Morgunblaðið - 27.09.1990, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 1990
Þjóðleikhúsið:
*
Ovæntar
skemmdir
koma í ljós
ÓVÆNTAR skemmdir á innvið-
um Þjóðleikhússins hafa komið
í ljós að undanförnu við end-
urnýjun lagna þar sem unnið
hefur verið að endurreisn.
Framkvæmdir eru í fullum
gangi og allt bendir til þess að
Ieikstarfsemi heíjist aftur I aðal-
sal leikhússins samkvæmt
vinnuáætlun um miðjan febrúar
næstkomandi, að sögn Gunnars
Torfasonar verkefnistjóra
Byggingarnefndar.
Ýmislegt sem var verr farið en
ætlað var hefur komið í ljós á
undanfömum vikum og nú síðast
loft hússins á þriðju hæð þar sem
einangrun, vímet og múrhúðun
hékk eins og draslur niður úr
steinplötunni fyrir ofan fölsk loft.
Þættir sem þessir kosta feikna-
vinnu og aukinn kostnað en ljóst
er að sögn Gunnars Torfasonar
að margt í húsinu hefur hreinlega
verið komið á tíma vegna lítils
viðhalds í áratugi. í gær var unn-
ið við að hreinsa loftplötuna sem
verður einangrað á ný en þær
duldu skemmdir sem hafa komið
í ljós við framkvæmd á endurreisn
Þjóðleikhússins kosta milljónir
króna.
Morgunblaðið/Keli
í ljós kom að einangrun, vírnet og múrhúðun hékk eins og drusl-
ur fyrir ofan fölsk loft.
Olía til húshitunar:
40 þúsund króna
hækkun á heimili
HÆKKUN á verði gasolíu um 40% hefur í för með sér að meðaltali
um 40 þúsund króna hækkun á ári hjá þeim sem kynda hús sín með
olíu, að sögn Eiríks Þorbjörnssonar hjá Sambandi íslenskra hita-
veitna.
Veralega hefur dregið úr húshit-
un með olíu hér á landi undanfarin
ár, en olíukynding húsa er nú aðal-
lega á ákveðnum svæðum á Aust-
urlandi, Norðurlandi eystra og
Vesturlandi. Olía til húshitunar er
ekki niðurgreidd.
Af heildarorkunotkun til húshit-
unar er olía nú á bilinu 3,5-4%, og
á þessu ári er áætlað að olíunotkun-
in nemi um það bil 10 þúsund tonn-
um.
Bensín hækkar um 13%:
Framfærsluvísital-
an hækkar um 1%
REIKNA má með að 13% hækkun á bcnsínverði um næstu mánaðamót
hafi í för með sér 1% hækkun á framfærsluvísitölu.
Samkvæmt upplýsingum frá hag-
fræðingum Alþýðu- og Vinnuveit-
endasambandsins má búast við að
bensínhækkunin þýði 0,65-0,7%
hækkun framfærsluvísitölu. Elds-
neytishækkunin er síðan talin leiða
til hækkunar á gjaldskrá samgöngu-
tækja sem hækki vísitöluna um 0,3%
þannig að hækkunin verði samtals
um 1% næstu 3-4 mánuði.
Þjóðarsáttarsamningarnir miða
Póstburðargjöld hækka um
19% og símgjöld lækka á mótí
við að framfærsluvísitala verði 147
stig í nóvember. Hún stendur nú í
146,8 og má því hækka um 0,2%. í
nóvember fer fram heildarendur-
skoðun kjarasamninganna og þeir
eru þá uppsegjanlegir en í desember
eiga laun að öðra óbreyttu að hækka
um 2,3%.
Hannes G. Sigurðsson hagfræð-
ingur VSÍ sagði aðspurður, að ef
gert væri ráð fyrir að launþegar
fengju hækkun framfærsluvísi-
tölunnar, umfram samningsforsend-
ur, bætta að fullu í desember, gæti
sú launahækkun ein þýtt um það bil
‘A% hækkun verðlags til viðbótar.
Það myndi þýða um 7-8% verðbólgu
fyrstu mánuði ársins.
SAMGÖNGURÁÐHERRA hefur
ákveðið breytingar á gjöldum fyr-
ir póst- og símaþjónustu, þannig
að póstburðargjöld hækka en
simgjöld á langlinu innanlands
lækka sem og gjöld fyrir síma og
telexþjónustu til útlanda. Tekur
breyting þessi gildi 1. nóvember.
