Morgunblaðið - 27.09.1990, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR
FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 1990
KNATTSPYRNA / UNDANKEPPNI EM LANDSLIÐA
„Eg er stottur af strákunum“ -
SigmundurÓ.
Steinarsson
skrífarfrá
Kovice
- sagði Bo Johansson, þjálfari íslenska
landsliðsins eftir 1:0 tap gegn Tékkum
„ALLIR mínir menn komu í þennan leik til þess að gera sitt
besta og það tókst þeim svo sannarlega. Eg get ekki annað en
verið stoltur af strákunum. Þeir spiluðu eins og þeir best geta;
börðust allan leikinn en voru ekki sáttir við úrslitin og það er
ég ánægðastur með,“ sagði Bo Johansson, þjálfari íslenska
landsliðsins, eftir að liðið hafði tapað fyrir Tékkóslóvakíu 1:0 f
landsleik þjóðanna í Kosice.
Geysileg stemmning var á vell-
inum og var greinilegt að
áhorfendur voru komnir til að sjá
stórsigur sinna manna. Tékkar ætl-
uðu sér að gera út-
um leikinn strax í
byijun og þeir voru
ekki langt frá því.
Aðeins meistaraleg
markvarsla Bjarna Sigurðssonar
kom í veg fyrir að boltinn hafnaði
í neti íslands tvisvar á fyrstu átta
mínútunum. 32.000 áhorfendur
stóðu á öndinni þegar Bjarni varði
glæsilega skalla frá Skuhravy á 6.
mínútu og sló knöttinn yfir þverslá.
Tveimur mínútum . síðar sló hann
aukaspyrnu Bilek yfir á glæsilegan
hátt.
Það var ljóst strax í byijun hvað
Tékkar ætluðu sér. Stöðugar há-
sendingar inní teiginn voni ætlaðar
Skuhravy, skallamanninum mikla,
sem varð fljótlega að^gefa eftir í
baráttu við ofjarl sinn, Atla Eð-
valdsson. íslenska liðið átti í vök
að veijast, lá aftarlega á vellinum
og það bauð Tékkum upp á stór-
sóknir. En Bjarni var sá þröskuldur
sem Tékkar áttu erfitt með að kom-
ast yfir og hann sá við skotum
Tékka. En hann varð þó að láta í
minni pokann á 43. mínútu er Dan-
ek komst á auðan sjó í markteig
Markið
kom eftir
mis-
skilning
Það var sárt að fá þetta mark
á sig eftir að hafa varið erfið-
ari skot. Pressan var mikil á okkur
og markið kom á versta tíma. Það
kom eftir misskilning á milli mín
og Óla. Hann átti möguleika á að
skalla knöttinn, en lét hann fara
fram hjá sér því hann hélt að ég
væri með hann. Ég kallaði aldrei
og ég oft sagt við strákana að ef
ég kalla ekki þá verði þeir að sjá
um boltann. Þegar ég lít til baka
þá get ég ekki annað en verið án-
ægður með að tapa aðeins eitt núll
fyrir fimmta besta liði heims,“ sagði
Bjarni Sigurðsson.
og skallaði knöttinn í netið. Áhorf-
endur fögnuðu gífurlega og roðinn
sást í austri.
Áhorfendur voru ekki jafn án-
ægðir í síðari hálfleik þegar íslend-
ingar drógu sig úr varnarskelinni
og hrelldu varnarmenn Tékka með
skyndisóknum. Ólafur- Þórðarson
átti fyrsta skot íslands að marki á
49. mínútu en Stejskal sá við hon-
um. Besta tækifæri íslands kom á
52. mínútu þegar Arnór Guðjohnsen
stakk boltanum inn á Rúnar Krist-
insson. En misheppnað skot Rúnars
var varið í horn. Eftir það skiptust
liðin á að sækja og var greinilegt
að Tékkar voru sáttir við 1:0 sigur
á heimavelli. Áhorfendur voru ekki
ánægðir og um miðjan síðari hálf-
leik voru þeir farnir að blístra á
sína menn, eftir að hafa sungið nær
allan leikinn: „Við viljum mörk“.
Það var greinilegt að mótspyrna
íslands fór í taugarnar á Tékkum
og sást það best þegar brotið var
gróflega á Ragnari Margeirssyni.
Búlgarska dómarann skorti kjark
til að gefa Tékkum spjald á heima-
velli en gaf Amóri það fyrir að
mótmæla. Og þegar upp var staðið
gengur sárir Islendingar af leikvelli.
íslenska liðið lék mjög vel og
sýndu strákarnir enn einu sinni að
þeir geta velgt bestu landsliðum
heims undir uggum. Það er á engan
hallað þó frammistaða Bjama Sig-
urðssonar sé sérstaklega nefnd.
Tékkóslóvakía- ísland
Kosice, undankeppni EM landsliða í knattspymu, 1. riðill, miðvikudaginn 26. september
1990.
Mark Tékka: Danek (43.)
Gul spjöld: Kubik, Tékkóslóavakíu. Atli Eðvaldsson, Sigurður Jónsson, Amór Guðjohn-
sen, íslandi.
Dómari: Todur Kolev frá Búlgaríu. Dæmigerður heimadómari.
Áhorfendur: 32.000.
