Morgunblaðið - 03.10.1990, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. OKTOBER 1990
43
Minning:
Skúli Ólafsson
Fæddur 16. febrúar 1911
■ Dáinn 16. september 1990
Okkur langar í örfáum orðum að
minnast hans afa sem nú er farinn
frá okkur og kominn til eins af okk-
ur, hans Þrastar sem við kvöddum
öll í janúar sl.
Afi fæddist á Tjörn á Vatnsnesi í
Vestur-Húnvatnssýslu 16. febrúar
1911. Ömmu okkar Guðbjörgu Ólsen
kynnist hann á Hvammstanga og
bjuggu þau þar til ársins 1966. Með
henni eignaðist hann sjö böm sem
eru Jón Bergmann, Dóra, Sigríður
Guðrún, Unnur, Lára, Elínborg og
Daníel Hörður, einnig ólst upp hjá
þeim Hildur Ósk Jóhannsdóttir.
Árið 1966 fluttu afi og amma til
Reykjavíkur og hafa búið þar síðan.
Alltaf var gott að koma í heimsókn
til þeirra í Fannó, þær minningar
gleymast aldrei. Afi var hæglátur
maður og sagði fátt og krafðist ekki
mikils fyrir sjálfan sig, undi sér
mest við iestur góðra bóka.
Við þökkum afa samfylgdina og
biðjum Guð að blessa ykkur Þröst
og gefa ömmu styrk og huggun.
„Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.‘‘ , „ . ,
v 3 8 (V. Briem)
Barnabörn
Sigurður Bjama-
son - Kveðjuorð
Sigurður Bjarnason rafvirkja-
meistari lést í Reykjavík 6. septem-
ber sl., 93 ára að aldri. Hann fædd-
ist að Búðum í Fáskrúðsfirði 22.
ágúst 1897. Foreldrar hans voru
Þórunn Eiríksdóttir útvegsbónda
Þórðarsonar á Vattamesi, mikils at-
hafnamanns sinnar tíðar, og Bjarna
Sigurðssonar, hreppsstjóra á Eski-
firði, en þar ólst Sigurður upp. Bjarni
varð síðar skrifstofustjóri Varðar og
Sjálfstæðismanna í Reykjavík. Hús
Bjarna og afa stóðu sitt hvoru meg-
in við Hlíðarendalækinn og því tölu-
verð tengsl þar á milli, sérstaklega
barna hans sem ég kynntist vel. Sig-
urður ólst upp í byijun vélbátaaldar
og fór snemma á sjóinn og var ekki
gamall þegar hann varð skipstjóri
og þótti með afbrigðum duglegur
maður. Einhvem veginn fór það svo
að fjölskyida Bjarna fluttist suður til
Reykjavíkur, að undanteknum Eiríki,
sem var lengi síðan á Eskifirði. Það
var svo 1942 er ég flutti á Snæfells-
nes að við Sigurður endurnýjuðum
gömul kynni sem entust báðum vel.
Sigurður kvæntist Ingibjörgu Guð-
bjarnardóttur og var þeirra heimili á
Lindargötu 29 og því stutt að fara
þegar til Reykjavíkur var komið og
ósjálfrátt urðu ferðir mínar þangað
margar enda vinum að mæta. Sig-
urður lærði rafmagnsfræði eftir að
Kveðja:
Pálína Bjömsdóttir
Nú þegar ég er farin af landi
brott, búin að kveðja alla mína vini,
á ég enn eftir að kveðja eina góða
konu.
Mikið var hún mér alltaf góð. í
raun voru samvistir okkar stuttar,
alltof stuttar. Falleg minningin um
hana mun fýlgja mér alla ævi mína.
Við tengdumst slíkum böndum að
erfitt var að slíta.
Vegir okkar Pálu lágu saman er
ég var aðeins fjögurra ára gömul.
Þeir skildu íjórum árum síðar. Þetta
er ekki langur tími en þeir atburðir
sem við gengum í gegnum urðu til
þess að tengja okkur sterkum tilfinn-
ingaböndum.
