Morgunblaðið - 27.09.1990, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 1990
Sinfóníuhljómsveit íslands;
20 tónleikar og þrjár hljóm-
plötuupptökur ráðgerðar
FYRSTU tónleikar á 41. starfsári Sinfóníuhljómsveitar íslands verða
11. október næstkomandi en alls verða tónleikar hljómsveitarinnar
20 auk þriggja aukatónleika. A kynningu um starfsemi sveitarinnar
kom fram að stjórn Sinfóníuhljómsveitarinnar er að ganga frá samn-
ingi við breska útgáfufyrirtækið Chandors um útgáfu á þremur
hljómplötum næstu þijú árin með leik sveitarinnar. Aðalstjórnandi
hljómsveitarinnar verður Finninn Petri Sakari en samningur hans
var nýlega endurnýjaður til tveggja ára.
Meðal nýmæla í starfi sveitarinn-
ar er að skipta tónleikunum í fjórar
tónleikaraðir og hefur hver þeirra
sinn einkennislit eftir tegund tón-
listar. Stærri hljómsveitarverk eru
í gulri tónleikaröð. Meðal verka sem
flutt verða eru 1. og 4. sinfónía
Brahms, 5. sinfónía Bruckners auk
tónleika sem verða helgaðir Mozart.
Tónlist bundin árstíðum og hátíð-
isdögum verður í grænni tónleika-
röð, til að mynda Vínartónleikar og
vinsæl óperutónlist. Rauðir tónleik-
ar eru helgaðir einleikurum og ein-
söngvurum og bláir tónleikar helg-
aðir nútímatónlist. Auk þess verður
boðið upp á bónustónleika sem að-
eins verða ætlaðir áskrifendum.
Viðamestu verkin á efniskrá
hljómsveitarinnar eru, að sögn
Gunnars Egilssonar skrifstofustjóra
Sinfóníuhljómsveitarinnar, Vorblót
eftir Igor Stravinskí og Das Lied
von der Erde eftir Mahler. 2. mars
verða tónleikar helgaðir tónlist Rac-
hmaninoffs en stjórnandi verður
Sovétmaðurinn Igor Buketoff, sem
var aðalstjórnandi Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands á fyrri hluta sjöunda
áratugarins. Fyrra verkið er píanó-
konsert nr. 4 sem ekki hefur áður
verið fluttur hérlendis. Einleikari
verður Bandaríkjamaðurinn Will-
iam Black. Seinna verkið, þáttur
úr óperunni Monna Vanna verður
hljóðritað á tónleikunum í Há-
skólabíói. Verkið hefur einu sinni
verið flutt áður, þá af sinfóníu-
hljómsveitinni í Fíladelfíu undir
stjórn Buketoffs. Allir einsöngvarar
sem fram koma í óperunni eru
bandarískir og er. aðalhlutverkið í
höndum heimskunns baritónsöngv-
ara, Sherill Milnes. Ekki er afráðið
hvaða tvö verk til viðbótar Sinfóníu-
hljómsveitin hljóðritar fyrir
Chandor-útgáfufyrirtækið.
Á starfsárinu verða flutt 10 verk
eftir íslensk tónskáld, þar af Nýtt
verk eftir Szymon Kuran, sem þá
hefur væntanlega öðlast íslenskan
ríkisborgararétt. Það verða jafn-
framt lokatónleikar Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar en með henni á tónleik-
unum kemur fram djasssveitin Súld
ásamt Sigurði Flosasyni saxafón-
leikara á tónleikum sem verða helg-
aðir Big Band-tónlist.
VEÐUR
VEÐURHORFUR íDAG, 27. SEPTEMBER
YFIRLIT í GÆR: Skammt norður af Hvarfi er 993ja mb. lægð og
frá henni iægðardrag suðvestur á Græniandshaf. Yfir Bretlandi er
1032 mb víðáttumikil hæð.
SPÁ: Suðvestan kaldi eða stinningskaldi. Skúrir um sunnan- og
vestanvert landið en annars þurrt. Hiti 4-11 stig.
I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG: Hæg breytileg átt og smáskúrir víða um
land. Fremur svalt í veðri.
HORFUR Á LAUGARDAG: Hæg norðlæg átt og kólnandi veður.
Skúrir eða slydduél um norðanvert landið, en þurrt og víöast létt-
skýjað syðra.
TÁKN:
• Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
y, Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
10 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
Skúrir
Él
Þoka
Þokumóða
Súld
Mistur
Skafrenningur
Þrumuveður
V
v
? 9
5
CX)
-f
K
• £•
%
V * i r' 4
VEÐUR kl. 12:00 /ÍÐA ígær hlti UM HEIM að ísl. tíma
Akureyri 8 sktir
Reykjavik 8 rigning
Bergen 9 skýjaö
Helsinki vantar
rvuUpiFlallllcJnO Narssarseueq S SKyJaD alskýjað
Nuuk 4 rigning
Óstó 9 skýjaö
Stokkhólmur 8 rigning
Þórshöfn 9 skýjað
Algarve 24 skýjaö
Amsterdam 13 skúr
Ðarcelona 24 mistur
Berlln 13 skýjað
Chicago 13 snjókoma
FeneyjBr 16 þokumóöa
Franklurt 16 mistur
Glasgow 13 léttskýjað
Hamborg 13 léttskskýjað
Laa Palmas 28 skýjað
London 16 téttskýjað
LosAngeles 17 heiðskírt
Lúxemborg 14 skýjað
Madrid 24 léttskýjað
Mataga 28 léttskýjað
Mallorca 26 skýjað
Montreal 13 skýjað
NewYork 18 skýjaö
Orlando 22 alskýjað
París 17 skýjað
Róm 26 skýjað
Vín 14 alskýjað
Washington 14 skýjað
Winnipeg 9 hálfskýjaö
Morgunblaðið/Páll Ingólfsson
Myndin var tekin úr Orion, skipi Köfunarstöðvarinnar af því þegar
Ármann SH var hífður af hafsbotni.
