Morgunblaðið - 27.09.1990, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 1990
ALLT SEM ÞÚ ÞARFT
til tölvuvinnslu og þjónusta öflugrar tæknideildar
að auki! Tæknival er rótgróið fyrirtæki
sem leggur metnað sinn í 1. flokks þjónustu.
Þú ert því í öruggum höndum hjá okkur!
Ómerkilegt at-
hæfi í álmáli
eftir Rannveigu
Tryggvadóttur
Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra
gerði sig sekan um ómerkilegt at-
hæfí þegar hann lét Félagsmála-
stofnun kanna stuðning manna við
að risaálver verði reist í landinu —
án þess að upplýsa þjóðina fyrst
um galla samningsdraganna, eins
og honum bar þó skylda til. í
krafti 68% stuðnings við fyrirbærið
verður svo vaðið áfram og undirrit-
aður samningur við útlendinga sem
m.a. felur í sér að við borgum með
orku til álversins næstu tvo áratug-
ina. Ekki virðist heldur tryggilega
frá því gengið að mengun frá álver-
inu verði haldið í því lágmarki sem
nútímatækni leyfir.
í álverinu í Straumsvík er þurr-
hreinsibúnaður, sem síar út loftinu
ein 90-95% af þeim flúorsambönd-
um sem losna við álvinnsluna. Um
1 kg af flúor (F) fer þar út í loftið
fyrir hveri* framleitt tonn af áli.
Þrátt fyrir nokkrar tilraunir ís-
lenskra stjórnvalda hefur ekki tek-
ist að fá Alusuisse til að setja þar
upp búnað til úðahreinsunar eða
vothreinsunar. Með slíkri tækni
má halda eftir meiru af flúori en
með þurrhreinsun, auk þess sem
úðunin bindur oxíð brennisteins og
niturs (köfnunarefnis). Af þessum
efnum hlýst skaðleg loftmengun.
Oxíð brénnisteins breytast í sýru,
sem er aðalskaðvaldurinn í súru
regni, og víða er skylt að búa bif-
reiðar alldýrum hreinsibúnaði til
að halda m.a. þessum efnum í lág-
marki í útblæstrinum.
í útvarpsfréttum var haft eftir
Júlíusi Sólnes, umhverfismálaráð-
herra, að jafnvel kæmi til greina
að semja um byggingu nýs álvers
án þess að krafist verði vothreinsi-
búnaðar!
Ef þetta nær fram að ganga
þýðir það a.m.k. þrennt: (1) Loft-
mengun yfir íslandi mun stórauk-
ast. (2) Aðrir aðilar, sem að loftm-
engun standa, einkum eigendur
bifreiða, verða fyrr en ella að taka
á sig kostnað af hreinsibúnaði til
að samanlögð loftmengun keyri
ekki úr hófi. (3) Þetta mun um
ófyrirsjáanlega framtíð spilla mög-
uleikum til útflutnings á heilnæm-
um, ómenguðum afurðum. Engin
leið er að meta það tjón sem af
þv( myndi hljótast.
I fréttaauka í Ríkisútvarpinu er
greint frá alvarlegri gagnrýni á
sænska stórfyrirtækið Gránges,
sem rekur stórt álver í Sundsvall
Rannveig Tryggvadóttir
„Þetta mun um ófyrir-
sjáanlega framtíð spilla
möguleikum til útflutn-
ings á heilnæmum,
ómenguðum afurðum.“
sem er litlu minni borg en Reykja-
vík, við strönd Helsingjabotns.
Starfsmenn þess eru um 700 og
framleiðslan um 100.000 tonn af
áli á ári. Eiturefni í lofti í kerskál-
um hafa mælst þúsund sinnum
meiri en í lofti fyrir utan verksmiðj-
una. Um 20 ný sjúkdómstilfelli
koma upp árlega sem flokkast und-
ir atvinnusjúkdóma, þar af nokkur
tilfelli þar sem heilsutjón er svo
mikið að það hefur leitt til alvar-
legrar fötlunar. Yfirleitt er um að
ræða astma sem kallst salarastmi
og er í formi stöðugra öndunarörð-
ugleika. Það er flúor í verksmiðju-
loftinu sem skaddar slímhimnuna
í hálsi starfsmanna. Mikið af tjöru-
efnum hefur mælst í reyk frá álver-
inu, m.a. benzpyren, sem veldur
krabbameini. Mengunin af þessum
efnum frá þessari einu verksmiðju
er jafnmikil og mengun frá öllum
öðrum verksmiðjum í landinu.
Helmingi fleiri vansköpuð börn
fæddust í einu hverfí þar en ann-
ars stðar í landinu 1975-80. Gráng-
es á nú í vök að veijast í heimal-
andi sínu, auk þess sem raforku-
verð er þar á uppleið. Má því ætla
að fyrirtækið líti hýru auga til ís-
lands ... Og það gera fleiri.
Höfundur er húsmóðir og
ITÆKNIVAL
SKEIFUNNI 17 • 108 R. • S. 681665/687175
VZutcuzcv
Heílsuvörur
nútímafólks
óskum eftir-
fleiri söluaöilum.
K.E.W HOBBY
Þessar litlu en kraftmiklu háþrýstidælur fást nú hjá
söluaðilum okkar um land allt á ótrúlega
hagstæöu veröi.
Þekking - Úrval - Þjónusta
REKSTRARVÖRUR
Réttarhálsi2 - UOR.vík - Simar31956-685554
Reykjavlk:
RV-Markaður Réttarhálsi 2,
sími: 685554.
Gripiö og Greitt
Skútuvogi 4.
Ferðamarkaöurinn
Skeifunni 8.
Bæjarnesti
vA/esturlandsveg.
Kópavogur:
BYKÓ Breiddinni
Akranes:
Trésmiðjan Akur
sfmi: 12666.
Borgarnes:
B.T.B.
sími: 71000.
Isafjöröur:
Hafsteinn Vilhjálmsson
sími: 3207.
Sauðárkrókur:
Röst
sími: 36700.
Akureyri:
Þ. Björgúlfsson hf.
Hafnarstræti 19
sími: 25411.
Húsavfk:
Á. G. Guðmundsson sf.
sími: 41580.
Egilsstaöir:
M. Snædal
sími: 11415.
Neskaupstaður:
Varahlutaverslunin Vík
sími: 71776.
Höfn:
Tindur
Dalbraut 6
sími: 81517.
Hella
Hjólbarðaverkstæði
Björns Jóhannssonar
sími: 75960.
Selfoss:
Vörubásinn
Gagnheiöi 31
sími; 22590.
Vestmannaeyjar:
Skipaafgreiðsla Vestmannaeyja
sími: 12004.
þýðandi.
Rynkeby
ÁVAXTAGRAUTAR
llfnMw
Rynfcoby