Alltaf var jafn mikið tilhlökkunar-
efni að fara til Eyja og vera hjá
Pálu og Inga. Tekið var á móti með
opnum örmum og óendanleg hlýja
streymdi frá þeim báðum. Hún vafði
mig elsku sinni og kærleika. Hjá
henni fann ég öryggi enda leið mér
aldrei betur en þegar ég var úti í
Eyjum.
Pála lagði mikið upp úr matargerð
og var snillingur á því sviði. Ég man
enn hvað maturinn var góður hjá
henni. Hún lagði oft á sig mikla vinnu
í því sambandi og hafði gaman af.
Hún saumaði mikið og ófá skiptin
kom ég heim með fullar töskur af
nýsaumuðum fötum og pijónaðar
peysur, bæði á mig og móður mína.
Pála mín hafði mikla þörf fyrir að
hjálpa og gleðja annað fólk, þannig
var hún stöðugt veitandi. Jafnvel
þegar hún átti sjálf um sárt að binda
reyndi hún að hugga og gleðja vini
sína.
Níu dögum fyrir andlát Pálu, í
júnímánuði síðastliðnum, kom ég í
heimsókn til hennar. Þá voru liðin
fimm ár frá því að við sáumst síðast.
Við ræddum um erfiða hluti sem við
höfðum aldrei rætt áður. Ég er sann-
færð um að Guð leiddi mig til henn-
ar þennan dag. Hann gaf okkur þá
stund sem ég hafði beðið eftir í 13
ár og ef til vill hún líka. Ekki hvarfl-
aði að mér þegar ég kvaddi hana að
þetta væri mín síðasta kveðja til
hennar. Við höfðum meira að segja
ráðgert að ég kæmi til þeirra síðar
um sumarið og myndi dvelja hjá
henni og Inga, eins og forðum.
Guð blessi Pálu og varðveiti að
eilífu. Ég kveð hana með þessu er-
indi Halldórs Laxness:
Hvert örstutt spor var auðnuspor með þér,
hvert andartak er tafðir þú hjá mér
var sólskinsstund og sæludraumur hár
minn sáttmáli við Guð um þúsund ár.
Sigurbjörg Ó. Áskelsdóttir,
Noregi.
hann kom til Reykjavíkur og kom
sér upp góðri vinnustofu við tms sitt
á þeirra tíma mælikvarða og hafði
menn í námi og þjónustu.
Hann var góður húsbóndi, ekki
vissi ég annað. Sigurður var alla tíð
sjálfstæðismaður, það var hann í
raun og fórnaði flokknum miklu. Þá
voru góðir forystumenn sem hann
dáði og taldi engan vanda að vinna
fyrir. Þá fengu menn ánægjuna fyrir
snúð sinn sagði Sigurður oft við mig
og gaman að lifa. Hann var einn
þeirra sem stóð við það sem hann
sagði og gætti þess að lofa ekki
meiru en hægt var að standa við.
Því urðu margir á vegi hans og leit-
uðu hans. Ég geri ráð fyrir að öll
hans vinna í rafmagninu hafi ekki
verið innheimt með hörku, því hann
vissi um örðugleika þeirra sem þá
stóðú í byggingum og léði þeim eftir
því sem efni stóðu til, en yfirleitt
þurfti hann ekki að hafa mikið fyrir
því að innheimta því flestir voru eins
og hann að þeir vildu standa í skil-
um. Hvort hann hafði nokkurnt-
ímann lögfræðing eins og nú tíðkast,
er mér ekki í minni. Það sem ekki
næst inn með blíðu sagði hann, er
mér ekki að skapi að fáist með illu.
Já, hugsun hans Sigga er oft í huga
mínum. Þannig kom hann mér fyrir
sjónir bæði í orði og athöfnum. Ég
vissi hann bestan þegar erfitt var
um rafmagnsefni 1947 þegar ég stóð
í byggingu og fleiri munu hafa sömu
sögu að segja.
