Morgunblaðið - 27.09.1990, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 1990
Minning:
Finnur Hermannsson
h úsasmíðameistari
Fæddur 15. janúar 1926
Dáinn 20. september 1990
í dag er til moldar borinn frá
Bústaðakirkju Finnur Hermanns-
son, húsasmíðameistari, Vestur-
bergi 12, Reykjavík.
Hann fæddist að Króki í Selár-
dal, Arnarfirði, 15. janúar 1926.
Foreldrar Finns voru þau
sæmdar hjón Guðrún Andrea Ein-
arsdóttir fædd að Uppsölum í Sel-
árdal, og Hermann Kristjánsson
fæddur í Krossadal í Tálknafirði.
Hermann faðir Finns stundaði út-
gerð og sjósókn fyrir vestan, en
fluttisttil Patreksfjarðar árið 1930
og svo til Reykjavíkur árið 1936.
Hann stundaði þar verslunarstörf,
og fór svo í útgerðina aftur af
fullum krafti, bæði frá Reykjavík
og Grindavík, með aðstoð sona
sinna, fyrirtæki þeirra í Grindavík
haét Arnarvík og bátarnir allir
Arnfirðingar. Hermann lést árið
1977.
Ég minnist Finns sem lítils
drengs og jafnaldra vestur í Selár-
dal. Eg minnist hans þar gegnum
öll barnaskólaárin sem leikfélaga
og fermingarbróðurs. Ég minnist
hans sem skipsfélaga á þessum
árum, því við vorum báðir hásetar
hjá Gesti á Skeiði, á Maríu hans,
en María þessi var lítill trillubátur
eins og þeir voru í þá daga.
Þegar foreldrar Finns fluttu til
Patreksfjarðar árið 1930 var hann
eftir I Selárdal. Á Skeiði er hann
alinn upp til fermingaraldurs hjá
því ágætisfólki er þar bjó, en það
voru Gestur Jónsson og Bjarghild-
ur jÞórðardóttir.
Ég minnist Finns er við hleypt-
um heimdraganum og fluttum að
vestan og þá með Heklunni til
Reykjavíkur, byrjuðum þá að
vinna í Bretavinnunni sem kölluð
var á stríðsárunum. Finnur eign-
aðist síðan vörubíl og keyrði frá
vörubílastöðinni Þrótti.
Hann hóf nám í húsasmíði hjá
frænda sínum Magnúsi Oddssyni,
mikilsmetnum húsasmíðameist-
ara. Hann fékk sveinsbréf í hús-
asmíði 8. nóvember 1950 með
fyrstu ágætiseinkunn. Ég minnist
Finns er við unnum saman sem
sveinar í húsasmíðinni.
Ég minnist vinnuferðanna er
við fórum út á land á námsárum
okkar í sumarfríunum en þá varð
að auka tekjurnar með því að
vinna.
Finnur vann við sína iðngrein
meðan heilsan leyfði, síðan vann
hann sem vaktmaður hjá olíufé-
laginu Skeljungi, og svo kemur
hjálpartæki til sögunnar sem hjól-
astóll heitir, Finnur var alltaf
bundinn honum æ síðan.
Við systkinin frá Selárdal mun-
um alltaf líta á Finn sem nokkurs-
konar bróður okkar, og einn úr
systkinahópnum.
Við minnumst hans að vestan,
við minnumst allra þorrablótanna
sem við héldum, þá alltaf heima
hjá Finni og Stellu því þá var Finn-
ur kominn í hjólastólinn.
Ég minnist Finns lengst sem
mannsins með sterku sálina.
Finnur fékk meistarabréf í
húsasmíði 11. janúar 1954.
Þann 4. apríl 1953 giftist Finn-
ur þeirri ágætiskonu Ingibjörgu
Ólöfu Jóhannesdóttur, Reykjavík-
urbarni og Reykjavíkurkonu. Hún
fæddist 7. október 1931, hún dó
10. nóvember 1986. Ingibjörg, eða
Stella eins og hún var alltaf köll-
uð, var dóttir hjónanna Ágústu
Skúladóttur og Jóhannesar Sigur-
björnssonar.
Finnur og Stella byijuðu sinn
búskap á Laugateignum en fluttu
svo í Akurgerði 28 árið 1954, í
þeirra eigin hús sem þau lögðu
ómælda vinnu í eins og aðrir frum-
byggjar þessara nýju Reykjavíkur-
hverfa. Þar sem að hús þetta hent-
aði ekki nógu vel eftir sjúkdóm
Finns, var brugðið á það ráð að
J^p;.:yðmná; á
komistli
-Fundið kaupendur
samband við þá?
•Nýtt mótbárur til
SÖLUNÁM
Hagnýtt námskeið fyrir þá
sem vilja ná betri árangri
með markvissum aðferðum
í sölumennsku:
Leiðbeinandi er Ólafur Ólafsson
markaðs-og rekstrarráðgjafi
frá Örvtrn.
Námskeiðið er 24. klst.
kaupa hús á einum gólffleti í Vest-
urbergi 12.
Finnur og Stella áttu miklu
barnaláni að fagna, þau eignuðust
5 mannvænleg börn. Þau eru:
Ágúst Þór, kvæntur Svandísi El-
ínu Eyjólfsdóttur. Einar, kvæntur
Áslaugu Guðmundsdóttur. Ásdís,
kvænt Kjartani Jóni Kjartanssyni.
Gunnar, sambýliskona Helga
Bjarnadóttir. Bjarghildur, sambýl-
ismaður Skúli Bjarnason. En þau
Helga og Skúli eru systkini.
Barnabörnin eru 8. Systkini
Finns eru: Sólveig, Stella, Óskar,
Björgvin og Kristján en hann er
dáinn fyrir tveimur árum. Öllum
þessum börnum, tengdabörnum
og systkinum og öðrum aðstend-
endum Finns Hermannssonar
votta ég mína innilegustu samúð,
og bið almáttugan guð að vera
með ykkur öllum.
Við hjónin áttum margar
ánægjustundir með Finni og Stellu
sem við þökkum af alhug fyrir.
Far þú í friði,
friður guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Davíð Kr. Jensson
Fyrir fundinn, ráðstefnuna
eða kaffistofu fyrirtækisins.
Sparaðu tíma og fyrirhöfn
notaðu Duni kaffibarinn!
Handhægur og þægilegur;
ekkert umstang,
-ekkert uppvask.
Fannir hf. - Krókhálsi 3
Sími 672511
* Beinn saumur
* zig-zag
* Blindfalds saumur
* Fjölspora zig-zag
* M-saumur
* Hálfmáni
* Loksaumur
* Fuglaspor
* Styrktur beinn saumur
* Tvöfalt zig-zag
ShJBíÍB
S SAMBANDSINS
VIÐ MIKLAGARÐ SÍM AR 68 55 50 - 6812 66
CIMPCD
3I irff
Melodie 100 saumavélarnar hafa upp
á að bjóða 10 gerðir af fallegum
nytjasaumum og teygjusaumum
auk nokkurra skrautsauma og svo
auðvitað loksaum.
Pær eru með sjálfvirkan
hnappagatasaum sem saumar
hnappagöt af öllum stærðum.
Þú hefur e.t.v. gaman af að ’vita aö rúmlega
2,5 miiljón SINGER saumavélar eru nú
framleiddar ár hvert - hinar fyrstu fyrir
rúmum 135 árum. I þessu liggur skýringin
á gæðum véianna og sanngjörnu verði.
Melodie 100
Módel 5910