svartolía mengar nú fjörur á Selt-
jarnarnesi inn að Sundahöfn eftir
að olían lak út um gat á leiðslu við
losun í tanka Olís í*Laugamesi úr
olíuflutningaskipi á mánudag. Að
sögn hafnsögumanna í Reykjavík
urðu þeir ekki varir við olíu á sjónum
í gær og töldu þeir hana annað hvort
hafa sokkið vegna úðunar á þriðju-
dag eða að hana hefði rekið til hafs
undan vindi. Menn frá Slysavarnafé-
laginu könnuðu strendur og merktu
olíumengunina inn á kort í gær,
einnig fóm Ævar Petersen fugla-
fræðingur og ráðsmannshjónin í Við-
ey um fjörur og könnuðu ástand
fuglalífs. Ævar segir fyrirsjáanlegt
að hundmð fugla drepist af völdum
olíunnar, enda sé engin aðstaða til
að bjarga þeim.
Guðrún Lilja Arnórsdóttir, ráðs-
maður í Viðey, sagði í gærkvöldi að
nánast öll strandlengja eyjunnar
væri olíublaut, en mest væri meng-
unin við sunnanverða eyna. Olían fór
einkum að setjast á fjörurnar í gær,
þar sem stillt veður hafði verið fram
að því. Guðrún segir olíulagið ekki
vera þykkt, en þekja fjöruna á sunn-
anverðri eyjunni. Fugl, einkum æð-
ur, er illa farinn, segir Guðrún, og
á erfitt með hreyfingar og margir
fuglanna komast ekki á flug. Síðdeg-
is í gær hafði hún ekki orðið þess
vör, að fugl væri farinn að drepast
vegna olíunnar.
Guðrún sagði ekki hafa verið leit-
að eftir því við hafnaryfírvöld að
fjömrnar verði hreinsaðar. „Við æt-
luðum að sjá til hvað kæmi út úr
þessu. Við höfum verið á kafi í að
koma æðarvarpinu upp hérna, það
hafa um 200 fuglar verið hér og
okkur finnst dálítið mikið þegar
þriðjungurinn er farinn. Mér finnst
þetta vera nokkuð alvarlegt," sagði
Guðrún Lilja Arnórsdóttir.
Ævar Petersen kannaði í gær fjör-
ur frá Seltjarnarnesi inn í Sunda-
höfn, á Geldinganesi og uppi á Kjal-
arnesi. „Það virðist vera mikið af
olíublautum fugli á þessu svæði, það
er að segja á Sundunum, ekki uppi
á Kjalarnesi. En það er greiniega
olía á fjörum á öllum Sundunum,
hérna á Reykjavíkur- og Seltjarnar-
nessfjörunum, í Viðey og upp í Geld-
inganes. Á þessu svæði eru eitthvað
á annað hundrað fuglar sem við
sáum olíublauta og þá er spurningin
hvort er ekki eitthvað úti í sjó.“
Ævar segir einkum æðarfugl hafa
lent í olíunni, en einnig nokkuð af
hettumávi. Hann segir enga aðstöðu
vera til að gera nokkuð fyrir fuglinn
þegar svo margir lenda í olíu, til
þess skorti allt, mannafla, hreinsi-
efni og ekki síst aðstöðu til þess að
hafa fuglana eftir að búið er að
hreinsa þá.. Ekki þýði að sleppa þeim
fyrr en nokkrum vikum eftir hreins-
un, þar sem bæði olían og hreinsiefn-
in eyðleggi að miklu leyti fjaðrabún-
ing fuglanna. „Þannig að það er eins
gott að drepa fuglinn strax.“
Ævar segir engar ákvarðanir hafa
verið teknar um að drepa olíublautan
fugl. Hann kvaðst telja að slík
ákvörðun væri í höndum umhverfís-
ráðuneytis, þar sem fuglafriðunar-
mál heyrðu undir það.
Austan og norðan Viðeyjar eru
fiskeldiskvíar og í gær sagði for-
stöðumaður eldisstöðvar, sem þar
hefur aðstöðu, að engin olía hefði
borist í kvíarnar.