Það var elskulegt að eiga Lindar-
götuna í þjóðbraut þegar til
Reykjavíkur kom. Bæði að fá sér
hressingu og eins að ræða saman.
Þá fóru oft mínúturnar í klukkutíma.
En þetta áttu aðeins að vera þakkar-
orð og kveðja þegar vinur minn sigl-
ir nú á sæ eilífðar, ljóss og vors, sem
við treystum báðir. Fylgja honum á
þeirri leið mínar innilegustu kveðjur
og þökk. Guð blessi góðan dreng og
traustan.
Árni Helgason
Minninff:
*
Isak Randver
Guðjónsson
Fæddur 21. september 1933
Dáinn 21. september 1990
Eins og hafaldan fellur ein og ein
upp við fjörunnar sand, eins er með
jarðlífið, dauðans kvöld og lífsins
morgun.
Fyrstu kynni mín af Isak heitnum
voru á Reykjalundi. Þar vorum við
samtímis í mörg ár. Hann var einn
af albestu vistmönnum þar, laus við
alla stríðni og sýndarmennsku. Ég
hafði meira álit á honum heldur en
sumum af þeim persónum sem þar
voru. Eftir að okkar leiðir skildu,
hitti ég hann aftur á vistheimilinu í
Víðinesi. Þar var hans framkoma
eins og á Reykjalundi forðum daga
og ég tel víst að allt vistfólk í Víði-
nesi, 'sem kynntist honum, sé mér
sammála. En lögmáli hins skamm-
vinna jarðlífs verður ekki breytt og
allir fara að lokum yfir móðuna
miklu.
Ég votta aðstandendum hans og
kunningjum, mína samúð. Drengur
góður hefur kvatt. Blessuð veri minn-
ing hans.
Þorgeir Kr. Magnússon
+ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og afi, JÓN KR. JÓNSSON, Tjarnargötu 9, Sandgerði, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 5. október kl. 13.30. Magnea Dóra Magnúsdóttir, Ingunn G. Jónsdóttir, Kristjana Jónsdóttir, Elín S. Jónsdóttir Tinna Guðjónsdóttir, Magnús Gylfi Hilmarsson.
t Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu og móður, ODDNÝJAR LAXDAL, Eikarlundi 16. Pétur Ásgeirsson, Margrét Líney Laxdal, Jóhanna Helga Pétursdóttir.
\ + Kæru vinir, fjær og nær. Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför eigin- manns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, KRISTJÁNS V. JAKOBSSONAR frá Patreksfirði, Jökulgrunni 1-B, Reykjavík. Þorbjörg Jónsdóttir, Jakob V. Kristjánsson, Guðrún Gestsdóttir, Lea Kristjánsdóttir, Jónatan Guðmundsson, börn og barnabörn.
+ Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við fráfall mannsins mins, föður okkar, tengdaföður og afa, ÁGÚSTAR KJARTANSSONAR, Blönduhlíð 10, Reykjavík, Sólveig Sigurðardóttir, Rúnar Ágústsson, Árný Þorsteinsdóttir, Erna Ágústsdóttir, Jörgen Már Berndsen, Hrafnkell Óskarsson, Bára Þórðardóttir, Pálína Ágústsdóttir, Guðmundur S. Garðarsson, Sigrún Ágústsdóttir, Sigurður Þórir, Ágúst Þór Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn.
Lokað Skrifstofa okkar verður lokuð í dag 3. október frá hádegi vegna jarðarfarar ÞORVARÐAR ÞORSTEINSSONAR frá Ytri-Þorsteinsstöðum í Haukadal, Grettisgötu 57, Reykjavík. Lögmenn Ránargötu 13, Hilmar Ingimundarson hrl., Kristján Stefánson hdl.
SIEMENS
Frystikistur og frystiskápar
Siemens frystitækin eru eins og aðrar
vörur frá þessu öndvegisfyrirtæki:
traust, endingargóð og falleg.
Lítið inn til okkar og skoðið úrvalið.
SMITH&NORLAND
NÓATÚNI 4 • SlMI 28300