Morgunblaðið - 03.10.1990, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 1990
33
Meira um Suður-Afríku
eftirHildi
Þórðardóttur
Föstudaginn 31. ágúst skrifaði
Einar Þ. Guðjohnsen grein í Morg-
unblaðið um Súður-Afríku þar sem
hann segir að vandamálið sé ein-
ungis barátta svartra gegn svört-
um og hvernig eyða megi þeim
átökum. Ég vil hér leiðrétta nokk-
ur atriði til að lesendur fái rétta
mynd af vandamálinu.
Einar segir að þeir íbúar sem
fyrir voru í landinu við landnám
Hollendinga og Breta, hefðu verið
hottintottar, fiökkufólk sem hörf-
uðu undan og búskmenn, sem
hurfu og kom aþlrei til kasta
þeirra.
Reyndin er sú að Khoi khoi-fólk-
ið, sem Einar kallar hottintotta,
því niðrandi nafni sem hvítum
mönnum er gjarnt, hörfuðu ekki
undan að ástæðulausu. Eftir að
Hollendingar höfðu hlunnfarið þá
í viðskiptum og svikið þá eins og
þeir frekast gátu, hóf Khoi khoi-
fólkið röð stríða gegn þeim. Yfir-
burðir Hollendinga voru svo miklir
að þeir hröktu þá innfæddu sífellt
lengra inn í landið og hnepptu í
þrældóm, brenndu eigur og rændu
bústofni þeirra.
San-þjóðin, sem Einar kallar
búskmenn, hurfu ekki, enda er
erfítt að hverfa bara si svona í
þessum heimi, heldur var þeim
útrýmt á svipaðan hátt og Khoi'
khoi-fólkinu, með skipulagðri her-
ferð gegn þeim. Xhosa- og Zulu-
menn veittu einnig mótspyrnu og
tókst þeim hvítu ekki að berja á
þeim fyrr en Bretar komu og að-
stoðuðu þá.
Eftir Búastríðið sem lauk 1902,
fengu Búar aftur hús sín og búpen-
ing, en þeir Afríkumenn sem börð-
ust við hlið Breta gegn Búum var
skipað að skila aftur þeim naut-
gripum sem þeir höfðu komist yfir
i stríðinu og var ekki bættur sá
búpeningur sem Bretar og Búar
höfðu tekið af þeim. Þetta gerði
það að verkum að þeir svörtu urðu
ávallt fátækari en þeir hvítu ríkari.
Samkvæmt stjórnarskránni er
stjóminni skylt að skipta landinu
á milli hvítra, svarta, litaðra og
fólks af asískum uppruna. En ekk-
ert segir til um hvernig eða hve
jafnt skuli skipta. Því úthlutaði
stjórnin bestu svæðunum til hvítra.
Það voru landsvæði þar sem málm-
ar, demantar og gull finnast í
jörðu, en hinum voru úthlutuð
landsvæði þar sem örugglega
finnast engar auðlindir í jörðu og
landið hijóstrugt og vonlaust til
ræktunar.
Þessi svokölluðu heimalönd eða
bantustans blökkumanna eiga að
vera griðasvæði frumbyggja en
staðreyndin er sú að ekki er nokk-
ur leið fyrir fjölskyldu að draga
þar fram lífið. Því leita blökku-
menn til „hvítu borganna" í leit
að vinnu, í þeirri von að þeir geti
sent peninga heim til eiginkvenna,
og barna. Þar tekur ekki betra við
því þeir eru meðhöndlaðir eins og
útlagar sem er skylt að yfirgefa
„hvítu göturnar" um leið og vinnu
lýkur.
Einnig er þeim skylt að bera
vegabréf á sér, með upplýsingum
m.a. um þjóðflokk, atvinnuleyfi,
skattagreiðslur, fyrri störf og nú-
verandi vinnustað með undirskrift
átvinnurekanda, sem verður að
endurnýja mánaðarlega. Séu þeir
ekki með vegabréfið lenda þeir í
fangelsi eða verða 'að borga háa
sekt.
