Morgunblaðið - 27.09.1990, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 1990
Ný menntaviðmið Páfagarðs:
Vísindamönnum og kenn-
urum ber að fylgja kenni-
setningum kirkjunnar
Páfagarði. Reuter.
BIRTAR voru í Páfagarði á þriðjudag reglur, sem lengi hefur verið
beðið, er varða viðmið þau er katólskum mönnum ber að styðjast við
á sviði æðri menntunar. Reglur þessar taka alls til 925 menntastofn-
ana um heim allan en í skjalinu lýsir Jóhannes Páll páfí II yfir því
að kennurum og rannsóknarmönnum beri að virða grundvallarkenni-
setningar kirkjunnar jafnt á sviði
Litið er á þessa yfirlýsingu páfa
sem svar hans við gagnrýni sem
fram hefur komið á hefðbundna
afstöðu kirkjunnar m.a. til fóstur-
eyðinga, getnaðarvarna og tiltek-
inna rannsókna líffræðinga, sem
talsmenn Páfagarðs hafa sagt sið-
lausar í eðli sínu. Unnið hefur verið
í 11 ár að skilgreiningu viðmiða
þessara, sem biskupum kirkjunnar
er aetlað að sjá til að verði virt.
í yfirlýsingu páfa segir að
tryggja beri sjálfstæði katólskra
skóla sem menntastofana og virða
beri andlegt frelsi þeirra sem þar
starfa. Katólskum kennurum beri á
hinn bóginn að fara eftir kenning-
■ RÓMABORG- Þekktasti rit-
höfundur Ítalíu, Alberto Moravia,
er íátinn á 83. aldursári. Hann skrif-
aði yfir 20 bækur og var aðalvið-
fangsefni hans konur, kynlíf og sið-
ferði ítölsku miðstéttarinnar. Hlaut
hann alþjóðafrægð árið 1947 með
ævisögu rómverskrar portkonu.
Hafa margar bóka hans verið þýdd-
ar á erlend tungumál.
■ HAMBORG- Saksóknari í
Vestur-Þýskalandi hefur gefið út
ákæru fyrir meinta morðtilraun á
hendur Mathias Rust, sem öðlaðist
heimsfrægð fyrir að lenda smáflug-
vél á Rauða torginu 1987. Hann
stakk 18 ára stúlku tvisvar með
hnífi er hún neitaði að þýðast hann
kynferðislega. Atburðurinn átti sér
stað í nóvember í fyrra á sjúkra-
húsi þar sem þau bæði unnu. Verði
Rust, sem er 22 ára, fundinn sekur
á hann yfir höfði sér a.m.k. þriggja
ára fangelsisvist.
trúar- og siðfræði.
um kirkjunnar og siðfræði hennar
og öðrum kennurum beri.að sýna
grundvallarkennisetningum katól-
skra fræða tilhlýðilega virðingu.
Mikilvægt sé að kennsla í guðfræði
fari fram í samræmi við texta guð-
spjallanna og af virðingu fyrir
ríkjandi hefðum innan katólsku
kirkjunnar og valdi hennar á sviði
æðri mennta.
Á undanförnum árum hafa ráða-
menn í Páfagarði varað vísinda-
menn, einkum í katólskum háskól-
um í Belgíu og Frakklandi, við því
að gangast fyrir rannsóknum er
brjóti gegn siðfræðikenningum
kirkjunnar. Hefur þessari gagnrýni
einkum verið beint gegn gervi-
frjóvgunum og rannsóknum á sviði
erfðafræða. „Rannsóknir í katólsk-
um háskólum fara ævinlega fram
með tilliti til og fullri virðingu fyrir
þeim siðferðislegu grundvallaratrið-
um er varða bæði þær aðferðir sem
beitt er og þær niðurstöður sem
fengnar eru fram,“ segir í skjalinu.
Nokkrir katólskir guðfræðingar
í Evrópu hafa að undanfömu látið
í ljós efasemdir um að fylgja beri
áfram þeim hefðbundnu kennisetn-
ingum kirkjunnar er mæla gegn
getnaðarvömum, samkynhnéigð og
fóstureyðingum. Þessari gagnrýni
svarar páfi svo í skjalinu sem birt
var í gær: „Reynist það nauðsyn-
legt, verða starfsmenn katólskra
háskóla að hafa hugrekki til að
segja sannleikann, jafnvel þótt hann
geti í senn verið óþægilegur og litt
til vinsælda fallinn meðal almenn-
ings, en framfylgja ber til að
tryggja viðgang hins góða í samfé-
laginu.“
Reuter
Oskar Lafontaine flytur ræðu sína á síðasta flokksþingi Jafnaðarmannafíokks Austur-Þýskalands.
Oskar Lafontaine kanslaraefni jafnaðarmanna:
Þýskaland verði kjarn-
orkuvopnalaust svæði
Jafnaðarmenn eiga undir högg að sækja í kosningabaráttunni
Vestur-Berlín. Reuter.
