Morgunblaðið - 27.09.1990, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 1990
21
flokka sem ekki standast kröfur.
Þegar það hefur verið gert á eftirlit-
ið að verða auðveldara. Það verður
fylgst með því hvaða vörur koma
inn til landsins. Við störfum tölu-
vert með tollinum og hafa vörur
verið stöðvaðar áður en þær koma
inn i landið.“
Innflutningur án
samþykkis eftirlitis?
— Verða ekki þær kröfur gerðar
í framtíðinnni að matvara verði
ekki flutt til landsins nema að
fengnu samþykki innflutningseftir-
litsins um að hún sé í lagi?
„Við erum bytjuð að skoða vör-
una bæði í tollinum og hjá innflytj-
endum. Það kann að reynast nauð-
synlegt í vissum tilvikum að mat-
vara verði ekki flutt inn í landið
fyrr en samþykki innflutningseftir-
lits liggur fyrir. Við höfum haft
mjög góð samskipti við tollyfirvöld.
Þau hafa látið okkur vita ef til
landsins hefur komið vara sem þeir
hafa talið eitthvað athugavert við
og hefur hún þá verið skoðuð. I
framhaldi af því er hægt að stöðva
innflutning á vörum og það höfum
við þegar gert í nokkur skipti. Auk
samvinnu við tollyfirvöld höfum við
haft samvinnu við heilbrigðisfull-
trúa og innflytjendur og hafa þeir
sýnt þessum málum áhuga. Þeir
vilja hafa þessi mál í lagi,“ sagði
Gunnar.
Nú er mikið um allskonar inn-
flytjendur eins og t.d. hina svoköll-
uðu bílskúrsheildsala. Hvernig hef-
ur ykkur tekist að nálgast þá?
„Það er sennilega erfíðast að ná
til þeirra sem lítil umsvif hafa á
þessu sviði, því að sumir þeirra
flytja oft aðeins einu sinni inn vöru.
Sama gildir um þá sem flytja mjög
stopult inn.“
Hver sem er getur flutt
inn matvæli
— Getur hver sem er hafið inn-
flutning? Er ekki til skrá yfir heild-
sala og verða þeir ekki sækja um
heildsöluleyfi?
„Það er hvergi til skrá yfír alla
heildsala,“ sagði Gunnar, „Við höf-
um skrá frá félagi stórkaupmanna,
að öðru leyti verðum við að reyna
að grafast fyrir um þessa innflytj-
endur sjálfir og skrá þá. Að lausn
þessara mála er nú unnið í sam-
vinnu við tollyfirvöld. Heildsalar eru
ekki skráningarskyldir og þurfa
ekki að sækja um innflutningsleyfi
á hinum ýmsu vörutegundum. Inn-
flytjendur þurfa hvorki að skrá sig
eða þá vöru sem þeir flytja inn. Þær
kröfur eru gerðar til þeirra, að þær
vörur sem þeir flytja inn séu sam-
kvæmt þeim reglum sem í gildi eru
í landinu. Innflytjendur eiga að vita
af þessum reglum."
Réttindi og skyldur
innflytjenda
„Það sem innflytjendur eiga að
gera hyggist þeir flytja inn ný
matvæli er að skoða sýnishorn af
þeirri vöru sem þeir ætla að flytja
inn, með tilliti til reglugerða. Ef efi
er í þeirra huga geta þeir komið
með vöruna hingað í Hollustuvernd
ríkisins og leitað ráða, eða hjá heil-
brigðiseftirliti sveitarfélaga, áður
en þeir hefja innflutning. Það er
verra að bíða þar til varan er komin
í verslanir, því þá geta innflytjendur
lent í því að verða innkalla vöruna
með miklum kostnaði."
Allra hagur að inn-
flutningurinn sé í lagi
„Það er mjög gott þegar neytendur
sýna innflutningsmálum áhuga og
láta okkur vita ef þeir telja varhuga-
verða vöru vera á markaðnum,
sagði Gunnar. „Við þurfum að hafa
eftirlit með innflutningi og koma
af markaðnum þeim vörum sem
ekki samrýmast reglugerðum. Var-
an á ekki að koma inn í landið nema
hún sé í lagi. Neytendur verða geta
treyst því. Við hvetjum neytendur
til að láta okkur vita ef þeir sjá á
markaði vöru sem þeir telja að
standist ekki kröfur. Þetta eru ekki
aðeins málefni innflutningseftirlits-
ins, það er allra hagur að þessi mál
séu í lagi — því við erum öll neyt-
endur.“
M. Þorv.
EINSKONAR ÁST
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Með tvær í takinu („Love at
Large“). Sýnd í Sljörnubíói.
Leikstjóri: Alan Rudolph. Að-
alhlutverk: Tom Berenger,
Elisabeth Perkins, Anne Arc-
her, Ann Magnusson, Annette
O’Toole, Kate Capshaw.