Einar segir að Zulumenn hafi
ekki viljað verða sjálfstætt ríki.
Það gefur augaleið að þjóð, sem
býr á svo óhijálegu landi, er ekki
fær um að sjá sjálfri sér farborða.
Stöðugt flytja hinir hvítu fleiri
blökkumenn nauðuga út í þessi
heimalönd, þannig að sífellt krepp-
ir að. Til að lesendur fái einhveija
hugmynd um fjölda og stærðar-
hlutföil þá taka heimalöndin yfir
13% af allri Suður-Afríku en „hvítu
svæðin" ná yfir hin 87%. Blökku-
menn eru 24 milljónir en hvítir
menn 4,6 milljónir. Stefna stjórn-
valda er að flytja sem flest blökku-
fólk til heimalandanna og gera þau
svo sjálfstæð og firra sig aliri
ábyrgð örlögum þeirra. Ef þetta
gengur eftir verður ekki einn ein-
asti blökkumaður með ríkisborg-
ararétt í Suður-Afríku og geta
„Það sem mestu skiptir
í málefnum Suður-
Afríku er að menn séu
ekki myrtir eða hneppt-
ir í fangelsi fyrir að
viðra skoðanir sínar og
að það sé ekki skotið á
börn í friðsamlegum
mótmælum af því þau
vilja ekki læra á tungu-
máli kúgara þeirra.“
þeir hvítu þá óhræddir setið á öllum
auðæfunum.
Ríkisstjórn hvíta minnihlutans
notar heimalandakerfið einnig til
þess að ýta undir tungumála- og
ættflokkamun, sem annars er
hverfandi vegna þess að blökku-
menn úr öllum ættflokkum vinna
og búa saman í borgum Suður-
Afríku. Þetta er ein ástæða átaka
meðal blökkumanna innbyrðis en
ekki „ólík lífsviðhorf og sundur-
lyndi“ eins og Einar keipst að orði.
Einar segir einnig: „Paásar okkar
lýðræði t.d. hjá Zulu-mönnum?“
Þetta er hins vegar ekki málið. Það
sem mestu skiptir í málefnum
Suður-Afríku er að menn séu ekki
myrtir eða hnepptir í fangelsi fyrir
að viðra skoðanir sínar og að það
sé ekki skotið á börn í friðsamleg-
um mótmælum af því þau vilja
ekki læra á tungumáli kúgara
þeirra. Þetta er spurning um að
fólk sé ekki bannfært fyrir að vílja
koma á endurbótum og að fólk sé
ekki réttdræpt vegna litarháttar.
Þetta er spurning um almenn
mannréttindi. Ég held nú að „okk-
ar“ lýðræði sé mannúðlegra heldur
en ógnarstjórnin og sá fasismi sem
ríkir nú í Suður-Afríku.
Sú frelsisskrá sem blökkumenn
í Suður-Afríku beijast fyrir hljóðar
ekki upp á stjómarbyltingu og að
svartir taki vöidin. Hún íjallar um
að allir skuli jafnir fyrir lögum,
njóti jafnra mannréttinda, og hafi
jafnan rétt til menntunar óháð lit-
arhætti. Hún fjallar um að landinu
skuli skipt jafnt milli þeirra sem
ýrkja það og alþýðan eigi einnig .
hlutdeild í auðlegð landsins. Þeim
sem landið byggja skuli tryggja
vinnu og húsnæði, öryggi og þæg-
indi. Þetta hljómar ekki ósann-
gjarnt í okkar augum eða hvað.
Einar tálar einnig um í greininni
að þegar viðskiptabanni við
Suður-Afríku var komið á að
íslensk ferðaskrifstofa hafi þurft
að hætta við skipulagða ferð „illu
heilli“. Svo segir hann i lok greinar-
innar að við ættum ekki að skerða
ferðafrelsi okkar. Ég vil hins vegar
benda á að viðskiptabannið hefur
á engan hátt skert ferðafrelsi okk-
ar. OUum er fijálst að ferðast til
Suður-Afríku svo framarlega sem
þeir hafi ekki verið bannfærðir af
ríkisstjórninni þar eða sendir í út-
legð.