OSKAR Lafontaine, kanslaraefni jafnaðarmanna í þýsku kosningunum
2. desember, hvatti til þess í gær, að öll bandarísk kjarnorkuvopn yrðu
Ijarlægð úr sameinuðu Þýskalandi. Sagði hann þetta á síðasta þingi
Jafnaðarmannaflokks Austur-Þýskalands og risu fundarmenn úr sætum
til að árétta fögnuð sinn vegna yfirlýsingarinnar. I dag verður austur-
þýski jafnaðarmannaflokkurinn formlega hluti af vestur-þýska flokkn-
um og er það lokaskrefið í samruna flokkanna fyrir sameiningu Þýska-
lands á miðvikudaginn í næstu viku.
í ræðu sinni á lokafundinum sagði
Oskar Lafontaine meðal annars: „Nú
þegar Austur-Þýskaland hefur verið
gert að kjarnorkuvopnalausu svæði
er aðeins rökrétt að öll kjarnorku-
vopn verði ijarlægð úr Þyskalandi."
Þjóðverjar eiga ekki sjálfir nein
kjamorkuvopn en þar eru hins vegar
bandarísk kjamorkuvopn í samræmi
við skuldbindingar samkvæmt varn-
arstarsamtarfi Atlantshafsbanda-
lagsþjóðanna (NATO).
Samkvæmt samkomulagi sem
Mikhaíl Gorbatsjov Sovétforseti og
Helmut Kohl, kanslari V-Þýskalands,
gerðu í sumar féllust Sovétmenn á
að Þýskaland yrði aðili að NATO,
ef ekki yrðu meira en 370.000 her-
menn í þýska hemum, ekki yrðu
kjamorkuvopn í austurhluta Þýska-
lands og Þjóðveijar framleiddu
hvorki kjamorku-, efna- né sýkla-
vopn.. Kohl skuldbatt sig hins vegar
ekki til að hundmð bandarískra
kjyrnorkuvopna yrðu fjarlægð frá
Þyskalandi.
Skoðanakannanir sýna, að Jafnað-
armannaflokkurinn (SPD) nýtur
miklu minna fylgis en stjómarflokk-
arnir tveir, Kristilegi demókrata-
flokkurinn (CDU) undir forystu
Kohls og Fijálsi demókrataflokkur-
inn (FDP). Könnun sem sjónvarps-
stöðin ZDF lét gera um miðjan sept-
ember sýnir 43% fylgi kristilegra
demókrata en 25% fylgi jafnaðar-
manna.
Fréttaskýrendur eru sammála um,
að almenningur treysti Kohl mun
betur en Lafontaine til að takast á
við hinn mikla vanda, sem fylgir
sameiningu Þýskalands. Kohl leggi
áherslu á bjartsýna þjóðerniskennd
en Lafontaine reki neikvæða kosn-
ingabaráttu og telji að sameiningin
verði mun dýrari en Kohl vilji viður-
kenna og leiði óhjákvæmilega til
skattahækkana.
Oeirðimar í Suður-Afríku
eru ekki átök milli þjóða
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Tim Mazeko, fulltrúi Afríska þjóðarráðsins I Suður-Afríku.
—segir Tim Mazeko fulltrúi Afríska
þjóðarráðsins í Kaupmannahöfn
ÁTOKIN í Suður-Aft-íku undanfarnar vikur eru fyrst og fremst
af félagslegum og stjórnmálalegum orsökum, ekki þjóðaátök zúlú-
manna og xhosa. Mangosuthu Buthelezi vill ekki að aðskilnaðar-
stefnan (apartheid) víki því að völd hans byggjast á henni,“ seg-
ir Tim Mazeko, fulltrúi Afríska þjóðarráðsins (ANC). Hann er
nú staddur hér á landi i boði Suður-Afríkusamtakanna en Maz-
eko er fulltrúi ANC í Danmörku, Færeyjum og á Islandi. Hann
hefur m.a. rætt við fulltrúa íslenskra kennarasamtaka og mun
hitta talsmenn stjórnvalda og verkalýðssamtaka. Mazeko varð á
sínum tíma að flýja land vegna þátttöku í baráttunni gegn apart-
heid og veitti í tíu ár forstöðu menntaskóla ANC i Tanzaniu þar
sem um 1.500 útlægir unglingar frá S-Afríku njóta kennslu.
Mazeko sagði nær fimm þúsund
manns hafa fallið í átökum xhosa
og zúlumanna síðustu fimm árin
. Lengst af hefðu óeirðirnar eink-
um verið í héraðinu Natal þar sem
æðsti maður zúlumanna, But-
helezi, segðist hefði töglin og
hagldimar. „Vesturlandabúar
segja að þetta séu innbyrðis átök
svartra. Við segjum að apartheid
sé undirrót þessa alls. Almenning-
ur vill einfaldlega binda enda á
apartheid og koma á lýðræði í
Suður-Afríku. Buthelezi vill út-
rýma allri andstöðu við sín eigin
völd, eigin stefnu. Buthelezi er
þátttakandi í bantustan-kerfi
hvítra, sem vilja að svartir búi á
skýrt afmörkuðum svæðum, svo-
nefndum heimalöndum, og hann
vill viðhalda því. Viðræður um
framtíð landsins hafa verið milli
fulltrúa ANC og stjómar hvítra.
