Morgunblaðið - 27.09.1990, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 1990
17
CAMERATA
Tónlist
Jón Asgeirsson
Það er sennilega erfiðara fyrir
unga hljómsveitarstjóra hér á landi
að skapa sér verðug viðfangsefni
en flesta aðra tónlistarmenn og
lausnarorð þeirra hefur því verið
að stofna hljómsveitir, sem að
mestu leyti hafa þó verið skipaðar
atvinnumönnum úr Sinfóníuhljóm-
sveit íslands. Nýjasta hljómsveitin
af þessu tagi er Camerata, sem
Örn Óskarsson, ungur hljómsveit-
arstjóri, hefur sett á laggirnar
nýlega. Camerata hóf starfsemi
sína með tónleikum í Neskaupstað
sl. laugardag, daginn eftir á Egils-
stöðum og mánudagskvöldið í
Hafnarborg í Hafnarfirði. Síðast-
nefndu tónleikarnir voru haldnir
vegna 40 ára afmælis Tónlistar-
skólans í Hafnarfirði.
A efnisskránni voru verk eftir
Dag Wiren, Mozart, Sjostakovítsj,
Jón Þórarinsson og Inga T. Lárus-
son. Einleikari var Þorsteinn Gauti
Sigurðsson á píanó og Lárus
Sveinsson á trompett. Fyrsta verk-
ið var Serenaðan fræga eftir Wir-
en, sem hljómsveitin lék hressi-
lega. Annað verkið, sinfónía KW.
201 eftir Mozart, var ekki óþokka-
lega leikin en þar mátti merkja að
Örn Óskarsson á enn eftir að
þroskast sem túlkandi. Það vantaði
tregann í fyrsta þáttinn, annar
þátturinn og sérstaklega menúett-
inn var of harður og í heild var
sinfónían í of föstum takti og lítið
um að slakað væri á eða skilið á
milli hendinga. Mozart, eins opin-
skár og hann er í tónverkum
sínum, er vandmeðfarinn hvað
snertir tónræna túlkun og hafa
margir ungir tónlistarmenn þurft
að taka sig taki til að hafa tónlist
hans á valdi sínu.
Best tókst Erni upp í Píanókon-
sertinum nr. 1, eftir Sjostakovítsj.
Konsertinn er skemmtileg tónsmíð
og var frumfluttur fyrir nærri 57
(SaitkTiecht
ÞÝSK GÆÐATÆKIÁ GÓÐU VERÐI
RtfBW
&SAMBANDSINS
HOLTAGÖRÐUM SÍMI 68 55 50
VIÐ MIKLAGARÐ
& KAUPFÉLÖGIN
árum (15.10. 1933) í Leníngrad
og lék höfundurinn sjálfur á píanó-
ið. Fræðimenn hafa velt því fyrir
sér hvað hafi vakað fyrir höfundin-
um að semja verkið fyrir strengja-
sveit og ásamt píanóinu aðeins
fyrir einn trompett, sem er notaður
á nokkuð óvenjulegan hátt í niður-
lagi fyrsta kaflans, þegar píanóið
leikur upphafsstefið. og trompett-
inn „tuldrar undir“ á lága tónsvið-
inu. Þá vöktu ekki síður athygli
nokkrar tilvitnanir m.a. í frægt
rondó eftir Beethoven.
Þorsteinn Gauti Sigurðsson lék
konsertinn mjög vél, náði að móta
vel hrynskarpar línur verksins og
leika fallega með ýmis ljóðræn
mótív, sem andstæður verksins
mótast af. Þá voru kadensurnar í
Camerata.
þriðja þætti vel leiknar og sömu-
leiðis gáskafullur lokakaflinn. Lár-
us Sveinsson lék á trompettinn og
„söng litla lagið“ í fyrsta kaflanum
mjög fallega og ekki síður „tuldr-
ið“ í lok kaflans.
Örn Óskarsson er ungur að
ánim. Hann hefur nýlega lokið
prófi í hljómsveitarstjórn, stjórnað
hljómsveit í Mexíkó og er þetta í
fyrsta sinn sem hann stendur á
pallinum hér heima. Örn fer vel
af stað og tókst sérstaklega upp í
Sjostakovítsj og mótaði mjög fal-
lega lögin úr kvikmyndinni
Paradísarheimt eftir Jón Þórarins-
son og raddsetningu Kurans á lagi
Inga T. Lárussonar, í svanalíki.
Frammistaða Arnar gefur vísbend-
ingu um að hann sé á réttri leið,
í leit sinni til skilnings á duldum
innviðum tónlistarinnar.
Sameining um eiit hraðbankanet
Allir bankar og sparisjóöir hafa nú samein-
ast um einn Hraöbanka, eitt net sem tekur
við af tveimur. Afgreiðslustaðirnir verða 25
talsins og standa þér alltaf opnir.
Þú þarft ekki að keppa við tímann; þú getur
sinnt öllum algengustu bankaerindum í
Hraðbankanum, þegar þér hentar best.
Hraðbankinn býður þér:
• að taka út reiðufé, allt að 15.000 kr. á dag
• að leggja inn peninga/tékka
• að millifæra af sparireikningi á tékka-
reikning eða öfugt
• að greiða gíróseðla með peningum/tékk-
um eða millifærslu af eigin reikningi
• að fa upplýsingar um stöðu eigin reikninga.
Hraðbankinn
er stilltur fyrir þig
- allan sólarhringinn!
Bankakort Búnaðarbanka,
Landsbanka, Samvinnubanka
og sparisjóðanna gilda
í Hraðbankann, svo og Tölvu-
bankakort íslandsbanka, sem gefin
hafa verið út á árinu 1990. Ef þú átt
ekki kort, færðu nýtt Hraðbankakort
í útibúinu þinu.
Kynntu þéismöguleikana vel - láttu
Hraðbankann þjóna þér!
mh Hraöbankinn
' " -ÞJÓNUSTA NÓTT SEM NÝTAN DAG!
YDDAF11.5SÍA