Segir ráðherra að breytingar
þessar muni ekki hafa áhrif á
heildartekjur stofnunarinnar sé
miðað við heilt ár og óbreytta sím-
og póstnotkun.
í för með sér að nú væra að kom-
ast á eðlileg hlutföll í símkostnaði
innanlands. Sagði hann langlínu-
símtöl hafa lækkað mikið á undan-
fömum áram. Þannig hefði 3
mínútna langlínusímtal í ágúst
1983 kostað 27 krónur á verðlagi
þess árs. Nú kostaði sama samtal
19,8 krónur. Svona símtal kostaði
því um fimmtung á raunvirði miðað
við það sem það kostaði 1983.
Frá og með næstu áramótum
mun Póstur og sími bjóða upp á
sundurliðun langlínusímtala og
símtala til útlanda á símreikning-
um. Kom fram á blaðamannafund-
inum í gær að reikna megi með að
hvert sundurgreint símtal muni
kosta notandann 1,50 krónu. Ekki
verður boðið upp á sundurliðun
símtala innan sama símsvæðis. Er
ástæða þess að þarna er um óhemju
mikið magn af símtölum að ræða
sem þyrfti að sundurliða, líklega
50-100 milljónir, og mörg þeirra
eru mjög stutt. Telur Póstur og sími
heldur ekki að mikill áhugi sé fyrir
slíkri þjónustu. Ef hins vegar kæmu
upp sérstakar óskir frá einstaka
aðilum um að þetta yrði gert yrði
málið athugað.
Þá verður um næstu áramót einn-
ig lengdur sá frestur sem menn fá
áður en síma þeirra er lokað vegna
vanskila. Er hann nú 15 dagar en
verður lengdur í 45 daga.
Iron Maiden
væntanleg'
NÚ er unniö að því, að ein
frægasta þungarokksveit
heims, Iron Maiden, haldi
tónleika í Laugardalshöllinni
13. nóvember.
Umboðsmaðurinn Alan Ball,
sem hér er búsettur, segir nær
fullvíst að hljómsveitin komi,
með um fimm tonn af hljóm-
tækjum í farangrinum.
Viðskiptabankar og greiðslukortafyrirtæki á íslandi hafa samein-
ast um að koma á fót beinlínukerfi með rafeindagjaldfærslu greiðslu-
korta. Það gerði meðal annars mögulegt að ávísa á bankareikninga
með því að framvísa bankakortum í stað þess að skrifa ávísanir.
Valur Arnþórsson bankasljóri Landsbankans segir að það geti falið
I sér mörg hundruð milljóna króna sparnað.
sagði Valur að tilraunin gengi mjög
vel. Bankarnir ættu þó eftir að
móta framtíðarstefnu í þessu máli,
hvort þeir vildu að kreditkortafyrir-
tækin sæju um framkvæmdina, eða
hvort stofnað yrði sérstakt fyrir-
tæki undir sérstakri stjórn. Eitt af
viðfangsefnunum væri þá að koma
á fót debetkorti eða skuldakorti,
sem kæmi í stað ávísana, en mögu-
legt væri að nota núverandi banka-
kort til þeirra hluta.
Gjaldskrá fyrir póstþjónustu
hækkar að meðaltali um 19% 1. , . ,, , n. .,
nóvember sem þýðir að burðargjald Bankar og kortafyrirtæki samemast um bemlmukern greiðslukorta:
fyrir bréf innanlands_ hækkar úr 21
krónu í 25 krónur. Á blaðamanna-
fundi sem Steingrímur J. Sigfússon, ■ 1 M A A | A * *
samgönguráðherra, hélt í gær, KQ VI WT «~| (\Y*Y (TCDll 1 I 0\7CT Q '!7’1 CO Tl H
ásamtfulltrúumfráPóstiogsíma, lxVCLlVU 1 l OC L11 lCVðt ClV lðílll
sagði hann astæður þessarar hækk- X j
unar vera að póstþjónustan hefði q ^ ~ ^ ^
árSímSöídinfefðu’þanniÍ'S 11» Q | Vl A| 1T| 1 AQ* Cf'01^11“^ CFIQ PQ C“|"
niður póstþjónustuna. Þá hafi fyrir- U Ct/X J.JL VF JLJL JLU V/ Otvfl lv OlJCl/X Cl/I^
komulagi á uppgjöri vegna póst- M
sendinga til Norðurlanda verið
breytt, en undanfarið hafí til dæm-
is verið tap á bréfasendingum til
Danmerkur.