Með tvær í takinu, ný gaman-
mynd frá hinum sérstaka og oft
frumlega leikstjóra Alan Ru-
dolph, byrjar í launfyndnum film
noir stíl þegar einkaspæjari
nokkur, leikinn af Tom Beren-
ger, hittir viðskiptavin sinn á
hinum rökkvaða veitingastað
„Dóná svo blá“. Viðskiptavinur-
inn er afar tælandi og dularfull
dama í nauðum, leikin frábær-
lega af Anne Archer, sem vill
að spæjarinn elti manninn sinn,
Rikka, sem hana grunar að haldi
framhjá.
Berenger er samviskusamur
spæjari, það vantar ekki, en hann
er engin mannvitsbrekka, og
þegar hann fer af stað hengir
hann sig auðvitað eins og frakka
á rangan mann, kemst að því
að sá er tvíkvænismaður og
sendir æ áhyggjufyllri Archer
skýrslu um málið. Það sem Ber-
enger fær ekki séð er að einhver
er líka á hælunum á honum,
kvenspæjari (Elizabeth Perkins)
sem sambýliskona Berengers
(Ann Magnusson) sendir á eftir
honum því hún heldur að Beren-
ger sé ekki í vinnunni heldur að
halda. framhjá.
Og loks heldur önnur eigin-
kona (Kate Capshaw) tvíkvænis-
mannins framhjá á meðan hin
(Annette O’Toole) hefur sívax-
andi áhyggjur af löngum fjarver-
um bónda síns.
Alan Rudolph hefur búið til
glettilega kómíska framhjá-
haldsflækju til að íjalla um ást-
ina í mörgum skondnum útgáf-
um og sannar það sem Leonard
Cohen syngur í titillaginu að
engin finnst lækningin við ást-
inni. Mynd Rudolphs er laun-
fyndin, frískleg og frumleg útt-
elt á sígildu viðfangsefni með
mörgum afar sérkennilegum en
um leið skemmtilegum persónum
og dularfullum í myrkvuðu en
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Bíóborgin/Bíóhöllin:
Dick Tracy
Leikstjóri: Warren Beatty.
Handrit Jim Cash og Jack
Epps, Jr. Aaðalleikendur
Warren Beatty, Madonna,
Charlie Korsmo, Glenne He-
adly, A1 Pacino, Dustin Hoff-
man, ofl. Bandarísk. Touch-
stone 1990. Bönnuð yngri en
10 ára.
Warren Beatty er maður hug-
aður og metnaðargjam, hefur
verið einn af „gulldrengjum"
Hollywoodborgar, allar götur frá
því hann kom heiminum á óvart
með hugarfóstri sínu, Bonnie og
Clyde, seint á sjöunda áratugn-
um. Lék svo aftur sama hlutinn
með Reds (’81), þvert ofaní spár
slógu báðar þessar myndir eftir-
minnilega í gegn hjá almenningi
grínaktugu umhverfi spæjara-
sögunnar. Hun fellur örugglega
ekki að smekk allra þessi mynd
en þeir sem á annað borð falla
inní taktinn eiga eftir að njóta
hennar vel.
Sagan heldur kannski ekki
alltaf vatni — sérstaklega er
kaflinn með Archer og Paul Yo-
ung, sem leikur súpersvalann
Rikka, illskiljanlegur — en það
kemur einhvern veginn aldrei að
sök. Með tvær í takinu er lítil
mynd og ódýr, her er ekki fyrir-
ferðin á bröndurunum, havarí og
og í röðum gagnrýnenda. Og þá
er iðnaðurinn ánægður. Og nú
er röðin komin að teiknimynda-
hetjunni Dick Tracy, sem glatt
hefur Vesturheimsbúa frá upp-
hafí fjórða áratugarins. Og hún
gefur fyrri myndunum lítið eftir
því Beatty hefur tekist að skapa
eina bestu, leiknu teiknimynd
allra tíma. Einfaldlega sökum
þess að hann héfur lyft sögunni
með fyllstu varúð af teiknimynd-
asíðunum á tjaldið, raskað sem
minnst litum, umhverfi og per-
sónum og texti er vafningalaus,
jafn skýr og klár og knappur og
á pappírnum. En Beatty getur
orðið á í messunni sem öðrum,
Akkillesarhæll hans er Madonna.
Þessi afbragðssöngkona og stór-
stjarna opinberar æ betur með
hverri myndinni að hún er
hörmuleg leikkona og myndavél-
in felur ekki óviðfelldna persón-
una þar sem virðist fara saman
einsatakur hroki og ofgnótt sjálf-
sálits. Dick Tracy er einstaklega
læti, heldur er frásögnin öll lögð
upp á lágstemmdum nótum er
dregur enn frekar fram hina
lúmsku gamansemi sem byggir
að mestu á sambandinu á milli
persónanna. Streitan er mest
undir yfírborðinu og andrúmið
fullt af grunsemdum og tryggð-
arsvikum í bland við misskilning
og laumulegar persónunjósnir.
