Morgunblaðið - 27.09.1990, Page 50
50
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 1990
KNATTSPYRNA /EVROPUKEPPNI LANDSLIÐA
Þeir
gáfii
alltsem
þeir
áttu“
- sagði BoJohansson
Þrátt fyrir mikið mótlæti í byij-
un sýndu mínir menn mikið
keppnisskap og baráttu gegn Tékk-
um, sem eiga eitt besta landslið
Evrópu. Við byrjuðum illa en náðum
þó að veijast sóknum þeirra en
síðan kom reiðarslagið undir lok
fyrri hálfleiks. Maric á þessum tíma
er það sem öll landslið óttast,“ sagði
Bo Johansson þjálfari íslenska
landsliðsins.
„Tékkarnir voru farnir að ör-
vænta enda búnir að klúðra mörg-
um góðum færum. En þegar upp
er staðið er ég ánægður með mína
menn. Þeir gáfu allt sem þeir áttu
í leikinn og voru sársvekktir að fá
ekki stig. Fréttirnar af leik 21 árs-
liðsins þjöppuðu mínum mönnum
saman og þeir léku af krafti.
Hann vildi ekki gera upp á milli
manna í leiknum en sagði þó að
leikur Bjarna, Atla og Amórs hafi
glatt sig mest. „Það er ekki skömm
að tapa fyrir þessu liði,“ sagði Jo-
hansson.
„Nú þarf ég að glíma
við annað vandamál"
- sagði Guðni Bergsson, sem lagði atvinnuna að veði
Morgunblaðið/Písecký
Guðni Bergsson á æfíngu í Kosice fyrir landsleikinn.
GUÐNI Bergsson sýndi mik-
inn kjark og þor þegar hann
yfirgaf fast sæti sitt íliði Tott-
enham og kom hingað til
Kovice til að spila með
íslenska landsliðinu. Hann .
lagði atvinnu sína að veði til
að leika fyrir hönd íslands.
KSÍ lét reyna á reglur FIFA
um að fá Guðna lausan í leik-
inn og hótaði sex daga keppnis-
banni á hann ef hann kæmi ekki
til Tékkóslóvakíu. Þegar Guðni
var spurður um þetta eftir leikinn
í gær sagði hann að það væri
erfitt að taka þessa áhættu. „Ég
er alltaf tilbúinn að leika fyrir
hönd Islands, en formálinn fyrir
þennan leik var frekar leiðinlegur.
Ég var hálf nauðugur látinn
koma. Ég er búinn að sleppa
sæti mínu í liði Tottenham eins
og er og það getur farið svo að
allt mitt líf, sem knattspyrnu-
manns, breytist á næstu dögum.
Ég get ekki komið til Tottenham
aftur og sagt hér er ég. Það á
enginn atvinnuknattspymumaður
fast sæti í neinu liði þar sem eins
dauði er annars brauð," sagði
Guðni.
Guðni sagðist ætla skoða reglur
FIFA betur þegar hann kæmi til
London, en í fljótu bragði gæti
hann ekki séð að þessar reglur
gætu staðist. „Hér er um mann-
réttindamál að ræða og það getur
enginn sett reglur sem svifta
menn atvinnu sinni. Þetta er búið
að vera hið leiðinlegasta mál en
ég fer til London og tekst á við
næsta verkefni, það er að endur-
heimta sæti mitt í liði Tottenham.
Hvort mér tekst það kemur í ljós
þegar við spilum gegn Aston Villa
á laugardaginn kemur."
Reuter
„Það var sárt að geta ekki nýtt færið,“ sagði Rúnar Kristinsson um besta
marktækifæri íslands. Rúnar er hér felldur af Lubomir Rosavcik, en Arnór
Guðjohnsen er í baksýn.
Hvað sögðu þeir:
„Megum ekki liggja
of aftarlega“
Sigurður Grétarsson
„Við fengum tvö góð færi til
þess að veita Tékkum ráðningu og
það var sárt að geta ekki nýtt þau.
Ég er mjög ánægður með síðari
hálfleikinn og við verðum að halda
þessu leikkerfi í framtíðinni, færa
okkur framar og bíta frá okkur.“
Rúnar Kristinsson
„Þetta var mjög erfiður leikur.