Buthelezi finnst hann vera útilok-
aður og stefnir þess vegna nú
sínum mönnum til Transvaal þar
sem þeir ráðast á fólk af handa-
hófi.“
Afstaða til refsiaðgerða
Buthelezi og Inkatha-hreyfing
hans hafa verið andvíg efnahags-
legum refsiaðgerðum, einu helsta
baráttumáli ANC á alþjóðavett-
angi, gegn stjóm hvítra og fleiri
hafa haft uppi efasemdir um gildi
og réttmæti þeirra aðgerða, þ. á.
m. dóttir Nelsons Mandela. Maz-
eko var spurður hvort þessar
pólitísku deilur ættu engan þátt
í átökunum, og var jafnframt
minntur á að blóðug þjóðaátök
hefðu orðið í Líberíu og víðar án
þess að apartheid Suður-Afríku-
manna kæmi við sögu. „Ég skil
ekki fyllilega hvað þú átt við. Við
erum að ræða um S-Afríku og
þú vilt ræða um alla Afríku. Við
fullyrðum að átökin í S-Afríku séu
ekki þjóðemisleg. Buthulezi not-
færir sér blóðug, félagsleg átök
til að reyna að tryggja stöðu sína,
heimtar nú fund með Mandela.
Sjálfur á Buthelezi allt sitt undir
því að núverandi valdakerfi og
klofningi blökkumanna verði við-
haldið. Hvarvetna þar sem But-
helezi hefur einhver völd hefur
komið til blóðugra átaka. ANC
vill sameinaða Suður-Afríku, án
tillits til hörundslitar eða þjóðem-
is.“
De Klerk þvingaður til
umbóta
Mazeko sagðist telja að F.W.
de Klerk, forseti Suður-Afríku,
hefði líklega farið til Banda-
ríkjanna til að biðja George Bush
forseta auðmjúklega að aflétta
efnahagslegu refsiaðgerðunum.
Röksemdimar væru þær að hann,
de Klerk, hefði komið á breyting-
um til batnaðar. „Við segjum að
breytingamar að undanfömu séu
ekki de Klerk að þakka, þegar
öllu sé á botninn hvolft. Hann er
ekki einu sinni umbótasinni, þótt
hann hafí vissulega stigið fáein
spor í rétta átt og sjálfsagt sé að
virða það. S-Afríka býr nú við
efnahagslega einangrun og þessi
staðreynd, ásamt pólitískri bar-
áttu fólksins í landinu, hefur vald-
ið stefnubreytingunni. Það má
ekki aflétta refsiaðgerðunum og
banni við ijárfestingum i S-Afríku
fyrr en ljóst er að apartheid-stefn-
an er komin á leiðarenda.“ Maz-
eko sagði ANC samt viðurkenna
að stefna de Klerks hefði breytt
pólitísku andrúmslofti í landinu
en legði áherslu á að honum hefði
verið þröngvað í rétta átt.
Blandað hagkerfi
Er spurt var um áhrifin af falli
kommúnismans á stefnu samtak-
anna svaraði Mazeko því til að
andstæðingar ANC hefðu ávallt
reynt að bendla forystuna við
kommúnisma. Markmið ANC
væri hins vegar að blökkumenn
fengju frelsi og eðlileg mannrétt-
indi en fengju samtökin völd í
fijálsum kosningum myndu þau
koma á blönduðu hagkerfi. Hefð-
bundnar, sósíalískar hagfræði-
kenningar yrðu ekki leiðarljósið
en ríkisrekstur yrði þó að vera á
sumum sviðum, s.s. orkuveitum
og í jámbrautakerfínu. Ríkisvald-
ið yrði að geta haft umráð yfir
fé til að aðstoða blökkumenn og
bæta lífskjör þeirra, stjórn hvítra
hefði notað opinbert fé til að kúga
svarta. Keppikeflið yrði að bæta
hag 22ja milljóna blökkumanna
sem útilokaðir hefðu verið frá
eðlilegri þátttöku í stjórnmála- og
efnahagslífí landsins. Ella gætu
ekki orðið framfarir í hinni nýju,
lýðræðislegu Suður-Afríku. „Ég
legg áherslu á að ANC vill ekki
einoka stefnuna í málefnum
S-Afríku. Við viðurkennum að í
röðum blökkumanna fínnst fólk
með aðrar skoðanir en okkar. En
við ættum öll að vinna saman í
bráðabirgðastjórn sem undirbyggi
fijálsar kosningar og nýja stjórn-
arskrá."