Höfundur stundar n&m í
mannfræði við Háskóla íslands.
SJÁLFSTÆDISFLOKKURINH
FÉLAGSSTARF
SAMBAND UNCRA
SJÁLFSTÆÐISMANNA
Fundur um
ástandið við
Persaflóa
Fimmtudaginn 3. október halda utanrikis-
nefndir SUS og Heimdallar almennan fund
um ástandið við Persaflóa. Andrés Magn-
ússon blaðamaður á Morgunblaðinu grein-
ir frá stöðu mála. Allir eru velkomnir á fund-
inn sem hefst kl. 20.30 i Valhöll.
Utanríkisnefnd SUS.
Auglýst eftir framboðum
til prófkjörs á Suðurlandi
Ákveðið hefur verið að prófkjör um val frambjóðenda Sjálfstæðis-
flokksins í Suðurlandskjördæmi við næstu alþingiskosningar fari fram
laugardaginn 27. október nk.
Val frambjóðenda fer fram með tvennum hætti:
a) Gerð skal tillaga um frambjóðendur til yfirkjörstjórnar innan ákveð-
ins frests sem yfirkjörstjórn setur. Tillagan er því aðeins gild að
hún sé bundin við einn flokksmann og getur enginn flokksmaður
staðið að fleiri tillögum en 4. Tillagan skal borin fram af 20 fiokks-
mönnum búsettum á Suðurlandi.
b) Kjörnefnd er heimilt að tilnefna prófkjörsframbjóðendur til viðbót-
ar frambjóðendum samkvæmt a-lið, eftir því sem þurfa þykir.
Hér með er auglýst eftir framboðum til prófkjörs samkvæmt a-lið
hér að ofan. Skal framboð vera bundið við flokksbundinn einstakling
enda liggi fyrir skriflegt samþykki hans um að hann gefi kost á sér
til prófkjörs. Frambjóðendur skulu vera kjörgengir i næstu alþingis-
kosningum. 20 flokksbundnir sjálfstæðismenn skulu standa að
hverju framboöi og enginn flokksmaður getur staðið að fleiri framboð-
um en 4.
Framboöum, ásamt mynd af viðkomandi, skal skila til einhvers neðan-
greindra yfirkjörstjórnarmanna eigi siðar en kl. 12.00 á hádegi
fimmtudaginn 11. október nk.
Yfirkjörstjórn Sjálfstæðisflokksins á Suðurlandi.
Fannar Jónasson, Hellu.
Þorsteinn S. Ásmundsson, Selfossi.
Helgi ívarsson, Hólum, Stokkseyrarhreppi.
Ólafur Elísson, Vestmannaeyjum.
Einar Kjartansson, Þórisholti, Mýrdal.
Kjördæmisráð
Austurlands
Fundur verður haldinn á Hótel Borgarnesi 10. október kl. 20.00.
Tekin verður ákvörðun um framboðsmál.
Auglýst eftir f ramboðum
til prófkjörs f Reykjavík
Ákveðið hefur verið að prófkjör um val frambjóðenda Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík við næstu alþingiskosningar fári fram dagana
26. og 27. október nk.
Val frambjóðenda fer fram með tvennum hætti:
a) Gerð skal tillaga um frambjóðendur til yfirkjörstjórnar innan ákveð-
ins frests sem yfirkjörstjórn setur. -Tillagan er því aðeins gild að
hún sé bundin við einn flokksmann og getur enginn flokksmaður
staðið að fleiri tillögum en 8. Tillagan skal borin fram af 20 flokks-
mönnum búsettum í Reykjavík.
b) Kjörnefnd er heimilt að tilnefna prófkjörsframbjóðendur til viðbót-
ar frambjóðendum samkvæmt a-lið, eftir þvi sem þurfa þykir.