Það var mikil pressa á okkur og
sorglegt að fá markið rétt fyrir leik-
hlé. Fyrir markið voru Tékkarnir
að brotna, orðnir mjög ergilegir og
farnir að rífast hver í öðrum. Það
var sárt að geta ekki nýtt færið sem
ég fékk, sendingin var góð en ég
hitti knöttinn ekki eins og ég hefði
viljað.“
Arnór Guðjohnsen
„Eins og ég hef sagt áður, meg-
um við ekki falla í þessa gryfju að
liggja of aftarlega. Við erum komn-
ir með mikinn styrk og eigum að
geta sýnt tennurnar. Dómarinn var
hörmulegur og ég missti stjórn á
skapi mínu þegar brotið var illa á
Ragnari. Ég lét hann heyra það og
fékk refsingu fyrir.“
Guðmundur Pétursson, for-
maður landsliðsnefndar KSÍ
„Strákunum tókst það sem fyrir
þá var lagt; að halda Tékkum niðri
fyrstu mínútumar og eftir á litið
getum við þakkað Bjarna Sigurðs-
syni að ekki fór ver Það hefði eng-
in getað sett út á leik hans þó hann
hefði fengið á sig þrjú mörk.“
Eggert Magnússon, formaður
KSÍ
„Ég er mjög ánægður með strák-
ana en það er eitt sem við þurfum
að læra af þessum leik, eins og
gegn Frökkum í Reykjavík, að við
megum ekki bera of mikla virðingu
fyrir andstæðingnum. Það var ekki
fyrr en við mótlæti að strákarnir
vöknuðu til lífsins."
SigmundurÓ.
Steinarsson
skrifar
frá Kovice
■ BO Johansson hefur heillað
tékkneska blaðamenn upp úr skón-
um. Hann hefur hrósað tékkneskri
knattspyrnu í hástert og á blaða-
mannafundi eftir
leikinn í gær gekk
hann að tékkneska
þjálfaranum, Milan
Macala, og óskaði
honum velfarnaðar í starfi og til
hamingju með gott landslið.
■ ÞEGAR Bovar spurður um
dvölina í Tékkóslóvakíu sagði
hann að það væru alltaf vissar
breytingar að koma til annars lands.
„En dvöl okkar hér hefur verið stór-
kostleg, þið hafið gert allt fyrir
okkur.“
■ ÁHORFENDUR settu mikinn
svip á leikinn hér í Kovice. 32.000
áhorfendur voru óþreytandi við að
búa til fagnaðarbylgjur á áhorf-
endapöllunum. Macalahrósaði
áhorfendum fyrir stuðninginn og
sagði að landsliðið ætti eftir að leika
oftar í Kovice.
■ EINN ljótur blettur var þó á
leiknum er drukkinn áhorfandi hljóp
inn í vítateig Tékka og þurftu lög-
reglumenn að skerast í leikinn og
íjarlægja manninn.
■ BJARNI Sigurðsson var verð-
launaður í leikslok fyrir að vera
besti Ieikmaður íslands, en Kubik
var útnefndur besti leikmaður tékk-
neska Iiðsins.
■ KOLFEV, dómari leiksins, lenti
í hrakningum fyrir leikinn þegar
flugvél frá Búlgaríu lenti ekki í
Kovice heldur flaug yfir og fór til
Prag. Hann var á ferðalagi í bíl
alla nótina fyrir leikinn, en 800 km
eru frá Prag til Kovice.
■ ÍSLENSKU landsliðsmennirnir
koma heim í kvöld nema Bjarni
Sigurðsson, Þorgímur Þráinsson
og Sævar Jónsson, sem verða eftir
hjá Guðna Í London.
■ ÞORGRÍMUR Þráinsson hef-
ur í mörgu að snúast þessa dag-
ana. Jafnframt því að leika knatt-
spyrnu er hann búinn að reka
smiðshöggið á nýja unglingabók,
en hann skilaði handritinu til pren-
tunnar þremur tímum áður en hann
hélt til Tékkóslóvakiu.
■ PÉTUR Pétursson gat ekki
leikið með íslenska liðinu í gær þar
sem hann var með flensu og var
settur á pensilínkúr.
Ein mistök komu okkur í koll
Eftír Martein
Geirsson
Hér í Kovice urðum við vitni
að leik liðsheildarinnar þar
sem allir spiluðu fyrir einn og einn
fyrir alla og gáfu allt sem þeir áttu
í leikinn. En ein mistök komu liðinu
í koll og þau urðu á hinu dæmi-
gerða augnabliki sem allir knatt-
spyrnumenn óttast, rétt fyrir leik-
hlé.
