Morgunblaðið - 27.09.1990, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 1990
25
Breskir iðnrekendur:
Mesti samdráttur í efnahagslífi í 8 ár
St. Andrews. Frá Guðmundi H. Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins
SAMTÖK breskra iðnrekenda, CBI (Confederate of British Industry),
segja samdráttinn í efnahagslífinu nú þann mesta í að minnsta kosti
8 ár. Þeir vilja að vextir verði lækkaðir.
Breskir iðnrekendur gáfu á mánu-
dag út mánaðarlega skýrslu sína um
ástand í breskum iðnaði. í henni eru
upplýsingar frá 1405 breskum iðn-
fyrirtækjum, og meðal þeirra er um
helmingur breskra útflutningsfyrir-
tækja. 49% þeirra sögðu, að minna
væri um pantanir nú en venjulega.
10% þeirra sögðu, að pantanir væru
meiri en venjulega. Um 30% eiga
von á, að framleiðsla hjá sér dragist
saman á næstu mánuðum, en 20%
þeirra sögðust eiga von á aukningu.
Breskir iðnrekendur hafa ekki verið
jafn svartsýnir síðan árið 1982.
35% útflutningsfýrirtækja sögðu,
Færeyjar:
Þingi frest-
að vegna fót-
boltaleiks
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun,
fréttaritara Morgunblaðsins.
FUNDUM færeyska lögþingsins
um ijárlagafrumvarp stjórnar-
innar hefur verið frestað þar
sem þingmenn vilja fremur
fylgjast með knattspyrnulands-
leik Færeyja og Danmerkur í
Kaupmannahöfn. Þingfundir
voru ráðgerðir sama dag.
Agner Nielsen, forseti lögþings-
ins, sagði óumflýjanlegt að fresta
fundum þar sem fjöldi þingmanna
hefði boðað forföll þar sem þeir
vildu heldur skreppa til Kaup-
mannahafnar til að fylgjast með
leiknum en sitja heima og rífast
um fjárlögin.
Nielsen sagðist ekki heldur hafa
átt von á að margir fylgdust með
þingfundum í útvarpinu þar sem
bein sjónvarpsútsending frá leikn-
um væri fyrirhuguð á sama tíma,
en hann fer fram 10. október.
Færeyskir skólastjórar báðu
landsstjórnina um leyfi til að flytja
haustfrí skólanna fram til þess að
nemendur þeirra gætu skroppið á
leikinn en þeirri ósk var hafnað.
að pantanir væru minni en venju-
lega, en 14% þeirra sögðu þær vera
eins og venjulega. Þetta er mun
verra en í ágúst sl.
John Banham, framkvæmdastjóri
CBI, sagði í fjölmiðlum um helgina,
að brýn nauðsyn væri á lækkun
vaxta til að koma í veg fýrir enn
frekari samdrátt. Þetta er veruleg
stefnubreyting hjá iðnrekendum, því
fyrir hálfum mánuði lýstu þeir yfir
fullum stuðningi við stefnu stjómar-
innar í efnahagsmálum, þar á meðal
háa vexti.
John Major, fjármálaráðherra,
sem er á ársfundi Alþjóða gjaldeyris-
sjóðsins í Washington, sagði um
helgina, að ekki væri um að ræða
samdrátt heldur væri efnahagslífið
að hægja á sér. Samdráttur væri
einungis, þegar framleiðsla hefði
minnkað tvo ársfjórðunga í röð. Það
væri nauðsynlegt að hægja á efna-
hagslífinu til að verðbólga lækkaði
og það hefði alltaf verið stefna
stjórnvalda. Það væri engin sárs-
aukalaus leið til, til að ná verðbólg-
unni niður.
Efnahagsséfræðingar segja
Iíklegt, að Bretar gangi inn í mynt-
samvinnu Evrópubandalagsins nú í
haust og í kjölfar þess lækki vextir
eitthvað. John Major sagði að engin
breyting hefði orðið á þeirri stefnu,
að ganga inn í samvinnuna við fýrstu
hentugleika.
Viðskiptahallinn við útlönd í ágúst
var 1,1 milljónir sterlingspunda eða
ríflega 110 milljarðar ISK. Það er
töluverður bati frá mánuðinum á
undan og bendir til, að eftirspum
innanlands hafi dregist saman.
Til London með
íslenskum fararstjóra
fyriraðeins
kr. 33.900,- hjá Veröld
- Islenskir fararstjórar
- Ferðir til og frá fiugvelli - Gisting á afbragðsgóðum hótelum
Brottfarir:
11. okt. 6 sæti laus
14. okt. 8sætilaus
18. okt. 12 sæti laus
21. okt. Uppselt
25. okt. 16 sæti laus
HRpIB
AUSTURSTRÆT117,101 REYKJAVÍK. SlMI: (91) 622011 & 622200.
gS222325SM
aukne cht
ÞÝSK GÆÐATÆKIÁ GÓÐU VERÐI
m
'
KÆUSKAPAR
FRYSTISKÁPAR
0G
MARGT
FLEIRA
ELDAVÉLAR
OG
0FNAR
UPPÞVOTTAVÉLAR
ÞVOTTAVÉLAR
W' /
ÞURRKARAR
RMBtí
KAUPFÉLOGIN
UM LAND ALLT
SAMBANDSINS
HÓLTAGÖRÐUM SÍMI 68 55 50
m MIKLAGARÐ
Gríptu tækifærið!
GoldStar síminn
m/símsvara á aðeins
kr. 9.952.-
istgr..m/vsk).
• Sími og símsvari í einu tæki
• Fjarstýranlegurán auk^tækja
úr öllum tónvalssímum
- hvaðan sem er
• 10 númera skammvalsminni
• Fullkomnar leiðbeiningar á
íslensku
• 15 mánaða ábyrgö
• Póstsendum.
KRISTALL HF-
SKEIFAN 11B - SÍMI 685750
Minnum á GoldStar
tölvurnar og símkerfin
Yale
,púllarar“
Níðsterkir fisléttir
Yale - gæði - ending
£ JÓHANN ÓLAFSSON & C0. HF.
43 Sundaborg 13-104 R«yk)*vik - Stmi 668 S88
Úlpur st. 36-52
Verð 11.800,-
\ZUUillLHUUi
v/Laugalæk