----*-*-*---
Leiðrétting
í frétt í Morgunblaðinu á þriðjudag
um fjárskaða í Vopnafirði, var rang-
lega farið með nafn eiginmanns
Kristínar Brynjólfsdóttur, en hann
heitir Arthúr Pétursson, bóndi að
Syðri-Vík.
Salmonella í Skagafírði:
4.
Athugasemd frá heilbrígðisfulltrúa
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá
Sveini H. Guðmundssyni heil-
brigðisfulltrúa hjá Heilbrigðis-
eftirliti Norðurlandssvæðis
vestra:
„Frétt Morgunblaðsins 23. sept-
ember um salmonellumengun í
Skagafirði vekur furðu mína og
■ LIONSKL ÚBBUR Hafnar-
fjarðar verður með sína árlegu
perusölu laugardaginn 29. septem-
ber og sunnudaginn 30. september.
Allur ágóði af sölunni rennur til
líknarmála í Hafnarfirði. Klúbbur-
inn hefur m.a. styrkt heimili fyrir
þroskahefta, svokallaða kisudeild
sem er deild innan barnaheimilisins
í norðurbænum í Hafnarfirði.
Einnig heimili fyrir vangefna á
Klettahrauni 17. Svo og hefur
klúbburinn styrkt St. Jósefsspítala
í Hafnarfirði með tækjakaupum
svo eitthvað sé nefnt. Einnig styrk-
ir Lionsklúbbur Hafnarfjarðar
ýmis málefni innan Lionshreyfíng-
arinnar.
Morgunblaðið hafði ekkert samráð
við mig við samningu fréttarinnar.
í fyrsta lagi er í fréttinni ekki
tilgreint um hvaða sýni er að ræða.
Við lestur fréttarinnar getur fólk
því alveg eins leitt hugann að mat-
vælum. í öðru lagi, þá hefur eins
hátt hlutfall salmonellumengunar
og kemur fram í fréttinni ekki fund-
ist á Skagafjarðarsvæðinu þann
tíma sem ég hef gegnt starfí heil-
brigðisfulltrúa. Niðurstöður neyslu-
vatnssýna gefa til dæmis ekki
ástæðu til að óttast salmonellum-
engun þar.
Sjaldan er beðið um salmonellu-
greiningu þegar sýni af matvælum
eru rannsökuð, en salmonella hefur
mér vitanlega ekki greinst í sýnum
teknum af matvælum framleiddum
á Skagaijarðarsvæðinu.
Keldur hafa fengið nokkuð af
mávi og hrafni héðan af svæðinu,
vegna könnunar á útbreiðslu salm-
onellu í kjölfar Landeyjatilfellanna
síðastliðið ár. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Keldum 24. september
greindist salmonella í færri en 10%
fuglanna. Það er lítið eitt minna
en landsmeðaltal úr sömu könnun,
en tekin voru sýni af mörgum svæð-
um á landinu. Úr einu frárennsli
hafa verið tekin þrjú sýni til salmon-
elluræktunar. Eitt þeirra reyndist
jákvætt. Sýni eru hins vegar svo
fá að þau gefa takmarkaðar upplýs-
ingar.
Með þessu er ég ekki að halda
því fram, að úrbóta í umhverfismál-
um sé ekki víða þörf. Frétt sunnu-
dagsblaðsins, þar sem vitnað er í
rannsóknir á vegum heilbrigðiseft-
irlits er hins vegar tilhæfulaus."
Aths. ritstj.:
Vegna þessarar athugasemdar
skal á það bent að umrædd frétt í
síðasta sunnudagsblaði Morgun-
blaðsins var byggð á viðtali við
Birgi Þórðarson hjá Hollustuvernd
ríksins. Fréttin var hluti af umfjöll-
un um umhverfismál í sunnudags-
blaðinu. í framhaldi af birtingu
hennar var leitað til heimamanna
og birtust svör formanns heilbrigð-
isnefndar Skagaljarðar og bæjar-
stjórans á Sauðárkróki í frétt síðast-
liðinn þriðjudag.