íslenska liðið lék vel í seinni
hálfleik eins og gegn Frökkum á
dögunum, en það sýnir okkur að
það þýðir ekki að spila vel í 45
mínútur til að vinna leik. Islensku
strákarnir byijuðu ágætlega en það
var greinilegt að þeir voru hræddir
og kom það fram í leik þeirra.
Þeir léku of aftarlega og þegar
þeir unnu boltann þá fylgdu varn-
armennimir ekki nægilega vel fram
og við það opnaðist svæði fyrir
Tékka til að vinna á.
Vörnin stóð sig samt vel þar sem
Atli Eðvaldsson var eins og kóngur
í loftinu. Kantmennirnir, Ólafur
Þórðarson og Sigurður Grétarsson,
léku varnarhlutverk sín vel og það
var gaman að sjá Sigurð Jónsson,
sém ég tel að hafi verið besti leik-
maður íslenska liðsins, sýna allar
sínar bestu hliðar.
Miðjan var nokkuð sterk og í
leikkerfinu 5-4-1 var erfítt fyrir
Ragnar að vinna gegn þremur
varnarmönnum Tékka, en hann
skilaði hlutverki sínu vel, hélt
knettinum og beið eftir aðstoð frá
félögunum. Það var allt annað að
sjá til íslenska liðsins í seinni hálf-
leik, en þá var eins og leikmennirn-
ir fengju sjálfstraustið. Þeir náðu
að halda knettinum vel og varnar-
leikmennirnir fór að taka þátt í
sóknaraðgerðum. Við vorum ekki
langt frá því að skora og oft mátti
sjá fjóra leikmenn vera komna í
fremstu víglínu. Arnór naut sín við
þessar aðstæður þrátt fyrir að hann
skorti leikæfingu. Enn einu sinni
átti Atli Eðvaldsson stórleik með
landsliðinu og það var gaman að
sjá hann leika eins og hann best
getur eftir að ekki hafi borið mikið
á honum í Ieikjum KR í 1. deild.
En Atli er þannig leikmaður að
hann gefur allt sem hann á til með
landsliðinu. Ólafar Þórðarson var
óþrjótandi á miðjunni. Það er leik-
maður sem bregst aldrei þegar á
hólminn er komið.
Leikurinn einkenndist af mikilli
baráttu og dugnaði leikmanna og
sýnt okkur að við erum færir í flest-
an sjó, hvort sem það er á heima-
velli eða útvelli. Það getur engin
þjóð bókað sigur gegn Islendingum
fyrirfram.
Ilöfundur er þjálfari U-21 árs lands-
liðsins í knattspyrnu.
KNATTSPYRNA / U-18
Oiuggur sigur
Ilenska U-18 landsliðið í knatt-
spyrnu átti stórgóðan leik gegn
Austurríkismönnum á Hvolsvelli í
gær og sigraði 3:0. „Þetta var góður
leikur miðað við að-
stæður og strákarnir
spiluðu skynsam-
lega. Ég átti von á
að Austurríkismenn-
irnir væru sterkari en það er ekkert
lið sterkara en mótheijinn leyfir. Við
komum þeim í opna skjöldu með
góðum leik,“ sagði Hörður Helgason
þjálfari liðsins eftir leikinn.
íslenska liðið lék undan hvössum
vindi og rigningu í fyrri hálfleik og
var mun sterkara. íslensku strákam-
ir byrjuðu af miklum krafti og fengu
vítaspyrnu strax á þriðju mínútu en
markmaðurinn varði í horn og upp
úr hornspyrnunni sóttu íslendingarn-
ir af miklum krafti og Kristinn Lár-
usson skoraði fyrsta mark leiksins.
Guðmundur Benediktsson komst i
gegnum vörn Austurríkismannanna
á 10. mínútu og vippaði boltanum
snyrtilega yfir markvörðinn og skor-
aði annað markið.
Strax í byijun síðari hálfleiks
fengu Austurríkismenn vítaspyrnu
en markvörður íslands varði örugg-
lega. Austurrísku strákarnir sóttu
af krafti en þeir íslensku beittu á
móti hættulegum skyndisóknum og
í einni slfkri skoraði Guðmundur
Benediktsson eftir fyrirgjöf frá Þórði
Guðjónssyni.
Veðrið setti sinn svip á leikinn og
gerði meðal annars að verkum að
sendingar leikmanna urðu ónákvæm-
ari en ella hefði verið. Þessi leikur
var fyrsti landsleikurinn sem fram
fer á Hvolsvelli og í Rangárvalla-
sýslu allri.
Óskar
Sigurðsson
skrifar