Þótt aðalsöguhetjan sé kari-
maður er myndin mest um konur
og Rudolph hefur fengið til liðs
við sig fimm efnilegar og
skemmtilegar leikkonur til að
leika hinar ólíku kvenpersónur
og undir hans öruggu stjórn
standa þær sig hver á sinn ólíka
hátt með stakri prýði.
skemmtilega stíliseruð mynd og
vel heppnuð, en þegar ódýr og
uppbelgdur munnsvipur frekju-
dollunnar þekur tjaldið, samfara
atriðum sem hæfa betur miðl-
ungs söng-og dansamynd frá
árum áður, fer allt í verra.
Aðrar persónur og gervi
þeirra, eru undantekningarlaust
skemmtun fyrir auga og eyra í
þessari skýrt dregnu mynd um
baráttu harðjaxlsins Tracy við
skálka undirheimanna. Vita-
skuld standa þeir þó uppúr, Hoff-
man og Pacino, sýna báðir dýr-
lega afkáralegan gamanleik. Ég
spái þeim yfírhönnuði myndar-
innar, Richard Sylbert og öllu
hans fólki, og kvikmyndatöku-
stjóranum Vittorio Storaro,
Óskarsverðlaunatilnefningu, ef
ekki verðlaununum. Inní þessa
eftirminnilegu mynd, sem þó
höfðar eiginlega ekki til neins
ákveðins aldurhóps, er fléttað
Ijúfu Dickensævintýri.
Meistaralöggan og Madonnan
V estmannaeyjar:
Busavígsla í Fram-
haldsskólanum
Vestmannaeyjum.
NÝNEMAR í Framhaldsskólan-
um í Vestmannaeyjum voru
teknir inn í samfélag skólans
með busavígslu fyrir skömmu.
Busavígslan fór fram með öðru
sniði en áður. Fram til þessa hafa
busarnir verið baðaðir í illa þe-
fjandi vatnsblöndu en nú var ann-
ar háttur hafður á. Busarnir voru
leiddir inn í sal skólans einn af
öðrum, málaðir í framan og síðan
vora þeir látnir leika hinar ýmsu
kúnstir fyrir eldri nemendur
skólans. Þeir vora látnir skríða
eftir gólfinu, geltandi, mjálmandi
eða jarmandi éða þeir hoppuðu á
einum fæti gaggandi eins og hæn-
ur. Að því loknu voru þeir látnir
syngja eða fara með látbragðs-
leiki.
Þeir fáu sem ekki vildu hlýða
böðlunum vora leiddir fyrir rétt
en síðan vora þeir látnir taka út
sína refsingu sem fólst í því að
þeir vora grýttir eggjum.
Um kvöldið var síðan Busaball
þar sem nýnemar og þeir eldri
skemmtu sér saman í sátt og sam-
lyndi.
Grímur
Morgunblaðið/Grímur Gíslason
Nýnemar í framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum voru teknir inn í
samfélag skólans með busavígslu fyrir skömmu.
Húsavík:
Sjúkrahús-
ið 20 ára
Húsavík.
Á ÞESSU ári eru 20 ár liðin
síðan Sjúkrahúsið í Húsavík sf.
flutti í núverandi húsnæði.
Af því tilefni hefur stjórn þess
ákveðið að minnast þessara tíma-
móta hinn 6. október nk. og verð-
ur stofnunin þá opin almenningi
til sýnis milli klukkan 14 og 18.
Þá gefst kostur á að skoða húsið
og kynnast starfsemi þess.
Forveri þessa sjúkrahúss —
gamli spítalinn — tók til starfa
hinn 17. nóvember 1936, en áður
höfðu verið rekin hér svokölluð
sjúkraskýli allt frá árinu 1912.
HÁSKÓLI ÍSLANDS
Endurmenntunarnefnd
TMvunatkin lyiii Pt-tilw
REIKNISTOFNUN
HÁSKÓLA ÍSLANDS
Þetta er eitt af vinsælustu námskeiðum
okkar, þar sem byrjendum eru kennd und-
irstöðuatriði í tölvunotkun. Námskeið, sem
standa yfir í lengri tíma, hafa reynst mjög
vel, því þau gefa fólki kost á að prófa sig
áfram samhliða námsefninu. Farið verður
í ritvinnslu (WordPerfect), töflureikni,
(PlanPerfect) og stýrikerfið MS-DOS.
Verð: 23.000,-
Leiðbein.: Guðmundur Ólafsson, hagfr.
og stundakennari H.í.
Tími: 1. okt. - 3. des. á mánudagskvöldum
kl. 20.00-22.30, auk frjálsra æfingatíma í
tölvum Háskólans.
Ath.: Starfsmenntasjóðir BSRB, SFR,
BHMR og Verslunarmannafélags Rvk.
styrkja félagsmenn á þetta námskeið.
Skráning fer fram á skrifstofu endur-
menntunarnefndar í símum 694923,
694924 og 694925.
- Fréttaritari