Ármann SH sökk við Rif:
Ástæða slyssins óljós
SJÓPRÓFUM er lokið vegna þess er Ármann SH 223, 10 tonna yfír-
byggður bátur, sökk skammt undan höfninni á Rifi síðastliðið sunnu-
dagskvöld. Að sögn Péturs Kristinssonar, fulltrúa bæjarfógetans í Ól-
afsvík, er ekki talið ljóst hvað olli
Orion, skip Köfunarstöðvarinnar
hf var statt við hafnarbætur á Rifi
I þegar óhappið varð og á mánudag
voru starfsmenn Köfunarstöðvarinn-
ar fegnir til að ná Ármanni af hafs-
botni. Kafarar köfuðu niður að skip-
inu og komu á það trossum síðan
þvi að báturinn sökk.
var sjó dælt úr skipinu og það smám
saman híft upp á yfirborðið. Komið
var með skipið inn til Rifs. Þar verð-
ur það tekið á þurrt í dag og síðan
mun sjóslysanefnd skoða skipið til
að grennslast frekar fyrir um hvað
óhappinu olli.
Salmonella 1 Skagafírði:
Undrandi á viðbrögðum for-
manns heilbrigðisnefndar
- segirBirgir
Þórðarson
„EG er mjög undrandi á þessum
viðbrögðum formanns heilbrigðis-
nefndar, en á honum er helst að
skilja að það sé allt að því í lagi
að salmonella sé til staðar í fugli
og skolplögnum. Mér finnst hans
afstaða vera það alvarlegasta í
þessu máli,“ segir Birgir Þórðar-
son þjá mengunarvörnum Holl-
ustuverndar ríkisins um þau um-
mæli Gísla Halldórssonar, form-
anns heilbrigðisnefndar Skaga-
fjarðar, að salmonella hafi einung-
is fundist í innan við 10% sýna sem
tekin hafa verið í Skagafirði, en
ekki tveimur þriðju hlutum sýna
eins og haft var eftir Birgi í frétt
í Morgunblaðinu síðastliðinn
sunnudag.
„Ég nefndi reyndar enga tölu um
salmonellu í mávum í Skagafirði í
því viðtali sem birtist við mig í Morg-
unblaðinu, enda skiptir það engu
máli í mínum huga hvort um er að
ræða 10% tilfella eða 90%. Þessar
aðstæður sem ég nefndi að gætu
valdið faraldri eru þama til staðar
og það er það sem máli skiptir. Við
höfum farið fram á það að meðferð
á sláturúrgangi verði bætt á þessu
svæði, og einnig höfum við bent á
ákeveðna þætti sem þarf að gera
úrbætur á varðandi úrgangsmál, en
að því er verið að vinna að hálfu
Sauðárkróksbæjar," sagði Birgir.
Sjá athugasemd heilbrigðisfull-
trúa Skagafjarðar bls. 29.
Tveir vegarkaflar á Austurlandi:
Lægstutilboð 17 milljón-
um undir kostnaðaráætlun
Lægstu tilboð í lagningu tveggja vegarkafla á Austurlandi voru 52
og 62% af kostnaðaráætlun. Tilboðin eru samtals hátt í 17 milljónum
lægri en Vegagerðin gerði ráð fyrir við undirbúning verkanna.
Lægsta tilboð í Austurlandsveg,
frá Jökulsá að Dimmadal, er frá
Austfirskum verktökum hf. á Egils-
stöðum, 11,5 milljónir kr. sem er 62%
af kostnaðaráætlun. Vegagerðin
áætlaði kostnaðinn 18,6 milljónir kr.
og er lægsta tilboð því 7,1 milljón
undir áætlun. Hæsta tilboð var hins
vegar 26,7 milljónir kr. Vegurinn er
2,1 km og á verkinu að Ijúka fyrir
1. ágúst á næsta ári.
Þá var boðin út lagning 4 km af
Suðurfjarðarvegi, frá Norðfjarðar-
vegi að Handarhaldi. Lægsta tilboð
var frá Borgþóri Guðjónssyni á Reyð-
arfirði, 10,2 milljónir kr. Kostnaðará-
ætlun Vegagerðarinnar var 19,8
milljónir og er tilboð Borgþórs því
51,8% af áætluninni og 9,5 milljónir
undir henni. Verkinu á að ljúka fyrir
1. júlí næsta sumar.