Hér með er auglýst eftir framboðum til prófkjörs samkvæmt a-lið
hér að ofan. Skal framboð vera bundið við flokksbundinn einstakling
enda liggi fyrir skriflegt samþykki hans um að hann gefi kost á sér
til prófkjörs. Frambjóðendur skulu vera kjörgengir í næstu alþingis-
kosningum. 20 flokksbundnir sjálfstæðismenn skulu standa að
hverju framboði og enginn flokksmaður getur staðið að fleiri framboð-
um en 8. _
Framboðum ber að skila, ásamt mynd af viðkomandi og stuttu
æviágripi, til yfirkjörstjórnar á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík, í Valhöll, Háaleitisbraut 1, eigi síðar en kl. 12.00 á há-
degi mánudaginn 8. október nk.
Yfirkjörstjórn Sjálfstæðisflokksins i Reykjavik.
F ÉLAGSÚF
I.O.O.F. 9 = 172103872 =9. III
I.O.O.F. 7 = 172103872 = 9.1.
□ Glitnir 599010037 Fjhst.
Atkv.
□ HELGAFELL 59901037 VI 2
SAMBAND ÍSLENZKRA
KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Kristniboðssamkoma á Háaleit-
isbraut 58 í kvöld kl. 20.30.
Ræðumaöur Skúli Svavarsson.
Allir velkomnir.
Ðútivist
GRÓFINNII • REYKJAVÍIC • SÍMIAÍMSVARI14601
Myndakvöld
fimmtud. 4. okt. í Fóstbræðra-
heimilinu, Langholtsvegi 109,
hefst kl. 20.30. Sýndar myndir
úr Þórsmerkurgöngunni, grill-
veislunni, göngu á Þríhyrning og
öðrum ferðum sumarsins. Kaffi-
hlaðborð í hléi innifalið i miða-
verði.
Tunglskinsganga
föstud. 5. okt. kl. 20.
Þingvellir á fullu tungli. Gengið
niður Almannagjá að Vatnsviki.
Fjörubál við vatnið.
Um næstu helgi,
Básar í haustskrúða ógleyman-
leg upplifun. Gönguferðir við
allra hæfi um Goðaland og Þórs-
mörk.
Landmannaafréttur: Dóma-
dalsleið - Rauðfossafjöll. Gist
i Laugum. Miðar og pantanir í
helgarferðir á skrifstofu.
Sjáumst!
Útivist.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Bilbliulestur í kvöld kl. 20.30.
Ræðumaður: Hafliði Kristins-
son. Allir hjartanlegavelkomnir.
REGLA MUSTERISRIDDARA
ARMHekla
3.10. 19.45 SÚR 20.00 HS 20.10
VS K MT A.
Seltjarnarneskirkja
Samkoma í kvöld kl. 20.30.
Sönghópurinn Án skilyrða, Þor-
valdur Halldórsson stjórnar.
Prédikun og fyrirbænir.,
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
FERÐAFÉLAG
ÍSIANDS
ÖLDUGÖTU 3 S: 11798 19533
Miðvikudagur 3. okt.
kl. 20
Búrfellsgjá, kvöldganga og
blysför. Létt og skemmtileg
ganga í tunglskininu. Tungl er í
fyllingu á fimmtud. Búrfellsgjá
er ein fallegasta hraunstöð Suð-
vesturlands. Verð 500,- kr. frítt
fyrir börn m. foreldrum sínum.
Blys kr. 100,- Brottför frá Um-
ferðarmiðstöðinni, austanmeg-
in.
Heiðmerkurdagur er á sunnu-
daginn 7. okt. kl. 13. Verið vel-
komin!
Ferðafélag íslands.
HkENNSLA
Vélritunarkennsla
Ný námskeið eru að hefjast.
Ath. VR og BSRB styrkja félaga
sína til náms á námsk. skólans.
Vélritunarskólinn, s. 28040.