Til að vega upp á móti þeim
tekjuauka sem hækkun gjaldskrár
fyrir póstþjónustu hefur í för með
sér fyrir Póst og síma verður gjald-
skrá fyrir símþjónustu lækkuð
samtímis. Skref f langlínusímtölum
innanlands lengjast 1. nóvember um
33% sem þýðir 18-22% lækkun á
þriggja mínútna símtali. Gjald fyrir
símtal til Bandaríkjanna lækkar um
14,4% og gjald fyrir símtal til Bret-
lands, Spánar, Þýskalands, Finn-
lands og Hollands lækkar um 5%.
Tekinn verður upp sérstakur nætur-
taxti á símtöl til útlanda sem verð-
ur 30% ódýrari en almenni taxtinn.
Verður sá taxti í gildi á tímabilinu
klukkan 23-08 alla daga.
Gjaldskrá fyrir telexþjónustu til
útlanda lækkar um 15% og notend-
ur tengdir símstöðvum að Brú og
Blönduósi sameinast í eitt gjald-
svæði.
Samgönguráðherra sagði að
þessar breytingar hefðu það einnig
Samband íslenskra viðskipta-
banka hefur skipað undirbúnings-
nefnd fyrir svokallað EFTPOS á
íslandi, sem felur í sér, að hvers
konar kort eru skoðuð í sérstökum
vélum við búðarkassa og færslur á
reikninga kaupenda fara fram með
rafboðum.
Valur Amþórsson bankastjóri
Landsbankans sagði að undirbún-
ingsnefndin hefði kynnt sér þróun
þessara mála í Noregij Svíþjóð og
Bretlandi, í boði VTSA-Islands. Val-
ur sagði það mjög athyglisVert, að
í Bretlandi hefðu allir bankar og
sparisjóðir reynt að ná samstöðu
um EFTPOS í Bretlandi, en það
hefði mistekist, og tilraunin kostað
um 100 milljónir sterlingspunda.
Nú rækju ýmsir bankanna eigin
kerfi með verulegum halla.
„Þetta sýnir að afar nauðsynlegt
er að ná víðtækriu samstöðu um
þetta. Og þótt áfram verði hér á
landi samkeppni milli banka og
kortafyrirtækja, þá eram við að
reyna að koma á einu samræmdu
kerfi, sem myndi leiða til stórfells
spamaðar fyrir banka og sparisjóði
og kortafyrirtækin og þar með fyr-
ir neytendur. Svona kerfi myndi
væntanlega fela í sér að fólk myndi
losna mjög mikið við tékkanotkun,
þannig að dragi úr því gífurlega
tékkaflóði sem er í bankakerfinu.
Og það er talið að færslur í þessu
nýja kerfi yrðu miklum mun ódýr-
ari en tékkafærslur, þannig að kerf-
ið gæti falið í sér sparnað upp á
hundruð milljónir króna,“ sagði
Valur.
VISA-ísland hefur sett upp til-
raunakerfi á nokkrum stöðum í
samstarfí við Kreditkort hf, og
Stöð 2 hækkar af-
notagjöld um 4%
ÁSKRIFTARGJÖLD Stöðvar 2 hækka um næstu mánaðamót um rúm
4%, úr 2.190 kr. í 2.290 kr. Á bilinu 39-40 þúsund áskrifendur eru að
dagskrá Stöðvar 2 og þýðir þessi hækkun 42-48 milljóna kr. tekjuaukn-
ingu fyrir fyrirtækið á ári en á móti kemur að ráðgert er að bjóða
þeim áskrifendum sem greiða afnotagjöld sín með greiðslukorti, en
þeir eru um þriðjungur, 5% afslátt af gjaldinu frá og með 1. nóvember.
Baldvin Jónsson, yfirmaður íjár- senda út seðlana. Þá væri fyrirsjáan-
leg hækkun á póstburðargjöldum.
Baldvin sagði að með þessari
hækkun hefðu afnotagjöldin hækkað
um 10% á þessu ári og yrði ekki um
frekari hækkanir að ræða á árinu.
hagssviðs Stöðvar 2, segir að þessi
hækkun hafi átt að koma til fram-
kvæmda í vor en þá verið frestað.
Hann sagði að kostnaður við inn-
heimtu gjaldanna með gíróseðlum
væri hár og mikið starf færi í að