Morgunblaðið - 27.09.1990, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 1990
15
Gríptu tækifærið
eftir Hjörleif
Hringsson
Junior Chamber-hreyfingin er
og hefur verið vettvangur ungs
fólks í 30 ár, ungs fólks sem hefur
viljað efla sjálfstraust, ná tökum á
stjórnun og þeirri tækni sem nauð-
synleg er svo skammlaust megi
flytja mál sitt á smærri sem
stærri fundum. Á þessum vett-
vangi hafa þúsundir manna og
kvenna fengið þjálfun um lengri
eða skemmri tíma, engar kvaðir
eru lagðar á nokkum þann sem
velur að feta veg Junior Chamber.
Hreyfingin er opin öllum burtséð
frá trúarskoðunum, stjórnmálavið-
horfum, litarhætti eða öðru því sem
skiptir fólki í fylkingar. Það eina
sem þarf er persónulegur metnaður
fyrir eigin velgengni og því að
geta látið gott af sér leiða ein-
hvers staðar á ferlinum.
Junior Chamber er eins og
banki, það er ekki hægt að reikna
með meiru til baka en inn er lagt,
það þarf að gefa sig að því sem í
boði er og eru þeir vextir sem þó
bjóðast mun ríkulegri en hefð-
bundnar bankastofnanir geta boð-
ið. Því nefni ég þetta hér, að nú
eru JC-félagar um land allt að fara
af stað með kynningu og vetrar-
starf í sínum félögum. Þar gefst
ungu fólki kostur á að slást í hóp-
inn. Algengasta leiðin er sú að ein-
staklingar fá send kynningarbréf
og fundarboð þar sem þeim er
boðið að koma og kynnast Junior
Chamber-hreyfíngunni. Á þessum
fundum eru svo skýrð fyrir fundar-
gestum tilgangurinn og takmark
þeirrar starfsemi sem í boði er.
JC-hreyfingin hefur aðsetur í Hell-
usundi 3 í Reykjavík og á fimmtu-
dögum frá 20.00 til 22.00 er hægt
að frekari úpplýsingar um starf-
semina.
í maímánuði eru alltaf ákveðin
þáttaskil í starfi okkar JC-manna.
Þá komum við saman og höldum
landsþing. Þá lætur stjórn starfs-
ársins af störfum og ný tekur við.
Það var engin undantekning í ár
og nýr landsforseti, Hlynur Árna-
son, var kjörinn í embættið og Sig-
„Margir fá tækifæri til
að spreyta sig í starfi
og stjórnun.“
rún Inga Sigurgeirsdóttir var kosin
fyrir næsta ár. Það er eitt af því
skemmtilega við JC-starfið að hjá
okkur fær fólk einungis að starfa
í eitt ár í hveiju embætti sem
gerir það að verkum að margir fá
tækifæri til að spreyta sig í starfi
og stjórnun. Að ætla að telja upp
öll þau verkefni og þau námskeið
sem félögum er boðið upp á er efni
í margar greinar, en þau grunnn-
ámskeið sem ganga eins og rauður
þráður í gegnum starf okkar eru
ræðuflutningur og tækni við flutn-
ing ræðu og ýmis stjórnunarnám-
skeið. Kappkostað er að bjóða upp
á hæfa leiðbeinendur svo þátttak-
endur hafí sem mest gagn af
hveiju námskeiði.
Næsta laugardag, þann 29.
september, gera JC-félagar sér
dagamun því þá verður haldið upp
á 30 ára afmæli JC á íslandi á
Hótel Islandi, og hefst fagnaðurinn
kl. 19.00. Veislustjóri verður sen-
ator Þröstur Lýðsson, kunnur ræð-
uskörungur. Þar reiknum við með
Hjörleifur Hringsson
að margir nýir og gamlir JC-félag-
ar komi saman.
JC-félög halda uppi öflugu
starfí á erlendum vettvangi ýmist
í formi vinafélagatengsla við erlend
JC-félög eða með beinni þátttöku
á erlendum þingum. Evrópuþing
eru haldin í júní og heimsþing í
nóvember. Nú í nóvember er fyrir-
huguð ferð 36 íslenskra JC-félaga
á heimsþing í Puerto Rico. Þetta
er ein mesta þátttaka JC-félaga á
heimsþing í mörg ár. Formaður
Heimsþingsnefndar hefur verið
senator Guðrún Garðars.
Af ofansögðu má ljóst vera að
margt gerist í JC-hreyfingunni og
ekki á að þurfa mikla hvatningu
til ungs fólks um að þarna sé
kærkomið tækifæri til að skapa
hæfari einstakling til að takast á
við ný og spennandi störf í þjóðlíf-
inu. Það eina sem þarf er að grípa
tækifærið.
Höfundur er upplýsingafulltrúi JC
íslands.
F A R K L Ú B B S F E 1 R Ð
FARKLÚBBSVERD KR. 27.810,-
Takmorkaður sætafjöldi
Brottför 11. október.
Innifalið: Flug, sigling, hótel,
íslenskur fararstjóri, skoðun-
arferð og rútur til og frá flug-
velli.
4 **** HÓTEL helsinki
AÐEINS FYRIR
FARKORTHAFA VISA 06 FIF
Verð:
klefi A/A: 29.400,- * á mann ítvíbýli
B/A: 28.700,- * á mann í tvíbýli
C/A: 27.800,- * á mann ítvíbýli
Skip:
M/S Cinderella (fríhöfn, diskótek,
veitingastaðir, sundlaug o.m.fl.)
Kannaðu hvort ferð í næsta banka eða sparisjóð eftir FARK0RTI sé ekki ferð sem borgar sig
FARKORT
FULLKOMIÐ GREIÐSL UKORT OG MEIRA TIL
Pantanir hjá eftirtöldum ferðaskrifstofum:
Ferðaskrifstofan ALIS hf., Ferðaskrifstofan Atlantik hf., Ferðamiðstöðin Veröld-Pólaris, Ferðamiðstöð Austurlands hf.,
Ferðaskrifstofa Akureyrar hf., Ferðaskrifstofan Ferðabærhf., Ferðaskrifstofa íslands hf., Ferðaskrifstofa Reykjavikurhf'.,
Ferðaskrifstofa stúdenta, Ferðaval hf., Guðmundur Jónasson hf., Ferðaskrifstofan Sagahf., Samvinnuferðir/Landsýn
hf., Ferðaskrifstofan Úrval/Útsýn, íslenskar fjallaferðir hf., Land og Saga hf., Ratvis hf.
= HEÐINN =
VÉLAVERSLUN, SÍMI 624260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA-LAGER