Lið Tékka: Stejskal, Hipp, Kadlec, Hasek, Kocian, Kula, Bilek (Weiss 73.), Kubik,
Danek, Skuhravy, Moravicik.
Lið íslands: Bjami Sigurðsson; Guðni Bergsson, Þorgrímur Þráinsson, Sævar Jónsson,
Atli Eðvaldsson; Rúnar Kristinsson (Pétur Ormslev 76.), Sigurður Grétarsson, Sigurður
Jónsson, Ólafur Þórðarson, Ragnar Margeirsson (Kristján Jónsson 55.); Amór Guðjohnsen.
Reuter
Bjarni Sigurðsson átti mjög góðan leik í íslenska markinu í gær. Hann
bjargaði tvisvar glæsilega á fyrstu mínútunum og var mjög öruggur. Á mynd-
inni gómar hann eina af fjölmörgum fyrirgjöfum Tékka en Vaclav Danek sæk-
ir að honum. Þorgrímur Þráinsson og Tomas Skuhravy fylgjast með.
Islendingar með gott lið“
99
Geta íslendinga kom mér ekki
á óvart. Ég varð vitni að því
er Frakkar unnu heppnissigur í
Reykjavík, 2:1. íslendingar eiga
stóran hóp af baráttumönnum og
það er ekki hægt annað en dáðst
að dugnaði þeirra og vilja,“ sagði
Milan Macala, þjálfari tékkneska
landsliðsins, eftir leikinn.
„Við ætluðum okkur að byija
Evrópukeppnina vel og ég vonaðist
eftir fleiri mörkum. Mínir menn
fóru illa með góð færi, en þegar
við skoruðum fyrsta markið sagði
ég að fleiri mörk myndu fylgja í
kjölfarið. Það tókst okkur ekki og
getum við kannski nagað okkur í
handarbökin fyrir færin sem við
nýttum ekki. Óhagstæð markatala
hefur orðið okkur að falli í undan-
keppni," sagði Macala.
Hann sagðist ekki geta annað
en dáðst að litla íslandi sem ætti
svo marga leikmenn með sterkan
persónuleika. Hann sagðist eiga
erfitt verk framundan við val á
landsliðinu. „Eg þarf að kalla á
marga leikmenn erlendis frá sem
leika mismunandi tegundir af
knattspyrnu. En að leik loknum í
dag erum við þakklátir fyrir sigur-
inn, þvi að tvö stig er gott nesti
fyrir næstu átök,“ sagði Macala.
„Gef kost á mér
meðan ég er valinn“
- sagði Atli Eðvaldsson, fyrirliði landsliðsins
Háværar raddir hafa verið
uppi um að margir leikmenn
íslenska liðsins væru á síðasta
snúning með liðinu. íslenska liðið
væri skipað eldri leikmönnum og
tímabært væri að yngja upp.
Atli Eðlvaldsson er elsti leik-
maður íslenska liðsins og sagði
hann, að ef talað væri um gamlá
leikmenn væri greinilega átt við
sig: „Ég er ekki hættur. Og með-
an ég er valinn til þess að leika
fyrir hönd íslands mun ég ekki
svíkjast undan merkjum. Ég vona
að ég fái að spila nokkur ár í við-
bót,“ sagði Atli.
„Menn hafa rætt um uppbygg-
ingu á nýju landsliði en ég spyr:
Hvað er uppbygging? Er það ekki
að yngri menn fái að spila við
hlið þeirra eldri? Úrslitin f 21árs
leiknum sýndu okkur að strákarn-
ir ungu eiga margt eftir ólært.
Hvað gerðist í kvöld? Þetta erum
við, gáfum allt sem við áttum í
leikinn og þegar 20 míntur voru
eftir af leiknum voru það við sem
gátum barið á bijóstið. Við lékum
þetta létt þegar Tékkarnir voru
að bugast og með þessu hugar-
fari vil ég sjá Island spila í fram-
tíðinni. Eg er alltaf tilbúinn til
þess að víkja fyrir betri mönnum.
Hvenær það verður veit enginn,“
sagði Atli.
Atli „át“ Tom-
as Skuhravy
Eg er ánægður að þetta verk er
búið. Það var erfitt að spila
gegn Tékkunum sem eru stórir,
sterkir og fljótir. Með smá heppni
hefðum við getað náð betri úrslitum
því að þegar Tékkar skoruðu vissum
við og heyrðum að þeir væru að
brotna. Það var ánægjulegt að sjá
hvernig Atli Eðvaldsson hreinlega
„át“ Tomas Skuhravy. Hann sást
ekki í leiknum," sagði Þorgrímur
Þráinsson.
Ég hef aldrei spilað í þvílíkri
stemmningu og var hér, hávaðinn
frá áhorfendum var svo mikili að
við heyrðum ekki hver í öðrum þó
við hrópuðum til næsta manns af
fimm metra færi. Stemmningin í
liðinu var mikil, en svekkelsið enn
meira eftir leikinn það sást best á*
því að það var dauðaþögn inní bún-
ingsklefanum," sagði Þorgrímur.
Sævar Jónsson, félagi Þorgríms
í Val, sagði að mistökin hefðu kom-
ið strax í byijun. „Við lékum allt
of aftarlega og það varð til þess
að pressan varð meiri á vöminni.
Markið sem við fengum á okkur*
kom á versta tíma,“ sagði Sævar.